Fréttablaðið - 19.02.2015, Qupperneq 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014
Fimmtudagur
20
H úðin tekur við sér um leið og SnailGel er borið á. Þetta er ekki bara eitthvert krem, þetta er meira. Framleiðandinn fullyrðir að eftir fjögurra vikna notkun sýnist húðin sex árum yngri,“ segir Svala Rún Sigurðar-dóttir hjá Automax. SnailGel er náttúruleg vara, unnin úr slími sem sniglar framleiða til að endur-nýja kuðung sinn. Uppbyggjandi áhrif þess á húðina uppgötvuðu sniglabænd-ur í Síle, er þeir tóku eftir því að sár og skrámur á höndum þeirra greru óvenju hratt við meðhöndlun sniglanna. Slím sniglanna hafði verið rannsakað í meira en áratug áður en dr. Organic þróaði húðvörulínuna SnailGel. Nú samanstendur línan af kremi, hand-áburði, andlitsserum og augnserum en vörurnar komu á markaðinn fyrir tveimur árum í Bretlandi. „Það finnst á áferð og ilmi dr. Organic varanna hvað þær eru náttúrulegar en aloe vera er undirstaðan í öllum vörum dr. Organic,“ segir Svala. „SnailGel sló algjörlega í gegn og á síðasta ári varð 700% söluaukning í Bretlandi. Stjörnur eins og Katie Holmes nota SnailGel og í fyrravetur var SnailGel-
línan valin „Uppáhald viðskiptavina“
hjá Holland&Barret, en vörulínan fæst
eingöngu þar í Bretlandi. SnailGel kom
á markaðinn hér á Íslandi í nóvember í
fyrra og viðtökurnar fóru fram úr björt-
ustu vonum. SnailGel er ein af okkar
mest seldu vörum í Heilsuhúsinu,“
segir Svala.
Hugmyndafræði dr. Organic gengur
út á að það sem borið er á líkama
eins náttúrul
EFLIR ENDURNÝJUN HÚÐARINNARAUTOMAX KYNNIR SnailGel-húðvörulína dr. Organic er unnin úr slími snigla.
Uppbyggjandi áhrif þess á húðina uppgötvuðu sniglabændur þegar skrámur á
höndum þeirra greru óvenju hratt og vel þegar þeir handléku sniglanna.
NÁTTÚRULEGT SnailGel er náttúruleg vara, unnin úr slími sem sniglar fram-
leiða til að endurnýja kuðung sinn. Kremið er afar rakagefandi og mýkjandi og
er öflgt á hrukkur og ör.
■ SnailGel inniheldur slím snigla, aloe vera og sítrónugras.■ Virku efnin í SnailGel er náttúru-legt collagen og el
HATTAHEFÐÞá hefð Englendinga að bera hatta við hátíð-
leg tilefni má rekja aftur til tíma Elísabetar I.
Englandsdrottningar. Árið 1571 var sett laga-
ákvæði um að allir yfir sjö ára aldri yrðu að
vera með hatt á sunnudögum.
Fylgist með okkur á
Allar buxur
á Útsölunni
komnar á
50%
afslátt!
Yfirhafnir
fyrir vorið
komnar frá
Basler!
TÆKIFÆRISGJAFIR
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
www.tk.is
- mikið af frábærum tilboðum
10% afsláttur
SÉRBLAÐ
Fólk
Sími: 512 5000
19. febrúar 2015
42. tölublað 15. árgangur
Mesti sandstormurinn
Eftir Eyjafjallajökulsgosið mældu
vísindamenn mestu efnisflutninga
sem sögur fara af. Landrof var
gríðarlegt og milljónir tonna af
jarðvegi hurfu á haf út. 4
Rýmri reglur Rýmri reglur eru um
staðgöngumæðrun í nýju frumvarpi
sem heimilar staðgöngumæðrun í
velgjörðarskyni en um ættleiðingar. 2
Milljón í yfirdrátt Landsmenn
skulda 86 milljarða í yfirdráttarlán.
Umboðsmaður skuldara segir dýrt að
vera með yfirdráttarheimild. 6
Táningar reyna á foreldrana Tán-
ingsaldurinn er erfiðari fyrir foreldrana
en börnin, segir sérfræðingur. 16
MENNING Evrópskar kvik-
myndir á Stockfish-hátíð-
inni sem hefst í dag. 32
LÍFIÐ Kaleo er á leið í tón-
leikaferð um Bandaríkin
með Vance Joy. 50
SPORT Blikar hjálpa fyrr-
verandi liðsmanni að borga
háan tannlæknareikning. 46
ht.is
Engin venjuleg upplifun
Við kynnum
Philips Ambilight
9000 sjónvörpin
með
Android
SKOÐUN Jakob Frímann
skrifar um hvítþvott skó-
skúrka og höfundarrétt. 24
MENNING „Með þessu get ég ekki
betur séð en staða Náttúruminja-
safns Íslands sé verri í dag en hún
hefur nokkru sinni verið,“ segir
Hilmar J. Malmquist forstöðumað-
ur um húsnæðismál safnsins en
húsaleigusamningi við safnið í Loft-
skeytastöðinni var sagt upp frá og
með 1. febrúar síðastliðnum.
Forsætisráðuneytið sendi frá sér
fréttatilkynningu í gær um að for-
sætisráðherra, rektor HÍ, og þjóð-
minjavörður hefðu undirritað á
þriðjudag samning um að Þjóðminja-
safn Íslands afhenti Háskóla Íslands
gömlu Loftskeytastöðina við Brynj-
ólfsgötu 5 til afnota, þar sem Nátt-
úruminjasafnið hefur skrifstofu-
aðstöðu, en stofnunin sinnir ekki
sýningarhaldi á eigin vegum þrátt
fyrir að vera eitt þriggja höfuðsafna
Íslands.
Þar segir að við undirritun samn-
ingsins taki HÍ við ábyrgð hússins,
viðhaldi og viðgerðum „auk þess
að velja húsinu viðeigandi hlutverk
sem hæfir sögu þess og byggingar-
sögulegu gildi, s.s. á sviði skipulags-,
umhverfis- og menningarfræða og
tæknigreina“. Taki Háskólinn strax
yfir allt húsið verður Náttúruminja-
safnið að vera komið úr Loftskeyta-
stöðinni með allt sitt hafurtask fyrir
lok júlí.
Hilmar kom að máli við forsvars-
menn háskólans þar sem fram kom
að safninu yrði ekki ýtt út fyrr en
búið væri að finna lausn á húsnæðis-
vanda þess, en Hilmar segir að eftir
sem áður séu öll mál er varða safnið
í fullkominni óvissu.
Þessar ákvarðanir koma sér illa
fyrir safnið og setja starfsemina
og það uppbyggingarstarf sem átt
hefur sér stað á undanförnu rúmu
ári í uppnám. Í húfi er m.a. rann-
sóknarsamstarf við háskólastofnanir,
segir Hilmar og bætir við að ekkert
samráð hafi verið haft við hann þótt
áhugi á áframhaldandi veru í húsinu
hafi verið ráðamönnum kunnur.
Spurður um framtíð safnsins segir
Hilmar að mikill áhugi sé fyrir sýn-
ingarhaldi í Perlunni, en Reykjavík-
urborg hefur lýst yfir vilja sínum til
þess og fjárfestir er tilbúinn að koma
að uppbyggingu.
„Málið er til skoðunar í mennta-
málaráðuneytinu en við væntum
þess að staðan þar skýrist fljótlega.
Það hefur ekki horft vel með sýning-
arhald fyrir þessa stofnun, og meira
að segja óvissa núna um skrifstofu-
haldið. Þjóðin á miklu betra skilið
en þessa bágbornu stöðu. Við erum
að tala um höfuðsafn þjóðarinnar í
náttúrufræðum,“ segir Hilmar en
hrakningasaga Náttúruminjasafns-
ins í húsnæðismálum teygir sig nú
126 ár aftur í tímann. - shá
Höfuðsafn á leið á götuna
Leigusamningi Náttúruminjasafnsins hefur verið sagt upp. Algjör óvissa er um öll húsnæðismál þess, en
sýningarrými hefur ekkert verið um árabil. Grunnsýning í Perlunni stendur og fellur með ákvörðun ráðherra.
Grunnsýningu Náttúruminjasafnsins átti að opna í Perlunni haustið 2014,
samkvæmt samningi sem var undirritaður 13. mars 2013 af ríki og borg.
● Uppbygging sýningarinnar var liður í fjárfestingaráætlun ríkisstjórnar
Jóhönnu Sigurðardóttur; 500 milljónum átti að verja til hönnunar og upp-
setningar í Perlunni.
● Þessum áformum var ætlað að auka vitund landsmanna um náttúru Íslands,
efla náttúrufræðikennslu á öllum skólastigum og veita aðgang að fræðsluefni
fjölda stofnana. Eins var vægi slíkrar sýningar talið mikið í ferðaþjónustu.
GRUNNSÝNINGU NÍ ÁTTI AÐ OPNA Í FYRRA
Bolungarvík -4° NA 17
Akureyri -1° NA 11
Egilsstaðir 0° NA 5
Kirkjubæjarkl. 2° N 5
Reykjavík 1° NA 14
KÓLNAR Í dag verða norðaustan 10-18
m/s hvassast NV-til í fyrstu en A-til
síðdegis. Snjókoma eða él N-lands og
syðra. Kólnandi veður. 4
KÓSÍ
KVÖLD
OPIÐ TIL 22
NÝTT KORTATÍMABIL
KYNNTU ÞÉR
FRÁBÆR
TILBOÐ Á
OPNU INNI
Í BLAÐINU
SAMFÉLAG Mikil aukning hefur
orðið á því að stúlkur og ungar
konur láti gata á sér geirvört-
urnar. Eigendur stofa sem bjóða
upp á slíka götun segjast finna
fyrir mikilli aukningu. Hin 28
ára Snædís Snorradóttir lét gata
á sér geirvörturnar fyrir þrettán
árum og segist sjá eftir því. Hún
varar ungar stúlkur við því að
fara í slíka aðgerð. „Ég hugsaði
þetta ekki til enda og var ómeð-
vituð um mögulegar afleiðingar
á brjóstagjöf.“
Seselia Guðrún Sigurðardóttir,
eigandi Tattoo og skart á Hverf-
isgötu, segir vinsælt að vinkonu-
hópar komi og láti gata á sér geir-
vörturnar. „Við þekkjum dæmi
þess að heilu vinkvennahóparnir
eru gataðir og partur af inn-
vígsluferlinu er einmitt að láta
gata geirvörtu,“ útskýrir hún.
Hún segir að stúlkur niður í fjór-
tán ára komi á stofuna til þess
að láta gata á sér geirvörturnar,
en krafist er fylgdar foreldra ef
stúlkurnar eru undir lögaldri.
„Undanfarið ár hefur aðsóknin
aukist um 100% og aldur þeirra
sem óska eftir þjónustunni verð-
ur sífellt lægri.“ Hún segir jafn-
framt að konur sem taki þátt í
fitness-keppnum séu stór hópur
viðskiptavina sinna og telur
vinsældir götunar á geirvört-
um tengjast auknum vinsæld-
um fitness-keppna hér á landi.
Brjóstagjafarráðgjafi og ljós-
móðir sem Fréttablaðið ræddi
við segist ekki mæla með því að
ungar stúlkur láti gata á sér geir-
vörturnar.
- ga / sjá síðu 50
Að gata á sér geirvörturnar er í tísku meðal unglingsstúlkna og ungra kvenna:
Stúlkubörn láta gata geirvörtur
Undan-
farið ár hefur
aðsóknin
aukist um
100% og aldur
þeirra sem
óska eftir
þjónustunni verður sífellt
lægri.
Seselia Guðrún Sigurðardóttir,
eigandi Tattoo og skart á Hverfisgötu
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarstjóri
Hafnar fjarðar viðurkenndi í
tölvupósti að hafa skoðað sím-
talagögn bæjarfulltrúa.
Bæjarfulltrúar minnihlutans í
Hafnarfirði segja skýringar bæj-
aryfirvalda ekki duga til þess
að þeir kalli aftur kvörtun til
Persónuverndar vegna skoðun-
ar á símanotkun þeirra. Í tölvu-
pósti sem Haraldur L. Haralds-
son bæjarstjóri sendi þremur
bæjarfulltrúum í gær og las
upp á bæjarstjórnarfundi í gær,
kemur fram að í tvígang hafi
verið reynt að finna út hver rætt
hefði við tiltekinn bæjarstarfs-
mann í síma.
Þá hafi Vodafone verið beðið
að skoða hvort hringt hefði verið
í ákveðið númer milli klukkan 10
og 16 þann 14. nóvember 2014 úr
einhverjum síma sem Hafnar-
fjarðarbær greiddi fyrir.
- gar / sjá síðu 8
Bæjarfulltrúar ekki sáttir:
Skoðaði gögn
um símtölin
SPRETTUR Áhugamannamót í fi mmgangi fór fram í gær í Sprettshöllinni á vegum hestamannafélagsins Spretts. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
1
8
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
D
A
-0
0
F
C
1
3
D
9
-F
F
C
0
1
3
D
9
-F
E
8
4
1
3
D
9
-F
D
4
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K