Akureyri - 15.05.2014, Blaðsíða 22
22 18. tölublað 4. árgangur 15. maí 2014
12 nýjar sýningar í Safnasafninu
Laugardaginn 17. maí kl. 14.00
verða opnaðar 12 nýjar sýningar í
Safnasafninu í Eyjafirði, og er opn-
unin sem fyrr í tengslum við Al-
þjóðlega safnadaginn 18. maí
Á neðri hæð eru 38 grafíkverk
eftir Pieter Holstein í Amsterdam
sem hann gaf safninu 2012 og 2014;
smáskúlptúrar um bankahrunið
eftir Yngva Örn Guðmundsson í
Hafnarfirði; ný nálgun á lífi og
liststarfi Leós Antons Árnasonar á
Selfossi, sem kallaði sig Ljón norð-
ursins; persónuleg tjáning í tré eft-
ir börnin Leikskólanum Álfaborg
og Valsárskóla á Svalbarðseyri, og
kynning á gömlum brúðuhúsum sem
gefin voru af Unu Margréti Jóns-
dóttur í Reykjavík og fjölskyldunni
á Einhóli, Svalbarðsströnd.
Á efri hæð er sýning á manna-
myndum eftir Guðmund Svein-
björn Másson á Seltjarnarnesi sem
gaf safninu 140 pappírsmyndir
eftir sig árið 2012; útsaumur, hekl-
aðar kökur og kindur eftir Arn-
dísi Kristínu Sigurbjörnsdóttur í
Reykjavík; flugvélar úr ýmsum efn-
um eftir höfunda af báðum kynj-
um, þar á meðal Einar Baldursson
á Sólheimum; þar er einnig sýn-
ing sem fjallar um konur í ýmsum
hlutverkum eftir myndhöggvarana
Helga Valdimarsson í Garði, Ragn-
hildi Stefánsdóttur og Sigrúnu
Guðmundsdóttur í Reykjavík; og
pappírsverk eftir 6 menn sem vinna
verk sín í listasmiðjum á Bjarkarási
og Myndlistarskólanum í Reykja-
vík, þá Ásgeir Ísak Kristjánsson,
Inga Hrafn Stefánsson, Ragnar Má
Ottósson, Sigurð Reyni Ármanns-
son, Kolbein Magnússon og Snorra
Ásgeirsson
Stjórn safnsins setur svip sinn
á sýningarnar með uppsetningu og
þátttöku í nokkrum þeirra; hug-
mynd þeirra var að leggja áherslu
þá bjartsýni og gleði sem ríkir í
starfsemi safnsins og beina sjónum
manna að margvíslegum hugmynd-
um, fínlegum útfærslum, björtum
litum og léttu yfirbragði, en um leið
að vekja athygli á alvarlegri hliðum
tilverunnar
Safnasafnið er opið daglega
frá kl. 10.00–17.00 alla daga til 31.
ágúst, en tekið á móti hópum í sept-
ember eftir atvikum. Safnið gefur
gestum sínum veitingar, glæsilega
sýningarskrá og einstaka upplifun
í lifandi skemmtitækjakynningu í
anddyri. a
Til sjávar og sveita í 70 ár
Vélasalan ehf · Dugguvogi 4
104 Reykjavík · Sími, 520 0000
www.velasalan.is
Tehri Nordic 6020 C
Yfir 1000 bátar seldir
30 ár á Íslandi
Listen to the Message
Well the local elections are ahead
of us and somehow I find myself
the running for a new party,
Dögun. The main difference with
this party is that they
are breaking away
from the old four-par-
ty mould with their
creeds and politics,
and concentrating
on policies, rather
than sometimes
empty promises,
something quite new
for Icelandic politics.
In fact I don’t really
know whether my
fellow candidates are
left or right wing and
I don’t really care, except that I
know I can pretty much go along
with their ideas and sense that
they are taking part in an altru-
istic way with no intention of
trying to feather their own nests
or those of their friends, but with
a simple cause to make our town
a better place for us and our
children to live and work in. Too
often politics get in
the way.
I am sure there
are people who
feel that being a
foreigner I don’t
have the knowled-
ge or vocabulary to
have much to say.
However others
think that coming
from a different
background gives me
a different slant on
things and the hope
of introducing some new ideas, or
at least some new perspectives. I
certainly enjoy the brainstorming
sessions with the bunch of lively
characters in Dögun.
Over the years, Icelandic soci-
ety has become increasingly
tolerant of people who are a little
different, talk with an accent,
eat spicy food, prefer their own
sex, dress funny. And this fits
well into the new no-prejudice
movement which we saw take over
Eurovision, with the help of the
Icelandic entry, and where in fact
the message became more import-
ant than politics, ethnicity, culture
or even melody. It is far time that
local and national politics listen
to this message and start to act
accordingly. We are all different.
We all have rights. And we deser-
ve to be listened too, even though
we may not talk, act, belong or
fit into the standard mould. Even
the Putins of this world will be
replaced by intelligent, reasoning
human beings eventually. I know
my friends in Dögun will agree
that the time has come to listen to
the message.
THE ENGLISH CORNER WITH MICHAEL CLARKE
MICHAEL CLARKE
MATARGATIÐ FLEIRI UPPSKRIFTIR Á WWW.ALLSKONAR.IS
Helga Kvam
allskonar.is
Bankabyggs- og fennelsalat
» 225 gr bankabygg
» 8 dl vatn
» 1 meðalstór fennell, fínsneiddur
» 1 rauðlaukur, fínsneiddur
» 1 meðalstór gulrót, gróft rifin
» handfylli steinselja, söxuð
» 4 tsk fennelfræ, möluð/steytt
» 3 msk ólífuolía
» rifinn börkur og safi úr 1 sítrónu
» 1 msk fljótandi hunang
» 2 tsk sjávarsalt
» 1 tsk nýmalaður svartur pipar
Undirbúningur og Eldunartími:
45 mínútur
Byrjaðu á að sjóða byggið í vatni
við meðalhita. Sjóddu í um 35 mín-
útur, helltu vatni af bygginu ef eitt-
hvað er.
Skerðu grænmetið í skál og rífðu
börkinn af sítrónunni út í.
Hrærðu saman fennelfræjun-
um (gott að steyta þau í mortéli
fyrst til að fá bragðið fram), ólífu-
olíunni, sítrónusafanum, hunangi,
saltinu og piparnum. Bættu banka-
bygginu út í grænmetið og helltu
dressingunni yfir. Blandaðu vel
saman. Smakkaðu til með meira
salti og pipar eftir smekk.
Verkmenntaskólinn á Akureyri auglýsir
eftirfarandi stöður lausar til umsóknar:
» Kennari í rafiðngreinum – fullt starf
» Kennari á Tæknisviði – fullt starf
» Áfangastjóri - 90% staða
» Viðburðastjóri 50% staða
Nánari upplýsingar um störfin eru á Starfatorgi.
Skriflegar umsóknir ásamt ferilskrá, prófskírtein-
um og sakavottorði berist Verkmenntaskólanum á
Akureyri, Hringteigi 2, 600 Akureyri fyrir 21. maí.
Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2014. Laun
kennara eru samkvæmt Stofnanasamningi VMA
og félagsmanna í KÍ.
Auk viðeigandi menntunar og/eða reynslu
er sóst eftir starfsmönnum sem hafa til að bera
góða samskiptahæfni, frumkvæði, eru sjálfstæðir
í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í
þróunarstarfi og uppbyggingu náms í samræmi
við lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008).
Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga
framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða
einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið
hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla
almennra hegningarlaga.
Verkmenntaskólinn á Akureyri hefur fengið
ISO-9001 gæðavottun og í skólanum er unnið
með opinn hugbúnað. Einkunarorð skólans eru
Fagmennska - Fjölbreytni – Virðing.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður, auk
aðstoðarskólameistara, í síma 4640300 á skrif-
stofutíma (netföng: hjalti@vma.is og huld@vma.
is). Sjá einnig www.vma.is
Skólameistari
Verkmenntaskólinn á Akureyri auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar:
• Kennari í rafiðngreinum – fullt starf
• Kennari á Tæknisviði – fullt starf
• Áfangastjóri - 90% staða
• Viðburðastjóri 50% staða
Nánari upplýsingar um störfin eru á Starfatorgi. Skriflegar umsóknir ásamt ferilskrá,
prófskírteinum og sakavottorði berist Verkmenntaskólanum á Akureyri, Hringteigi 2, 600
Akureyri fyrir 21. maí. Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2014. Laun kennara eru
samkvæmt Stofnanasamningi VMA og félagsmanna í KÍ.
Auk viðeigandi menntunar og/eða rey sl er sóst ftir starfsmönnum sem hafa til að bera góða
samskiptahæfni, frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í
þróunarstarfi o uppbyggingu náms í samræmi við lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008).
Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða
einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII.
kafla almennra hegningarlaga.
Verkmenntaskólinn á Akureyri hefur fengið ISO-9001 gæðavottun og í skólanum er u nið
með opinn hugbúnað. Einkunarorð skólans eru Fagmennska - Fjölbreytni – Virðing.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður, uk aðstoðarskólameistara, í síma 4640300 á
skrifstofutíma (netföng: hjalti@vma.is og h ld@vma.is). Sjá einnig www.vma.is
Skólameistari