Fréttablaðið - 19.02.2015, Qupperneq 58
19. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| SPORT | 46
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
SPORT
KÖRFUBOLTI Kvennalið Breiðabliks
stendur saman þrátt fyrir mót-
læti innan sem utan vallar. Á því
leikur enginn vafi lengur eftir að
liðið ætlar að sameinast um það að
safna fyrir tönn fyrrverandi liðs-
félaga síns.
Unnur Lára Ásgeirsdóttir þurfti
að fara til tannlæknis í miðjum
leik í desember þegar tönn brotn-
aði hjá henni. Þegar á hólminn var
komið kom í ljós að engar trygg-
ingar borguðu tannlæknakostnað-
inn og Unnur Lára stóð því uppi
með risa reikning.
Unnur Lára stóð sig vel með
Blikum fyrir áramót en hún var
með 10,5 stig og 8,5 fráköst að
meðaltali á 26,1 mínútu í leik.
Þetta reyndist vera síðasti leikur
hennar fyrir Breiðablik en hún er
flutt norður á Akureyri.
Tönnin brotnaði niður í rót
„Það kemur í ljós að hún er ekki
tryggð því ÍSÍ-tryggingin nær ekki
til slysa á tönnum. Tönnin brotn-
ar alveg niður í rót og hún þarf
bara nýja tönn og skrúfu. Þetta er
komið upp í 600 þúsund kall hjá
henni. Hún var að koma úr námi
og er nýbyrjuð að vinna á leik-
skóla. Þetta er svo stór biti,“ segir
Andri. „Hún ræddi við stjórnina
og athugaði hvort deildin hér eða
félagið myndi eitthvað taka þátt í
þessu. Það fór hér upp í aðalstjórn
og inn á bæjarskrifstofu. Það var
enginn peningur í kassanum hjá
körfuboltadeildinni en aðalástæð-
an fyrir því að hún fékk ekkert var
að þetta gæti gefið fordæmi og þá
líka skuldbundið félagið aftur í
tímann,“ segir Andri.
„Okkur í liðinu fannst þetta vera
skelfilegt og við vildum ekki að
hún væri ein með þetta. Við ákváð-
um því að gera eitthvað,“ sagði
Andri Þór en þetta varð jafnframt
að vera öðruvísi söfnun en „allar“
hinar hjá liðinu.
„Ástæðan fyrir því að við gerum
þetta er að við erum alltaf að selja
Gömlu liðsfélagarnir safna
fyrir nýrri tönn Unnar Láru
Unnur Lára Ásgeirsdóttir missti tönn í leik með Blikum. ÍSÍ-tryggingin nær ekki yfi r slíkt og því stóð hún ein
uppi með 600 þúsund króna reikning. Blikar ætla að hjálpa henni með sölubás í Kolaportinu um helgina.
klósettpappír og herja á okkar
nærumhverfi. Þessi hugmynd
snerist um að sækja peninga eitt-
hvað út fyrir ömmu og afa og
mömmu og pabba,“ segir Andri í
léttum tón.
Sótti reiðhjól í geymsluna
Blikakonur ætla að vera með bás
í Kolaþorpinu um helgina og selja
muni til styrktar Unni Láru.
„Ég fór bara í geymsluna hjá
mér og ætla að selja reiðhjól og
eitthvert dót. Stelpurnar tína
fram einhver föt og þó svo að
deildin treysti sér ekki í þetta þá
er fólkið í deildinni til í að leggja
hönd á plóg með vinnu eða annars
konar framlagi,“ segir Andri og
bætir við: „Þetta gerist í leik hjá
okkur og við viljum setja vinnu í
að byggja upp svona menningu hjá
okkur og að þetta sé eitthvað sem
einkenni okkar lið. Við stöndum
alltaf saman þótt það sér erfitt.“
Breiðabliksliðið er í neðsta sæti
Dominos-deildarinnar og þetta
hefur ekki verið auðveldur vetur.
„Það er búinn að vera ofboðs-
lega mikill mótvindur í vetur
og þá ekki bara andstæðingarn-
ir heldur hafa líka verið erfiðar
aðstæður hjá deildinni, peningave-
sen og annað,“ segir Andri.
Unnur Lára yfirgaf Breiðabliks-
liðið um áramótin en stelpurnar
standa enn með henni. „Ég sagði
henni að ég ætlaði að peppa stelp-
urnar upp í fjáröflun og hún var
mjög þakklát,“ segir Andri.
Andri vill sjá umræðu í íþrótta-
hreyfingunni um tryggingar á
tönnum íþróttafólks landsins.
„Ef hreyfingin tæki sig öll saman
og léti bjóða út tanntryggingu á
íþróttafólkið okkar þá er ég viss
um að þetta yrðu bara nokkrir
þúsundkallar á ári fyrir hvern
klúbb. Þetta eru örfá óhöpp á ári
þó að það séu síðan oft háar upp-
hæðir þegar það gerist,“ segir
Andri Þór en hver eru markmið
helgarinnar?
Vonar að fólk rati til þeirra
„Ég er ekkert viss um að þátttak-
an verði æðisleg en ég er búinn að
hóta því að mæta heim til fólks,
bæði stjórnarmanna og stelpn-
anna, og taka til í geymslunum ef
þau koma ekki með eitthvað. Við
sjáum til hvernig þetta gengur og
ég er alls ekki vongóður um að við
náum upp í þessa tölu. Hvort sem
það verður hundrað þúsund eða
tvö hundruð þúsund eða minna.
Allt hjálpar,“ segir Andri.
„Við merkjum okkur í bak og
fyrir en við fengum reyndar engan
toppstað. Við vildum vera þessa
helgi og ég vona að fólk rati til
okkar,“ sagði Andri sem er jafn-
vel að pæla í því að láta Blikakóp-
inn lóðsa gesti inn á básinn.
ooj@frettabladid.is
MISSIR FYRIR BLIKA Unnur Lára Ásgeirsdóttir sést hér til vinstri í leik með Breiðabliki í Dominos-deildinni í körfubolta í vetur
og á myndinni til hægri talar Andri Þór Kristinsson, þjálfari Blika, við Unni Láru í leik á móti KR. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
KÖRFUBOLTI Það verður mikil körfuboltaveisla í Laugar-
dalshöllinni um komandi helgi en þá fara fram allir
bikarúrslitaleikir sambandsins, allt frá meistaraflokkunum
báðum niður í 9. flokk karla og kvenna. Þetta eru samtals
ellefu bikarúrslitaleikir á 50 klukkutímum, tveir leikir á
föstudagskvöldi, fjórir leikir á laugardegi og fimm leikir á
sunnudegi.
10. flokkur kvenna ríður á vaðið á föstudagskvöldið
en þá verður einnig spilað í stúlknaflokki. 10. flokkur
karla og drengjaflokkur spila sitthvorum megin við
úrslitaleiki karla og kvenna á laugardeginum og á
sunnudaginn spila síðan 9. flokkur karla og kvenna, 11.
flokkur karla og unglingaflokkar karla og kvenna. Þetta er í
fyrsta sinn sem allir bikarúrslitaleikir körfuboltans fara fram
á sama stað og um sömu helgi en undanfarin ár hafa yngri
flokkarnir verið á annarri helgi en meistaraflokkarnir.
Ellefu bikarúrslitaleikir um helgina
FÓTBOLTI Þrjátíu og tveggja liða
úrslit Evrópudeildarinnar í fót-
bolta hefjast í kvöld og er mikið
um áhugaverða leiki. Sterk lið í
bestu deildum Evrópu eigast við
strax á fyrsta stigi útsláttakeppn-
innar, en þar má nefna viðureignir
á borð við: Sevilla - Mönchenglad-
bach, PSV - Zenit, Roma Feyen-
oord, Celtic - Inter og Wolfsburg -
Sporting. Þrjú ensk lið; Liverpool,
Everton og Tottenham, eru komin
þetta langt og spila í kvöld. Liver-
pool mætir Besiktas frá Tyrk-
landi, Tottenham fær Fiorentina
í heimsókn og Everton heimsækir
Young Boys í Sviss.
Ensku liðin hafa ekki riðið feit-
um hesti frá Evrópudeildinni,
hvort sem þau hafa sýnt henni
áhuga eða ekki. Ekki eru mörg
ár síðan Harry Redknapp, þáver-
andi stjóri Tottenham, og Mart-
in O‘Neil, þáverandi stjóri Aston
Villa, gáfu skít í keppnina og
spiluðu á varaliðum í útsláttar-
keppninni. Fulham er eina enska
liðið sem hefur virkilega reynt að
fara alla leið og tekist það, en liðið
fór í úrslit árið 2010.
Harry Redknapp talaði þá afar
illa um keppnina, sagði hana B-
keppni Evrópuboltans og væri
bara fyrir af því að spilað væri á
fimmtudögum. En nú ber svo við
að mikið er undir í Evrópudeild-
inni. Sigurlaunin eru sæti í Meist-
aradeildinni, og eru því öll liðin
sem hefja leik í kvöld níu leikjum
frá ríkidæminu sem fylgir Meist-
aradeild Evrópu.
Liverpool og Tottenham eru
bæði í baráttu um Meistaradeild-
arsæti á Englandi en þykja ekki
líkleg til afreka þar að mati flestra
sérfræðinga. Því er liðunum ekk-
ert til fyrirstöðu að reyna að fara
alla leið í Evrópudeildinni og
lauma sér bakdyramegin inn um
dyrnar í Meistaradeildina sem
standa opnar upp á gátt.
„Við ætlum að fara eins langt og
við getum,“ segir Mauricio Poch-
ettino, knattspyrnustjóri Totten-
ham. „Leikurinn gegn Fiorentina
verður áhugaverður. Ég ber mikla
virðingu fyrir ítalska boltanum.
Hann hefur farið upp og niður
undanfarin ár og upplifir nú sína
verstu tíma. Engu að síður er Sería
A góð deild og Fiorentina spilar
góðan fótbolta.“
Brendan Rodgers, knattspyrnu-
stjóri Liverpool, sér gullpottinn
við enda Evrópudeildarregnbog-
ans og ætlar sér alla leið í keppn-
inni.
„Við ætlum að standa okkur vel
í þessari keppni,“ sagði hann á
blaðamannafundi í gær. „Okkur
langar að vinna bikar til að sýna
hversu langt við erum komnir og
þar kemur Evrópudeildin sterk
inn. Þetta er keppni sem við tökum
alvarlega.“
- tom
Bakdyrnar í Meistaradeildina opnar upp á gátt
Þrjú ensk lið eru á meðal þeirra 32 sem hefj a leik í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.
BAKLEIÐIN Liverpool getur komist í
Meistaradeildina. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
ÚRSLIT
MEISTARADEILD EVRÓPU
16-LIÐA ÚRSLIT, FYRRI LEIKIR
SCHALKE - REAL MADRID 0-2
0-1 Cristiano Ronaldo (26.), 0-2 Marcelo (79.)
BASEL - PORTO 1-1
1-0 Derlis Gonzalez (11.), 1-1 Danilo, víti (79.)
HANDBOLTI Aganefnd HSÍ klofn-
aði í afstöðu sinni til máls Agnars
Smára Jónssonar, leikmanns ÍBV,
vegna ummæla hans um dómara
leiks Stjörnunnar og FH í Olís-
deild karla.
Agnar Smári gagnrýndi störf
dómaranna í færslu á Twitter-
síðu sinni sem hann síðar fjar-
lægði og baðst afsökunar á. Fram
kom í úrskurði nefndarinnar
að aganefnd harmaði ummælin
en að hún teldi sér ekki fært að
úrskurða í málinu þar sem hann
var ekki þátttakandi í leiknum.
Einn nefndarmaður vildi að
málið yrði tekið til efnislegrar
meðferðar en meirihlutinn vísaði
því frá. - esá
Twitter-máli
vísað frá
HANDBOLTI Stefán Darri Þórsson
spilar líklega ekki meira á tímabilinu
með Fram í Olísdeild karla þar sem
að hann er með brotið ristarbein og
þarf að fara í aðgerð.
Sama bein brotnaði í nóvember en
þá var ákveðið að leyfa beininu að
gróa án aðgerðar. „Þetta var allt gert
í góðu samráði við lækna en svo varð
hann fyrir því óláni að stíga vitlaust
niður og við það brotnaði beinið
aftur,“ sagði Guðlaugur Arnarsson,
þjálfari Fram við Fréttablaðið í gær.
Atvikið átti sér stað í fyrri hálfleik
í leik gegn HK í vikunni sem Fram
tapaði óvænt. Það var aðeins
þriðji leikur Stefáns Darra eftir að
hann sneri aftur. „Þetta er auðvitað
ofboðslega slæmt fyrir hann og
verður í raun til þess að hann missir
nánast af öllu tímabilinu. Stefán
Darri leikur stórt hlutverk með liðinu
þegar hann er heill,“ segir þjálfarinn.
Framarar hafa verið í miklu basli
með meiðsli í sínum leikmannahópi
en þeir Ólafur Ægir Ólafsson, Elías
Bóasson og Arnar Freyr Arnarsson
hafa allir verið frá í lengri tíma og þá
er Arnar Snær Magnússon nýbyrjaður
á ný eftir langvarandi meiðsli, sem og
Þorri Björn Gunnarsson.
Fram er í áttunda sæti deildar-
innar en fram undan er mikil barátta
um sæti í úrslitakeppninni. „Stressið
fór með okkur gegn HK enda heggur
það í sjálfstraustið við það að missa
lykilmenn í meiðsli. En við vitum
hvað við þurfum að gera og allir eru
einbeittir á verkefnið.“ - esá
Sömu meiðsli felldu Stefán Darra á ný
STEFÁN DARRI Verður líklega ekki
meira með í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SKORAÐI AFTUR Cristiano Ronaldo
batt enda á þrigga leikja „markaþurrð“
er hann skoraði fyrra mark sinna
manna í Real Madrid í 2-0 sigri á
Schalke í Meistaradeild Evrópu í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
1
8
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
D
A
-3
C
3
C
1
3
D
A
-3
B
0
0
1
3
D
A
-3
9
C
4
1
3
D
A
-3
8
8
8
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K