Akureyri


Akureyri - 29.05.2014, Side 21

Akureyri - 29.05.2014, Side 21
28. maí 2014 20. tölublað 4. árgangur 21 AÐSEND GREIN SÓLEY BJÖRK STEFÁNSDÓTTIR- Hækkum laun Sá sem ákvað að grunnþjónusta samfélags- ins skyldi vera borin uppi af láglaunuðu fólki hefur alveg örugglega aldrei skipt um bleyju á fullorðinni manneskju eða þurft að hafa stjórn á 24 tíu ára krökkum í einu og fá þau öll til að læra eitthvað gagnlegt. Hver ákvað að það væri í lagi að greiða ekki mannsæmandi laun fyrir erfið störf þar sem álag og ábyrgð starfsfólks er mikil? Ég veit ekki hver það var en ég veit það er hægt að breyta því. Það er hægt að ákveða að hækka laun þeirra sem vinna þessi störf. Það er hægt að ákveða að borin sé virðing fyrir þessu fólki og hún sýnd í verki, í lau- naumslaginu, en ekki bara í lofræðum og klöppum á bök. Það er hægt að ákveða að forgangsraða öðruvísi. Ég veit að það eru margir sem ekki vilja breyta þessu. Þeir tala um óábyrg loforð og fara jafnvel fram á að gerð sé grein fyrir hverri krónu sem setja á í launahækkun til handa starfsfólki Akureyrarbæjar. Þeir gera allt til að telja fólki trú um að ekki sé hægt að breyta neinu. Staðreyndin er sú að bjart er framundan í fjármálum Akureyrarbæjar, sé bærinn rek- inn með ábyrgum hætti. Hagvaxtarspá er góð, efnahagslífið er að taka við sér og staða fyr- irtækja á svæðinu er góð eins og fram kom í fyrirlestri á vegum Atvinnuþróunarfélags Eyfirðinga sl. fimmtudag. Aukinn hagvöxtur þýðir auknar tekjur í bæjarsjóð -svo lengi sem útsvar er ekki lækkað. Það er einmitt þar sem hnífurinn stendur í kúnni. Hvern- ig á að fara með aukið svigrúm í fjármálum bæjarins? Á að lækka skatta? Á að byggja upp húsakost bæjarins? Eða á að efla grunn- þjónustuna og koma til móts við þær stéttir sem hafa orðið fyrir miklum niðurskurði sl. fjögur ár? Ef valið er að efla grunnþjónustuna þá er hægt að gera það á tvennan hátt. Annars vegar að fjölga starfsfólki, hins vegar að hækka laun þeirra starfsmanna sem hlaup- ið hafa hraðar með hverju árinu síðastliðin fjögur ár. Ef Akureyrarbær ákveður að hækka laun hefur það jákvæð áhrif á launaþróun á svæð- inu. Svæði sem gjarnan hefur verið skilgreint sem láglaunasvæði. Ekki er þó jafn bjart framundan í öllum sveitarfélögum enda mörg þeirra afar skuldsett. Það er ástæðan fyrir því að samninganefnd sveitarfélaga þarf að hafa það að markmiði að halda niðri launum opinberra starfsmanna. Það þýðir þó ekki að allir þurfi að hafa það jafn skítt er það? Við í Vinstri grænum höfum ákveðið að horfa til framtíðar, berjast fyrir launajafn- rétti og um leið hífa upp laun á svæðinu. Þess vegna höfum við sett okkur það markmið að hækka laun þeirra starfsmanna Akureyrar- bæjar sem eru undir meðallaunum á lands- vísu um 10% á kjörtímabilinu. Ef stærsti atvinnurekandinn brýtur ísinn fylgja hinir á eftir. Höfundur skipar 1. sæti hjá VG á Akureyri AÐSEND GREIN MATTHÍAS RÖGNVALDSSON Sérstaða eða samstaða? Á kjörtímabilinu sem er að ljúka hafa full- trúar allra flokka í bæjarstjórn átt gott sam- starf um fjölmörg mikilvæg málefni og vel hefur gengið að koma þörfum umbótum í gegn. Nú hafa sumir fulltrúar minnihlutans skyndilega uppgötvað allskyns agnúa á ýmsu sem þeir voru hæstánægðir með áður. Þar sem áður ríkti samstaða er nú allt í uppnámi. Hvað breyttist? Svarið er einfalt: Ekkert. En það eru kosningar í nánd. Og þá telja menn sig knúna til að skapa sér sérstöðu. Hvað sem það kostar. Þá reyna menn að sannfæra fólk um að hitt eða þetta hafi ýmist verið illa gert eða ekki. Rakka niður það sem þeir áður hafa lof- að, jafnvel unnið að sjálfir. Bara til að skapa sér sérstöðu. Það er ansi ódýr brella. Ómerkileg er heilsugæslubrellan sem sjálfstæðismenn flagga þessa dagana. Heil- brigðisráðherra, fyrrverandi bæjarstjóri Akureyringa, er þar í hlutverki kanínunn- ar í pípuhattinum. Þeir voga sér að lofa betri efndum ríkisvaldsins í málefnum heilsugæslunnar ef þeir komast til valda því „þeirra maður“ fer með málaflokkinn! En hvers vegna skyldi ráðherra hafa dregið lappirnar svo mjög í þessu mikilvæga máli, nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga? Þegar samningsbundin þjónusta ríkisins við sveitarfélag er gerð að kosningamáli með þessum hætti veltir maður því óhjákvæmi- lega fyrir sér á hvaða forsendum þetta fólk sé í pólitík og hverra hagsmuna það gætir. Eitt er víst: Það eru ekki hagsmunir Akur- eyringa. L-listinn er hins vegar í þessari vinnu fyrir ykkur bæjarbúa og hefur náð betri árangri í rekstri bæjarins en náðst hef- ur nokkur undanfarin kjörtímabil, aukið samvinnu og viðhaldið þjónustu við íbúa af fremsta megni þrátt fyrir mikla hag- ræðingakröfu. Þrátt fyrir að finna yrði 500 miljónir vegna aukins rekstrarkostnaðar sem m.a. kom vegna framúrkeyrsla fram- kvæmda. Þetta gerði miklar kröfur til starfs- fólks okkar og það svaraði þessu kalli. Það hefur unnið hreint kraftaverk í hag- ræðingu og borið miklar byrðar undan- farin ár. Nú þarf að létta byrðarnar og efla þjónustuna. Við þurfum að snúa okk- ur að fólkinu sem sér um barnið þitt, for- eldra þína og þá lífæð sem bærinn okkar er. Við viljum auðvelda bæjarbúum að koma sínum hugmyndum á framfæri til að bæta þjónustu okkar og gera Akureyri að enn betri bæ en hann er. Vefurinn betriakureyri. is er mikilvægur liður í því. Laugardaginn 31. maí þurfum við ykkar aðstoð til að tryggja áframhaldandi þjónustu okkar við ykkur. Merktu x við L og saman sköpum við betri Akureyri. Höfundur skipar 1. sætið á lista L-listans á Akureyri. X KOSNINGAR 2014 AÐSENT Gunnar Gíslason AÐSENT Sóley Björk Stefánsdóttir AÐSENT Matthías Rögnvaldsson AÐSEND GREIN GUNNAR GÍSLASON Tryggjum baráttumanni öruggt sæti Næstkomandi laugardag verður gengið til kosninga til bæjarstjórn- ar. Það er mikilvægt að allir íbúar taki þátt og velji það framboð sem þeir treysta best til verka næstu fjögur árin. Sjálfstæðisfólk á Akureyri hef- ur lagt mikla vinnu í undirbúning kosninganna. Rætt var við um þrjú hundruð íbúa, gengið um hverfi bæj- arins og nú undanfarið höfum við heimsótt fjölda fyrirtækja. Allt þetta höfum við nýtt til að móta metnað- arfulla stefnuskrá okkar. Hún er ít- arleg en án stórra loforða. Við teljum brýnt í upphafi nýs kjörtímabils að unnin verði markviss langtíma- áætlun þar sem framkvæmdum verði forgangsraðað. Þá er mikil- vægt að greina samkeppnishæfni bæjarins gagnvart öðrum sveitar- félögum til að laða að fyrirtæki og halda þeim sem fyrir eru. Það eru þó nokkur verkefni sem við teljum að þurfi að fara í hið fyrsta. Þar má nefna að ljúka þarf við fráveituna og tryggja þannig ómengaða strönd og sjó. Ljúka þarf framkvæmdum við Naustaskóla. Heilsugæslan þarf aukið fjármagn, það verður að efla læknisþjónustu við íbúana. Grunnstoðir bæjarins eru öfl- ugar eins og skólar og önnur þjón- usta. Við erum þó þeirrar skoðunar að efla þurfi innviðina og skila til baka því sem skorið hefur verið niður á undanförnum árum. Starfs- fólkið sem stendur vaktina alla daga þarf stuðning og hvatningu. Baráttumálin – baráttusæti Undirstaða velferðar er öflugt og fjölbreytt atvinnulíf. Því þurfum við að standa vörð um fyrirtæki og stofnanir í bænum. Lífæðar eru samgöngur, orka og mannauður. Við búum vel að mannauði en þurfum á fleiri verk- og tæknimenntuðum að halda. Háskólinn á Akureyri gæti komið þar að með öflugum stuðn- ingi frá bænum til að sækja aukn- ar fjárveitingar. Á Akureyri skortir orku. Almennt virðist það ekki á vit- orði bæjarbúa að raforkuflutningar til bæjarins eru það takmarkaðir að grípa verður til skerðingar til nokkurra fyrirtækja. Þetta þýðir að á Akureyri verður ekki uppbygging atvinnutækifæra sem byggja á raf- orku. Þrátt fyrir að þetta hafi verið vitað um nokkurra ára skeið hefur lítið áunnist. Þessu verður að breyta en það er fyrirséð að þótt brugðist verði við strax þá mun það taka 5-6 ár. Málið er grafalvarlegt! Sam- göngur skipta fyrirtækin og ferða- þjónustana miklu máli. Við verðum að geta treyst á öruggar samgöngur allt árið um kring. Hér eru fyrirtæki sem eiga allt sitt undir því að koma vöru á markað, fljótt og vel. Það er því háalvarlegt þegar þjóðvegi eitt er ekki haldið opnum alla daga yfir veturinn. Flugvöllurinn í Vatnsmýr- inni er eins og við höfum ítrekað sagt eitt af okkar nauðsynlegustu samgöngumannvirkjum. Hann þarf að verja og það ekki síst vegna sjúkraflutninga því nú liggur fyrir að Landspítalinn verður áfram við Hringbraut. Til þess að efla ferða- þjónustuna þarf að koma á reglu- legu millilandaflugi til Akureyrar. Þannig getum við náð aftur eðlilegri hlutdeild í tekjum af ferðaþjónust- unni. Þar skiptir öllu máli að fjölga gistinóttum ferðamanna á Akureyri. Við verðum að átta okkur á að ekk- ert fæst án fyrirhafnar. Því þarf fólk eins og Njál Trausta Friðbertsson í bæjarstjórn. Hann hefur verið ötull talsmaður þeirra mála sem hér hafa verið nefnd og sýnt mikla eljusemi. Það er þörf fyrir baráttumenn í bæj- arstjórn og þá fá Akureyringar með því að setja X við D á kjördag. Sjálf- stæðisfólk er tilbúið til að ganga skrefinu lengra í vinnu fyrir Okkar Akureyri. Höfundur skipar 1. sæti á lista sjálfstæðismanna á Akureyri. AÐSEND GREIN Um sirkusstjóra Það er býsna snúið starf að vera sirkusstjóri. Hann þarf að tefla fram fjölskrúðugri dagskrá til að laða að fólk á öllum aldri. Í bland við sakleysisleg trúðslæti og ann- að léttmeti, verður að bjóða uppá æsispennandi atriði sem halda andanum niðrí áhorfendum. Allt þarf að framkvæmast af fyrsta flokks fagfólki; annað gæti reynst dýrkeypt. Hver vill sjá ljónið bíta hausinn af ljónatemjaranum, loft- fimleikamanninn missa greipar á loftfimleikakonunni eða trúðinn springa í loft upp inni í fallbyss- unni? Það er auðvitað ekki alveg jafn- mikill ævintýraljómi yfir starfi bæj- arfulltrúans en hann þarf engu síð- ur en sirkusstjórinn að bjóða uppá skýra og áhugaverða dagskrá og laða að fólk sem getur útfært hana. Og jafnvel þó að margt í rekstri bæjarfélags sé njörvað niður, jafn- vel bundið í lög, getur mismunandi forgangsröðun breytt æði miklu. Þá er hluti þjónustunnar valkvæður og þær áherslur sem verða fyrir valinu ráða miklu um það hvernig bæjar- félag þróast. Sé farið í sirkus, er afar ólík- legt að sirkusstjórinn sjálfur sjá- ist þeysast um á fílsbaki eða troða sverði ofaní kokið á sér. Hans hlutverk er fyrst og fremst að setja saman litríka dagskrá sem höfðar til margra og sjá til þess að dæmið gangi fjárhagslega upp. Að sama skapi er mikilvægt að bæj- arfulltrúinn hafi skýra og ákveðna framtíðarsýn og hæfileika til að miðla henni til annarra. Hann þarf auk þess að hafa innsæi til þess að sjá tækifæri í samtíma sínum og næmni til þess að átta sig á réttri tímasetningu mála. Jafnframt því þarf hann að hafa lagni til þess að vinna náið með öðrum bæjarfull- trúum, starfsmönnum sveitarfé- lagsins og öllum bæjarbúum. Allir flokkarnir sjö, sem nú bjóða fram krafta sína hafa dregið upp mynd af þeirri framtíð sem þeir kjósa Akureyri til handa, þó með misskýrum hætti sé. Í mörgu eru þeir glettilega samstíga en í öðru algjörlega á öndverðum meiði. For- gangsröðun og áhersluatriði næstu bæjarstjórnar munu ráða miklu um hvernig bænum okkar farnast. Þess vegna er mjög miklvægt að kjósend- ur yfirvinni það óþol sem þeir eru hugsanlega haldnir fyrir stjórnmál- um í augnablikinu og gefi sér tíma til þess að kynna sér stefnu flokkanna. Skoði vel hvaða fólki er ætlað að út- færa hana og meti hverjir eru líkleg- astir til þess að hafa hugmyndaauðgi og kraft til að fylgja henni eftir. Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar á Ak- ureyri. AÐSENT Logi Már Einarsson

x

Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.