Akureyri


Akureyri - 15.05.2014, Blaðsíða 13

Akureyri - 15.05.2014, Blaðsíða 13
15. maí 2014 18. tölublað 4. árgangur 13 AÐSEND GREIN EYDÍS VALGARÐSDÓTTIR Um vefjagigt Það er aðeins aldarfjórðungur síð- an bandarísku gigtlæknasamtökin settu fram greiningarskilmerki fyr- ir vefjagigt. Vissulega var vefjagigt til fyrir þann tíma en gekk und- ir öðrum nöfnum m.a. hugsýki. Á þessum tíma hefur gríðarlega mikið vatn runnið til sjávar og skilningur okkar á sjúkdómnum og flóknum einkennum hefur stóraukist. Talið er að 2-4% þjóðarinnar eða um 10.000 manns hafi vefjagigt og eru konur í meirihluta. Eins- taka barn greinist en algengast er að greiningin komi upp á aldrinum 20-40 ára. Í sinni einföldustu mynd er vefjagigt aukið verkj- anæmi í miðtaugakerf- inu sem þýðir að verkja- boð hvort sem þau hafa ákveðna verkjakveikju í stoðkerfinu eða ekki streyma óhindrað eftir taugakerfinu og magnast innan miðtaugakerfisins. Við vitum í dag að það er brenglun á taugaboðefn- um sem hefur með verkja- upplifun að gera og að fólk með vefjagigt upplifir verki á annan hátt en heilbrigðir. Annað sem fylgir vefjagigtinni er þreyta, oft yfirþyrm- andi þreyta og svefntruflanir eru al- gengar. Skortur á djúpa svefninum, þar sem líkaminn hvílist og endur- nærist, er algengasta svefntruflun- in. Þess vegna vaknar fólk þreytt, jafnvel þreyttara en þegar það fór að sofa og því fylgir stirðleiki því vöðvarnir eru óúthvíldir. Vefja- gigtinni getur fylgt fjöldinn allur af öðrum einkennum frá öllum líffæra- kerfum. Dæmi um nokkur eru, kvið- verkir og ristilkrampar, tíð þvaglát, kláði í húð, fótapirringur, hraður hjartsláttur, dofi, höfuðverkur, ofur- næmi gagnvart birtu, hávaða og lykt, minnisleysi o.fl. Fólk leitar sér hjálp- ar hjá viðkomandi sérfræðingi en oftar en ekki er útkoman sú að allt er í góðu lagi. Það er líka rétt að oftast er allt í lagi með líffærin, truflunin er hjá stjórnandanum – taugakerf- inu. Vefjagigt er ekki geðsjúkdómur en henni geta fylgt andleg einkenni eins og kvíði, depurð, fælni og áfall- streita. ARFGENGUR SJÚKDÓMUR Hjá Þraut (www.thraut. is) hafa menn komist að þvi að dóttir vefjagigtar- konu er 8x líklegri til að fá vefjagigt en almennt gerist. Erfðaþátturinn er því allnokkur. Ýmislegt á lífsleiðinni getur kveikt á vefjagigtinni og má þar nefna líkamlegt eða andlegt álag, áföll, slys og aðrir sjúkdómar. Streita/ofálag andlegt sem líkam- legt er versti óvinur vefjagigtarinn- ar og nóg er af því í þjóðfélaginu. Meðferð vefjagigtar er f.o.f. heildræn meðferð. Fræðsla um eðli sjúkdómsins og lífstílsbreytingar til bóta, svefnbætandi aðgerðir, regluleg þjálfun og slökun og orku- sparandi aðgerðir. Breytt mataræði getur bætt líðan en læknar ekki. Hugræn atferlismeðferð hefur sannað gildi sitt í meðferð vefja- gigtar til að fólk læri að stýra hugs- unum sínum í rétta átt, minnka streituupplifun og líða betur. HVORKI AUMINGJASKAPUR NÉ RUSLAKISTUGREINING Það hefur loðað við vefja- gigtina að hún sé tískusjúkdóm- ur, ruslakistugreining og jafnvel aumingjaskapur. Í mínu starfi hef ég kynnst fjölmörgum vefjagigt- arþolendum og upp til hópa er þetta samviskusamt og hörkudug- legt fólk, sem gerir miklar kröfur til sín (stundum of miklar ) en hefur skerta starfsorku vegna gigtarinnar. Það er orðið tímabært að við sýnum því skilning að álagsþrösk- uldur okkar er mismunandi. Fólk með vefjagigt er mis illa haldið og árangur meðferðar misgóður. Því fyrr sem gripið er í taumana því betra. Það er kúnst að læra hvar mörkin liggja. Flestir hafa starfs- getu þó skert sé og það er allra hag- ur að vinnuveitendur liðki til og gefi fólki tækifæri til að vinna hluta- starf. Hver og einn hefur þörf fyr- ir jafnvægi í lífinu, jafnvægi milli svefns, vinnu, hvíldar, hreyfingar og einkalífs, jafnvægi til að geta lifað hamingju- og innihaldsríku lífi. Í tilefni alþjóðlegs dags vefja- gigtar þann 12.maí býðst lesendum að nýta sér slökunaræfingu sem finna má á youtube, leitarorð: Slök- unaræfing með Eydísi. Njótið vel. Höfundur er sjúkraþjálfari. (Millifyrirsagnir eru blaðsins) AÐSEND GREIN ODDUR HELGI HALLDÓRSSON Kostir samstarfs „Ég hef löngum viðrað þá hugmynd að myndun meirihluta sé óþörf“. Þegar L-listinn kom fram á sjónarsviðið árið 1998 var töluvert annað landslag í bæjarpólitíkinni en nú er. Þá voru reyndar aðeins þrír flokkar því Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur mynduðu Akur- eyrarlistann, sem seinna varð Sam- fylking. Mörgum þótti bæði frekt og ósæmandi að við skyldum ætla að hasla okkur völl inni í bæjarstjórn, utan fjórflokksins. Við lögðum strax áherslu á að vera óháð á landsvísu og að þeim sem með okkur störf- uðu væri jafn frjálst að fara eins og að koma. Okkur hefur lánast að vera fyrir utan flokkadrætti og okkar fólk hefur ekki fengið á sig flokks- stimpil. Eitt af því sem hefur hjálp- að er að fólk sem starfað hefur með okkur hefur jafnvel starfað með og stutt aðra flokka til Alþingis. Við spyrjum engan um flokksskírteini. Við lögðum strax á það áherslu að láta málefnin ráða en ekki hvað- an þau komu. Ég minnist þess að hafa verið átalinn fyrir að styðja við málefni meirihlutans, verandi í minnihluta sjálfur. Nú þykir þetta sjálfsagt. Við höfum verið það lánsöm hér á Akureyri að okkur hefur borið gæfa til að vinna saman hvar sem í flokki menn standa. Á síðasta kjörtímabili, eftir að kreppan skall á, stóðu meiri- og minnihlutinn saman að fjárhagsáætlunargerð. Við höfum haldið þessum vinnu- brögðum áfram og finnst þau bæði sjálfsögð og eðlileg. Þegar L-listinn fékk hreinan meirihluta við síðustu kosningar lögðum við strax áherslu á gott samstarf við fulltrúa minnihlutans. Þeir eru fulltrúar Akureyringa líka. Við gáfum meira að segja eftir meirihluta í þremur nefndum. Það hefur gefið góða raun og ekki skap- að nein vandkvæði. Við höfum líka verið óhrædd að styðja góðar hugmyndir og lausnir sem komið hafa frá fulltrú- um í minnihlutanum. Við höfum verið dugleg að upplýsa og láta minni- hlutann fylgjast með í all- flestum málum og þeir því gjarnan komið með okkur að ákvörðunum. Enda eru ekki mörg mál sem farið hafa í gegnum bæjarstjórn eingöngu á atkvæðum meirihlutans. Ég sat í minnihluta í tólf ár og veit því hversu mikil breyting þetta er. Þetta þykir orðið sjálfsagt og verður það vonandi áfram. Ég hef löngum viðrað þá hug- mynd að myndun meirihluta sé óþörf og á mér þá sýn að okkur tak- ist enn betur að vinna saman sem ein bæjarstjórn. Þetta er hægt með ýmsu móti og ég sé í ræðu og riti að önnur framboð hafa viðrað þessa skoðun líka. L-listinn hefur verið í farar- broddi breyttra vinnubragða og aukins samstarfs. L-listinn telur það eitt af grundvallaratriðum við stjórnun bæjarins og mun því leggja á það mikla áherslu að auka samstarf frekar í framtíðinni, Ak- ureyringum til góða Höfundur er bæjarfulltrúi fyrir L-listann AÐSEND GREIN BERGÞÓRA ÞÓRHALLSDÓTTIR Menntun án landamæra Samfélagið er að taka miklum breytingum vegna gríðarlegrar þróunar á sviði tækni og sumir tala um byltingu í því sambandi. Í dag má segja að kennslustofan eins og flestir þekkja hana sé orðin án allra takmarkana þegar litið er til tækniþróunar. Rafrænt nám Kennsla er ekki lengur háð stað- setningu eða stundaskrá. Nám getur farið fram rafrænt í rafrænu námsumhverfi þar sem verkefni eru lögð fram, unn- in og metin. Skilvirkni tækninnar felst í því að kennari getur fylgst náið með því hvernig nem- andinn stundar nám sitt, aðstoðað hann rafrænt og metið hvaða árangri hann er að ná. Megin- hugsunin er sú að tækn- in er nýtt í skólastarfinu til að auka skilvirkni en um leið skapa sveigj- anleika. Henni er ekki ætlað að gjörbreyta hefðbundnum kennslu- háttum heldur að ná yfirsýn yfir vinnuframlag nemenda sama hvort það fer fram í kennslustofunni eða utan hennar. Nemendum er um leið kennt að nýta tíma sinn vel. Rafrænt nám skapar sveigjanleika sem getur verið eftirsóknarvert fyr- ir nemendur, kennara og skólann. Einstakir skólar og jafnvel sveitar- félög ættu að sameinast í framsetn- ingu rafrænna námskeiða. Beita þarf skynseminni og horfa heild- rænt yfir sviðið því það þurfa ekki allir að finna upp hjólið. Með skipu- lögðu rafrænu námi geta nemendur frá fleiri en einum grunnskóla verið á sama námskeiðinu. Með þessu móti geta nemendur í Grímsey og Hrísey til að mynda sótt sama nám- skeið og nemendur á fastalandinu svo dæmi sé tekið um tækifæri sem þetta skapar. Dæmi um góða fram- setningu og árangur á þessu sviði er K12 verkefnið (www.k12.com) í Bandaríkjunum og Sve- askolan í Svíþjóð (www. sveaskolan.nu). Að nýta tíma vel Hagræðing í kennslu með því að nýta rafræna tækni skapar fjárhagslegt svig- rúm í rekstri skóla m.a. til kaupa á búnaði, hækk- unar launa og eflingu endurmenntunar starfs- fólks. Svigrúm skapast einnig með því að tími er nýttur betur og meira svigrúm myndast í skólastarfinu til að sinna félags- legum þáttum og sköpunarþáttum. Aðferðir rafrænnar kennslu hafa þróast og eflst með tímanum, þær skapa fjölbreytni og eru á margan hátt heppilegar fyrir nemendur með ólíkan bakgrunn og ólíkar þarfir. Með því að nýta tíma nemenda bet- ur myndast svigrúm í skólakerfinu þar sem nemendur geta stundað nám sitt á misjöfnun hraða. Með aðferðum rafrænnar kennslu má stytta grunnskólagöngu nemenda á forsendum nemenda og viðmiðun- um skóla um árangur. Grænt og vænt Rafrænir kennsluhættir stuðla að minni pappírsnotkun, gera ráð fyr- ir notkun rafrænna kennslubóka og létta skólatösku nemenda. Rafrænt námsefni getur skilað skilvirkni í yfirferð efnis með því að nýta sjálf- virkni tækninnar. Tæknin skapar einnig svigrúm þegar um veikindi eða tímabundna fjarveru er að ræða. Áhersla á upplýsinga- og sam- skiptatækni Rafrænir kennsluhættir kalla á endurmenntun, ráðgjöf og stuðning við starfsmenn skóla í notkun upp- lýsinga- og samskiptatækni. Fyrir Akureyri getur rafrænt skólastarf skapað fjölbreytt tækifæri. Þess vegna viljum við Sjálfstæðismenn á Akureyri efla upplýsinga- og sam- skiptatækni í leik- og grunnskóla- starfi. Við viljum vera í fararbroddi íslenskra skóla á þessu sviði. Við viljum byggja upp til framtíðar. Bergþóra Þórhallsdóttir að- stoðarskólastjóri skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Akur- eyri. ODDUR HELGI HALLDÓRSSON BERGÞÓRA ÞÓRHALLSDÓTTIR EYDÍS VALGARÐSDÓTTIR bara fyrstu æfingarnar eða tímana, margar greinar bjóða það nú þegar. Ég er að meina reglulega, þannig að einstaklingur sem einbeitir sér að einni grein geti reglulega fengið að mæta á æfingar í öðrum greinum án þess að greiða fyrir það. Með þessu geta krakkarnir myndað tengsl við margar greinar, þannig að ef að þau fá leið á því sem þau hafa einbeitt sér að verði auðvelt að skipta yfir í eitthvað annað. Þessu fylgir enginn kostnaður. Getum við gert þetta saman? Þetta eru mínar hugmyndir, hverjar eru þínar? Tölum saman og finnum sameiginlega leið, við erum sammála um markmið. Höfundur skipar 2. sætið á framboðslista Dögunar fyrir kosn- ingarnar 31. maí nk. AÐSEND GREIN INGA BJÖRK HARÐARDÓTTIR Getum við gert þetta saman? Gerum skóla­ máltíðir hollari. Við viljum öll að börnin borði hollari mat. Inga Björk Harðardóttir

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.