Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.03.2015, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 09.03.2015, Qupperneq 6
9. mars 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6 Opnunarávarp: Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra Staða stefnumótunar í starfsmenntamálum Fyrirlesarar: Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins Pallborðsumræður um stöðu og framtíð námsefnis með þátttöku kennara úr ýmsum faggreinum Ráðstefnustjóri: Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti og stjórnarformaður Iðnmenntar Skráning á skrifstofu Iðnmenntar, í síma 517-7200 eða á netfanginu heidar@idnu.is. Ráðstefna IÐNMENNTAR 2015 Grand Hótel Reykjavík Námsefni í verkgreinum – stöðulýsing – framtíðarsýn 13. mars kl. 13–16 LANDBÚNAÐUR Ekkert annað en tilviljun ræður því að tvö til- felli af riðuveiki hafa komið upp á stuttum tíma – annað á búi í Skagafirði og hitt á bæ á Norð- vesturlandi. Þetta eru fyrstu tilfelli hefðbundinnar riðu sem greinist á landinu frá árinu 2010. Auður L. Arnþórsdóttir, sér- greinadýralæknir hjá Matvæla- stofnun, segir aðspurð að langt sé á milli þeirra býla sem um ræðir og engin tengsl þar á milli. Til- vikin séu þess utan ólík. Hugsanlegar smitleiðir geta verið margar. Stutt er síðan riðu varð vart í Skagafirði, og þar sem féð gengur saman á afrétti er erfitt að segja til um hvenær smitið hefur orðið. „Það getur verið langt síðan – fyrir mörgum árum. Það er mjög erfitt að rekja hvaðan smitið kemur og þess vegna erfitt að eiga við þetta,“ segir Auður en á Íslandi eru 26 fjárhólf. Í Skagahólfi hefur riðu- veiki komið upp á átta búum á undanförnum 15 árum en í Vala- gerði hefur veikin ekki greinst áður. Aðeins á fjórum svæðum hefur riða, og aðrir búfjársjúk- dómar í sauðfé, aldrei greinst og eiga þau það sameiginlegt að vera afskekkt. Aðeins þaðan er flutningur líflamba leyfður á milli svæða. Undantekningarlaust er allur fjárstofn þar sem smit kemur upp skorinn. Í Fréttablaðinu á miðviku- daginn greindi Birgir Hauksson, bóndi í Valagerði, frá því að niður- staðan væri honum og hans fólki mikið áfall. Hann þarf að farga þremur hundruðum fjár en á Neðra- Vatnshorni er um 500 dýr að ræða. Auður segir að ríkið standi straum af fjárhagslegum kostnaði vegna riðuveikinnar, enda er stofn- inn skorinn samkvæmt fyrirskip- an ráðherra að fengnum tilmælum Matvælastofn- unar. „Bóndinn fær bættan þann stofn sem skor- inn er niður og kostnað við þrif, sótthreins- un og förgun. Þetta eru mjög kostnaðarsam- ar aðgerðir fyrir ríkið, og á við- komandi bæ skal vera fjárlaust í tvö til þrjú ár,“ segir Auður. Hún bætir við að ferlið sé flókið og tímafrekt. Reglan er að dýrin eru ekki aflífuð fyrr en samninga- ferlinu er lokið. „En það er ekki hægt að draga það lengi, og gæta verður að velferð dýranna. Sér- staklega í þessum tilfellum þar sem um er að ræða ær og mjög styttist í sauðburð,“ segir Auður. svavar@frettabladid.is Tvö tilfelli riðuveiki sögð hrein tilviljun Riðuveiki greindist á tveimur bæjum með stuttu millibili, fimm árum eftir að riðu varð vart síðast. Tilviljun og engar frekari ályktanir er hægt að draga af þessu, segir sérgreinadýralæknir. Hverju tilfelli fylgir mikill kostnaður og persónulegt áfall. Í RÉTTUM Tilraunir til að útrýma riðuveiki á Íslandi hafa kostað ríkið stórfé og valdið fjölda manns miklu hugarangri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI AUÐUR L. ARNÞÓRSDÓTTIR Riðan greindist í tveimur kindum frá bænum Neðra-Vatnshorni í Húna- þingi vestra, í sýnum sem voru tekin samkvæmt skimunaráætlun Mat- vælastofnunar við slátrun síðastliðið haust. Ekki hafði orðið vart neinna sjúkdómseinkenna. Bóndinn í Valagerði í Skagafirði fékk nýlega grun um riðuveiki í þremur ám og hafði samband við dýralækni. Kindunum var lógað og sýni send til Tilraunastöðvar Háskóla Íslands á Keldum, sem staðfesti nokkrum dögum síðar að um hefðbundna riðuveiki væri að ræða. TILVIKIN GREINDUST MEÐ GERÓLÍKUM HÆTTI 1. Hvað heitir nýtt lag Blaz Roca og ClassB? 2. Hver er upphæðin sem OR fjár- festir fyrir í ár? 3. Í hvaða sæti hafnaði Hafdís Sigurðar dóttir í langstökki á EM? SVÖR 1. Warshaw Gettó Gaza. 2. 9 milljarðar. 3. 12 sæti EFNAHAGSMÁL Árshækkun launa milli fjórða ársfjórðungs 2013 og 2014 var 6,7 prósent að meðaltali að því er fram kemur í nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. „Hækkunin var 6,0 prósent á almennum vinnumarkaði og 8,4 prósent hjá opinberum starfs- mönnum,“ segir í umfjöllun Hagstofunnar. Laun ríkisstarfs- manna hafi hækkað um 6,8 pró- sent og 10,3 hjá sveitarfélögum. Milli 2013 og 2014 hafi regluleg laun hækkað um 6,0 prósent að meðaltali. „Starfsmenn á almenn- um vinnumarkaði hækkuðu um 5,8 prósent, ríkisstarfsmenn um 6,2 prósent og starfsmenn sveitar félaga um 6,5.“ Hækkun launa eftir starfsstéttum er sögð hafa verið á bilinu 5,2 til 7,0 pró- sent, mest hjá þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólki, en minnst hjá stjórnendum. Eftir atvinnugeirum var hækk- un milli ára 7,4 prósent í bygging- arstarfsemi, 6,8 prósent í sam- göngum, 6,1 í fjármálaþjónustu, 6,0 í verslun og 4,6 prósent í iðn- aði. - óká STEYPUVINNA Laun í byggingarstarf- semi hækkuðu um 7,4 prósent milli 2013 og 2014. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Regluleg laun hækkuðu um 6,0 prósent milli áranna 2013 og 2014: Stjórnendur hækkuðu minnst FERÐAÞJÓNUSTA Eigendur Hót- els Selfoss fyrirhuga að stækka hótelið um 28 herbergi með því að byggja nýja hæð. Verið er að velta upp möguleikum og munu endanlega ákvörðun tekin á næstu vikum. „Við erum svona að skoða þann möguleika að stækka hótelið. Hugmyndin er að hækka það og bæta þannig við nýrri hæð sem yrði þá svipuð þeim sem fyrir eru,“ segir Ragnar J. Boga- son, framkvæmdastjóri Hótels Selfoss. - sa Fyrirhuga stækkun hótels: Skoða nýja hæð á Hótel Selfoss SAMFÉLAGSMÁL Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, veitti Strimlinum fyrstu verðlaun í Gullegginu árið 2015. Markmið Strimilsins eru að opna upplýsingar um matvöruverð á Íslandi upp á gátt. Hlaut Strimillinn, auk Gulleggsins, eina milljón króna í verðlaunafé. Strimillinn, sem hlaut Gulleggið, er hugsaður sem vernd fyrir neyt- endur. Neytandi tekur mynd af inn- kaupastrimli og sendir síðunni. Vöruverðið er lesið og skrásett og öllum gert aðgengilegt. Neytandinn getur þannig fengið yfirlit yfir inn- kaup sín og ábendingar um sparnað. Úrslit í frumkvöðlakeppninni Gull- egginu voru kynnt síðastliðinn laug- ardag. Keppninni í ár bárust um 250 hugmyndir og á bak við þær stóðu um 500 einstaklingar. Keppnin stóð yfir í tæpa tvo mánuði þar sem þátt- takendur sóttu námskeið og fengu þjálfun í mótun viðskiptahugmynda. Mekkano ehf. hlaut annað sætið og Crowbar Protein hlaut þriðja sætið. - sa Strimillinn varð hlutskarpastur 250 hugmynda í keppninni um Gulleggið í ár: Neytendur spara með appinu SIGURVEGARAR Ragnheiður E. Árna- dóttir viðskiptaráðherra afhenti Gull- eggið 2014. VEISTU SVARIÐ? 0 8 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :4 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 0 F -3 C 7 C 1 4 0 F -3 B 4 0 1 4 0 F -3 A 0 4 1 4 0 F -3 8 C 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.