Akureyri


Akureyri - 15.05.2014, Blaðsíða 8

Akureyri - 15.05.2014, Blaðsíða 8
8 18. tölublað 4. árgangur 15. maí 2014 VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA? Akureyri vikublað óskar eftir að komast í samband við bæjabúa sem sjaldan eða aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlegast sendið okkur tölvu- póst á bjorn@akureyrivikublad.is eða hringið í síma 862 0856. LOF OG LAST VIKUNNAR LAST fá þeir sem eru alltaf „með í eyrunum“ og huga ekki að umhverfi sínu. Svo skrifar lesandi í bréfi til blaðsins. „Ég er einn þeirra sem hjóla daglega bæinn þveran og endilangan alla daga. Í dag er það þannig að það heyrir til undantekn- ingar að bjalla á hjóli komi að réttum not- um þegar ég tek fram úr gangandi veg- farendum. Ástæðan er sú að ,,allir“ (með örfáum undantekningum) eru með tónlist í eyrunum þegar þeir eru úti að ganga og heyra ekki í bjöllunni. Ég t.a.m. hef aldrei neitt í eyrunum til þess að heyra betur t.d. í bílum og öðrum vélknúnum faratækjum og heyra bara almennt umhverfishljóð. Spurning hvort fólk ætti ekki að láta duga að hafa tónlistina í öðru eyranu í einu,“ segir bréfritari... LAST fá Akureyringar sem ekki nota stefnuljós. Svo segir íbúi í bréfi til blaðsins. „Það er sorglegt að keyra á eftir sama bílnum og sjá hann taka hverja beygjuna á eftir annarri en gefa aldrei stefnuljós. Maður sér varla nokkurn bílstjóra gefa stefnuljós þegar beygjur eru teknar. Sem betur fer eru þó nokkrar hræður sem kunna þetta ennþá,“ segir íbúinn... LAST fær sá sem sendi inn LAST í síðasta dálki um að forstöðumanneskja Sundlaugar Akureyrar bæri ábyrgð á að ekki bæri flaggað á hátíðardögum. Svo segir íbúi sem sendi blaðinu tölvupóst. „Þarna þykir mér tilvísunin vera full persónuleg. Betra hefði verið að setja „lastið“ (ef LAST má kalla) á stofnun- ina eða Akureyrarbæ,“ segir íbúinn... LOF fær Þórhalla í Hagkaupum sem veitti viðskiptavini „frábæra þjónustu“ á dögunum. Svo mælir ánægður kúnni. Fjölskylda var að leggja í hann frá Akureyri til Reykjavíkur og hafði ætlað að kaupa geisladisk með Pollapönki til að stytta ferðalagið fyrir tvo unga farþega. Disk- urinn reyndist uppseldur. Nokkrum mínút- um eftir að fjölskyldan hvarf vonsvikin frá og sá fram á langt ferðalag til borgarinnar hringdi verslunarstjóri Hagkaups á Akur- eyri í viðkomandi og sagði diskinn kominn. Ferðin var ekki hafin og eftir heimsókn í Hagkaup ómuðu bjartar raddir í bilnum þar sem Burtu með fordóma var spilað alls 24 sinnum á leiðinni... AKUREYRI VIKUBLAÐ 18. TÖLUBLAÐ, 4. ÁRGANGUR 2014 ÚTGEFANDI Fótspor ehf. ÁBYRGÐARMAÐUR Ámundi Ámundason 824 2466, amundi @ fotspor.is. FRAMKVÆMDASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. AUGLÝSINGASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. 578-1193. RITSTJÓRI Björn Þorláksson, bjorn @ akureyrivikublad.is, 862 0856 MYNDIR Björn Þorláksson, Völundur Jónsson og fleiri. UMBROT Völundur Jónsson PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja - Svansmerkt prentun. DREIFING 14.500 EINTÖK ÓKEYPIS – UM ALLT NORÐURLAND ÁFRAM HELDUR LEITIN að Akureyringum sem eiga sér tvífara. Lesendum eru þökkuð góð viðbrögð en það rignir hreinlega inn hugmyndum að tvíförum og er lesendum þökkuð mikil og góð þátttaka í þessu græskulausa gríni. Þessa vikuna verður sýnt fram á sláandi líkindi milli Villa naglbíts og leikarans kunna Colin Farrel eins og myndin að ofan er dæmi um. Ekki leiðum að líkjast. Fyrir Colin Farrel sko! AÐSEND GREIN LOGI MÁR EINARSSON Um flugvallarumræðuna Hugsið ykkur mann sem horfir glað- beittur framan í heiminn og heldur að hann hafi höndlað hinn endalega sannleik. Veltið fyrir ykkur samfélagi sem telur sig hafa dottið niður á svo fullkomið fyrirkomulag að ekki sé hægt að gera betur. Maðurinn er líklegur til þess að ráfa um í eigin fá- visku og samfélagið dæmt til þess að staðna og drag- ast aftur út. Það sem einkum skil- ur manninn frá öðrum dýrategundum er gríðar- leg hugkvæmni, færni til þess að læra af öðrum og miðla þekkingunni áfram. Óslökkvandi forvitni og ásókn eftir betra lífi hefur drifið mannkynið stöðugt áfram. Sigrarnir vinnast ekki einungis með hinum stóru uppgötvunum eins og hagnýtingu eldsins, hjólinu eða internetinu. Líka í því smáa; oft með þrotlausri vinnu og snjöllum lausnum, í kjölfar langs efasemdatímabils. Þannig varpaði Tryggvi Helgason frambjóðandi Lýð- ræðisflokksins því fram fyrir 45 árum að réttast væri að bora göng í gegn- um Vaðlaheiðina. Hann var hleginn út af borðinu og hætti í pólitík. Fluttist síðar til Ameríku þar sem hann fylgist aldraður með gangaframkvæmdum úr fjarlægð. Að undanförnu hef ég orðið fyrir talsvert harðri gagnrýni vegna afstöðu minnar til framtíðar Reykjavíkur- flugvallar. Það er reyndar undarlegt ef þetta verður stórt kosningamál hér, þar sem búið er að festa flugvöll- inn í sessi til 2022. Ég kemst þó ekki hjá því að skýra afstöðu mína vegna sóðalegrar greinar Þorkels Ásgeirs Jóhannssonar, flugstjóra Mýflugs, sem birtist á vefnum BB.is og var tek- in upp á visir.is (http:// www.visir.is/sakar-odd- vita-samfylkingarinn- ar-um-ad-ganga-gegn- -hagsmunum-baejarbua/ article/2014140509182). Þar voru mér gerðar upp skoðanir og sakaður um að skeyta ekki um hags- muni Akureyringa. Ég vil öflugt innan- landsflug og tel að Reykja- vík sem höfuðborg beri ríkar skyldur í því samhengi. Það verður þó að sýna því skilning ef Reykvíkingar vilja breyta núverandi fyrirkomulagi og skoða rækilega hvort finnst lausn sem sameinar þessi sjónarmið. Í svari til blaðamanns í kjölfar nefndrar greinar, orðaði ég þetta svona: “Það er að sjálfsögðu gríðarlega mikilvægt að aðgengi allra lands- manna að höfuðborginni sé gott og sjúkraflutningar eins skilvirkir og nokkur er kostur. Það er hins vegar líka bráðnauðsynlegt að Reykjavík nái að styrkjast og þróast til langrar framtíðar. Af hverju látum við þetta mál ekki vera prófstein á það hvort við getum tekist á við flókin viðfangsefni og leyst þau farsællega án gífuryrða og skætings? Viðfangsefnið ætti ekki bara að vera að halda aðstöðu til sjúkra- flutninga og aðgengi að höfuðborginni óbreyttu heldur að þjónustan verði enn betri. Á meðan sú lausn er ekki fundin á flugvöllurinn að sjálfsögðu ekki að víkja úr Vatnsmýrinni.” Og við þetta stend ég. Það er oft þegar maðurinn stendur frammi fyrir flóknum og að því er virðist óleysan- legum viðfangsefnum sem snilli hans kemur best í ljós. Ég vil því gefa þeirri nefnd sem nú er að störfum, m.a. fyrir tilstuðlan ríkisins, umsamið svigrúm til þess að finna lausn sem hámarkar ávinning allra landsmanna. Mér þykir leitt að þessi sjónarmið skuli vera kölluð svik við Akureyringa en ég mun þó ekki láta kúga mig eða hræða til þess að horfast í augu við hlutina af þröngsýni í stað víðsýni. Kjósendur verða svo að gera upp við sig hvort þeir treysti betur stjórn- málamönnum, sem neita að hlusta á aðra, sannfærðir um að hin endanlega lausn sé fundin eða þeim sem trúa því að mannsandanum séu fá takmörk sett og hann eigi að virkja, með sátt að leiðarljósi, í þágu heildarinnar. Höfundur skipar 1. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir bæjarstjórn- arkosningarnar á Akureyri Alltaf sama sagan... Það er töff hjá Sigurði Kristinssyni, prófessor í heim-speki við Háskólann á Akureyri, einum skólamanna utan höfuðborgarsvæðisins, að taka sér stöðu gegn ráðandi öflum og að því er virðist gegn almenningsálitinu með því að gagnrýna lífsýnasöfnun Kára Stefánssonar. Það er beinlínis skylda Sigurðar sem fræðimanns að spyrja spurninga sem ekki höfðu áður komið fram vegna söfn- unarinnar, vara við álitaefnum. Það var einmitt rauði þráðurinn í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Að fræðimenn, sérfræðingar, fjölmiðlar og aðrir sem hafa mikið að segja um gang lýðræðis á hverjum tíma þyrðu að stíga fram og segja meiningu sína, ekki síst þegar meiningin gekk gegn ráðandi hugarfari. Rannsóknarskýrslan var skrifuð til að gera upp liðna tíð. Hún varpaði t.d. ljósi á að blaðamenn gerðu sig seka um að varpa burt sjálfstæði sínu í umfjöllun í aðdraganda hruns. Gagnrýnni hugsun var fórnað á altari peninga- hyggju og heimskulegrar trúar á kraftaverk um að mikið gæti orðið úr engu. Þar vóg þungt sú hugmynd að við Íslendingar værum óendanlega spes, að speslögmál hlytu að gilda um slíka yfirburða spesþjóð. Þeir blaðamenn sem ekki tóku þátt í klappkórnum heldur spurðu gagnrýnna spurninga voru oft fremur illa þokkaðir í aðraganda hruns. Þess minnist ég vel. Reynt var að kaupa þá burt eða ýta þeim út í horn en það átti ekki að breyta því að blaðamenn verða að gera fleira en þeim gott þykir. Einsleit hjörð eins og Íslendingar getur lent í miklum vanda ef blaðamenn fara að líta á starf sitt sem vinsældakeppni. Fyrirsögnin í Fréttablaðinu sl. mánudag er kannski lýsandi fyrir að þjóðin hafi lítið lært af skilaboðum Rann- sóknarskýrslu Alþingis. “Gagnrýni siðfræðinga ómakleg“ er fyrirsögn fréttar sem segir frá hörðum viðbrögðum ráðandi einstaklinga við gagnrýni siðfræðinganna. Þeir sem gagnrýna siðfræðingana hafa margir hverjir hags- muni af skoðun sinni. Er til eitthvað meinfyndnara eða kaldhæðnara en þessi fyrirsögn hjá þjóð sem sór þess eið eftir hrun að taka sig á siðlega? Ef grannt er skoðað verður ekki séð að siðfræðingarnir hafi neina hagsmuni af því að segja hluti sem þeir vissu að yrði ekki vinsælt að segja. Þeir hafa menntað sig og sérhæft sig í siðlegum álitaefnum. En skynsemi þeirra og sjálfstæði drukknar í hjarðhyggjunni. Alltaf sama sagan. Ekki verður annað séð en að hjálparsveitirnar hafi einnig hlaupið á sig í þessu máli. Og okkur er vandi á höndum. Í öllum stórfjölskyldum er a.m.k. einn björg- unarsveitarmaður. Björgunarsveitarmenn bjarga manns- lífum. Þá styttist samkvæmt íslenskri andrökræðuhefð í spurninguna: Ertu kannski á móti björgunarsveitum? Eða: Ertu á móti því að vísindin og hjálparsveitarmennirnir bjargi mannslífum? Sem leiðir okkur að tveimur spurningum sem hér verður nú varpað fram: 1. Er hægt að hafa opinbera skoðun á þessu skeri án þess að sú skoðun tengist afkomulegum hagsmunum eða óskhyggju um kraftaverk? 2. Leyfir íslensk hugsun umræðuhefð þá skoðun að sumar skoðanir séu einfaldlega betri en aðrar, betur undir- byggðar, betur rökstuddar? Björn Þorláksson TVÍFARAR VIKUNNAR LOGI MÁR EINARSSON

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.