Fréttablaðið - 19.02.2015, Síða 6
19. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hversu miklu er varið í birtingu
auglýsinga á ári á Íslandi?
2. Í hvaða fjalli verður risastökkpúði
fyrir snjóbrettafólk?
3. Í hvaða bæ skoðuðu bæjaryfi r-
völd símtalaskrár bæjarfulltrúa án
vitundar þeirra?
SVÖR:
1. Að minnsta kosti 10 milljörðum.
2. Hlíðarfjalli á Akureyri. 3. Hafnarfi rði.
FJÁRMÁL Heildarupphæð yfir-
dráttar lána landsmanna árið 2014
var 85,9 milljarðar króna. Það
þýðir að að meðaltali skuldar hvert
heimili um 1,1 milljón króna í yfir-
dráttarlán. Miðað við hefðbundna
vexti yfirdráttarlána, 12,5 prósent,
greiða landsmenn árlega tæplega
11 milljarða króna í vexti af yfir-
dráttarlánum.
Yfirdráttarlánin hafa heldur
verið að hækka undanfarin ár, en
hafa verið á milli 80 og 90 millj-
arðar síðan í desember 2011. Sé
fjölda heimila deilt í upphæðina,
til að finna út meðaltalið, kemur
í ljós að árið 2010 var meðalyfir-
dráttarheimild hvers heimilis um
937 þúsund.
„Við höfum fylgst með þessum
tölum og ekki lesið úr þeim neina
afgerandi þróun síðustu árin. Þær
virðast sitja á svipuðum stað og því
höfum við ekki rýnt þær sérstak-
lega,“ segir Jón Bjarki Bentsson,
hjá greiningardeild Íslandsbanka.
Svanborg Sigmarsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi umboðsmanns skuld-
ara, segir rétt að vera vakandi yfir
þessum tölum.
„Það er ofboðslega dýrt að vera
með yfirdráttarheimild. Að yfir-
dráttarheimild sé að jafnaði í kring-
um milljón á heimili, er mjög dýrt.
Það er spurning hvort fólk getur
borgað niður yfirdráttarheimild-
ina, eða hvort það er ekki með nægi-
legar tekjur til framfærslu.“
Umboðsmaður skuldara hefur
bent fólki á að ef sóst er eftir því
að borga yfirdráttinn niður bjóði
flestir bankar betri kjör en á hefð-
bundnum yfirdráttarheimildum.
„Fólk getur þannig lækkað
vaxtakostnaðinn töluvert með því
að semja um niðurgreiðslu á yfir-
drætti á ákveðnum tímapunkti.“
Kortavelta hefur heldur aukist
undanfarin ár, sem bendir til þess
að einkaneysla heimilanna sé að
aukast.
„Kreditkortanotkun gefur
ágætis vísbendingu um þróun
einkaneyslu heimilanna og þar
hefur verið myndarlegur vöxtur,
sérstaklega í erlendum færslum,“
segir Jón Bjarki.
Svanborg segir að velta debet-
korta sé nokkuð stöðug, um 120
til 140 þúsund á mánuði. Hins
vegar komi toppur í desember og
í sumar frísmánuðunum sem rími
við hækkun yfirdráttarheimildar
á þeim tíma.
„Þetta sýnir okkur að fólk er
ekki almennt að undirbúa sig undir
stór útgjöld, eins og jól og sum-
arfrí.“ kolbeinn@frettabladid.is
Meðalheimili með
milljón í yfirdrátt
Landsmenn skulda 86 milljarða króna í yfirdráttarlán. Svipuð upphæð og síðustu
ár. Þjóðin hækkar yfirdráttinn fyrir jól og sumarfrí. Einkaneysla heimilanna er að
aukast. Dýrt að vera með yfirdráttarheimild, segir umboðsmaður skuldara.
Að
yfirdráttar-
heimild sé að
jafnaði í
kringum
milljón á
heimili, er
mjög dýrt.
Svanborg Sigmarsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi umboðsmanns skuldara
MEÐALYFIRDRÁTTARLÁN Á HEIMILI
YFIRDRÁTTARLÁN
2014
2013
2012
2011
2010
1.200.000
1.000.000
800.000
600.000
400.000
200.000
0
120
100
80
60
40
kr.
milljarðar króna
júní
júní
júní
júní
júní
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
2005
2004
2003
➜ Fyrirtæki skulda
um 74 milljarða í
yfirdráttarlán
verður haldinn fimmtudaginn 19. mars kl. 20 í safnaðarheimili
Áskirkju, Vesturbrún 30, Reykjavík.
Hefðbundin aðalfundarstörf.
Stjórn HÍB
Aðalfundur Hins íslenska biblíufélags
fyrirtæki
heimili
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Allsherjar- og menntamála-
nefnd Alþingis ákvað á fundi sínum síð-
astliðinn þriðjudag að fresta afgreiðslu
áfengisfrumvarpsins svokallaða.
Guðbjartur Hannesson, þingmaður
Samfylkingarinnar, gagnrýndi skort
á upplýsingum um áhrif breyting-
anna sem fylgdu frumvarpinu. „Ég fór
yfir nefndarálitið og gagnrýndi að þar
hefði ekki komið fram neitt kostnaðar-
mat,“ segir Guðbjartur. „Þarna vant-
ar allar upplýsingar um kostnað við
framkvæmd frumvarpsins og einnig á
eftir að meta hverjar afleiðingarnar af
breytingunum gætu orðið,“ segir Guð-
bjartur.
„Vandamálið er að við höfum ekki
aðgang að fjárlagaskrifstofu fjármála-
ráðuneytisins til að vinna slíkt mat,“
segir Vilhjálmur Árnason, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og flutningsmað-
ur frumvarpsins. „En í þess stað tínum
við saman gögn á borð við ársreikninga
ÁTVR og svör fjármálaráðherra sem
við teljum duga til,“ segir Vilhjálmur,
sem vonar að með bættu nefndaráliti
geti málið verið afgreitt úr nefnd.
- srs
Áfengisfrumvarp Vilhjálms Árnasonar er fast í nefnd vegna skorts á upplýsingum um kostnað:
Kostnaðarmat frumvarps ófullnægjandi
VILHJÁLM-
UR ÁRNA-
SON Erfitt
er að vinna
kostnaðar-
mat á þing-
mannafrum-
vörpum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON
Ný slökkvistöð tekin í notkun
FYRSTI STARFSDAGURINN Ný slökkvistöð var tekin í notkun í Mosfellsbæ í gær.
Fyrsta skóflustungan var tekin í júní árið 2013 af Jóni Gnarr, þáverandi borgarstjóra.
Talið er að ný slökkvistöð muni stytta viðbragðstíma slökkviliðs- og sjúkraflutnings-
manna og gera þeim kleift að veita betri grunnþjónustu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Möndlumjöl í kryddblöndu:
Kalla inn krydd
eftir ábendingu
NEYTENDUR Matvælastofnun
barst í gær tilkynning frá danska
matvælaeftirlitinu og RASFF
evrópska viðvörunarkerfinu um
innkallanir á kryddblöndu.
Um er að ræða tilteknar krydd-
blöndur frá framleiðandanum
Santa Maria en í þeim hefur
fundist möndlumjöl sem ekki
er merkt í innihaldslýsingu á
pakkningunum. Fyrirtækið Santa
Maria fann snefil af möndlum í
paprikudufti í kryddblöndunum
Allround-kryddi og Steak Rub-
kryddi.
Einungis ein verslun á Íslandi
hefur verið með vöruna á mark-
aði en hún hefur verið tekin úr
umferð. - srs
STJÓRNSÝSLA Höfuðborgarstofa
fylgdi ekki stjórnsýslulögum
við upplýsingagjöf um feril og
menntun umsækjanda í starf
deildarstjóra markaðs- og kynn-
ingardeildar. Þetta kemur fram í
áliti umboðsmanns Alþingis.
Umsækjandi um stöðuna leit-
aði til umboðsmanns Alþingis og
kvartaði yfir ákvörðun Höfuð-
borgarstofu um að synja honum
um aðgang að áðurnefndum upp-
lýsingum.
Umboðsmaður beinir þeim til-
mælum til Höfuðborgarstofu að
orðið verði við beiðni umsækj-
andans og að sambærileg sjón-
armið verði viðhöfð í framtíðar-
störfum Höfuðborgarstofu. - srs
Fór ekki að lögum:
Umboðsmaður
skilar inn áliti
VEISTU SVARIÐ?
1
8
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
D
A
-2
D
6
C
1
3
D
A
-2
C
3
0
1
3
D
A
-2
A
F
4
1
3
D
A
-2
9
B
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K