Akureyri


Akureyri - 15.05.2014, Blaðsíða 6

Akureyri - 15.05.2014, Blaðsíða 6
6 18. tölublað 4. árgangur 15. maí 2014 Stuðningur við kynjakvóta L-listinn varar við vegna sjávarútvegsauðlindarinnar að „skattað sé til tjóns“ Akureyri vikublað hefur lagt nokkrar spurningar fyrir oddvita allra framboðanna sjö sem bjóða munu fram fyrir bæjarstjórnar- kosningar á Akureyri 31. maí nk. eftir rúman hálfan mánuð. Í þessu tölublaði verður greint frá svörum fulltrúanna við tveimur spurningum blaðsins. Áfram mun boltinn rúlla fram að kosningum, enda skylda fjölmiðla að upplýsa kjósendur um afstöðu stjórnmála- manna og viðhorf til nokkurra álitaefna sem brenna á samfé- laginu. Hér á eftir fara svör odd- vitanna í stafrófsröð eftir nöfnum frambjóðenda: HVER ER ÞÍN SKOÐUN Á KYNJAKVÓTUM? Guðmundur Baldvin Guðmunds- son, oddviti Framsóknarflokksins: „Ég tel að kynjakvóti sé réttlætan- legur á meðan við vinnum að því að auka hlut kvenna í stjórnmálum. Ég tel að góð og heilbrigðari stjórn- un fáist best með sjónarmiðum og röddum beggja kynja.“ Gunnar Gíslason oddviti Sjálf- stæðisflokksins: „Sjálfstæðisflokk- urinn telur það grundvallaratriði að tryggja jafna stöðu og jöfn tækifæri kvenna og karla. Það getur þurft að nota kynjakvóta tímabundið til að ná fram því markmiði.“ Hlín Bolladóttir, oddviti Dögun- ar á Akureyri: „Það er vitað að erfiðara hefur reynst að fá konur til starfa í stjórnmálum en karla. Fyrir því geta verið ýmsar ástæður og ekki ósennilegt að hefðin um að karlar sinni þessum málum sé enn of rík. Þessar hefðir þarf að rjúfa og tel ég að árangursríkasta leiðin sé að kenna kynjafræði strax í leik- og grunnskólum. Það væri líkleg- asta leiðin til að gera jafnrétti sjálf- gefið. Eiginlegt jafnrétti snýst um svo miklu meira en bara kynin. Við þurfum að tileinka okkur þá hugs- un að uppruni okkar, kyn og að- stæður í lífinu sé allt jafn rétthátt.“ Logi Már Einarsson, oddviti Samfylkingarinnar: „Jafnrétti kynj- anna er auðvitað brýnt réttlætismál. Á meðan við höfum ekki náð því eru kynjakvótar ekki einungis réttlæt- anlegir heldur oft bráðnauðsynleg- ir. Markmiðið hlýtur þó að vera að gera þá þarflausa. Jafnrétti, í víð- tækasta skilningi þess orðs, hlýtur að vera það eftirsóknarverðasta sem samfélag stefnir að.“ Margrét Kristín Helgadóttir, oddviti BF: „Takmarkið hlýtur að vera að allir hafi sömu möguleika og sömu tækifæri burtséð frá kyni og öllu öðru sem notað er til að flokka fólk í sundur. Allir eiga að hafa rétt á því að þeir séu metnir að verðleikum. Til að flýta fyrir því að komast nær þessu takmarki getur verið réttlætanlegt að nota kynjakvóta og í raun er hann eina leiðin til að jafna stöðu kynjanna eins og staðan er í dag. Svo ég fái lánaða setningu frá Sögu Garðars- dóttur leikkonu; „Kynjakvótar eru til að koma fullkomlega fram- bærilegum stelp um á mið sem þær eru ragar við að róa á af því að þær hafa ekki fengið sjókort og áttavita. Að fá þær í áhöfn er hreinn gróði fyrir strákana því þær koma með ný veiðarfæri um borð!“ Nema þetta á auðvitað jafnt við um karla og konur!“ Matthías Rögnvaldsson oddviti L-listans: „Það á alltaf að gæta jafnræðis og tryggja jafnræði kynja í sínu starfi og áætlunum. Launa- mun ber að útrýma að sama skapi.“ Sóley Björk Stefánsdóttir, odd- viti VG: „Það er augljós kynja- skekkja í samfélaginu okkar og ég er fylgjandi kynjakvótum til að stytta það sem virðist ætla að verða eilífðar bið eftir raunverulegu jafn- rétti.“ VEIÐIGJÖLDIN UMDEILD Hver er skoðun þín á veiðigjöldum? Voru mistök hjá ríkisstjórninni að eitt fyrsta þingverkið síðasta sum- ar væri að bæta hag útgerðarinnar? Þekkt er að gríðarhagnaður varð af afkomu margra stórra sjávarút- vegsfyrirtækja á sama tíma og auk- ið skattfé gæti bætt almannahag. Guðmundur Baldvin Guð- mundsson: „Ég hef verið fylgj- andi hóflegu auðlindagjaldi en hins vegar verður að gæta þess að gjaldið sé ekki svo íþyngjandi að það komi niður á eðlilegum rekstri. Sérstaklega hef ég áhyggjur af með- alstórum og minni fyrirtækjum þar sem of hátt gjald gæti leitt til enn frekari samruna í greininni, sem ég tel miður. Ég vil sjá að stærsti hluti veiðigjaldsins renni til þess lands- svæðis þar sem það verður til.“ Gunnar Gíslason: „Réttlát veiði- gjöld eru sjálfsögð og eiga að bæta almannahag.“ Hlín Bolladóttir: „Já það voru einfaldlega mistök vegna þess að þetta er auðlind sem á að vera í eigu allra landsmanna.“ Logi Már Einarsson: „Ég er fylgjandi því að þeir sem nota sam- eiginlegar auðlindir greiði af þeim gjöld sem renna í sameiginlegan sjóð landsmanna. Þetta á einnig við um sjávarútveginn. Ég er ósam- mála lækkun ríkisstjórnarinnar á veiðigjöldum eins og hún birtist nú. Ekkert bendir til þess að núverandi gjald sé of hátt miðað við verðmæti þessarar þjóðarauðlindar. Ég tel að útboð á veiðileyfum sé raunhæf og skynsamleg leið til að leggja mat á umfang auðlindarentunnar, auk þess sem útboð færir eiganda auðlindarinnar, almenningi, eðli- legan arð af henni. Sá arður verð- ur þá í samræmi við raunverulega greiðslugetu útgerðarinnar hverju sinni. Sú leið jafnar aðstöðu nýliða og þeirra sem fyrir eru í greininni.“ Margrét Kristín Helgadóttir: „Björt framtíð leggur mikla áherslu á að auðlindir séu meðhöndlaðar á ábyrgan hátt og afrakstur auðlind- anna verði sem mestur fyrir þjóð- félagið í heild. Björt framtíð telur að ekki hafi verið lögð fram sann- færandi rök fyrir því að afrakstur til þjóðarinnar í heild af sjávarauð- lindinni hafi verið aukinn með því að lækka veiðigjöld í því árferði sem nú er.“ Matthías Rögnvaldsson: „Það er engum í hag að skaða rekstur með skattheimtu eða öðrum gjöldum. Það þarf gæta þess að skatta ekki til tjóns, á sama tíma og tryggja þarf réttlátar heimtur af sameign þjóðar okkar og þær heimtur skili sér betur í heimabyggð.“ Sóley Björk Stefánsdóttir: „Ég held það hafi svosem ekki verið mistök heldur gert af yfirlögðu ráði að færa fjármagnið frá grunnþjón- ustu samfélagsins yfir í vasa út- gerða. Mér finnst eðlilegt að samfé- lagið fái arð af okkar sameiginlegu auðlindum.“ a Steinsmiðja Akureyrar • Glerárgötu 36 • S: 466 2800 • sala@minnismerki.is • www.minnismerki.is Opnunartímar: Mán. - fim. kl. 13:00-18:00, föst. kl. 13:00-17:00 Frábært úrval af minnismerkjum! Fagmennska • Gæði • Gott verð • 25 ára reynsla GUÐMUNDUR BALDVIN GUÐ- MUNDSSON GUNNAR GÍSLASON HLÍN BOLLA- DÓTTIR MATTHÍAS RÖGNVALDS- SON SÓLEY BJÖRK STEFÁNSDÓTTIR LOGI MÁR EINARSSON MARGRÉT KRISTÍN HELGA- DÓTTIR X KOSNINGAR 2014 EFTIR RÚMAN HÁLFAN mánuð verður hart barist um 11 stóla í bæjarstjórn Akureyrar. Völundur

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.