Fréttablaðið - 09.03.2015, Side 10

Fréttablaðið - 09.03.2015, Side 10
9. mars 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Laugavegi 170-174 · Sími 590 5000 · hekla.is BREMSAÐU AF ÖRYGGI 20% AFSLÁTTUR BREMSUVÖRUR OG BREMSUVINNA VIÐ HEKLUBÍLA Renndu við hjá HEKLU við Laugaveg og við skiptum um bremsuklossa/bremsudiska á meðan þú bíður. Hjá HEKLU er óþarfi að panta tíma fyrir smærri viðgerðir. Ef þú vilt ekki bíða skilur þú bílinn eftir hjá okkur og við skutlum þér þangað sem þú vilt fara – og sækjum þig aftur! Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Snorri Sigurðsson Hjálmar Sveinsson Er Reykjavík borg náttúrunnar? Eru opnu svæðin í Reykjavík of víðfeðm, of mörg eða of fá? Getur náttúru- upplifun átt sér stað í húsagötu? Getur borg þrifist án náttúru? Hvernig náttúru viljum við í borginni? Þarf að vernda náttúru í borg? Náttúran í borginni og borgin í náttúrunni eru til umfjöllunar í fundaröðinni Borgin – Heimkynni okkar, sem umhverfis- og skipulagssvið stendur fyrir með Hjálmari Sveinssyni, formanni umhverfis- og skipulags- ráðs, um þróun og mótun Reykjavíkurborgar. Fundurinn er þriðjudaginn 10. mars 2015 kl. 20.00 á Kjarvalsstöðum. Gestir fundarins eru Dagný Bjarnadóttir landslags- arkitekt, Sigrún Birgisdóttir, arkitekt og deildarforseti hönnunar- og arkitektúrdeildar LHÍ og Snorri Sigurðs- son, doktor í líffræði hjá skrifstofu náttúru og garða hjá Reykjavíkurborg. Reykjavíkurborg fékk náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2014. Allir eru velkomnir – kaffi á könnunni. Dagný Bjarnadóttir Sigrún Birgisdóttir Hvaða máli skiptir náttúran í borgarumhverfi? Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar stendur fyrir fundaröðinni BORGIN – HEIMKYNNI OKKAR um þróun og mótun borgarinnar með Hjálmari Sveinssyni, formanni umhverfis- og skipulagsráðs. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Þess var minnst í gær að ár var liðið frá því að malasíska flugvél- in MH370 hvarf þegar hún var á leið frá Kúala Lúmpúr til Peking. Vélin, eða brak hennar, hefur ekki enn fundist. Stjórnvöld í Malasíu og Ástralíu segja að allt kapp verði lagt á að finna það. Mikil reiði ríkir hjá aðstandend- um þeirra sem fórust með vélinni. Bráðabirgðaskýrsla hefur verið gefin út um slysið. Þeir segja að engar nýjar vísbendingar séu í skýrslunni um það hvað gerðist. Í skýrslunni má finna mikið af tæknilegum upplýsingum um vél- ina, viðhald á henni, bakgrunn áhafnarinnar og hvernig eftirliti flugmálayfirvalda með vélinni var háttað. Í skýrslunni eru upplýsing- ar um að rafhlaða í svarta kassan- um hafi verið ónýt sem gæti hafa haft áhrif þegar fyrst var byrjað að leita vélarinnar. Þar eru hins vegar engar haldbærar skýringar á því hvert vélin gæti hafa farið eða hvað hafi orðið um hana. Sara Bajc missti unnusta sinn, Philip Wood, í slysinu. Hún segir að skýrslan sé gagnslaus og gagn- rýnir að rannsakendur hafi ein- ungis tekið skýrslu af 120 manns. „Það er færra fólk en í litlu og lítt fjármögnuðu einkarannsókninni okkar,“ er haft eftir Bajc á frétta- vef BBC. Fleiri aðstandendur hafa sagt að rannsóknin sé gagnslaus. Stjórnvöld í Malasíu telja að lík- legasta skýringin á hvarfi vélar- innar sé sú að hún hafi hrapað í suðurhluta Indlandshafs. Þar er hennar enn leitað. En BBC segir að fjölskyldur hinna látnu trúi ekki þessum kenningum vegna fálm- kenndra viðbragða þeirra fyrst eftir hvarf vélarinnar. Sú stað- reynd að hlutar af braki vélar- innar hafa ekki fundist hafa vald- ið því að ættingjar halda enn í þá von að í það minnsta einhverjir af hinum 239 farþegum hafi lifað af. jonhakon@frettabladid.is Ástvinir halda enn í vonina Ár er liðið frá því malasíska flugvélin MH370 hvarf. Aðstandendur farþega gagnrýna rannsóknarskýrslu um hvarfið. Þeir vona enn að einhverjir séu á lífi. ÁR LIÐIÐ Sumir ástvina farþega telja enn möguleika á að einhverjir þeirra séu lif- andi. NORDICPHOTOS/AFP NEYTENDUR Neytendastofa hefur óskað eftir því að Ríkisskattstjóri fari yfir framkvæmd leiðrétt- inga á lánum hjá fjármálafyrir- tækjum. Borist hafa ábendingar frá neytendum sem telja fyrirtæk- in fara á svig við lög um leiðrétt- ingu lána og ráðstöfun séreignar- sparnaðar. Neytendur eru hvattir til að yfirfara uppgjör leiðréttinga og greiðsluseðla vegna séreignar- sparnaðar og kanna hvort tekin hafi verið gjöld í tengslum við leið- réttingu fasteignalána. - sa Neytendur yfirfari uppgjör: Leiðréttingin í takt við lögin FRAKKLAND Manuel Valls, for- sætis ráðherra Frakka, óttast að áður en árið er á enda verði yfir 10 þúsund Evrópubúar farnir til Sýrlands og Íraks til þess að ganga öfgaöflum á hönd. Reynist grunur hans réttur mun fjöldi þeirra sem nú er þar þrefaldast. „Í dag eru 3.000 Evrópubúar í Írak og Sýrlandi. Ef maður spáir um komandi mánuði, gætu orðið þar 5.000 í sumar og 10 þúsund í árslok,“ segir Valls í samtali við frönsku sjónvarpsstöðina iTele. Frakkland, Danmörk og Belgía eru á meðal þeirra ríkja sem hafa séð á eftir flestum borgurum sínum fara til Sýrlands og Íraks til að ganga Íslamska ríkinu á hönd. Í síðasta mánuði sviptu frönsk stjórnvöld sex borgara þar í landi vegabréfum og bannaði meira en 40 manns að ferðast til Íraks og Sýrlands af ótta við að þeir myndu ganga til liðs við Íslamska ríkið. „Það er ný ógn sem steðjar að okkur í Frakklandi , Evrópu og víðar,“ segir Valls. - jhh Manuel Valls, forsætisráðherra Frakka, varar við þeirri nýju ógn sem steðjar að vegna Íslamska ríkisins: Þúsundir ganga í lið með öfgamönnum VÍGAMENN ÍSLAMSKA RÍKIS- INS Fjöldi Evrópubúa hefur gengið Íslamska ríkinu á hönd. NORDICPHOTOS/AFP ➜ Í skýrslunni má finna mikið af tæknilegum upp- lýsingum um vélina, viðhald á henni, bakgrunn áhafnar- innar og hvernig eftirliti flug- málayfirvalda með vélinni var háttað. 0 8 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :4 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 0 F -4 B 4 C 1 4 0 F -4 A 1 0 1 4 0 F -4 8 D 4 1 4 0 F -4 7 9 8 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.