Fréttablaðið - 09.03.2015, Page 17

Fréttablaðið - 09.03.2015, Page 17
Nasofan-nefúðinn inniheldur barksterann fluticason própí-ónat. „Barksterar eru mjög virk bólgueyðandi efni sem hindra mynd- un ýmissa boðefna í ónæmiskerfinu, m.a. í ofnæmi,“ segir Hákon Steins- son, lyfjafræðingur hjá LYFIS. „Ein- kenni frá nefi vegna bólgu í nefholinu sem hægt er að hafa áhrif á með bark- stera eru nefstífla, nefrennsli, kláði í nefi og hnerri.“ Ráðlagður skammtur fyrir full- orðna, 18 ára og eldri, er 1-2 úðaskammtar í hvora nös einu sinni á dag, helst að morgni. Auka má skammt í mest 2 úðaskammta í hvora nös tvisvar á dag þar til ein- kenni minnka og halda þá áfram að nota venjulegan skammt. Það get- ur tekið nokkra daga fyrir lyfið að virka þrátt fyrir reglu- lega notk- un. Þegar bati hefur náðst á að halda áfram að nota minnsta skammt sem þarf til að hafa stjórn á einkennum. Nasofan-nefúðinn fæst án lyfseðils í öllum apótekum. Án ávísunar frá lækni er Nasofan eingöngu ætlað einstak- lingum 18 ára og eldri. Mikilvægt er að lesa fylgiseðil lyfsins fyrir notkun og kynna sér notkunarleiðbeiningar og helstu varúðarreglur. Stutta samantekt um lyfið má sjá hér að neðan. ● Nefstífla ● Nefrennsli ● Kláði í nefi ● Hnerri NASOFAN-NEFÚÐI VIÐ BÓLGU OG ERTINGU LYFIS KYNNIR Nasofan-nefúði – Nýtt í lausasölu. Í fyrsta sinn á Íslandi fæst nú nef- úði í lausasölu í apótekum sem inniheldur barkstera sem draga úr bólgu og ertingu í nefi. Sambærileg lyf hafa hingað til eingöngu verið fáanleg gegn ávísun læknis. NASOFAN Nasofan- nefúðinn inniheldur barksterann fluticason própíónat og er fyrsta og eina lyfið sinnar teg- undar sem fæst nú án lyfseðils á Íslandi. PARTÍ Í EPAL Opnunarpartí HönnunarMars verður haldið í Epal á miðvikudaginn klukkan 17 til 19. Epal mun í ár sýna áhugaverða hönn- un eftir fjölbreyttan hóp hönn- uða jafnt ungra sem reyndari. Notkunarsvið: Nasofan nefúði er notaður til að draga úr og meðhöndla árstíðabundna ofnæmisbólgu í nefi. Ekki má nota Nasofan: ef um er að ræða ofnæmi fyrir fluticason própíónati eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins. Gæta skal sérstakrar varúðar ef þú: hefur einhvern tíma farið í aðgerð á nefi; ert með eða hefur nýlega verið með sýkingu í nefi; ert með eða hefur nýlega verið með einhvers konar ómeðhöndlaða sýkingu eða berkla eða herpessýkingu í augum; hefur nýlega verið í meðferð með sterum í sprautuformi eða ef þú hefur verið að taka inn stera um munn í langan tíma. Nasofan nefúði inniheldur benzalkonklóríð rotvarnarefni. Meðganga og brjóstagjöf: Leita skal ráða hjá lækninum eða lyfjafræðingi áður en lyfið er notað. Skömmtun: Fullorðnir, 18 ára og eldri: 1-2 úðaskammtar í hvora nös einu sinni á dag, helst að morgni. Auka má skammt í mest 2 úðaskammta í hvora nös tvisvar á dag þar til einkenni minnka og halda þá áfram að nota venjulegan skammt. Algengar auka- verkanir: Blóðnasir, höfuðverkur, óþægilegt bragð í munni eða óþægileg lykt í nefi, þurrkur eða erting í hálsi og nösum ásamt hnerra. Lesið vandlega fylgiseðil sem fylgir lyfinu. SmPC: Desember 2014. 0 8 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :4 0 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 0 F -2 D A C 1 4 0 F -2 C 7 0 1 4 0 F -2 B 3 4 1 4 0 F -2 9 F 8 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.