Fréttablaðið - 19.02.2015, Side 30
FÓLK|TÍSKA
Í UPPÁHALDI
„Uppáhalds-
hönnuðirnir eru
bresku hönnuðirn-
ir Georgina Chap-
man og Keren
Craig hjá March-
esa. Kjólarnir
þeirra eru marg-
ir alveg svakalegir.
Líbanski hönnuð-
urinn Elie Saab er
líka í uppáhaldi.“
Helena Hallgrímsdóttir kjólaklæðskeri gerði bestu kaupin fyrir nokkrum árum þegar hún keypti sér sumarkápu í Dior 50‘s stíl. „Ég
hef notað hana mikið og geri enn. Ég var einmitt
að kaupa lit til að lita hana, hún er orðin óttalega
sjúskuð greyið en ég fæ það ómögulega af mér að
losa mig við hana.“ Helena var að opna verslunina
Gjána ásamt Sigrúnu vinkonu sinni, sem hannar
undir merkinu núrgiS en Helena hannar undir
merkinu Helena kjólaklæðskeri. Í Gjánni selja þær
eigin vörur og einnig vörur eftir aðra íslenska
hönnuði.
Ertu meðvituð um eigin klæðaburð? Já, óneitan-
lega. Ég fylgist vel með tísku, bæði vegna eigin
áhuga og starfsins. Á hverjum tíma höfðar sumt til
mín og annað ekki, eins og ég held að eigi við um
flesta.
Hefurðu lengi pælt í tískunni? Já, alveg síðan ég
var unglingur, þá keypti ég mér fyrst tískublöð og
fór að fylgjast betur með en áður.
Hvernig klæðir þú þig hversdags? Ég er mjög
mikið í gallabuxum, þægilegum bol eða léttri peysu
og oft í stórri, síðri peysu yfir.
Hvernig klæðir þú þig spari? Ég reyni alltaf að
vera í kjól sem ég hef saumað á mig þegar ég fer
eitthvað fínt. Annars hefur alveg komið fyrir að ég
fari í einhvern fínan topp og jakka við svartar galla-
buxur og hælaskó.
Hvernig lýsir þú stílnum þínum? Hann er kannski
dálítið tímalaus, ég er hrifin af vel sniðnum og
þægilegum fötum sem eru bæði falleg og praktísk.
Hvernig lýsir þú hönnun þinni? Hún er stílhrein
og fremur fíngerð. Ég reyni að gera vandaðan og
sígildan fatnað sem ætti að geta hentað konum á
öllum aldri.
Hefurðu lengi verið að hanna föt? Ég byrjaði á því
fyrir alvöru árið 2009 þegar ég var nýútskrifuð sem
kjólaklæðskeri og hef gert síðan. Annars var ég
alveg farin að leika mér að því sem unglingur, farin
að prófa mig áfram með eitt og annað á saumavél-
ina hennar mömmu.
Hvar kaupir þú fötin þín? Ég reyni að sauma mikið
á mig en annars versla ég talsvert á ferðalögum
erlendis. Ég á ekki eina uppáhaldsverslun frekar en
aðra, fötin mín koma úr öllum mögulegum áttum.
Eyðir þú miklu í föt? Ég reyni að vera skynsöm
þegar kemur að fatakaupum svo það veltur dálítið
á því hvernig fjárráðin eru. En stundum er ég auð-
vitað óskynsöm.
Hver er uppáhaldsflíkin þín? Í augnablikinu er
það grá, munstruð, síð peysa sem ég saumaði um
daginn. Ég get notað hana við gallabuxur og legg-
ings. Ég get líka notað hana á tvo vegu, bæði stutta
og síða.
Uppáhaldshönnuður? Bresku hönnuðirnir Georg-
ina Chapman og Keren Craig hjá Marchesa. Kjól-
arnir þeirra eru margir alveg svakalegir. Líbanski
hönnuðurinn Elie Saab er líka í uppáhaldi.
Hefur þú lent í tískuslysi? Voru buffalo-skórnir
ekki tískuslys? Þá hef ég lent í því.
Hverju verður bætt við fataskápinn fyrir vorið?
Mig vantar nýjan kjól til að nota hversdags og líka
einhvern léttan sumarjakka.
Hver er helsti veikleiki þinn þegar kemur að
tísku og útliti? Síðar og kósí peysur, kaupi þær allt-
af þegar ég er í útlöndum. Og naglalökk, ég keypti
fimm í síðustu ferð.
Hvers konar fylgihluti notarðu? Aðallega hringa
og hálsmen. Svo nota ég oft armbönd þegar ég vil
vera fín.
Áttu þér tískufyrirmynd? Enga eina sérstaka, nei.
Kjóll, pils eða buxur? Buxur, en kjóll við sparitil-
efni.
Stutt eða sítt? Sítt.
Háir hælar eða flatbotna? Mig langar að segja
milliháir hælar, er alltaf í skóm með smá hæl.
BUFFALO-SKÓRNIR
VORU TÍSKUSLYS
TÍMALAUS STÍLL Helena Hallgrímsdóttir reynir yfirleitt að vera skynsöm þeg-
ar kemur að fatakaupum. Hún er veik fyrir naglalakki og síðum peysum.
UPPÁHALDS
Peysan er í uppáhaldi
hjá Helenu þessa stund-
ina en hún getur notað
hana bæði við galla-
buxur og leggings.
MYND/GVA
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
NÝTT KOR
TATÍMABILOpið virka daga kl.
11–18
Opið laugardaga k
l. 11-16
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin BelladonnaStærðir 38-58
Flott föt, fyrir flottar konur
Alltaf eitthvað nýtt og spennandi
TopPar,
mussur,
kjólar,
buxur
5000 kr. dagur í Flash
Sjá fleiri myndir á
1
8
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
D
A
-1
E
9
C
1
3
D
A
-1
D
6
0
1
3
D
A
-1
C
2
4
1
3
D
A
-1
A
E
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K