Fréttablaðið - 09.03.2015, Síða 2
9. mars 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SJÁVARÚTVEGUR Fjórtán hrefnum
var landað framhjá vigt á síðasta
veiðitímabili. IP útgerð ehf. var
eina fyrirtækið sem hafði veiði-
leyfi á hrefnu í fyrra og land-
aði 24 hrefnum á land. „Ef afli er
ekki vigtaður þá hafa stjórnvöld
ekki upplýsingar um það magn
sem kemur að landi,“ segir Eyþór
Björnsson fiskistofustjóri.
Veiðum á hrefnu er þannig hátt-
að að kjöti og spiki er landað, en
beinagrind og öðru sem ekki er
nýtt af dýrinu er fleygt aftur í
hafið. Því hafa stjórnvöld enga
vitneskju um hversu mörg kíló
koma inn til vinnslu hjá útgerð-
inni ef afli er ekki vigtaður. Eyþór
fiskistofustjóri segir að sam-
kvæmt reglugerð þurfi allur land-
aður afli að fara á hafnarvog svo
hægt sé að fylgjast með að ein-
hverju marki.
Sigurður Ingi Jóhannsson
sjávar útvegsráðherra segir einnig
í svari sínu við fyrirspurn Katrín-
ar Jakobsdóttur að í hrefnuveiðum
skuli landaður afli vigtaður í sam-
ræmi við reglugerð, um vigtun og
skráningu sjávarafla.
Þessu hafnar Gunnar og segir að
stjórnvöld hafi mjög glögga mynd
af meðalþyngd dýrs eftir tilrauna-
veiðar á hrefnu. „Ef tilgangur með
vigtun er að finna út meðaltalsnýt-
ingu á hrefnu þá hefur þeim mark-
miðum þegar verið náð,“ segir
Gunnar.
Á síðasta hrefnuveiðitíma-
bili var uppi ágreiningur um það
hvort hrefnu ætti að landa á vigt
eða hvort nægilegt væri að senda
Fiskistofu upplýsingar um fjölda
veiddra dýra. Gunnar Bergmann,
framkvæmdastjóri IP útgerð-
ar, segir veiðarnar frábrugðnar
veiðum á fiski. „Kvótastýringin
á þessum veiðum fer eftir fjölda
dýra en ekki fjölda kílóa eins og í
þorski eða ýsu og öðrum stofnum.
Þess vegna fannst okkur óþarft að
keyra með landaðan afla á hafnar-
vog með tilheyrandi kostnaði,“
segir Gunnar. „Um leið og við
veiðum dýr sendum við Fiski-
stofu tilkynningu og það gerum
við rafrænt um borð um leið og
dýr hefur verið veitt.“
„Fiskistofa fékk tilkynningu
frá Hafnarfjarðarhöfn síðasta
sumar um að afli væri að fara
framhjá vigt. Í þessu tilviki var
hrefnuveiðibátur ekki að fara
eftir reglum. Það fór síðan í ferli
hjá okkur sem endaði með áminn-
ingu. Ítrekunaráhrif áminningar
eru tvö ár og ef sami aðili brýt-
ur aftur af sér innan þess tíma
á hann yfir höfði sér veiðileyfa-
sviptingu,“ segir Eyþór Björnsson
fiskistofustjóri.
sveinn@frettabladid.is
Fjórtán hrefnum
landað framhjá vigt
Á síðasta hrefnuveiðitímabili var meirihluta landaðs afla ekki landað á vigt eins
og lög og reglur gera ráð fyrir. Stjórnvöld virðast því ekki hafa neina vitneskju um
hve mikið hrefnukjöt hafi komið í land. Útgerð fékk áminningu frá Fiskistofu.
HREFNUVEIÐI Af tæplega 240 dýrum sem veiða mátti á síðasta tímabili komu
aðeins 24 dýr að landi. Fjórtán dýr voru ekki vigtuð við löndun.
EYÞÓR
BJÖRNSSON
GUNNAR
BERGMANN
MENNING Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra,
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, og Kristín Ingólfs-
dóttir, rektor Háskóla Íslands, tóku í gær fyrstu skóflustunguna að
nýbyggingu fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungu-
málum. Stofnunin tilheyrir Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Bygg-
ingin mun rísa á horni Suðurgötu og Brynjólfsgötu, næst gömlu Loft-
skeytastöðinni, og á að verða tilbúin í október 2016. - jhh
Byrjað að byggja húsnæði Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur:
Tóku fyrstu skóflustunguna
MOKAÐ Það mátti varla á milli sjá hvert þeirra væri vanast með skófluna, Kristín
Ingólfsdóttir, Vigdís Finnbogadóttir eða Illugi Gunnarsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Koma þessar vinsældir ekkert
aftan að þér?
Ég botna ekkert í þeim!
Myndlistarkonan Jóhanna Bára Þórisdóttir
opnaði sýninguna Rassar í sveit, þar sem
hún sýnir myndir af dýrarössum, en þær hafa
slegið í gegn hjá erlendum ferðamönnum.
KJARAMÁL Konur í VR fá greidd
laun fyrir ellefu mánuði á ári á
móti tólf mánuðum karla. Þann-
ig unnu þær í raun „launalaust“ í
janúar síðastliðnum. Þetta kemur
fram í grein Ólafíu B. Rafnsdóttur,
formanns VR, frá því í gær.
Karlar og konur innan VR fá
ekki sömu laun fyrir sömu vinnu
– samkvæmt launakönnun VR eru
konur með 8,5 prósentum lægri
laun en karlar. Þetta er sá munur
sem er á launum kynjanna þegar
búið er að taka tillit til starfs,
vinnutíma, menntunar, starfsald-
urs og allra annarra þátta sem
hafa áhrif á launin.
Þessi kynbundni launamunur
þýðir að konur fengu í raun fyrst
greidd laun á þessu ári í febrú-
ar – og þá er ég að tala um sömu
laun og karlar fá fyrir sambæri-
leg störf.
Í greininni segir að VR hafi bar-
ist fyrir jafnrétti kynjanna árum
saman og ákveðinn árangur hafi
náðst. Þannig var kynbundinn
launamunur í VR 15,3 prósent
árið 2000 og það ár unnu konur
launalaust í 56 daga eða tæpa tvo
mánuði áður en þær fengu sömu
laun og karlar. Eins og staðan er
núna vinna konur í VR launalaust
í heilan mánuð á ári – og með sama
áframhaldi fá þær loksins sömu
laun og karlar árið 2035.
Ólafía segir þessa stöðu
óásættan lega, ekki verði beðið í 20
ár eftir launajafnrétti innan VR.
„Við höldum áfram að berjast og
nýtum okkur allar tiltækar leiðir,“
segir í grein Ólafíu. - fbj
Með sama áframhaldi fá konur sömu laun og karlar árið 2035 og vinna launalaust í einn mánuð á ári:
Konurnar í VR unnu launalaust í janúar
JAFNRÉTTI Ólafía B. Rafnsdóttir, for-
maður VR, vonast til að árið 2015 verði
ár til þess að koma hreyfingu á jafn-
réttisbaráttuna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BJÖRGUN Vélsleðamaður ók fram
af hengju við Hlöðufell síðdegis
í gær og slasaðist. Ferðafélagar
hans fluttu hann í skála þar til
þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
LIF, sótti hann og var hann flutt-
ur á Landspítala Háskólasjúkra-
hús í Fossvogi.
Björgunarsveitir úr Árnes-
sýslu og af höfuðborgarsvæðinu
voru kallaðar út á slysstað, sam-
kvæmt tilkynningu frá Lands-
björg. Með í för voru sjúkra-
flutningamenn frá Selfossi.
Þungt færi var á slysstað og nán-
ast eingöngu fært snjóbílum og
vélsleðum.
- skó, fbj
Þyrla LHG sótti hinn slasaða:
Vélsleðaslys
við Hlöðufell
LÖGREGLUMÁL Karlmaður var
handtekinn við skemmtistað í
Hafnarfirði og var sagður hafa
slegið konu. Maðurinn gisti
fangageymslur um nóttina.
Skömmu fyrir fimm í nótt
fékk lögreglan tilkynningu um
mann á gangi á Laugavegi, með
höfuðkúpugrímu og hníf í hendi.
Þegar lögregluþjónar komu á
vettvang var maðurinn ekki
með hníf en í fórum hans fannst
lítilræði af fíkniefnum.
Nokkur erill var í miðborg
Reykjavíkur um helgina vegna
ölvunar samkvæmt dagbók lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu. - skó, fbj
Erill í miðbæ vegna ölvunar:
Sló konu og
gisti fangaklefa
VEÐUR Um 200 manns sátu fastir í Staðarskála
í Hrútafirði í gærkvöldi. Þegar Fréttablaðið fór
í prentun var óvíst hvort einhverjir kæmust til
síns heima fyrir nóttina. Tugir manna hugðust
gista á Reykjum. Snjómokstursbíll sat fastur á
heiðinni og var það forgangsverkefni að losa bíl-
inn og koma þeim vegfarendum niður af heiðinni
sem sátu fastir.
„Þetta er bara þreifandi hríð og kolvitlaust
veður,“ sagði Guðmundur Sigurðsson, verkstjóri
hjá Vegagerðinni á Hvammstanga, í samtali við
Vísi í gær. Það er Vegagerðin á Hvammstanga
sem hefur umsjón með mokstri á Holtavörðu-
heiði.
Búist er við rólegra og úrkomuminna veðri í
dag. Horfur eru á suðaustan stormi eftir hádegi á
morgun með snjókomu, slyddu eða rigningu. Gert
er ráð fyrir að út vikuna verði öflugar lægðir
með hvössu og úrkomusömu veðri.
Blaðamaður Fréttablaðsins, sem var í Staðar-
skála, sagði að veðrið þar væri hræðilegt og
óvíst hvað fólk myndi taka til bragðs. Einhverj-
ir íhuguðu að fara yfir Laxárdalsheiði. Til stóð
að Staðar skáli yrði opinn eitthvað fram eftir
nóttu og svo reynt að redda gistingu fyrir þá sem
treystu sér ekki yfir Laxárdalsheiðina. - jhh
Afar slæmt veður á Holtavörðuheiði í gær og snjómokstursbíll sat fastur:
200 strandaglópar í Staðarskála
STAÐARSKÁLI Um 200 manns voru strandaglópar í gær-
kvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/GYÐA LÓA
SPURNING DAGSINS
- Þín brú til betri heilsu
– Ertu ekki að hreyfa þig
reglulega?
– Eru kílóin að hlaðast á?
– Er svefninn í ólagi?
– Ertu með verki?
– Er sálin í ójafnvægi?
– Þarftu að laga
mataræðið?
– Langar þig að gera
eitthvað í málunum?
www.heilsuborg.is
Viltu lifa
betra lífi?
Heilsuborgarskólinn
verður með
kynningarfund
mánudaginn 9. mars
kl. 20:00.
0
8
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:4
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
0
F
-1
4
F
C
1
4
0
F
-1
3
C
0
1
4
0
F
-1
2
8
4
1
4
0
F
-1
1
4
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K