Akureyri


Akureyri - 15.05.2014, Qupperneq 23

Akureyri - 15.05.2014, Qupperneq 23
15. maí 2014 18. tölublað 4. árgangur 23 Garðar er mættur Garðar Kári Garðarsson Matreiðslumaður átti upphaf sitt á Gamla Bauk á húsavík þar sem hann vann á hótel húsavík í 1 ár, kom svo til Akureyrar þegar Strikið opn- aði án þess að vita að hann ætti eftir að vera þó nokkra klukkutímana þarna í skipagötu 14. Garðar var kokkanemi á Strikinu hjá Róberti Häsler og Valdimari Pálsyni, þó svo að Siggi Kalli (Siggi "Pabbi") hafi alltaf verið að reyna að lemja í Garðar vitið! Flutti Garðar svo suður til þess að klára bóklega part- inn af kokkinum, sem er bara kenndur við Menntaskólan í Kópavogi, hóf Garðar svo vinnu með skóla á Fiskfé- laginu og líkaði vel, endaði með að vera yfirkokkur þar í 3 ár, keppti á íslandsmeitaramótinu "skills Iceland 2010" og hafnaði efstur matreiðslunema og 2. Sæti á landsvísu. Eftir þetta kviknaði áhugi Garðars á matreiðslukeppn- um, og keppti hann með ungkokkum Íslands í Írlandi til gulls 2011. Garðar gékk í kokkalandsliðið í janúar 2012 og fór þar að snúa sér að súkkulaðigerð og eftirréttum, þar sem það er mjög krefjandi og erfitt svið innan mat- reiðslugeirans. Garðar keppti í matreiðslumaður Ársins 2012 og hlaut brons verðlaun, keppti svo í Global pastry chef í Svíþjóð 2013 en hafnaði ekki í sæti, keppti svo í desert ársins 2013 og hlaut 2. Sætið. Garðar flutti aftur norður með unnustu sinni og litlum 9 mánaða dreng, og hefur komið sér fyrir við eldavélina á Strikinu! Þar mun hann taka vel á móti heimamönnum jafnt sem útlendinum þarna á 5. Hæðinni í skipagötunni. Garðar er alls ekki hættur í landsliðinu og er eini landsliðskokkurinn sem býr á landsbyggðinni í dag. Það er erfitt segir hann, að búa á landsbyggðinni, "mað- ur er dáltið í burtu og það er ekki beint "gefins" að fara suður, en þetta reddast allt saman!" Garðar er engan veginn sestur í helgann stein, upplifið hvað hann hefur uppá að bjóða á Strikinu! a AUGLÝSING / KYNNING

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.