Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.10.2014, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 06.10.2014, Qupperneq 6
6. október 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6 Verkir? Verkjastillandi og bólgueyðandi! SKIPTING ATVINNUTEKNA ÍSLENDINGA Hagstofan raðar skattgreiðendum niður í tíu jafnstóra hópa eft ir tekjum árið 2013. Hver litur táknar 10% skattgreiðenda og hlutfall hvers hóps af heildartekjum Íslendinga 20% skattgreiðenda afl a 56,3% teknanna, 479 ma. kr. TEKJUHÆSTU 40% skattgreiðenda afl a 8,1% teknanna, 69,8 ma. kr. TEKJULÆGSTU 35,5% af heildartekjum Íslendinga20,8%14,1%9,5%6,9%5,0% 0,5% 2,1% 2,6% 2,9% 4,4 ma. 17,9 ma. 25,1 ma. 22,4 ma 42,6 ma. 59,1 ma. 80,5 ma. 119,8 milljarðar króna 176,9 milljarðar króna 302,6 milljarðar króna TEKJUHÆSTI HÓPURINN 330 ÞÚSUND Meðalárstekjur einstaklings í fyrsta tekjuhópnum 1,26 milljónir Meðalárstekjur einstaklings í öðrum tekjuhópnum 2,16 milljónir Meðalárstekjur einstaklings í þriðja tekjuhópnum 2,87 milljónir Meðalárstekjur einstaklings í fj órða tekjuhópnum 3,65 milljónir Meðalárstekjur einstaklings í fi mmta tekjuhópnum 4,73 milljónir Meðalárstekjur einstaklings í sjötta tekjuhópnum 6,06 milljónir Meðalárstekjur einstaklings í sjöunda tekjuhópnum 8,05 milljónir Meðalárstekjur einstaklings í áttunda tekjuhópnum 10,95 milljónir Meðalárstekjur einstaklings í níunda tekjuhópnum 20,25 milljónir Meðalárstekjur einstaklings í tíunda tekjuhópnum HEILDARTEKJUR 2013 851 MILLJARÐUR HEILDARFJÖLDI 193.231 LAUNÞEGI VINNUMARKAÐUR Heildartekjur launahæstu tíu prósenta Íslend- inga hafa hækkað um 80 milljarða frá árinu 2010. Þessi hópur var með yfir 20 milljónir að meðaltali í árslaun í fyrra og laun þeirra voru 35,6 prósent allra greiddra launa á Íslandi það ár. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands yfir heildar atvinnutekjur Íslend- inga sem Fréttablaðið hefur tekið saman. Vilhjálmur Birgisson, for- maður Verkalýðsfélags Akraness, telur þetta sláandi. Hagstofan raðar einstak lingum niður í tíu jafnstóra hópa eftir tekjum. Þeir sem minnstar hafa tekjurnar raðast í fyrsta hópinn og svo koll af kolli. 19.324 einstak- lingar eru í hverjum tekjuhópi. Efstu tveir tekjuhóparnir eru með samtals um 479 milljarða í atvinnutekjur á síðasta ári borið saman við 22,2 milljarða heildar- tekjur neðstu tveggja hópanna. Atvinnutekjur efsta hópsins, hæst launuðu einstaklinganna, hafa hækkað um 26 prósent frá árinu 2010 eða um 80 milljarða króna. Efstu tveir tekjuhóparnir, aðeins fimmtungur allra launþega lands- ins, fengu greidd yfir helming allra launa á landinu árið 2013. Hafa ber í huga að fjölmargir í lægstu hópunum eru námsmenn á námslánum og nemar sem búa enn hjá foreldrum, sem gæti skekkt töluvert laun neðstu hópanna. Því gefa tekjur þeirra ekki glögga mynd af fjárhagsstöðu hópsins í heild. Þegar allar tekjur eru skoð- aðar sést að meðalárstekjur ein- staklinga í efsta tekjuhópnum eru rúmar 20 milljónir, tvöfalt hærri en í næsta hóp. Lægsti tekjuhópur- inn er með um 330 þúsund krónur í árslaun og næsti fyrir ofan með um 1.26 milljónir í árslaun. Meðalárslaun Íslendinga sam- kvæmt þessu er því 6,03 milljónir. Vilhjálmur Birgisson telur þessar tölur sláandi og vera til- efni til að verkalýðshreyfingin í heild fari vandlega í gegnum þess- ar tölur. „Þetta eru sláandi tölur og kannski staðfesting á því gífur- lega launaskriði sem við höfum verið að sjá hjá þeim launahæstu í landinu. Ég vona að við munum fara vandlega í gegnum þessar tölur en við fyrstu sýn virðist þetta vera ákveðin staðfesting þess sem maður hefur haft tilfinn- ingu fyrir, að misskiptingin sé að aukast aftur í íslensku þjóðfélagi,“ segir Vilhjálmur. Hann bendir á að hlutur Alþýðusambandsins sé nokkur. „Sú láglaunastefna sem Alþýðusambandið hefur verið að reka undanfarin ár er kannski að þrotum komin.“ Fram kemur í frétt Hagstof- unnar að eiginfjárstaða allra fjöl- skyldugerða batnaði á árinu 2013. Þetta á einkum við um einstæða foreldra en staða eiginfjár hjá þeim jókst um tæp 36 prósent árið 2013. Hins vegar þegar skoðaðar eru launatekjur Íslendinga og hlutur þeirra í heildarlaunatekjum kemur í ljós að launatekjur efstu tekju- hópanna hafa hækkað frá hruni en laun annarra hópa hafa staðið í stað eða lækkað sem hlutfall af heildartekjum landsmanna. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir þessar tölur sýna að haga þurfi skattlagn- ingu á Íslandi þannig að hún jafni tekjur landsmanna. „Þessar tölur sýna hversu mikil- vægt það er að halda tekjumun í samfélaginu í lágmarki. Um allan heim er að vaxa skilningur á því að skattleggja verður sérstaklega allra hæstu tekjur og allra mestan auð, ef vel á að fara. Misskipting grefur undan jöfnum tækifærum og félagslegu réttlæti,“ segir Árni Páll Árnason. Sveinn Arnarsson sveinn@frettabladid.is Hæstu laun hækkað um 80 milljarða Þau tíu prósent landsmanna sem hafa hæstar tekjur eru með um 35,6 prósent af heildaratvinnutekjum. „Sláandi tölur,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. Tölur Hagstofunnar benda til þess að meðalárslaun Íslendinga séu rétt yfir sex milljónum. MISJÖFN KJÖR ÞJÓÐAR Sextugfaldur munur er á meðaltekjum hæsta og lægsta launahópsins á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Ég vona að við munum fara vandlega í gegnum þessar tölur en við fyrstu sýn virðist þetta vera ákveðin staðfesting þess sem maður hefur haft tilfinningu fyrir, að misskiptingin sé að aukast aftur í íslensku þjóðfélagi. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.