Akureyri


Akureyri - 15.05.2014, Page 1

Akureyri - 15.05.2014, Page 1
18. tölublað 4. árgangur 15. maí 2014 VI KU BL AÐ 50% munur á meðaleinkunn Í nýrri skýrslu mennta- og menningar- málaráðuneytis um brottfall nemenda kemur fram að meðaleinkunn nemenda sem innritast í eftirsóttustu framhalds- skóla landsins er yfir ágætiseinkunn. Mikill munur er á meðaleinkunn ný- nema eftir framhaldsskólum. Í skýrslu MMR var safnað gögnum frá framhaldsskólnum um innritun nemenda í framhaldsskóla. Flestir skól- ar raða umsækjendum eftir einkunnum. Gildir þá sú regla hjá þeim skólum sem fá fleiri umsóknir en þeir geta tekið við, að þeir sem hafa hæstu einkunnirnar komast fyrstir inn í skólann. „Það er því ljóst að skólar eru að taka við mis- jöfnum hópi nemenda þegar litið er til námsárangurs þeirra við útskrift úr grunnskóla,“ segir í skýrslunni. Rannsóknir hafa sýnt fram á að lokaeinkunnir úr grunnskóla hafa mest forspárgildi um námsgengi í framhalds- skóla. Í ljósi þessa er gagnlegt, sam- kvæmt því sen segir í skýrslunni, að sjá hve mikill munur er á einkunnum 10. bekkinga eftir því í hvað skóla þeir fara. Svo horft sé á meðaleinkunnir nýnema (fæddir 1997) í íslensku, ensku og stærð- fræði eftir því í hvaða framhaldsskóla þeir fengu inngöngu haustið 2013 sést að Menntaskólinn í Reykjavík og Verslun- arskóli Íslands fleyta einkunnarjómann. Meðaleinkunn þeirra sem innrituðust í MR haustið 2013 var ríf ágætiseinkunn eða 9,12. Meðleinkunn innritaðra nem- enda í Versló var 9,03. Svo horft sé til akureyrsku fram- haldsskólanna tveggja var meðal- einkunn nemenda sem innrituðust síðasta haust í MA 8,15. Meðaleinkun innritaðra nemenda við VMA var 6,7. Munur á meðaleinkunn nýnema er ríflega 50% eftir skólum ef allt er borið saman. Sjá nánar bls. 2 og 4 -BÞ - Hækkum frístundastyrk barna í 25.000 kr. og greiðum til 18 ára aldurs. - Tíðari og markvissari strætóferðir – minna skutl! - Eum nýsköpun og fjölgum vel launuðum störfum. GER UM SKE MMT ILEG RI skemmtilegriakureyri.is 6 Ólína 2 Sigríður 7 Árni 5 Eiður 3 Bjarki 8 Friðbjörg 4 Dagbjört1 Logi BÍLDSHÖFÐA 12 - 110 RE YK JAVÍK - SÍMI: 577 1515 - WWW.SKORRI.IS TUDOR RAFGEYMAR Skeljungur hf - Oddeyrarskála – 600 Akureyri – Sími: 444 3160 MIKIÐ ÚRVAL - TRAUST OG GÓÐ ÞJÓNUSTA TUDOR 35 ÁR Á ÍSLANDI HVORKI FLEIRI NÉ færri en 300 leikskólabörn heimsóttu Slökkvilið Akureyrar í fyrradag. Brunaslangan og vatnsflaumurinn úr henni vakti hvað mesta lukku. Völundur.

x

Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.