Akureyri


Akureyri - 15.05.2014, Blaðsíða 24

Akureyri - 15.05.2014, Blaðsíða 24
14.500 EINTÖK FRÍTT UM ALLT NORÐURLAND Á HVERJUM FIMMTUDEGI | AUGLÝSINGAR 578 1190 & AUGLYSINGAR@FOTSPOR.IS | RITSTJÓRN 862 0856 & BJORN@AKUREYRIVIKUBLAD.IS VI KU BL AÐ Tímarnir breytast – mennirnir með Það hefur greinilega margt breyst á þeim tíma síðan ég sat skóla bekk og las upphátt úr „Kristin fræði – Ljós heimsins“ og kannski hefði ég átt að kynna mér málið betur áður en ég skrif- aði minn síðasta pistil. Í rauninni stingur það mig mest, að fagið skuli enn heita „kristinfræði“ en ekki „trúar- bragðafræði“ eða „trúarbragða- saga“ enda hljómar það mun betur í heimi fjölmenningar. Ég mun aldrei gerast svo barnaleg að neita því að kristin trú hefur mótað okkar vestræna samfélag frá örófi alda og ég held skammarlaust upp á jólin, þó ég hafi slitið samvistum við afmæl- isbarnið. Það geri ég einmitt vegna þess hversu samofin trúar- brögðin eru menningararfi okk- ar. Það er bara svo greypt í minni mitt úr grunnskóla þegar sam- nemandi minn, sem ekki var kristinn, var látinn sitja tím- ana sem í minningunni fjölluðu ekki um neitt annað en kristni. Nemandi þessi kom með okkur í fermingarferðalagið og hlustaði á prestinn tala um trú sem ekki var hans. Aldrei fengum við út- skýringar á því hvað það í raun- inni var sem hann trúði og ekki þorðum við að spyrja – því í þá daga voru allir bara kristnir á Íslandi nema þeir væru innflytj- endur. Það var ekki fyrr en í valá- fanga í 10. bekk að ég lærði hvað það þýddi að vera baháí og ekki fyrr en í 3. bekk í menntaskóla lærði ég að meira er spunnið í Votta Jehóva en þreytandi trú- boð. Það er því gott og gagnlegt að fá svör við spurningunni og sjá að síðan ég sat og þuldi upp ævistörf Salómons konungs – hefur margt breyst. a UM DAGINN OG VEGINN SILJA BJÖRK SKRIFAR Eru flugur, flær eða maurar að ergja þig og bíta? áhrifaríkur og án allra eiturefna. Allt að 8 tíma virkni. Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og hjá N1 www.gengurvel.is Góð nýjung Morgnar eru til þess að njóta! Byrjaðu daginn með skál af Havre- crunch sem bæði bragðast dásamlega og uppfyllir hollustukröfur Skráargatsmerkisins. Prófaðu Havrecrunch ef þér finnst bragðið skipta að minnsta kosti jafnmiklu máli og heilsan. Bragðgóð máltíð. NJÓTTU HOLLUSTU Trefjaríkar flögur og stökkt granóla Nýtt!

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.