Akureyri - 29.05.2014, Síða 13
28. maí 2014 20. tölublað 4. árgangur 13
KJÖRSEÐILL
við sveitarstjórnarkosningarnar 31. maí 2014
Akureyri 23. Maí 2014.
Yrkjörstjórnin á Akureyri
Helga G. Eymundsdóttir
Þorsteinn Hjaltason
Júlí Ósk Antonsdóttir
Guðmundur Baldvin Guðmundsson
Ingibjörg Isaksen
Siguróli Magni Sigurðsson
Elvar Smári Sævarsson
Halldóra Hauksdóttir
Tryggvi Már Ingvarsson
Guðlaug Kristinsdóttir
Húni Hallsson
Sigríður Bergvinsdóttir
Óskar Ingi Sigurðsson
Ragnhildur Hjaltadóttir
Jóhannes Gunnar Bjarnason
Regína Helgadóttir
Erlingur Kristjánsson
Petrea Ósk Sigurðardóttir
Axel Valgeirsson
Viðar Valdimarsson
Guðný Rut Gunnlaugsdóttir
Klemenz Jónsson
Mínerva Björg Sverrisdóttir
Jakob Björnsson
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
Listi Framsóknarflokksins
B
Gunnar Gíslason
Eva Hrund Einarsdóttir
Njáll Trausti Friðbertsson
Bergþóra Þórhallsdóttir
Baldvin Valdemarsson
Sigurjón Jóhannesson
Þórunn Sif Harðardóttir
Elías Gunnar Þorbjörnsson
Heiðrún Ósk Ólafsdóttir
Svanhildur Dóra Björgvinsdóttir
Ármann Sigurðsson
Kristinn Frímann Árnason
Hildigunnur Svavarsdóttir
Hanna Dögg Maronsdóttir
Jón Orri Guðjónsson
Ragnheiður Runólfsdóttir
Sunneva Hjaltalín
Florin Paun
Björn Vilhelm Magnússon
Hjördís Stefánsdóttir
Dóróthea J. Eyland
Ólafur Jónsson
Matthías Rögnvaldsson
Silja Dögg Baldursdóttir
Dagur Fannar Dagsson
Tryggvi Þór Gunnarsson
Eva Reykjalín Elvarsdóttir
Anna Hildur Guðmundsdóttir
Jóhann Gunnar Sigmarsson
Víðir Benediktsson
Hildur Þórbjörg Ármannsdóttir
Ágúst Torfi Hauksson
Geir Kristinn Aðalsteinsson
Birna Baldursdóttir
Inda Björk Gunnarsdóttir
Þorvaldur Sigurðsson
Dusanka Kotaras
Ingimar Ragnarsson
Dagný Þóra Baldursdóttir
Rósa Matthíasdóttir
Halldór Kristinn Harðarson
Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
Sigurður Guðmundsson
Oddur Helgi Halldórsson
Logi Már Einarsson
Sigríður Huld Jónsdóttir
Bjarki Ármann Oddsson
Dagbjört Pálsdóttir
Eiður Arnar Pálmason
Ólína Freysteinsdóttir
Árni Óðinsson
Friðbjörg J. Sigurðardóttir
Ragnar Sverrisson
Ólöf Vala Valgarðsdóttir
Pétur Maack Þorsteinsson
Rósa Dröfn Guðgeirsdóttir
Þorgeir Jónsson
Linda María Ásgeirsdóttir
Jón Ingi Cæsarsson
Bryndís Hulda Ríkharðsdóttir
Hreinn Pálsson
Kristín Sóley Sigursveinsdóttir
Unnar Jónsson
Magnús Aðalbjörnsson
Guðlaug Hermannsdóttir
Hermann Jón Tómasson
Listi Samfylkingarinnar
Hlín Bolladóttir
Inga Björk Harðardóttir
Erling Ingvason
Michael Jón Clarke
Sigurbjörg Árnadóttir
Torfi Þórarinsson
Benedikt Sigurðarson
Björk Sigurgeirsdóttir
Hólmfríður S. Haraldsdóttir
Signa Hrönn Stefánsdóttir
Arinbjörn Kúld
Arnfríður Arnardóttir
Kolbrún Lilja Kolbeinsdóttir
Kári Sigríðarson
Listi Dögunar
Sóley Björk Stefánsdóttir
Edward H. Huijbens
Hildur Friðriksdóttir
Valur Sæmundsson
Vilberg Helgason
Agla María Jósepsdóttir
Ólafur Kjartansson
Anna María Hjálmarsdóttir
Hermann Arason
Guðrún Þórsdóttir
Andrea Hjálmsdóttir
Wolfgang Frosti Sahr
Sigmundur Sigfússon
Kristín Þóra Kjartansdóttir
Jóhannes Árnason
Dýrleif Skjóldal
Árni Steinar Þorsteinsson
Inga Sigrún Atladóttir
Guðmundur Ármann Sigurjónsson
Kristín Sigfúsdóttir
Pétur Pétursson
Málmfríður Sigurðardóttir
Listi Vinstri hreyfingarinnar
græns framboðs
Margrét Kristín Helgadóttir
Áshildur Hlín Valtýsdóttir
Preben Jón Pétursson
Þorsteinn Hlynur Jónsson
Kristín Björk Gunnarsdóttir
Jón Þorvaldur Heiðarsson
Eva Dögg Fjölnisdóttir
Sigurjón Jónasson
Hlín Garðarsdóttir
Stefán Guðnason
Agnes Mutonga Maluki
Jónas Björgvin Sigurbergsson
Dagný Rut Haraldsdóttir
Kristinn Pétur Magnússon
Brynja Reynisdóttir
Guðmundur Magni Ásgeirsson
Jónína Elísabet Þorsteinsdóttir
Konráð Wilhelm Bartsch
Guðrún Karítas Garðarsdóttir
Hólmgeir Þorsteinsson
Saga Jónsdóttir
Oddur Lýður Árnason
Listi Bjartrar framtíðar
D
Listi Sjálfstæðisflokksins
L
L-listans
S T V Æ
AÐSEND GREIN GEIR KR. AÐALSTEINSSON
Ekki pólitískar ráðningar
Nú er kjörtímabilið senn á enda og við hæfi
að líta yfir farinn veg og velta fyrir sér hvern-
ig til hefur tekist hjá bæjarstjórn með hrein-
an meirihluta en slíkt hefur aldrei gerst áður
hér á Akureyri.
Að mínu mati eru pólitískar ráðn-
ingar og vinagreiðapólitík af öllu tagi
mikið mein í íslensku samfélagi. Því
miður hefur slíkt viðgengist hér á Ak-
ureyri í gegnum árin og því hefur það
verið okkur mikið kappsmál síðast-
liðin fjögur ár að útrýma slíku verklagi.
Allar ráðningar í stjórnunarstöður á
kjörtímabilinu hafa verið faglega unn-
ar þar sem hæfasti umsækjandinn fær starfið,
óháð skoðunum viðkomandi í pólitík. Fyrsta
ráðning okkar var í stól bæjarstjóra þegar
Eiríkur Björn var valinn úr stórum hópi
umsækjenda og allt síðan þá hafa ráðningar
verið framkvæmdar á faglegum forsendum.
Það er lykilatriði fyrir okkur Akureyringa að
áfram verði haldið á þessari braut.
Kjörtímabilið hefur fyrst og fremst ein-
kennst af aukinni samvinnu frá því sem
áður var. L-listinn gaf tóninn með því að
gefa minnihlutanum eftir þrjú sæti í nefnd-
um og þar með meirihlutann í þeim öllum. Í
stærri málum hefur minnihlutinn átt þess
kost að taka þátt í ákvarðanatökunni og
nægir þar að nefna vinnu við fjárhagsáætl-
anir, atvinnustefnuna, menningarstefnuna
og miðbæjarskipulagið. Slík samvinna hef-
ur gengið vel, enda mikilvægt að virkja alla
bæjarfulltrúana ellefu en ekki aðeins hluta
þeirra. Stundum hef ég velt fyrir mér hvort
einhver þörf sé á meirihluta og minnihluta í
sveitarstjórnum og að mínu mati er það úrelt
fyrirkomulag.
Annað sem einkennt hefur stöðu mála
á kjörtímabilinu er velgengni í fjármálum
bæjarins. Þrátt fyrir að þrjú kostnaðarsöm
mannvirki kæmu með um 500 milljóna króna
kostnað á ári inn í reksturinn árið 2010, þ.e.
Hof, Þórsvöllur og fimleikahúsið við Gilja-
skóla, þá hefur gengið vel að halda
sjó. Nægir í því sambandi að nefna
að skuldir hafa verið greiddar niður
um 4,2 milljarða króna að raunvirði
á kjörtímabilinu og skuldahlutfall
bæjarins hefur lækkað mikið en það
var yfir 140% árið 2010 en er 112%
í dag. Núverandi meirihluti hefur
lagt sig fram við að segja ekki upp
starfsfólki bæjarins þrátt fyrir hagræðingu
og nú þegar betur árar gefast loks tækifæri
til að verðlauna starfsfólkið. Hér er jú um
að ræða fólkið sem unnið hefur þrekvirki á
undanförnum árum við að halda samfélaginu
gangandi á þeim erfiðu tímum sem íslenskt
samfélag hefur gengið í gegnum allt frá
fjármálahruninu. Öflug fjárhagsstaða þýðir
að ný bæjarstjórn hefur gott svigrúm til að
huga að innviðum bæjarins og gera enn betur
gagnvart starfsfólki sveitarfélagsins
Við í L-listanum erum stolt af okkar verk-
um á kjörtímabilinu og hægt væri að skrifa
heila bók um alla þá vinnu sem við erum
ánægð með að hafa áorkað á þessum fjórum
árum en ég læt hér við sitja. Okkur lánaðist
að framkvæma nánast allt sem fram kom í
stefnuskrá okkar árið 2010 og ég skora á þig
kjósandi góður að veita okkur brautargengi
til að halda áfram okkar vinnu sem ein-
kennst hefur af heiðarleika og dugnaði fyrir
bæinn okkar.
Geir Kr. Aðalsteinsson, forseti bæjar-
stjórnar og fyrrverandi oddviti L-listans.
AÐSEND GREIN KRISTÍN SIGFÚSDÓTTIR
Heilsugæslan þjóni öllum
Heilsugæslan á Akureyri (HAK) þjónar um
20.000 manns á sínu upptökusvæði. Þjónusta
er veitt allt frá því á fósturskeiði, með foreldra-
fræðslu og mæðrarvernd, allt til heimahjúkrun-
ar þegar endalok nálgast. Heilsugæslan ásamt
félagsþjónustu bæjarins er grunnþjón-
usta bæjarins. Það er því forsenda al-
mennrar velferðar á Akureyri að þessar
tvær stofnanir séu sterkar og hafi saman
nægjanlegt afl til að takast á við þau
krefjandi verkefni sem þeim er ætlað að
fást við. Í dag eru um 6.000 manns án
heilsugæslulæknis á Akureyri. Það þarf
nú þegar þrjá heilsugæslulækna til viðbótar
þeim ellefu sem fyrir eru, til þess að geta veitt
íbúum bæjarins sjálfsagða og góða heilsugæslu.
Í raun má segja að ástandið sé litlu skárra en
þegar HAK var stofnuð og fólk beið lengi eftir
þjónustu.
Forvarnir eru lykill að góðri framtíð
Fagteymi, svo sem í fjölskylduráðgjöf HAK
og félagsþjónustu fjölskyldudeildar, sem
þjálfuð eru í að leita lausna í erfiðustu
málum sem þjaka fjölskyldur, vinna ómet-
anlegt starf. Slíka teymisvinnu verður að
efla mjögá næstu árum. Það þarf að fjölga
fagfólki og gera launakjör og vinnuálag
samanburðarhæft við það sem eðlilegt get-
ur talist. Þar verður að miða bæði við inn-
lendar aðstæður og það sem viðgengst í
samanburðarlöndum. Það þarf að ráða
hjúkrunarfræðing í hjúkrunarmóttöku og
næringarráðgjafa. Það hefur sem betur fer
tekist að halda unglingamóttökunni opinni
og báðum skiptistofunum. Þróunarverkefnin,
svo sem „nýja barnið“ er geysilega þýðingar-
mikið en þar er tekið á vanda mæðra sem eru
í áhættu á meðgöngu. Slíkt starf dregur úr
innlögnum á aðrar stofnanir.
Ólíkar leiðir
Gott er að sjá að margir frambjóðendur vilja
efla heilsugæsluna. En það skiptir máli hvernig
staðið er að málum og hvað menn ætla
sér með endurskipulagningu á heilbrigð-
isþjónustunni. Eina vitið er að efla enn
frekar heilsugæsluna og félagsþjónustu
sem fyrir er í bænum. Þá dugar lítið að
treysta á einkastofur úti í bæ, heldur að-
eins á sterkar stofnanir sem geta ásamt
lögreglunni, barnaverndarnefnd, skól-
um og heimilum brugðist við flóknustu málum,
svo sem ofbeldi af öllu tagi, geðrænum vanda,
misnotkun efna og óheilbrigðum lífsstíl. Það er
ástæða til að hafa áhyggjur af framtíð þessara
málaflokka ef taka má mark á skrifum sumra
stjórnmálamanna að undanförnu, bæði á vett-
vangi sveitastjórna- og landsmála. Kjósendur
eiga hiklaust að krefja þá um skýr svör um þessi
mikilvægu mál áður en kjördagur rennur upp.
Hverri einastu krónu sem varið hefur verið til
HAK hefur verið marg snúið til að finna bestu
nýtinguna fyrir samfélagið. Þetta leyfi ég mér að
fullyrða enda hef ég fylgst með HAK frá upp-
hafi, meðal annars með átta ára setu í félags-
málaráði þegar heilsugæslan var að bæta við
sig nýja barninu og unglingamóttökunni, hvort
tveggja lýðheilsutengd verkefni í forvarnarstarfi.
Fái Vinstrihreyfingin grænt framboð einhverju
ráðið að kosningum loknum verður barist fyr-
ir eðlilegum fjárveitingum frá ríkinu til sam-
ræmis við það sem greitt er með sjúklingum til
heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu. Við erum
jafn verðmæt hér fyrir norðan og eigum það
skilið að rétta úr kútnum.
Höfundur skipar 20 sæti á lista VG við
sveitastjórnarkosningarnar í vor
KRISTÍN
SIGFÚSDÓTTIR
GEIR KR.
AÐALSTEINS-
SON