Fréttablaðið - 06.10.2014, Síða 47

Fréttablaðið - 06.10.2014, Síða 47
MÁNUDAGUR 6. október 2014 | MENNING | 23 MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER Í HÖRPU Setning Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra. Afkoma sjávarútvegsins 2013 – sjávarútvegsgagnagrunnur Deloitte Jónas Gestur Jónasson, löggiltur endurskoðandi og meðeigandi Deloitte ehf. Konur í karlaheimi! Skiptir það máli? Erla Björg Guðrúnardóttir, framkvæmdastjóri Marz Seafood. Styrk stoð í atvinnulífinu Ólafur Garðar Halldórsson, hagfræðingur á efnahagssviði SA. Þróun, aðferðir og afurðir Ólafur Helgi Marteinsson, varaformaður LÍÚ og framkvæmdastjóri Ramma og Primex. Mikilvægi íslensks sjávarútvegs í starfsemi Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna Þór Ásgeirsson, aðstoðarforstöðumaður Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Fundarstjóri: Margrét Sanders formaður SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu og framkvæmdastjóri hjá Deloitte.Skráning á deloitte.is Sjávarútvegsdagurinn Hörpu – Silfurbergi 8. október, kl. 8.30-10 Málefni sjávarútvegsins verða rædd frá ýmsum áhugaverðum hliðum. Verð kr. 3.900. Morgunverður og skráning frá kl. 8.00. Dagskrá FERSKUR OG STERKUR Sigurður Ingi Jóhannsson Ólafur Helgi Marteinsson Jónas Gestur Jónasson Þór Ásgeirsson Erla Björg Guðrúnardóttir Margrét Sanders Ólafur Garðar Halldórsson Uppselt er á eina vinsælustu tón- listarhátíð heims, Glastonbury, en miðarnir fóru í sölu í gærmorgun og seldust upp á tuttugu og fimm mínútum. Þó er ekki enn orðið ljóst hver stærstu nöfn hátíðar- innar verða, en líklegast þykir að hljómsveitin Fleetwood Mac muni verða ein þeirra. Önnur bönd sem sögð eru vera líkleg eru eftirlifandi meðlimir Queen með Adam Lambert sem söngvara, Foo Fighters, Daft Punk eða Radiohead. Hátíðin verður haldin dagana 24. til 28.júní eins og nafnið gefur til kynna í Glaston bury á Englandi. -asi Seldist upp á 25 mínútum FOO FIGHTERS Sögusagnir eru um að þeir spili á hátíðinni. Keanu Reeves hefur fengið tíma- bundið nálgunarbann á konu sem var handtekin af lögreglu eftir að hafa brotist inn á heimili leik- arans fyrir skemmstu. Konan, sem heitir Kerry Colen Raus, er fimmtug en henni hefur nú verið gert að halda sig í hæfilegri fjar- lægð frá Reeves og heimili hans í Los Angeles í Kaliforníu. Dómsskjöl í málinu segja að Raus hafi verið handtekin þann 15. september síðastliðinn, þegar hún fannst á heimili leikarans. Hún hafði þá tekið sér sund- sprett í sundlauginni hans og farið í sturtu inni hjá honum. Hélt konan því fram að faðir hennar væri leikarinn Ray Win- stone og að honum væri haldið í vitnavernd af yfirvöldum. Hún heldur því einnig fram að Reeves eigi í samskiptum við Winstone. Dómsskjöl segja jafn- framt að Raus hafi verið gert að leggjast inn á geðdeild í kjöl- farið og að hún skuli halda sig í að minnsta kosti kílómetra fjar- lægð frá leikaranum og heimili hans. Reeves gaf út yfirlýsingu í kjöl- farið þar sem hann segist ekki kunna nein deili á konunni og að hann sé hræddur um öryggi sitt verði henni sleppt. Skal engan undra þar sem þetta er í annað sinn sem kona brýst inn á heimili leikarans, en hann kom að ann- arri konu heima hjá sér fjórum dögum áður en umrætt atvik átti sér stað. -asi Keanu Reeves fær nálgunarbann á aðdáanda Í annað sinn sem kona brýst inn á heimili leikarans á stuttum tíma. EKKI ÖRUGGUR Leikarinn Keanu Reeves óttast um öryggi sitt. Leikarinn Johnny Galecki var staddur hér á landi í maí síðast- liðnum, en hann fer með eitt af aðalhlutverkunum í þátt unum vinsælu Big Bang Theory. Leikarinn góðkunni var gestur spjallþáttastjórnandans David Letterman á dögunum þar sem þeir félagar ræddu heimsókn Galeckis til landsins. Sagði hann flesta landsmenn trúa á álfa og að Íslendingar eigi þann vafasama heiður að hér séu flestir alkóhól- istar miðað við höfðatölu. Ræddi Íslands- heimsókn við Letterman ÍSLANDSVINUR Johnny Galecki sagði Íslendinga trúa á álfa. ➜ Keanu Reeves lék síðast í kvikmyndinni John Wick, sem hin íslenska Elísabet Ronaldsdóttir klippti. Einn fremsti sundmaður heims, ólympíugullverðlaunahafinn Michael Phelps, hefur játað sig sigraðan. Hann sendi frá sér til- kynningu þess efnis í gær að hann ætlaði að leita sér hjálpar og væri farinn í meðferð. Phelps var handtekinn fyrir ölvunar- akstur í annað sinn í síðustu viku, en hann var handtekinn áður árið 2004. Hann sagði á Twitter-síðu sinni að síðustu dagar hefðu verið erfiðir og sagðist vera mjög ósátt- ur með sjálfan sig. -asi Farinn í meðferð ERFIÐIR TÍMAR Michael Phelps leitar sér hjálpar.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.