Akureyri - 29.05.2014, Síða 2
2 20. tölublað 4. árgangur 28. maí 2014
ÓTRAUÐUR ÁFRAM
MEÐ OLÍU FRÁ COMMA
5
LÍ
TR
A
R
20
L
ÍT
RA
R
20
5
LÍ
TR
A
R
TransFlow SD 15W-40
TransFlow SD 15W-40
TransFlow ML 10W-30
TransFlow ML 10W-30
3.490 kr.
11.900 kr.
3.490 kr.
12.900 kr.
TransFlow SD 15W-40
109.900 kr. með vsk.
25% afsláttur*
Gæði, reynsla og gott verð!
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is Sími: 535 9000
*TILBOÐ GILDIR MEÐAN BIRGÐIR ENDAST
EX
PO
-
w
w
w
.e
xp
o.
is
Þrír oddvitar nefna Eirík Björn
Þrír af oddvitum framboðanna
sjö sem bjóða fram fyrir kosn-
ingarnar næsta laugardag telja að
Eiríkur Björn Björgvinsson eigi
áfram að verða bæjarstjóri næsta
kjörtímabil. Enginn
oddvitanna talar nú
fyrir pólitískum bæj-
arstjóra sem er mik-
il breyting frá fyrri
tíma. Þrír pólitískir
bæjarstjórar sátu á
Akureyri á einu kjör-
tímabili 2006-2010
„Eins og fram hefur
komið leggur Sjálf-
stæðisflokkurinn ekki
áherslu á að ráðinn sé
pólitískur bæjarstjóri. Komi flokk-
urinn að meirihlutasamstarfi eft-
ir kosningar mun hann leggja til
að auglýst verði eftir bæjarstjóra,“
segir Gunnar Gíslason fyrir hönd
sjálfstæðismanna á Akureyri.
„Staða bæjarstjóra er ekki kosn-
ingamál og lýðræðislega heppileg-
ast að bæjarstjóri sé ópólitískur og
að staða hans/hennar
sé auglýst að loknum
kosningum,“ segir
Hlín Bolladóttir, odd-
viti Dögunar.
„ S a m f y l k i n g i n
teflir ekki fram sérs-
töku bæjarstjóraefni.
Komumst við til
áhrifa leggjum við
auðvitað áherslu á
að til starfsins veljist
hæfur einstaklingur.
Við höfum átt ágætt samstarf við
Eirík bæjarstjóra og gætum vel
hugsað okkur að vinna með honum,
enda fari okkar megin sjónarmið
saman,“ segir Logi Már Einarsson,
oddviti Samfylkingar.
„Einstaklingurinn sem hefur
mestu getuna og mestu ástríðuna
fyrir því að gera Akureyri gott á að
verða næsti bæjarstjóri,“ segir Mar-
grét Kristín Helgadóttir, oddviti BF.
„Sá eða sú hæfasta sem sækir
um starfið á að verða bæjarstjóri á
Akureyri næsta kjörtímabil,“ segir
Sóley Björk Stefánsdóttir, oddviti
VG.
„Við framsóknarfólk höfum lýst
því yfir að við viljum framlengja
ráðningu núverandi bæjarstjóra,“
segir Guðmundur Baldvin Guð-
mundsson, oddviti framsóknar-
manna.
„Eiríkur Björn Björgvinsson á að
vera bæjarstjóri næsta kjörtímabil,“
segir Matthías Rögnvaldsson, odd-
viti L-listans. a
Hrunið fótfesta í heimsmynd
Ákveðinn hluti fólks hefur gert
hrunið að slíkri fótfestu í póli-
tískri heimsmynd sinni, að minnstu
viðbrögð kalla fram sorg eða reiði.
Þetta sagði Guðni Th. Jóhannesson
sagnfræðingur í erindi sem hann
kallaði „Saga sögu hrunsins 2008-
2014“ á þjóðfélagsráðstefnu á Hól-
um í Hjaltadal í síðustu viku.
Guðni sagði sögu hrunsins
flókna þótt hún væri stutt. Hann
telur hægt að líta á hrunið sem sögu
áfalla á borð við náttúruhamfarir
þótt enginn hafi með beinum hætti
látist í hruninu. Eignatjón hafi ver-
ið öðruvísi en þegar snjóflóð felll-
ur og leggur þorp í rúst. Þó mætti
skipta hruninu í fimm þætti ekki
ósvipað náttúruhamförum. Fyrstu
viðbrögð hefðu falist í björgunar-
aðgerðum síðan hafi borið á doða
og afneitun. Reiðin hafi sko dunið
yfir, auk depurðar. Endanlegt skref
væri sátt.
Um þessi stig sagði Guðni að
neyðarlögin á Íslandi hefðu verið
rústabjörgun. Næst hefði skapast
doði og afneitun, „fólk áttaði sig
ekki á hvað hafði gerst“. Stjórn-
málamenn og embættismenn
héldu að þeir gætu setið áfram
og fúnkerað eins og ekkert hefði
í skorist. Fólk verið lamað. Síðar
urðu mótmælafundir. Svo kom
reiðin þar sem spurt var: Af hverju
gerðist þetta? Af hverju vantaði
viðvörun? Reiðin náði hámarki
í janúar árið 2009 í Búsáhalda-
byltingunni. Fyrir reiðina var búið
að stofna embætti Sérstaks sak-
sóknara og rannsóknarnefnd Al-
þingis en stóru tímamótin í átt til
sáttar voru að sögn Guðna Rann-
sóknarskýrsla Alþingis. „Ég held
að Rannsóknarskýrslan sé gott
dæmi un viðleitni til sátta eftir
áfall og hún tókst vel. Fræðilegur
og samfélagslegur trúverðugleiki
skapaðist, skýrslan hefur á sér
trúverðugt yfirbragð. Með skýrsl-
unni skapast viss sátt, fólk trúði
að reynt væri að skilja hvað gerð-
ist. Skýrslan var gott spor í rétta
átt.“
SUMT GEKK EKKI UPP
Aðrar tilraunir heppnuðust ekki
eins vel að mati Guðna. Þjóðfund-
ir og endurskoðun stjórnarskrár
voru þættir sem fóru út af sporinu,
skiluðu ekki því sem ætlast var til.
Landsdómsmálið var jafnvel enn
skýrara dæmi. „Að mínu mati réð
pólitíkin miklu meiru þar en góðu
hófi gegndi og varð nánast eins og
sumir stjórnmálamenn tækju sér í
munn hugtök útrásarvíkinganna
fyrir hrun: Ég á þetta ég má þetta!
EKKI EINUM MANNI AÐ KENNA
Sjálfur segist sagnfræðingurinn
Guðni hlynntur orsakakenning-
um um að samverkandi þættir hafi
leitt til hruns. Einfaldar einstak-
lingskenningar sem aðeins kenni
einum eða tveimur mönnum um
allt saman, Jóni Ásgeiri eða Davíð
Oddssyni séu að hans mati ekki trú-
verðugar. Hann sagðist gefinn fyrir
„Bad, Bad, Bad kenninguna og vitn-
aði þar í finnskan sérfræðing í fjár-
málakrísum sem sagði í mars árið
2009 um íslenska bankahrunið:
„Bad banking, bad policies and bad
luck.“
GAGNABANKI STOFNAÐUR
Í lok erindis síns gat Guðni hug-
myndar um að stofna rafrænan
gagnabanka sem yrði grunnur sem
gerði upp hrunið. Hugmyndin væri
í samstarfi við íslenskan prófess-
or í bókmenntum og Háskólann í
Leeds. Gagnagrunnurinn næði yfir
fræðirit, skáldverk, kvikmyndir,
tónlist og fleira sem tengdist útrás
og hruni. Þarna gæti orðið til ný
lýsandi rafræn heimildaskrá sem
nemendur á ýmsum skólastigum
gætu tekið þátt í að vinna. -BÞ
SAk vinnur að alþjóðlegri viðurkenningu
Sjúkrahúsið á Akureyri vinnur að
því að öðlast alþjóðlegan gæða-
stimpil, fyrst íslenskra heilbrigð-
isstofnana. Þetta kom fram á árs-
fundi spítalans í síðustu viku. Nýtt
stjórnskipulag tók gildi 1. janúar
2013. Starfseiningum og stjórn-
unarstörfum var fækkað og ábyrgð
á samkostnaðarliðum deilda gerð
skýrari. Heildarútgjöld voru 5.586
milljónir króna og hækkuðu um
9% á milli ára. Fjárveitingar rík-
issjóðs til rekstrar á árinu námu
4.836 milljónum og sértekjur 669
milljónum króna. Tekjuhalli ársins
varð 81 milljón króna, eða 1,7%
miðað við fjárveitingu. Í árslok
var höfuðstóll neikvæður um 57,2
milljónir króna.
Til meiri háttar viðhalds var
varið 43 milljónum króna og til
kaupa á stærri tækjum og bún-
aði 152,4 milljónum. Gjafasjóði
sjúkrahússins bárust framlög að
upphæð 19,7 milljónir króna, auk
þess sem sjóðurinn hafði til ráðstöf-
unar framlög frá fyrri árum. Fyrir
tilstilli sjóðsins voru keypt tæki og
búnaður að andvirði 104 milljónir
króna á árinu. Þá voru Hollvina-
samtök sjúkrahússins stofnuð í lok
árs og hófu starfsemi sína með því
að safna fé til kaupa á rafdrifnum
sjúkrarúmum.
FLEIRI NEYÐARTILVIK
Almennum rannsóknum fjölgaði
um 6% á árinu 2013, myndgrein-
ingum um 5% og gerðar voru 215
gerviliðaaðgerðir, 15 fleiri en árið
á undan. Aukning varð í göngu-
deildarstarfsemi, komum á slysa-
og bráðamóttöku fjölgaði um 8%
og sjúkraflug voru 3% fleiri en árið
áður. Fæðingum fækkaði hins vegar
um 15%, skurðaðgerðum um 1%,
sjúklingum á legudeildum um 0,7%
og komum á dagdeildir um 11,4%.
Meðallegutími var óbreyttur, 4,8
dagar.
Á árinu störfuðu 773 einstak-
lingar á stofnuninni og fækkaði
þeim um 35 á milli ára. Karlar
voru 128 (17%) en konur 645 (83%).
Setnar stöður voru 439 að meðal-
tali og fjölgaði um eina frá fyrra
ári. Frá árinu 2008 hefur ársstörf-
um fækkað um 48 að meðaltali.
Heildarfjárhæð greiddra launa
nam 3.220 milljónum króna og
árslaun á hverja stöðu voru því að
meðaltali 7,3 milljónir króna.
“Þegar litið er um öxl má segja
að það gangi kraftaverki næst hve
lítið hefur þurft að skerða þjónustu
Sjúkrahússins á Akureyri á liðnum
árum, þrátt fyrir að fjárframlög hafi
lækkað um 860 milljónir að raun-
virði frá árinu 2008,” sagði Bjarni
Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins
á Akureyri, í ávarpi sínu á ársfund-
inum.
HÆG NÝLIÐUN SÉRFRÆÐILÆKNA
Bjarni sagði bjart framundan og í
mörg horn að líta. Brýnt væri að
leysa húsnæðisvanda geðdeild-
ar, hefja sem fyrst þróunar- og
skipulagsvinnu vegna byggingar
nýrrar legudeildarálmu og einnig
þyrfti að koma á fót nýrri starf-
semi, bæði sjúkrahóteli og líknar-
deild. Þá þyrfti að fjölga stöðum
unglækna til að bæta starfsum-
hverfi lækninga og auka öryggi
sjúklinga.
“Sá þáttur sem veldur okkur
hvað mestum áhyggjum er hve ný-
liðun sérfræðilækna er hæg. Um
helmingur sérfræðilækna hér er
55 ára og eldri. Hér þarf að marka
stefnu fyrir landið allt og setja
fram áætlun um mönnun sérfræði-
lækna á sjúkrahúsum og heilbrigð-
isstofnunum til lengri og skemmri
tíma. Við viljum hafa frumkvæði að
mótun slíkrar áætlunar í samvinnu
við stjórnvöld og aðra hagsmuna-
aðila,” sagði Bjarni ennfremur.
ÁTAK Í GANGI
Undirbúningur að gæðavott-
un sjúkrahússins hófst af fullum
krafti síðla árs 2013 þegar undir-
ritaður var samningur við norska
vottunarfyrirtækið DNV. “Á næstu
misserum verður unnið ötullega að
því að sjúkrahúsið fái alþjóðlegan
gæðastimpil, fyrst íslenskra heil-
brigðisstofnana. Að gera hlutina
vel snýst ekki einungis um góða
og rétta læknisfræði, heldur að
tryggja öruggt verklag, góð sam-
skipti, ánægju sjúklinga, ráðdeild,
framsækni og ánægju starfsmanna.
Vottunarferlið mun nýtast okkur
öllum sem staksteinar og leiðsögn
á þeirri vegferð,” sagði Bjarni Jón-
asson í ávarpi sínu. a
Finnbogi Marínósson
EIRÍKUR BJÖRN. Völundur
GUÐNI TH JÓHANNESSON flutti erindi á Hólum í Hjaltadal í síðustu viku.