Fréttablaðið - 09.03.2015, Page 13
MÁNUDAGUR 9. mars 2015 | SKOÐUN | 13
LÍÚ hefur gefið út línuna
um það hverjir eru þeim
þóknanlegir og hverj-
ir ekki. Samtökin taka
ekki þátt í opnum upp-
lýsingafundum um sjáv-
arútvegsmál ef einhver
annar hefur framsögu en
samtökin hafa stimplað
og vottfest sem hæfa til
umræðunnar.
LÍÚ neitaði að standa að
fundi með Pírötum vegna
þess að mér hafði verið
boðið að tala. Skýringar blaða-
fulltrúans lúta að persónunni.
Það er farið í manninn en forðast
að ræða málefnið. Það er kjarni
málsins. Ætlunin er að losna við
ákveðna einstaklinga út úr opin-
berri umræðu þar sem þeir tala
um það sem á að þegja um.
Þetta er rökrétt framhald af
valdbeitingu sem frammámenn
innan samtakanna hafa orðið
berir að. Rétt er að rifja upp
nokkur dæmi:
Samherji fékk því ráðið árið
2002 að alþingismaður Norður-
landskjördæmis eystra fyrir
Vinstri græna flutti ekki hátíð-
arræðuna á sjómannadeginum á
Akureyri. Gengið hafði verið frá
því að þingmaðurinn talaði en
hinn langi armur kvótaauðvalds-
ins á staðnum sætti sig ekki við
ræðumanninn og annar alþingis-
maður úr öðrum flokki var feng-
inn til verksins.
Forstjóri Samherja lokaði fisk-
vinnslu á Dalvík í framhaldi af
rannsókn Seðlabankans á verð-
lagningu á afurðum fyrirtæk-
isins sem seldar voru erlendis.
Rannsóknar Seðlabankans var
hefnt á Dalvík. Það voru skýr
skilaboð til ráðamanna þjóðar-
innar.
Forstjóri Hraðfrystihússins
Gunnvarar í Hnífsdal reiddist
svo bæjar stjórn Ísafjarðarbæj-
ar að hann lét einn togara fyr-
irtækisins landa í Bolungarvík.
Bæjarstjórnin vildi ekki ganga
erinda LÍÚ og álykta eins og sam-
tökin kröfðust í tilteknu máli.
Skilaboðin voru líka skýr: Það
hefur fjárhagslegar afleiðingar
fyrir bæjarfélagið að hlýða ekki
útgerðarvaldinu.
Sjómenn í Bolungarvík leit-
uðu réttar síns og sóttu lögboð-
ið kaup. Forstjóri fyrirtækisins
sagði upp tveimur sjómönnum
sem gengu fram í því máli og bar
við hagræðingu. Skilaboðin eru
líka skýr: Það hefur afleiðingar
að una ekki valdboðinu.
Með rýting í bakinu
LÍÚ gekkst fyrir útifundi á
Austur velli á síðasta kjörtíma-
bili gegn þáverandi stjórnvöld-
um. Skipum með áhöfn var siglt
til Reykjavíkur og sjómenn fengu
skýr skilaboð um það sem ætlast
var til af þeim. Sjómennirnir
stóðu á Austurvelli í sjógöllum
með rýting atvinnurekendavalds-
ins í bakinu.
Forstjóri Samherja róaði
Ísfirðinga með orðunum: Gugg-
an verður áfram gul, áfram ÍS
og áfram gerð út frá Ísafirði.
Hann gekk á bak orða sinna að
öllu leyti og fannst það allt í lagi.
Hann sá bara eftir því að hafa
lofað of miklu, ekki því að hafa
vanefnt loforðið. Honum finnst
allt í lagi að svipta Ísfirðinga
vinnu, tekjum, umsvifum og
sóknarfærum sem fylgja öflugri
útgerð. Honum finnst að það eigi
að taka því þegjandi og möglun-
arlaust.
Þetta er það sem samtökin vilja
þagga niður. Upprifjun á stað-
reyndum um vanefndir, vald-
níðslu og alvarlega vankanta á
kvótakerfinu sem leiða til sam-
þjöppunar auðs og valds. Það
verður aldrei friður um kvóta-
kerfið eins og það er. Ítrekaðar
tilraunir útgerðarsamtakanna til
þess að berja þjóðina til hlýðni
eru dæmdar til þess að mistak-
ast og munu bara virka eins og
olía sem hellt er á bál.
Málfrelsi LÍÚ
Orka 78 hitaeiningar
Prótein 8,8 g
Kolvetni 9,4 g
Fita 0,6 g
Kalk 282 mg
D-vítamín 2,0 μg
A-vítamín 90 μg
B2-vítamín 0,34 mg
Fosfór 196 mg
Joð 22 μg
B12-vítamín 0,74 μg
Til að byggja upp vöðva og öðlast kraft
Til að veita líkamanum orku
Flytur með sér A- og D-vítamín
Fyrir sterk bein, hvítar tennur og
fallegra bros
Til að líkaminn geti nýtt sér kalkið
Fyrir húðina, augun og sjónina
Fyrir efnaskipti líkamans
Fyrir sterk bein
Fyrir efnaskipti og orkujafnvægi
Fyrir alla frumustarfsemi
Miðað er við 2 dl (200 g)
Eitt glas af Fjörmjólk inniheldur
Einstaklega próteinrík og
inniheldur fjölda nauðsynlegra
næringarefna.
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
➜ LÍÚ neitaði að
standa að fundi með
Pírötum vegna þess
að mér hafði verið
boðið að tala. Skýr-
ingar blaðafulltrúans
lúta að persónunni.
Það er farið í mann-
inn en forðast að
ræða málefnið.
SJÁVARÚTVEGUR
Kristinn H.
Gunnarsson
fv. alþingismaðurÍ gær var áttundi mars –
alþjóðlegur baráttudagur
kvenna fyrir friði og jafn-
rétti, sem fær enn aukið gildi
í huga okkar á þessu ári þegar
við minnumst þess að hundrað
ár eru liðin frá því að konur
á Íslandi fengu kosningarétt.
Bara hundrað ár síðan sjálf-
sagt þótti að útiloka annað
kynið frá því að kjósa fulltrúa
til alþingis. Einhver umræða
fór fram um það í byrjun árs
hvort nokkuð tæki því að minn-
ast kosningaréttar kvenna sér-
staklega vegna þess að um leið
fengu fátækir og jarð næðis-
lausir karlar að kjósa í fyrsta
sinn, sem vissulega voru mikil
og merk tíðindi, og kallar á
sérstakan fögnuð, en breytir
auðvitað engu um það hvílík
tímamót það voru í sögu þjóð-
arinnar að öðru kyninu væri
ekki hreinlega neitað lengur
um að kjósa.
Það blasir eiginlega við.
Ýmsir karlar mölduðu samt
í móinn: Hvað er nú verið að
rifja það upp? Allt er nú tínt til!
Það hafa nú fleiri fengið kosn-
ingarétt og aldrei eru þessar
kellingar til friðs …
Og þar fram eftir götunum.
Til eru karlar sem telja sig
þurfa að gera athugasemdir við
hvaðeina í kvennabaráttu og
kvennasögu – allt, alltaf, alls
staðar. Það er eins og gengur
og ýmsar ástæður fyrir því;
hjá einhverjum þráhyggju-
kennd þrasþörf, hjá öðrum
þaulræktað skilningsleysi á
því hvað sé svona merkilegt
við það að vera kvenmaður; hjá
enn öðrum einhvers konar ótti,
óánægja og efasemdir um eigin
stöðu í lífinu. Svo er til fólk
sem virðist líta á mannrétt-
indi sem einhvers konar köku
sem sé til skiptanna; réttindi
eins komi niður á réttindum
annars. Þannig er það auðvitað
ekki: almenn réttindi gagnast
öllum; útmæld sérréttindi bitna
á öllum, ekki síst forréttinda-
fólkinu sjálfu. Eins og dæmin
sanna.
„We make her paint her face
and dance“
Aðrir karlar vilja vera með.
Auð vitað. Femínisminn er ein
af hinum stóru og voldugu rétt-
lætishreyfingum okkar daga
og auðvelt að hrífast með, sér-
staklega þegar haft er í huga
hversu ótal margt er óunnið
í þessum efnum. En sú þátt-
taka getur verið snúin. Og í
öllum bylgjum femínismans
hafa konur þurft að glíma við
ráðríka karla. Mér er minnis-
stæður þáttur af Silfri Egils
fyrir allmörgum árum þegar
sátu saman kona sem er valin-
kunnur krati með rætur í
Kvennalistanum og karl sem þá
var í Vinstri grænum; og konan
komst eiginlega ekkert að fyrir
karlinum því hann þurfti að fá
að tala svo mikið um það hvað
hann væri mikill femínisti og
útskýra fyrir konunni í hverju
sú hugsjón fælist.
Og stundum verður manni
hugsað í þessu sambandi til
söngsins hans Johns Lennon,
Woman is the nigger of the
world; sem manni þótti aldeilis
flott lag og bregða upp sterk-
um myndum af kvennakúgun. Í
lokin er þar endurtekin aftur og
aftur línan: „We make her paint
her face and dance …“ Með
hverju árinu sem líður finnst
mér þetta verri og verri lína.
Eiginlega óskiljanlegt að maður
sem eitt sinn var bítill skuli
láta aðra eins vitleysu út úr sér.
En þetta var árið 1972 þegar
í tísku var að stara ómálaður
í gaupnir sér, grár og gugg-
inn af áhyggjum yfir ástandi
heimsins og óhóflegri neyslu á
makróbíótískum linsubaunum;
sjálfur dansinn var léttúð. Hug-
myndastraumarnir renna alltaf
hver inn í annan og femínismi
þessara ára tók lit af harð lífis-
kommúnisma maóismans. John
Lennon var þarna genginn í
EIK-ml og farinn að syngja á
móti andlitsmálningu og dansi.
Og farinn að gera lítið úr þeim
konum sem mála sig og dansa –
í nafni kvenna.
Konur mála sig ekki vegna
þess að karlar segi þeim að
gera það. Þær velta ekki vöng-
um yfir kjólum og litum og
sétt eringum vegna þess að
karlar vilji að þær geri það.
Slíkar pælingar hjá konum eru
ekki ómerkilegur hégómi eða
léttvæg iðja heldur mikilsverð-
ur þáttur í mannlegu atferli og
merkileg kvennamenning. Það
er ekki ónáttúra að mála sig
heldur hitt: að mála sig ekki.
Það er öfugsnúið að gera ekkert
með litasamsetningar, klæð-
ast helst engu öðru en svörtu
og hvítu. Hinn kristni vestræni
gagnkynhneigði skrifstofumað-
ur, óskreyttur í jakkafötum,
er ekki reglan heldur undan-
tekningin. Og þarf svo sem
ekki að líta lengi í kringum sig
í vestrænum stórborgum til að
sjá það.
Hvað ber að gera?
Áttundi mars í gær og ég læt
hér dæluna ganga um karla.
Það er náttúrlega dæmigert,
en kannski við hæfi líka því að
hver er ég svo sem að fara að
setja á tölur um verkefni dags-
ins í kvennabaráttunni. Það
eina sem ég get er að vona að
hún dafni og þetta afmæli verði
íslenskum konum tækifæri til
að gera eitthvað stórkostlegt
sem gæti gagnast okkur öllum.
Við lifum á válegum tímum og
við þurfum sárlega á nýsköpun
að halda í pólitískri hugsun – á
borð við þá sem Kvennalistinn
var á sinni tíð.
Áttundi mars var í gær
Við lifum á válegum
tímum og við þurfum
sárlega á nýsköpun að halda
í pólitískri hugsun– á borð
við þá sem Kvennalistinn
var á sinni tíð.
0
8
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:4
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
0
F
-2
8
B
C
1
4
0
F
-2
7
8
0
1
4
0
F
-2
6
4
4
1
4
0
F
-2
5
0
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K