Akureyri - 27.03.2014, Page 18
18 12. tölublað 4. árgangur 27. mars 2014
Smi›sbú› 10 | 210 Gar›abær | Sími: 554 4300 | Fax: 564 1187
Viðhaldsfríir gluggar og hurðir
Yfir 80 litir í boði
Glæsilegir sólskálar lengja sumarið og gera sælureitinn ómótstæðilegan
Starfsmenn Glugga og Garðhúsa verða á
AKUREYRI
föstudaginn 4 apríl frá kl. 10 -18
Hægt er panta tíma í s. 554 4300 eða senda tölvupóst á margret@solskalar.is
Gluggar &
Garðhús hf.
Nánari
upplýsingar
á
www.solska
lar.is
Breyting sem
mælist vel fyrir
Fjölmenni fagnaði merkum tíma-
mótum í síðustu viku þegar formleg
vígsla á húsnæðinu sem áður hýsti
Gamla húsmæðraskólann og Akur-
eyrarakademíuna fór fram fyrir alla
skammtíma– og skólavistun fyrir
fatlað fólk á Akureyri.
Að lokinni vígsluathöfn gafst
gestum og gangandi kostur á að
skoða húsakynnin og kynna sér
starfsemina í húsinu. Stöðugur
straumur fólks var í húsið fram eft-
ir kvöldi og ekki annað að sjá en að
bæjarbúum líkaði vel það sem fyrir
augu bar.
Kostnaður við þessa byggingu er
um 200 milljónir króna og kostnað-
ur við endurnýjun á búnaði um 10
milljónir krónur eftir því sem fram
kemur í gögnum frá Akureyrarbæ. a
Í ÞESSU HERBERGI voru stundum tekin hörð viðtöl við stjórnmálamenn og fleiri þegar
Akureyri Vikublaðið hafði til skamms tíma aðstöðu í húsinu. Nú er þarna mjúkur
bangsi og sitthvað fleira gott.
GLÆSILEG AÐSTAÐA BÞ
SIGURÐUR SIGURÐSSON OG Lýður Hákonarson hjá L&S verktökum, kampakátir með
eigin vinnu og glæstan áfanga við verklok.
Nýr stjóri vill endur-
vekja Listasumar
„Fyrst og fremst er ég þakklátur
fyrir að mér sé treyst fyrir þessu
mikilvæga verkefni,“ sagði Hlynur
Hallsson myndlistarmaður eftir að
Akureyri vikublað innti hann fyrstu
viðbragða, en Hlynur hefur verið
ráðinn forstöðumaður Sjónlistamið-
stöðvarinnar á Akureyri.
Hlynur var ráðinn úr hópi níu
umsækjenda en hann útskrifaðist
frá fjöltæknideild Myndlista- og
handíðaskóla Íslands árið 1993 og
lauk mastersgráðu frá Hannover
árið 1997.
„Ég var auðvitað vongóður um að
fá starfið hafandi mikla reynslu af
skipulagningu og uppsetningu sýn-
inga til 20 ára og brennandi áhuga
á að byggja upp Listagilið,“ segir
Hlynur.
Spurður um áherslur segisy
hann vilja einbeita sér að því að
opna Listasafnið enn betur fyrir
spennandi sýningum og verkefnum
og tengja það við skólana í bænum
og bjóða nemendum af öllum skóla-
stigum frá leikskólum til háskóla í
reglulegar heimsóknir. „Ég vil gera
Listasafnið að safni sem miðlar,
rannsakar og safnar myndlist og að
Ketilhúsið og Deiglan verði lifandi
staðir með fjölbreytta viðburði. Það
er mikilvægt að endurvekja Lista-
sumar á Akureyri og Gildaga og vera
í stöðugu sambandi við samfélagið í
Listagilinu þannig að það verði sam-
eiginlegt aðdráttarafl fyrir gesti og
að Akureyringar geti verið stoltir
af fjölbreyttu menningarlífi bæjar-
ins. Ég vil auka samstarf við önnur
söfn á svæðinu og einnig alþjóðlega
samvinnu en leggja um leið áherslu
á að það sem er skapað hér heima
fái að blómstra.”
Hlynur hefur verið sjálfstætt
starfandi myndlistarmaður frá árinu
1996 ásamt því að kenna við Listahá-
skóla Íslands og Myndlistarskólann
á Akureyri. Hann tekur til starfa
hjá Sjónlistamiðstöðinni að hluta í
byrjun maí en að fullu þann 1. ágúst
næstkomandi. a
HLYNUR HALLSSON. Hugi Hlynsson.