Fréttablaðið - 19.02.2015, Síða 56
19. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 44
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
5:25, 8, 10:35
8, 10:40
8
6
10:10
FIFTY SHADES OF GREY KL 8 - 10.40
BIRDMAN KL. 8 - 10.40
ÓLI PRIK KL 5.30 - 8 - 10.20
ÖMURLEG BRÚÐKAUP KL. 5.30 - 8 - 10.20 ÍSL TEXTI
BÉLIER FJÖLSKYLDAN KL. 5.30 - ENS.TEXTI
PATTINGTON KL. 5.30 - ÍSL TAL
FIFTY SHADES OF GREY KL. 5 - 8 - 10.40
FIFTY SHADES OF GREY LÚXUS KL. 5 - 8
KINGSMAN KL. 8 - 10.45
KINGSMAN LÚXUS KL. 10.45
SEVENTH SON KL. 8
SVAMPUR SVEINSSON 2D KL. 3.30 - 5.45 - ÍSL TAL
THE WEDDING RINGER KL. 10.20
PADDINGTON 2D KL. 3.30 - 5.45 - ÍSL TAL
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
S siAM
ÁLFABAKKA
Save the Children á Íslandi
FYRSTU SÝNINGAR Á STOCKFISH KVIKMYNDAHÁTÍÐ:
A girl walks home alone 22.00
The kidnapping of Michel Houllebeq 22.00
The mafia only kills in summer 22.00
HAPPY HOUR Á
BARNUM 17-20
Eins og lopapeysuklæddur pollabuxna-hnakki drapst áfengisfrumvarpið áður
en það komast á áfangastað. Við þurfum
því ekki aðeins að greiða með verslunar-
rekstri um allt land heldur þurfum við
líka að borga fólki fyrir að ákveða hvaða
áfengisumbúðir þykja við hæfi. Frábært.
Enginn hefur sloppið lifandi frá lífinu þó
ríkið reyni vissulega að passa okkur. En
væri ekki hægt að passa okkur aðeins
betur?
RÍKIÐ gæti til dæmis haldið utan
um kvikmyndasýningar. Kvik-
myndir eru stórhættulegar eins
og fólk hefur til að mynda verið
hvatt til að sniðganga 50 Shades
of Grey (50 sinnum segðu
já) vegna þess að boðskapur
hennar þykir ekki bara hættu-
legur heldur gefur hún kol-
ranga mynd af kvalalosta. Kvikmynd-
ir hafa hingað til gefið fullkomlega
raunsæja mynd af samfélaginu (sbr.
Space Jam) og með því að bjóða upp
á óheftan aðgang að mynd um slæm-
an mann erum við að bjóða hætt-
unni heim.
BÍLAR eru líka stórhættulegir – við þurf-
um því að koma á fót bílasölu ríkisins. Að
ríkið annist sölu á bílum hefur fjölmarga
kosti í för með sér. Hægt væri að ein-
skorða sölu á bílum við sérstakan ríkisbíl,
til dæmis Nissan eða eitthvað, sem myndi
á augabragði eyða óþarfa afbrýðisemi í
landinu (ég mætti konu á Teslu um dag-
inn og gat hvorki borðað né sofið í marga
daga).
SÆLGÆTI er líka að drepa okkur öll.
Látum ríkið annast sölu á því. Sælgætis-
verslun ríkisins gæti til dæmis sett kvóta
á sælgætisneyslu þjóðarinnar. Fyrir
mann eins og mig sem verður gjörsam-
lega andsetinn á laugardögum og er tilbú-
inn að fórna lífi sínu á súkkulaðihjúpuðu
altari Nóa Síríusar væri gott að fá bara
einhvers konar vikulega úthlutun. Hvað
á ég að þurfa að spóla í gegnum marga
poka af Kúlusúkki áður en ríkisstjórnin
grípur í taumana?
LOKS þarf að koma í veg fyrir að fólk
trufli störf alþingismanna með því að
senda þeim póst. Internetsía myndi redda
því. Þá erum við góð í bili.
Sælgætisverslun ríkisins
„Ég hlakka til að koma og vera
með uppistand í besta uppistands-
klúbbi á Íslandi, Þjóðleikhúskjall-
aranum, með félögum mínum í
Mið-Íslandi,“ segir grínarinn og
gleðigjafinn Bergur Ebbi Bene-
diktsson. Hann er kominn heim og
heldur uppistand með Mið-Íslandi
um helgina en hann er nú búsett-
ur í Kanada þar sem hann stund-
ar nám.
Félagar hans eru himinlifandi
yfir að endurheimta félaga sinn.
„Við erum búin að fá frábært fólk
í stað Bergs á meðan hann hefur
verið í Kanada. En við erum ótrú-
lega ánægðir fá hann heim,“ segir
Jóhann Alfreð, einn af meðlimum
Mið-Íslands.
Bergur Ebbi ætlar að vera með
nýtt efni á uppstandinu. „Ég verð
að sjálfsögðu með nýtt efni og það
verður að hluta byggt á því hvern-
ig tilfinning það er að kúpla sig út
úr íslensku samfélagi og sjá það
aðeins utan frá. Ég hef ekki fylgst
djúpt með íslenskri umræðu og
það er gott. Ég er vonandi með
ferskari sýn fyrir vikið,“ útskýrir
Bergur Ebbi og hlær.
Hann ætlar að nota reynslu sína
frá Kanada til gríns. „Mig langar
til dæmis mikið til að fjalla um
Vestur-Íslendinga, fjölmenningar-
samfélagið og fleira sem er í gangi
í Kanada.“
Nýjasta uppistand Mið-Íslands,
Lengi lifi Mið-Ísland, fer fram í
kvöld og þá verða tvö uppistönd á
föstudags- og laugardagskvöld en
uppistandið fer fram í Þjóðleikhús-
kjallaranum. - glp / kak
Bergur Ebbi snýr aft ur á svið með Mið-Íslandi
Bergur Ebbi Benediktsson kemur fram á uppistandi með félögum sínum eft ir hlé. Hann lofar nýju efni.
SAMAN Á NÝ Bergur Ebbi ætlar að
grína með félögum sínum um helgina.
Tónlistar- og myndlistarkon-
an Steinunn Harðardóttir, betur
þekkt sem dj. flugvél og geimskip,
er að leita að framandi og spenn-
andi dýrum til þess að fara með
hlutverk í nýju tónlistarmyndandi
sem myndlistarkonan Guðlaug
Mía Eyþórsdóttir gerir.
„Við erum að leita að framandi
dýrum til að fá lánað eitt síðdegi
eða svo til þess að leika í nýja
myndbandinu. Fólk má hafa sam-
band við okkur og okkur þætti
skemmtilegast að fá einhver dýr
sem eru ólögleg, einhverjar slöng-
ur eða tarantúlur,“ segir Steinunn
og bætir við að fyllsta trúnaðar
verði gætt.
Hún gaf á dögunum út mynd-
band við lagið Hjari veraldar sem
er eitt af lögunum sem prýðir plöt-
una Nótt á hafsbotni sem er vænt-
anleg frá tónlistarkonunni.
Viðfangsefni plötunnar er hafs-
botninn. „Ég færði mig niður á
hafsbotninn, mér fannst það liggja
beint við. Ef maður fer alveg niður
á dýpsta hafsbotninn þá er hann
kolsvartur og dimmur og þar hittir
maður fyrir lýsandi fiska og þeir
minna svolítið á lýsandi stjörnur í
geimnum,“ segir hún en viðfangs-
efni fyrri plötu hennar, Glamúr í
geimnum, var geimurinn sjálfur.
„Hafsbotninn er líka ekkert meira
kannaður en geimurinn. Þannig að
maður getur gefið hugmyndaflug-
inu lausan tauminn.“
Steinunn hélt út fyrir borgar-
mörkin til þess að vinna plötuna
og dvaldi þar ein í gömlu húsi sem
að hennar sögn er reimt í. „Ég
var þarna ein í viku í dimmasta
skammdeginu. Það var mjög mik-
ill snjór og mjög mikill kuldi og
alltaf að blása vindur inn,“ segir
hún. Vegna umhverfisins var tónn-
inn í plötunni annar en hún lagði
upp með. „Ég ætlaði að fara að
gera einhverja sumarsmelli en öll
lögin urðu drunga- og óhugnanleg
af því ég var svo hrædd.“
Steinunn er spennt fyrir því að
gefa nýju plötuna út. „Ég er mjög
spennt, er byrjuð að laumast til
þess að spila eitt og eitt nýtt lag á
tónleikum en er að reyna að halda
aftur af mér svo ég geti haldið
útgáfutónleika og spilað öll lögin.“
Þeir sem eiga spennandi og
óvenjuleg gæludýr geta hafa sam-
band við Steinunni í gegnum net-
fangið geimskip@gmail.com.
gydaloa@frettabladid.is
Leitar að ólöglegum dýrum
til þess að leika í myndbandi
Tónlistarkonan dj. fl ugvél og geimskip er að leita að spennandi dýrum til þess að leika í nýju tónlistarmynd-
bandi. Á næstunni er væntanleg ný plata þar sem áherslan verður lögð á leyndustu undirdjúp hafsins.
HAFSBOTNINN Ný plata er væntanleg frá Steinunni og er hún núna að leita að
spennandi dýrum til þess að hafa í nýju tónlistarmyndbandi. MYND/NANNADÍS
Tökur standa nú yfir á nýjustu
James Bond-myndinni, Spectre, í
Solden í Austurríki.
Ökumaður vörubíls sem hlað-
inn var myndavélabúnaði missti
stjórn á bíln-
um og hafnaði í
nálægri hlöðu.
Fregnir herma
að að minnsta
kosti einn með-
limur tökuliðs-
ins sé alvarlega
slasaður.
Einn af þeim
sem lentu í slysinu var aðstoðar-
leikstjórinn Terry Madden sem
unnið hefur í öllum Bond-mynd-
um síðan árið 1981 þegar For
Your Eyes Only kom út.
Fyrir rúmri viku meiddist leik-
arinn Daniel Craig, sem leikur
sjálfan Bond, á hné við tökur á
slagsmálaatriði.
Spectre er tuttugasta og fjórða
Bond-myndin en tökur fara fram
á mörgum stöðum í Evrópu.
Annað slys
á tökustað
1
8
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
D
A
-4
1
2
C
1
3
D
A
-3
F
F
0
1
3
D
A
-3
E
B
4
1
3
D
A
-3
D
7
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K