Fréttablaðið - 09.03.2015, Page 14

Fréttablaðið - 09.03.2015, Page 14
9. mars 2015 MÁNUDAGUR| SKOÐUN | 14 Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi . Sendu greinina þína á greinar@visir.is og við komum henni á framfæri hið snarasta. Þegar íslenskar stúlkur byrja að sofa hjá eru þær yngri en annars staðar á Norðurlöndum. Íslensk- ar konur eru þess vegna í aukinni áhættu að smitast fyrr af kynsjúkdómum. HPV-veiran smitast með kynmökum og er aðalorsök leghálskrabbameins sem á heimsvísu er þriðja algeng- asta dánarorsök af völdum krabbameins hjá konum. Vinkonan sem kom ekki Kona sem ég hitti um daginn sagði mér að hún hefði greinst fyrir þrjátíu árum með leghálskrabba- mein eftir að hafa komið í hópleit. Hún var ekki orðin þrítug og móðir ungra barna. Hún sagðist heppin að hafa mætt reglulega í leit því krabbameinið uppgötvaðist á byrj- unarstigi, á meðan það var enn læknanlegt. Hún veit af eigin raun hve mikilvægt er að mæta reglu- lega í krabbameinsleit því náin vin- kona hennar sem greindist einnig með leghálskrabbamein sama ár hafði ekki mætt í boðaða leit. Sú var ekki jafn heppin. Hér á landi er konum á aldrinum 23 til 65 ára boðið að mæta á þriggja ára fresti í leghálskrabbameinsleit en samt sem áður eru alltof marg- ar konur sem koma of sjaldan eða aldrei. Konurnar sem leitað var að Einungis tvær af hverj- um tíu konum sem fá sitt fyrsta boð um að koma í hópleit að leghálskrabba- meini panta tíma innan hálfs árs. Og um helm- ingur kemur ekki reglu- lega þrátt fyrir að fá boð en til að leitin skili árangri þarf að taka leg- hálsstrok á þriggja ára fresti. Í árvekniátaki Bleiku slaufunnar í október síð- astliðnum stóð Krabbameinsfé- lagið fyrir herferðinni „Erum við að leita að þér?“ Á meðan á átakinu stóð varð mikil vakning hjá þjóðinni um mikilvægi þess að konur þiggi boð um að mæta í leit. Feður hringdu og fengu tíma fyrir dætur sínar í leg- hálskrabbameinsleit. Mæður og ömmur komu í samfylgd dætra eða barnabarna. Skoðanadög- um var fjölgað til að anna eft- irspurn og símaþjónusta aukin. Alls komu 65% fleiri konur á aldrinum 23 til 39 ára í legháls- krabbameinsleit á Leitarstöðina í Reykjavík í október heldur en í september. Til samanburðar varð engin marktæk aukning á mæt- ingu í október miðað við septem- ber árið áður (2013). Átakið núna skilaði þannig góðum árangri. Lúmskur sjúkdómur Dánartíðni vegna leghálskrabba- meins hefur lækkað um 90% frá því að leit hófst á vegum Krabba- meinsfélagsins fyrir hálfri öld. Þessi árangur jafngildir að um 600 konum hafi verið bjargað frá ótímabærum dauða. En þó svo að konum sem látast úr legháls- krabbameini hafi fækkað umtals- vert mun sjúkdómurinn ekki hverfa úr samfélaginu á næstu árum. Þvert á móti hafa ungar konur verið að greinast með lengra gengið leghálskrabbamein sem erfiðara er að lækna. Það sem er mikilvægt að átta sig á er að sjúk- dómurinn er lúmskur því hann er oftast einkennalaus á byrjunar- stigum þegar meiri líkur eru á lækningu. Leitin heldur áfram Krabbameinsfélagið hvetur konur til að nýta sér þessa mikilvægu heilsuvernd sem leitarstarfið er. Leitin að konunum í október bar sannarlega árangur en leitin heldur áfram. Til að ná enn betri árangri þurfa konur á boðunaraldri að mæta reglulega. Og höfum í huga að það er ekki sjálfgefið að hafa aðgang að jafnöflugu leitarstarfi og rekið er á Íslandi. Það eru for- réttindi. Getur nokkuð verið að við séum enn að leita að þér? Erum við enn að leita að þér? Brátt verða sjö ár liðin frá hruninu sem varð á Íslandi, sjö mögur ár að baki, kannski ekki síst fyrir „millistéttaraulana” sem borguðu af skuldum sínum áfram, báru skatta- hækkanir og niðurskurð án þess að mögla mikið nema á Facebook. Kannski vonar fólkið sem greitt hefur allan sinn sparnað í vaxtahít verðtryggingar okkar ónýta gjaldmiðils að fram undan séu betri sjö ár, ár sem rétt- læti fórnirnar sem færðar voru á altari hinnar sjálfstæðu örmyntar. Sumir halda því fram að hún hafi „bjargað“ Íslendingum, forðað þeim frá atvinnuleysi einmitt vegna þess að gengið gat fall- ið, en þeir virðast gleyma því að atvinnuleysi rauk hér upp líka, mikill fólksflótti var og er frá landinu og að skuld- ir almennings, hvað sem öllum „leiðréttingum“ líður, ruku upp úr öllu valdi. Þeir virðast líka hafa gleymt því að hér þurfti að setja á gjaldeyr- ishöft fyrir rúmum sex árum, höft sem enn halda fast og stjórnmálamenn þora bersýnilega ekki að aflétta. Hvers vegna? Hagfræðingar segja að nú sé besti tíminn til að aflétta höftum en lítið er að ger- ast nema nefndastörf. Talað er um „útgönguskatt“, en það er engin aflétting, aðeins annað form á höftum. Kröfuhafar íslensku bank- anna geta vel beðið það af sér á góðum vöxtum íslensku krónunn- ar sem eru margfalt hærri en ann- ars staðar á Vesturlöndum og þótt víðar væri leitað. Verðtryggingin sér svo um sína ef „verðbólguskot“ verður. Hvað gerum við þá? Og það er einmitt það sem gerist ef höftunum verður aflétt í raun og veru. Allir vita að krónan er afar ótryggur gjaldmiðill og það væri beinlínis skylda íslenskra lífeyris sjóða að fjárfesta meira erlendis ef höftin færu. Það þarf ekki að spyrja um einkaaðila, hver þeirra tæki áhættuna á því að pen- ingaeignir þeirra rýrnuðu umtals- vert einungis vegna þess að þær væru í íslenskum krónum? Auk þess gætu miklar sveiflur leitt til nýrra hafta og þá væri gott að eiga peninga í útlöndum, það hefur sýnt sig á undan förnum árum í gjald- eyrisútboðum Seðlabankans. Fyrir sex árum sótti Ísland um aðild að Evrópusambandinu. Þvert á það sem áróðurinn hamr- ar á var góður meirihluti fyrir því bæði meðal þings og þjóðar. Skoðanakönnun Capacent Gall up í febrúar 2009 sýndi að rúm 60% landsmanna voru hlynnt aðildar- umsókn. Fyrir kosningar árið 2009 samþykkti Framsóknar flokkurinn að sótt skyldi um aðild að ESB, Samfylkingin var á því, Borgara- hreyfingin einnig og vitað var að ýmsir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins voru hlynntir umsókn um aðild. Vinstri græn samþykktu svo í stjórnarsáttmála að styðja umsóknina sem lögð yrði síðan í þjóðaratkvæðagreiðslu. Allir höfðu fyrirvara um samþykki eftir því hvernig til tækist í samn- ingaviðræðum, enda voru menn þá ekki farnir að ljúga því upp í opið geðið á almenningi að ekki væri um neitt að semja. Eitt mikilvægasta atriðið við aðild að ESB var að fá hlutdeild í gjaldmiðli sem stæði af sér ólgu- sjói hnattvæðingar og skilaði íslenskum almenningi og fyrir- tækjum vaxtakjörum á borð við þau sem eru í nágrannalöndun- um. Andstæðingar aðildar hróp- uðu þá hátt að það tæki mörg ár að verða aðili að evrunni, skilyrð- in væru slík. Sem er alveg rétt. En nú stöndum við hér tæpum sex árum seinna og bíðum þess eins að næsta verðbólguholskefla ríði yfir okkur og hvað gerum við þá? Krónan, höftin og evran Nýverið gerði Íbúahreyf- ingin tillögur starfshóps Sjálfstæðisflokks, Sam- fylkingar og Vinstri grænna um uppbygg- ingu leiguhúsnæðis í miðbæ Mosfellsbæjar að umræðuefni í bæjar- stjórn. Ástæðan er sú að þær fela ekki í sér nein úrræði fyrir unga og efnaminni íbúa, heldur einungis þá efnameiri. Lóðarvalið segir sína sögu. Það á að byggja í miðbæn- um þar sem íbúðir eru eftirsótt- ar og bygg ingar kostnaður hár vegna kvaða um bílakjallara og fleira. Staðsetningin ein kall- ar því á hátt sölu- og leiguverð nema til komi sértækar ráðstaf- anir sveitarfélagsins. Í umræðum kom fram að starfshópurinn ætlar hvorki að hafa frumkvæði að samstarfi við húsnæðissamvinnufélög, - en þau eru rekin án hagnaðar- sjónarmiða, - né lækka gatna- gerðargjöld. Orðrétt sagði bæjarstjóri: „Leiguverð ræðst af markaðsaðstæðum. Bærinn mun ekki koma með neinum hætti að rekstri þessara íbúða og þetta eru ekki félagsleg- ar leiguíbúðir, heldur almennt leiguhúsnæði á frjálsum mark- aði.“ Það er sem sagt framboðið sem á að sjá til þess að lækka leiguverð. En hvað styður þá kenningu? Þetta eru einungis þrjátíu íbúðir á dýrasta stað í bænum. Samkvæmt minnisblaði á að úthluta lóðum fyrir sextíu íbúð- ir á mörkum Þverholts og Skeið- holts í miðbæ Mosfellsbæjar. Í fyrsta áfanga á að byggja fjöru- tíu íbúðir, þar af þrjátíu leigu- íbúðir sem á hvílir þinglýst kvöð um varanlega útleigu sem er besta mál. En að aflétta þing- lýstri kvöð er auðvelt og engar aðgerðir til lækkunar á upp- hafskostnaði sem stuðla að við- ráðanlegri leigu til frambúð- ar. Í tillögunum segir ekkert um hvernig haga skuli rekstri, halda utan um útleigu, viðhald og fleira. Á bæjarstjórnarfundinum lýsti undirrituð afstöðu Íbúa- hreyfingarinnar til málsins: „Íbúahreyfingin er tilbúin til að koma að vinnu valnefndarinnar sem fái jafnframt það hlutverk að tryggja að væntanlegar leiguíbúð- ir verði á viðráðanlegu verði og útfærsla á því hvernig rekstur og fyrirkomu- lag leiguíbúðanna verði tryggð til langs tíma. Íbúahreyfingin telur mjög mikilvægt að allar raddir heyrist við undirbúning þessa máls. En […] lítur svo á að markmið með úthlutun lóða undir leiguíbúðir sé fyrst og fremst að tryggja fólki og þá sérstaklega ungu fólki leigu- íbúðir á sem lægstu leigugjaldi til langs tíma.“ Gæta þarf jafnræðis Íbúahreyfingin tekur undir nauðsyn þess að byggja upp leigumarkað í Mosfellsbæ. Íslensk heimili eru í sárum eftir mesta bankahrun sögunnar og sögð þau skuldsettustu í heimi. Nú sex árum síðar hefur mikill fjöldi fólks misst húsnæði sitt og lánshæfi í bönkunum. Marg- ir eru því ekki borgunar menn fyrir eigin húsnæði. Enn aðrir geta ekki hugsað sér að láta binda sig aftur á skuldaklafann. Uppbygging leigumarkaðar er því knýjandi. Þetta fyrsta skref í þróun leigumarkaðar í Mosfellsbæ er með öðrum formerkjum en Íbúahreyfingin hefði kosið. For- gangsröðunin vekur undrun. Undirrituð frétti fyrst af tilvist starfshópsins á fundi bæjar- ráðs nú í lok janúar. Hefði ekki verið skynsamlegra að hafa þverpólitíska sátt um svo mik- ilvægt mál? Og muna að sveitar- stjórnir þurfa að gæta jafnræð- is í ákvörðunum sínum, muna að það er líka þeirra verkefni að tryggja ungum og efnaminni fjölskyldum leiguhúsnæði á við- ráðanlegu leiguverði. Í stefnumótandi starfi í bæj- arstjórn þurfa ráðandi öfl að þola að hlusta á öll sjónarmið. Þannig er lýðræðið. Leiguíbúðir fyrir efnameiri í forgang í Mosfellsbæ Að ákvarða flatarmál og miðju stórra landsvæða, eins og Íslands, er mjög áhugavert verkefni þar sem taka þarf afstöðu til nokk- urra atriða og skilgreininga áður en lagt er af stað. Nið- urstaðan veltur síðan á því hvaða skilgreiningar eru notaðar. Í gegnum tíðina hefur flatarmálið verið reiknað út frá strand línu sem er teiknuð upp eftir loftmynd- um eða gervitunglamynd- um. Um er að ræða flatar- mál á ofanvarpi landsins þar sem ekki er tekið tillit til landslags. Sé tekið tillit til landslags verður flat- armálið breytilegt eftir því hversu nákvæmt landlíkan við notum. Í dag er þó í auknum mæli farið að notast við lidar/laser-mælingar úr flugvél- um til að mæla strand línu þar sem sérstakur geisli, sem getur mælt niður fyrir vatnsyfirborð, er notað- ur. Mælingar með þessum aðferðum eru mjög kostnaðarsamar og hefur þeim ekki verið beitt hér við land. Stærsta atriðið sem þarf að skoða er skilgreining strandlínunnar. Er miðað við hæstu sjávar stöðu, meðal- sjávarstöðu eða lægstu sjávarstöðu, eða er strand línan teiknuð eins og hún kemur fyrir á viðkomandi myndum án tillits til sjávarfalla? Sé það gert má þó ætla að talan sé nokkuð nærri meðal sjáv- arstöðu þegar kemur að flatarmálsútreikningum. Hinsvegar er þessháttar strandlína ekki nothæf við mat á strandlínubreyting- um á milli tímabila. Munur- inn á strandlínunni í hæstu og lægstu sjávarstöðu getur verið nánast enginn og upp í hundruð metra og fer hann eftir landslagi við strönd- ina á hverjum stað. Þetta atriði eitt og sér getur gefið mismun upp á tugi, jafnvel hundruð ferkílómetra. Annað atriði sem skiptir miklu máli er aldur þeirra gagna sem notuð eru við að teikna strandlín- una, vegna þess að á mörgum svæð- um á Íslandi er strandlínan síbreyti- leg. Stærstu áhrifavaldarnir þarna er landbrot og jökulframburður. Ögn tæknilegra atriði sem skiptir máli er hvaða kortavörpun er notuð þegar flatarmálið er reiknað. Sú kortavörpun sem oftast er notuð á Íslandi varðveitir í raun aðeins lögun landsins, en ekki stefnur og stærðir. Réttara er því að notast við svokallaðar jafnflatar-korta- varpanir þegar reikna á flatarmál landsvæða nákvæmlega. Sé jafn- flatarvörpun í stað hinnar hefð- bundnu Lambert-vörpunar notuð, stækkar landið um u.þ.b. 1,7 fer- kílómetra. Eyjur og sker Þá er einnig spurning hvort við tökum eyjarnar í kringum Ísland með inn í reikninginn og þá má velta upp þeirri spurningu hvað er eyja og hvað er sker. Strandlína Landmælinga Íslands er skilgreind út frá hæstu sjávar- stöðu og byggir á nýlegum gervi- tunglamyndum og loftmyndum. Samkvæmt þessari strandlínu er flatarmál meginlands Íslands um 102.593 ferkílómetrar sé flatar- málið reiknað með jafn flatar- vörpun. Samanlagt flatarmál þeirra eyja sem eru stærri en 1 hektari er um 109 ferkílómetrar. Miðað við þessi gögn þá er miðja landsins 64°59’10.4”N og 18°35’04.9”V og munar um 98 metrum frá því að Landmælingar Íslands reiknuðu hana fyrst árið 2005. Þó ber ekki að líta á þessa tölur sem heilagan sannleika þar sem strandlínan er háð þeim skil- greiningum og breytingum sem nefndar hafa verið hér að ofan. Flatarmál og miðja Íslands FJÁRMÁL Gauti Kristmannsson prófessor við HÍ ➜ Hagfræðingar segja að nú sé besti tíminn til að afl étta höftum en lítið er að gerast nema nefndastörf. ➜ Strandlína er skilgreind út frá hæstu sjávarstöðu og byggir á nýlegum gervitungla- myndum og loftmyndum. ➜ Íslensk heimili eru í sárum eftir mesta bankahrun sögunnar og sögð þau skuldsett- ustu í heimi. HEILBRIGÐISMÁL Lára G. Sigurðardóttir læknir og formaður fag- og fræðsluráðs Krabbameins- félagsins HÚSNÆÐISMÁL Sigrún H. Pálsdóttir bæjarfulltrúi Íbúahreyfi ngarinnar LANDMÆLINGAR Guðmundur Valsson mælingaverk- fræðingur hjá Landmælingum Íslands 0 8 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :4 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 0 F -2 3 C C 1 4 0 F -2 2 9 0 1 4 0 F -2 1 5 4 1 4 0 F -2 0 1 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.