Akureyri


Akureyri - 27.03.2014, Qupperneq 14

Akureyri - 27.03.2014, Qupperneq 14
14 12. tölublað 4. árgangur 27. mars 2014 Heyrst hefur HEYRST HEFUR að pólitísk barátta sé vart hafin að nokkru marki fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Á Akureyri þykir mörgum sem adrenalínið skorti. Hefur heyrst að strategía frambjóðenda sé að segja fátt en „læka“ mikið á facebook. Lítið sé skrifað af greinum og hending ef skarpar átakalínu um málefni komi upp. Það er helst að mismun- andi sýn fólks á hvort Akureyri eigi að vera bær fyrir bíla eða fólk brýni sverðin... HEYRST HEFUR að helstu gagnrýnendur breytinganna á gamla Húsmæðraskólanum á Akureyri viðurkenni nú unnvörpum að almennt hafi vel til tekist. Hefur heyrst að engin áhöld séu um að starfsemi fatlaðra sé vel borgið í húsinu en þar hjálpar staðsetning mjög. Heyrðist þó við vígslu umbótanna í síðustu viku að Guðjón Samúelsson hefði e.t.v. ekki orðið alveg sáttur við að sjá breytingarnar á ganginum á efstu hæðinni. Hitt heyrist einnig að málið verði ekki til að kasta rýrð á störf bæjarfulltrúans Odds Helga... HEYRST HEFUR að Stefán Jakobsson, söngvari ættaður úr Mývatnssveit, hafi slegið gjörsamlega í gegn á tón- leikum í Hörpunni um síðustu helgi með stórri hljómsveit. Myndbönd hafa gengið á samskiptamiðlum sem bera frammistöðu kappans fagurt vitni. Hefur heyrst að Stebbi Jak eins og hann er kallaður hafi aldrei verið betri og eigi mikla framtíð fyrir sér – en nafn hans varð alþekkt eftir frammistöðu hans í söngkeppni framhaldsskólanna um árið þegar Stjakinn söng fyrir Verkmenntaskólann á Akureyri... HEYRST HEFUR að grunnskólakennarar íhugi skæruverk- fall til stuðnings framhaldsskólakennurum. Mörg fordæmi séu fyrir slíku. Hefur heyrst að kennurum sé almennt brugðið vegna viðhorfa menntamálaráðherra sem ræðir hagræðingu og styttingu námstíma jöfnum höndum – meðan kennarar bíða launaleiðréttingar sinnar eins og þeir kalla kröfu sína um stórfellda launahækkun. Langflestum kennurum sé misboðið – og vænta megi mikilla eftirmála – og e.t.v. langs verkfalls... AÐSEND GREIN SÓLEY BJÖRK STEFÁNSDÓTTIR Hvað býr í framtíðinni? Nú styttist í sveitastjórnarkosningar og margir orðnir spenntir fyrir því að heyra frá frambjóðendum til bæj- arstjórnar á Akureyri. Hvaða hug- myndir hefur allt þetta fólk um framtíð bæjarfélagsins okkar og er því treystandi til að fylgja þeim eftir? Mér hefur verið treyst til að leiða lista VG í komandi kosningum. Það sem er einna skemmtilegast við VG er að við erum afskaplega framsýn. Það sjáum við best á því að þegar flokkurinn var stofn- aður, fyrir 15 árum, þóttu grunngildin heldur betur róttæk. Þar var mikil áhersla lögð á náttúruvernd og kven- frelsi. Það er þó ekki lengur svo að það sé bara VG fólk sem markar sér afstöðu í þessum málaflokkum heldur hafa flestir flokkar eða hópar innan þeirra tekið þessi mál einhverjum tök- um og mótað sína afstöðu. Ekki síður hefur mjög stór hluti almennings mót- að sínar skoðanir á þessum málum. Það er jú helsta verkefni stjórn- málafólks að vera framsýnt. Þegar ákvarðanir eru teknar skiptir gríðar- lega miklu máli að horft sé til fram- tíðar. Hvernig bæ viljum við sjá eftir 5/10/20/50 ár? Ég kann vel að reikna og tel það nokkuð mikilvæga þekkingu til þess að átta mig sem best á rekstri bæj- arsjóðs. Það er þó langt því frá að vera mikilvægasta þekkingin enda tiltölulega auðvelt að klippa og líma til tölur í excelskjali. Bæjarfélagið er ekki bara fyrirtæki held- ur samfélag og aðalatriðið er að hafa skýra mynd af því hvert við stefnum. Við þurfum framsýnt fólk sem er tilbúið til að leggja á sig þá vinnu sem nauðsynleg er til að móta samfélagið eftir skýrri sýn. Ekkert gerist af sjálfu sér! Nú stendur yfir málefna- vinna hjá okkur í VG. Á hverj- um laugardegi sest ég niður á opnum fundi með hópi af fólki sem horfir til framtíðar. Nóg er af hugmyndum um hvernig við byggjum upp bæjarfélag sem byggir á jöfnuði, heilbrigði og vellíðan. Við erum róttæk og framsýn. Áherslan er á góða menntun, heilsu, lýðræði, skapandi samfélag og hag- fræði hamingjunnar á forsendum heildarinnar. Framtíðarsýnin er samfélag þar sem íbúar styðja hver annan til að ná markmiðum og öðlast hamingju hver á sínum forsendum. Stuðningur bæjarbúa er nauðsyn- legur til að koma framtíðarsýninni í framkvæmd og mikilvægt að kjós- endur horfi einnig fram á við því framtíðin býr í okkur öllum. Höfundur skipar 1. sæti á lista VG til sveitarstjórnakosninga. SÓLEY BJÖRK STEFÁNSDÓTTIR

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.