Akureyri - 29.05.2014, Blaðsíða 19
28. maí 2014 20. tölublað 4. árgangur 19
Verkamenn
á framkvæmdasviði
Norðurorka hf. óskar eftir að ráða tvo verkamenn á framkvæmdasvið félagsins.
Verkamenn starfa undir stjórn okkstjóra á verkstað að nýlögnum og viðhaldi í veitum
félagsins en vinna auk þess að öðrum tilfallandi verkefnum. Starfssvæðið er víðfemt en
Norðurorka hf. rekur rafveitu og fráveitu á Akureyri, hitaveitu og vatnsveitu á Akureyri,
Hrísey, Eyjafjarðarsveit og á Svalbarðsströnd. Þá rekur Norðurorka hf. hitaveitu á
Ólafsrði, Hörgársveit, Grenivík og í Fnjóskadal.
Starð heyrir undir yrverkstjóra á framkvæmdasviði.
Norðurorka hf. rekur vottað gæðaker (ISO 9001) en hluti þess er gæðastjórnun
í vatnsveitu GÁMES – (greining áhættuþátta og mikilvægra eftirlitsstaða).
Starfs og ábyrgðarsvið
• Störf við nýlagnir og viðhald
veitukerfa
• Ýmiss tilfallandi verkefni
• Samskipti við viðskiptavini
á verkstað
Menntunar- og hæfniskröfur
• Reynsla af jarðlagnatækni er kostur
• Reynsla af vinnu við veitukerfi er kostur
• Ökupróf er skilyrði – vinnuvélapróf er kostur
• Færni í mannlegum samskiptum.
• Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í
vinnubrögðum.
Meginhlutverk Norðurorku hf. er að þjónusta heimili og atvinnulíf með vinnslu og dreingu á heitu
vatni og neysluvatni, rekstri dreikers raforku og rekstri fráveitu.
VIRÐING – FAGMENNSKA – TRAUST
Umsjón með ráðningunni hefur Baldur Dýrfjörð (baldur@no.is)
Upplýsingar um starfið veitir Vigfús Ingi Hauksson yfirverkstjóri í síma 460-1358
eða netfangið ingi@no.is.
Umsóknarfrestur er til og með 8. júní.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um starð á netfangið baldur@no.is.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og afrit af prófskírteinum.
RANGÁRVÖLLUM | 603 AKUREYRI | SÍMI 460 1300 | no@no.is | www.no.is
Forkastanleg græðgi
Aðalfundur Framsýnar, stéttarfé-
lags Þingeyinga, fordæmir harð-
lega ákvörðun Vísis hf. um að loka
starfstöð fyrirtækisins á Húsavík
1. maí 2014. Við það misstu um 60
starfsmenn vinnuna. „Loforð og
ráðagerðir Vísis hf. þegar fyrir-
tækið eignaðist Fiskiðjusamlag
Húsavíkur hf. um að efla starfsem-
ina á Húsavík til muna eru greini-
lega orðin tóm,“ segir í ályktun
Framsýnar.
„Þá er forkastanlegt að fyrir-
tækið ætli sér að komast hjá því að
greiða starfsmönnum kjarasamn-
ingsbundinn uppsagnarfrest með
því að beina þeim á atvinnuleys-
isbætur og ætla þar með ríkissjóði
að standa við skuldbindingar fyrir-
tækisins. Í ljósi þessa hefur Fram-
sýn falið lögfræðingum félagsins
að stefna fyrirtækinu Vísi hf. fyrir
félagsdóm.“
„Vegna þessarar tilraunar til
misnotkunar á rétti fyrirtækja til
að senda fólk heim í hráefnisskorti
telur Framsýn einboðið að Alþingi
breyti lögum um rétt fiskvinnslu-
fyrirtækja til að fá endurgreiðslur
frá Atvinnutryggingasjóði í hráefn-
isskorti vegna hráefnislausra daga.
Það verður aldrei sátt um að fyrir-
tæki í fiskvinnslu reyni að leika á
kerfið með þessum hætti.“ a
AÐSEND GREIN GUÐMUNDUR BRAGASON
Vertu sú breyting
sem þú vilt sjá í
heiminum
Síðastliðinn föstudagur var einhver
sá allra besti sem ég hef upplifað á
ævinni en þá var Dimissio hjá okk-
ur í 4. bekk í Menntaskólanum á
Akureyri. Þessi dagur var yndisleg-
ur með öllu, þrautabraut, búningar,
traktoraferðir, hókí pókí á Ráðhús-
torginu og kaffiboð með starfsfólki
skólans um kvöldið í Kvosinni. Að
ég tala nú ekki um partýið sem á
eftir fylgdi. Það sem stendur þó upp
úr var ræðan hennar Kristínar Sig-
fúsdóttur líffræðikennara.
Hún flutti minni nemenda í
kaffiboðinu og stóð sig fullkomlega.
Salurinn varð orðlaus og klukkan
hætti að ganga um stund. Eftir að
hafa sagt stuttlega frá þeim bekkj-
um sem munu brautskrást 17. júní
minnti hún okkur á það að núna
er okkar tími að renna upp. Við
erum orðnir virkilegir áhrifavald-
ar á samfélagið sem við lifum í. Við
þurfum að gera þær breytingar sem
nauðsynlegar eru, eða með hennar
orðum: „Vertu sú breyting sem þú
vilt sjá í heiminum.“
Jafnréttisbarátta og náttúru-
vernd er eitthvað sem við þurfum
að passa upp á sem komandi kyn-
slóð. Hún hrósaði þeim sem komu
að stofnun feministafélagsins í MA
og hversu merkur áfangi það er fyr-
ir skólann. Feministahjartað í mér
þandist út af stolti við að hlusta
á Kristínu upphefja þessi málefni.
Ég hef aldrei verið jafn stoltur af
því að kalla mig feminista eins og
akkúrat núna.
Kristín mun alltaf verða einn
þeirra kennara sem ég dauðsé eftir
að hafa aldrei fengið að hafa. Þessi
kjarnakona veitir mér svo mikla
hvatningu sem er merkilegt í ljósi
þess að hún hefur aldrei kennt mér
og ég hef heldur ekki átt persónu-
legar samræður við hana. Eins og
margir vita er Kristín að hætta
kennslu við Menntaskólann á Ak-
ureyri eftir farsælan feril og óska
ég henni velfarnaðar í komandi
verkefnum. Kristín, ég mun reyna
mitt besta við að vera sú breyting
sem ég vil sjá í heiminum.
Guðmundur Bragason
GESTIR Í KETILHÚSINU spegla sig í ævistarfi Gísla B. Björnssonar hönnuðar. Völundur