Fréttablaðið - 19.02.2015, Blaðsíða 12
19. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
ÚKRAÍNA Úkraínska herliðið hélt
í gærmorgun frá bænum Debalt-
seve, þar sem það hefur átt í hörð-
um átökum við uppreisnarmenn
undanfarnar vikur. Petró Porosj-
enkó Úkraínuforseti skýrði frá
þessu í gær.
Samkvæmt friðarsamkomulag-
inu, sem gert var í síðustu viku,
áttu báðar fylkingar að vera hætt-
ar bardögum og byrjaðar að flytja
þungavopn sín burt frá átakasvæð-
unum. Bardagarnir um Debaltseve
virtust ætla að koma í veg fyrir að
vopnahlé yrði að veruleika.
Evrópusambandið hafði meðal
annars hótað Rússum frekari
refsiaðgerðum drægist það á lang-
inn að koma á friði í samræmi við
ákvæði samkomulagsins. Í þeirri
hótun felst að til þess sé ætlast af
rússneskum stjórnvöldum að þau
beiti áhrifum sínum til þess að fá
uppreisnarmennina í austanverðri
Úkraínu til þess að leggja niður
vopn.
Porosjenkó Úkraínuforseti full-
yrti að herinn hefði ekki farið fyrr
en búið var að ganga úr skugga
um að Debaltseve væri á valdi
stjórnar hersins, en aðeins daginn
áður höfðu uppreisnarmenn fullyrt
að þeir væru búnir að ná bænum
á sitt vald.
Uppreisnarmenn litu hins vegar
greinilega á brotthvarf Úkraínu-
hers sem ótvíræðan sigur sinn.
Samkvæmt samkomulaginu eiga
uppreisnarmenn einnig að fara
með sín þungavopn frá Debaltseve.
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
vandaði síðan Úkraínustjórn ekki
kveðjurnar í gær, þar sem hann
var staddur í opinberri heimsókn
í Ungverjalandi.
Hann sagði Úkraínustjórn
verða að sætta sig við að vera
þegar búin að tapa þessu stríði.
Hún gæti engu náð fram lengur
nema þá helst því að fleira fólk
léti lífið. „Það myndi engu breyta
um niðurstöðuna,“ hafa fjölmiðlar
eftir honum.
Bæði Pútín og Sergei Lavrov,
utanríkisráðherra Rússlands,
hvöttu hins vegar uppreisnar-
menn til þess að taka vel á móti
úkraínskum hermönnum sem
leggja niður vopn. Pútín sagði upp-
reisnarmönnum að leyfa úkraínsku
hermönnunum að fara heim til sín.
Ákvæði vopnahléssamkomu-
lagsins hafa að öðru leyti verið
virt að mestu annars staðar í
austan verðri Úkraínu.
Alls hafa átökin í Úkraínu kost-
að meira en fimm þúsund manns
lífið frá upphafi, en þau hófust í
apríl á síðasta ári.
gudsteinn@frettabladid.is
Herinn fór frá Debaltseve
Pútín Rússlandsforseti segir að Úkraínustjórn hafi tapað og geti engu náð fram lengur nema að fleira fólk láti
lífið. Hann hvatti uppreisnarmenn til að koma vel fram við úkraínsku hermennina og leyfa þeim að fara heim.
HAFA SIG Á
BROTT Úkra-
ínskir hermenn
búa sig undir að
yfirgefa Debalt-
seve.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
➜ Bæði Vladímír Pútín Rúss-
landsforseti og Sergei Lavrov,
utanríkisráðherra Rússlands,
hvetja uppreisnarmenn til
þess að taka vel á móti úkra-
ínskum hermönnum sem
leggja niður vopn.
Tryggingamiðstöðin hf.
Aðalfundur 2015
Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafa-
fundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja
fram skriflegt eða rafrænt umboð á eyðublaði eða í
samræmi við eyðublað sem aðgengilegt er á
tm.is/fjarfestar. Rafrænt umboð skal sent félaginu á
stjorn@tm.is áður en fundur hefst.
Ekki verður unnt að greiða atkvæði með raf-
rænum hætti á fundinum. Óski hluthafi að taka
fyrirfram þátt í atkvæðagreiðslu skriflega og fá
sendan atkvæðaseðil skal hann gera skriflega
kröfu þar um til félagsins eigi síðar en fimm
dögum fyrir fundinn.
Að auki er unnt að greiða atkvæði á skrifstofu
félagsins á venjulegum opnunartíma (kl. 8:30 til
16:30) til og með 11. mars 2015, en fyrir lokun
skrifstofu þann dag skal einnig skila þangað
sendum atkvæðaseðlum. Nánar fer um atkvæða-
greiðsluna og gildi atkvæða samkvæmt henni
eftir reglum félagsins um atkvæðagreiðslu utan
hluthafafundar, settum af stjórn félagsins
18. desember 2013.
Framboð til stjórnar skal tilkynna skriflega til
félagsstjórnar skemmst fimm dögum fyrir
hluthafafundinn. Tilkynning um framboð skal
vera á sérstöku eyðublaði sem stjórn félagsins
lætur í té og unnt er að nálgast á vef félagsins,
tm.is/fjarfestar.
Í tilkynningunni skal veita greinargóðar
upplýsingar um þau atriði sem tilgreind eru
á eyðublaðinu, sbr. 1. mgr. 16. gr. samþykkta
félagsins. Unnt er að senda félagsstjórninni
útfyllta og undirritaða framboðstilkynningu
fyrir lok framboðsfrests á stjorn@tm.is.
Dagskrá aðalfundar og tillögur sem fyrir hann
verða lagðar, svo og aðrar nauðsynlegar
upplýsingar um fundinn má finna á tm.is/fjarfestar.
Þá mun ársreikningur (samstæðureikningur)
félagsins, skýrslur stjórnar og endurskoðenda
auk tillögu stjórnar um starfskjarastefnu liggja
frammi á skrifstofu og á vef félagsins hluthöfum
til sýnis hálfum mánuði fyrir fundinn.
Eigi síðar en tveimur dögum fyrir fund verða
birtar á vefsíðu félagsins upplýsingar um
framboð til stjórnar.
Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á
fundinn á fundarstað hálfri klukkustund áður
en hann hefst og fengið fundargögn afhent.
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. verður
fimmtudaginn 12. mars 2015 kl. 16.00 í Hvammi á
Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á síðast
liðnu starfsári.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt
skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um ráðstöfun tekjuafgangs félagsins.
4. Tillögur til ákvörðunar um lækkun hlutafjár og
heimild til kaupa á eigin hlutum.
5. Ákvörðun um tillögu stjórnar um starfskjarastefnu
félagsins.
6. Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins,
19. gr. þeirra, þannig að fjöldi varamanna í stjórn
félagsins verði tveir í stað fimm.
7. Ákvörðun um þóknun til stjórnar.
8. Kosning stjórnar félagsins.
9. Kjör endurskoðenda (endurskoðunarfélags).
10. Önnur mál löglega fram borin.
Tryggingarmiðstöðin Síðumúla 24 Sími 515 2000 tm@tm.is tm.is
MENNTUN Fyrirlesarinn Paula
Lejonkula mun segja frá verkefni
sem hún fer fyrir og felst í því
að fjölga iðnnemum í byggingar-
greinum með því að laða að fleiri
stúlkur á Menntastofu Samtaka
iðnaðarins, á morgun 19. febrú-
ar á Hótel Nordica. Hér á landi
vex þörf á iðn-, verk- og tækni-
menntuðu fólki langt umfram
þann fjölda sem útskrifast í þeim
greinum ár hvert og Paula telur
að betur megi svara eftirspurn-
inni með því að jafna kynjahlut-
fall í iðnaði. - kbg
Svör um iðnnám stúlkna:
Vill fleiri stúlk-
ur í iðnnám
SVISS Saksóknarar í Genf gerðu
húsleit í aðalútibúi breska bank-
ans HSBC í Sviss í gær. Bank-
inn hefur orðið uppvís að því að
hjálpa viðskiptavinum sínum við
að koma fé undan skatti í stórum
stíl í meira en 200 löndum.
Rannsóknin beinist að stór-
felldu peningaþvætti bankans, að
því er Oliver Jornot, aðalsaksókn-
ari í Genf, sagði fjölmiðlum í gær.
- gb
Rannsókn á peningaþvætti:
Húsleit í útibúi
HSBC í Genf
SAKSÓKNARINN Olivier Jornot, aðal-
saksóknari í Genf. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
1
8
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
D
A
-2
8
7
C
1
3
D
A
-2
7
4
0
1
3
D
A
-2
6
0
4
1
3
D
A
-2
4
C
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K