Akureyri


Akureyri - 15.05.2014, Blaðsíða 14

Akureyri - 15.05.2014, Blaðsíða 14
14 18. tölublað 4. árgangur 15. maí 2014 Framboðslisti Framsóknar á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningar 31. maí 2014 FRAMSÓKN Á AKUREYRI Úlfhildur Rögnvaldsdóttir Fyrrv. bæjarfulltrúi Guðmundur Baldvin Guðmundsson Bæjarfulltrúi Ingibjörg Isaksen Forstöðumaður Siguróli Magni Sigurðsson Nemi Elvar Smári Sævarsson Kennari Halldóra Hauksdóttir Héraðsdómslögmaður Tryggvi Már Ingvarsson Deildarstjóri Guðlaug Kristinsdóttir Framkvæmdastjóri Húni Hallsson Söluráðgjafi Sigríður Bergvinsdóttir Hársnyrtir Óskar Ingi Sigurðsson Framhaldsskólakennari Ragnhildur Hjaltadóttir Umboðsmaður Jóhannes Gunnar Bjarnason Kennari Regína Helgadóttir Bókari Erlingur Kristjánsson Forstöðumaður Petrea Ósk Sigurðardóttir Leikskólakennari Axel Valgeirsson Meindýraeyðir Viðar Valdimarsson Verkamaður og nemi Guðný Rut Gunnlaugsdóttir Leikskólakennari Klemenz Jónsson Dúklagningameistari Mínerva Björg Sverrisdóttir Leiðbeinandi Jakob Björnsson Framkvæmdastjóri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 13 14 15 16 17 18 19 20 21 2211 12 Gerum góðan bæ betri AÐSEND GREIN DAGUR FANNAR DAGSSON Appið Akureyri – stjórnsýslan í snjallsímana Verkefni stjórnmálanna eru mörg og misjöfn og snúast ýmist um að bregðast við ríkjandi ástandi eða búa í haginn fyrir framtíðina. Eitt af því sem huga þarf að er hvern- ig Akureyrarbær ætlar að færa sér nýjustu samskiptatækni í nyt, bæn- um og bæjarbúum til hagsbóta. Rafræn stjórnsýsla er það sem koma skal og því fyrr sem bærinn markar sér stefnu í þeim efnum því betra. Verkefnið er margslungið því það tekur til innri stjórnsýslu bæj- arins jafnt sem samskipta hans og íbúa. Síðustu tíu ár hef ég unnið fyrir danskt ráðgjafarfyrirtæki sem veitir sérhæfða aðstoð við stefnumótun, hönnun og smíði sérlausna til að auðvelda stjórn- sýslu, stjórnun og samskipti með rafrænum hætti. Lykilatriði í slíku starfi er að áfangastaðurinn sé ákveðinn áður en lagt er upp í veg- ferðina. Nákvæm og vel skipulögð stefnumótunarvinna er nauðsynleg og mikilvægt að sem flestir komi að. Þótt litið geti út fyrir að slíkt starf snúist helst um tæknilegar útfærsl- ur er sannleikurinn sá að það snýst um þætti er varða líf og hagi fólks. Rafræn stjórnsýsla framtíðarinnar mun jöfnum höndum mótast af því samfélagi sem við viljum búa í og móta það sama samfélag. Akureyrarbær er mjög skammt á veg kominn þegar kemur að raf- rænni stjórnsýslu. Ísland allt stend- ur reyndar höllum fæti í mála- flokknum ef marka má alþjóðlegan samanburð, sem hljómar óneitan- lega ankannalega enda tölvunotk- un óvíða jafn útbreidd og á Íslandi. Á meðan þjónustufyrirtæki á borð við banka hafa tileinkað sér nýju- stu samskiptatækni, viðskiptavin- um til hagsbóta, hafa opinberir að- ilar setið eftir. Það er réttmæt krafa almennings að stjórnsýslan hysji upp um sig. Við í L-listanum, bæjarlista Ak- ureyrar, tókum af skarið þegar við ákváðum að opna vefinn betriakur- eyri.is sem er byggður á hugmynda- fræði betrireykjavik.is. Von okkar er sú að vefurinn verði vettvangur skoðanaskipta bæjarbúa um bæ- inn og málefni hans og um leið öfl- ug samskiptarás bæjarins og íbúa. Vert er að taka fram að vefurinn er og verður algjörlega óháður L-list- anum því stjórnun hans verður að öllu leyti í höndum notenda. Með vefnum opnast tækifæri fyrir almenning til að láta í ljós skoðanir sínar á hvernig bærinn hagar þjónustu sinni. Þjónustan er jú fyrir bæjarbúa og hana ber að aðlaga að þörfum þeirra. Um leið er mikilvægt að starfsfólk bæjarins tileinki sér þá aðferðafræði sem býr að baki og sé tilbúið að taka þátt. Í mínum huga gæti fyrsta stóra skrefið orðið að gera reikningsgerð Akureyrarbæjar rafræna: Að færa alla reikninga til og frá sveitar- félaginu í rafrænt form. Við slíka framkvæmd yrði mikilvægt að taka sérstakt tillit til þeirra sem ekki eiga þess kost að sýsla með sín mál í gegnum tölvur en það á t.d. við um marga eldri borgara. Næsta stóra skref gæti orðið átak í vinnslu og birtingu fundargerða bæjarins, nefnda hans og stofnana í nafni opinnar stjórnsýslu. Breytingar sem þessar yrðu ekki gerðar á einni nóttu heldur þyrftu að fá tíma og rúm þar sem mistök eru leyfð enda læra menn mest af mistökum. Framtíðarsýnin er svo svona: Allt sem heyrir undir stjórnsýslu bæjarins verður rafrænt og að- gengilegt í tölvu og síma. Fólk nálg- ast og miðlar upplýsingum vegna skólabarna (t.d. skoðar námsfram- vindu og tilkynnir veikindi), greiðir fyrir alla þjónustu á vegum bæjar- ins (t.d. í sund og á listviðburði) og kemur á framfæri athugsemdum um það sem betur mætti fara. Með tíð og tíma gætu fyrirtæki verið með og þannig yrði t.d. ferðamönn- um gert kleift að panta og greiða fyrir alla þjónustu sem þeir njóta í bænum. Allt á einum stað: Appið Akureyri. Hér hefur einungis verið minnst á örfáa kosti þess að gera stjórn- sýsluna rafræna og opna bæjar- kerfið upp á gátt fyrir bæjarbúum, en möguleikarnir eru óteljandi. Mikið er í húfi því peningar spar- ast, tíminn nýtist betur, þjónustan batnar og bæjarfulltrúar og emb- ættismenn fá aukið og stöðugt að- hald, svo nokkuð sé nefnt. Íbúar eiga að hafa frumkvæði að breytingum og ég hvet fólk til að taka þátt, spyrja sig hvað gera megi betur og gera grein fyrir skoðun- um sínum á betriakureyri.is þegar hann opnar. Höfundur er formaður Félags- málaráðs Akureyrar og skipar þriðja sæti framboðslista L-listans, bæjarlista Akureyrar. Rafræn stjórnsýsla er það sem koma skal og því fyrr sem bærinn markar sér stefnu í þeim efnum því betra. Dagur Fannar Dagsson

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.