Akureyri


Akureyri - 29.05.2014, Page 22

Akureyri - 29.05.2014, Page 22
22 20. tölublað 4. árgangur 28. maí 2014 G r e i f i n n V e i t i n g a h ú s | G l e r á r g ö t u 2 0 | 6 0 0 A k u r e y r i | w w w . g r e i f i n n . i s Pantaðu á greifinn@greifinn.is eða í síma 460 1600 Ættarmót | Brúðkaup | Stórafmæli | Starfs mannahóf Hvar sem er - hvenær sem er ! Nýjir spennandi seðlar ! Verð frá kr. 1990 MATARGATIÐ FLEIRI UPPSKRIFTIR Á WWW.ALLSKONAR.IS Helga Kvam allskonar.is Sólskinsegg Dásamlegur morgunmatur/hádegis- matur eða forréttur sem samanstend- ur af mjúkri pönnuköku, reyktum lax, capers og lauk, steinselju, blæju- eggi og hollandaise sósu. Algerlega fyrirhafnarinnar virði. Þú getur svindlað ef þú leggur ekki í að útbúa sósuna sjálf/ur og notað pakkasósu, en æfingin skapar meistarann, það er lítið mál að út- búa sósuna en tekur um 10 mínútur að þeyta stanslaust. Enn og aftur sannast þar að fyrirhöfnin er þess virði, úr verður guðdómlega létt og mjúk sósa. Blæjueggin er einfalt að gera og þau eru frábær tilbreyting frá venjulegum soðnum eggjum eða spældum. Pönnukökuuppskriftin er sú sem ég nota alltaf í morgunpönnukökur, þú getur prófað að nota hana með beikoni og eggjahræru, hlynsýrópi og steiktum tómötum. Hún er líka frábær í klatta sem má smyrja og setja álegg á. Undirbúningur: 15 mínútur Eldunartími: 45-60 mínútur PÖNNUKÖKUR (8-10STK) » 145 gr hveiti » 2 tsk lyftiduft » ½ tsk salt » 2 msk hrásykur » 1.5 dl mjólk » 1 egg » 2 msk ólífuolía Settu þurrefnin í skál og blandaðu vel saman. Sláðu saman egginu og mjólkinni í annarri skál, þegar hef- ur blandast vel saman hrærðu þá olíunni út í eggjablönduna. Settu eggjablönduna samanvið þurrefnin og hrærðu í með gaffli. Deigið á að vera frekar þykkt en kekkjalaust. Láttu deigið standa í 5 mínútur áður en þú ferð að steikja kökurnar. Hitaðu pönnu við meðalhita, settu örlítið af olíu í hana og steiktu pönnukökurnar. Ég vel að hafa þær á stærð við lummur, þannig er hægt að steikja 2-3 í einu á pönnunni. Helltu deiginu í pönnuna svo að þú fáir þá stærð á kökunum sem þú kýst, þegar loftbólur fara að mynd- ast á yfirborðinu þá er tími kominn til að snúa kökunum og steikja hinu megin. LAX » 200 gr reyktur lax » 2 tsk capers, fínsaxað » 1 skallottulaukur, fínsaxaður » 2 msk söxuð steinselja » ½ tsk salt » Skerðu laxinn í 2-3mm þykkar sneiðar og leggðu til hliðar. Saxaðu saman capers, skallottu- lauk og steinselju og settu í litla skál, stráðu salti yfir og blandaðu öllu saman. Leggðu til hliðar. HOLLANDAISE SÓSA » 2 eggjarauður » 2 msk kalt vatn » 90 gr mjúkt smjör, í litlum bitum » ½ tsk salt » ¼ tsk hvítur pipar » safi úr hálfri sítrónu Settu vatn í pott og láttu koma upp að suðu, lækkaðu þá undir pottin- um eins og þú getur svo að rétt aðeins sjóði. Best er ef sem minnst hreyfing er á vatninu. Veldu þér stóra góða hitaþolna skál og settu yfir pottinn, athugaðu að vatnið má alls ekki koma við skálina. Settu eggjarauðurnar og vatn í skálina og þeyttu vel, það er ágætt að nota handþeytara. Þegar eggja- rauðurnar hafa tvöfaldast að um- máli og orðnar léttar og ljósgular bætirðu smjörinu við, einum litl- um bita í einu. Passaðu vel hit- ann undir skálinni, vatnið má ekki sjóða því að þá verður hitinn of mikill og þú endar með eggjahræru í stað sósu. Mér hefur reynst best að slökkva undir pottinum þegar ég fer að bæta smjörinu út í, hitinn helst nægur í skálinni til að bræða smjörið. Þeyttu stöðugt, bættu við öðrum smjörbita þegar sá fyrri hef- ur blandast við sósuna og svo áfram koll af kolli þar til smjörið er allt komið út í sósuna. Taktu þá skálina af pottin- um og þeyttu salt og pipar ásamt sítrónusafanum út í. BLÆJUEGG » 4 stór egg » 3 msk hvítvínsedik » 3L vatn Settu vatnið í pott og edikið út í. Láttu suðuna koma vel upp og hrærðu í pottinum til að mynda litla hringiðu eða fá góða ferð á vatnið um pottinn. Brjóttu eitt egg í einu í lítinn bolla og settu rólega út í pottinn, láttu bollann með egginu síga varlega ofan í og láttu vatnið svo grípa eggið. Það eldast á fleyg- iferð í vatninu, passaðu að suðan detti ekki niður. Sjóddu eggið í 3 mínútur, taktu upp úr vatninu og leggðu á disk. Sjóddu næsta egg al- veg eins og koll af kolli. SAMSETNING Settu á disk eina pönnuköku, ofan á hana seturðu 1 msk af Hollanda- ise sósu. Þar ofan á seturðu 1 tsk af steinseljublöndunni, 2-3 laxasneið- ar næst ofan á og svo örlítið meira af steinseljublöndunni. Settu þar næst egg ofan á allt saman og helltu 1-2 msk af Hollandaise sósu yfir. Njóttu vel! VATNSSLAGUR Í VALSÁRSKÓLA. Völundur

x

Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.