Fréttablaðið - 09.03.2015, Page 50
9. mars 2015 MÁNUDAGUR| SPORT | 26
Ö
ll
ve
rð
e
ru
b
ir
t m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
p
re
nt
vi
llu
r
og
/e
ða
m
yn
da
br
en
gl
.
INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 11 - 18. SUN. 13 - 17.
INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4891 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
INTERSPORT SELFOSSI / SÍMI 480 4611 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
MCKINLEY TREKKER
Vandaðir gönguskór úr leðri með VIBRAM sóla.
Dömu- og herrastærðir. Dökkbrúnir.
POLAR LOOP ÚR
Heldur utan um alla hreyfingu allan sólarhringinn,
alla daga vikunnar. Litir: Svart, fjólublátt, blátt.
19.990
Fullt verð: 26.990
Fermingar-
tilboð
NIKE FREE 5.0
Hlaupaskór sem bæði styrkja og vernda fætur.
Margir litir. Herra- og dömustærðir.
HAGLÖFS
TURA 35
Léttur 35L bakpoki
með festingar fyrir
skíði og snjóbretti.
Fæst aðeins
á Bíldshöfða.
MCKINLEY
CAVANNA
50L bakpoki með
góðum mjaðma- og
axlarólum. Hægt
er að renna litlum
dagspoka af. Rennt
hólf fyrir axlarólar.
Stillanlegt bak.
Fæst aðeins á
Bíldshöfða.
19.990
VERÐ FRÁ
Sem nýtast vel og endast lengi
GÓÐAR
FERMINGARGJAFIR 19.990
Tilvalin
fermingargjöf
24.690
Tilvalin
fermingargjöf
24.690
Tilvalin
fermingargjöf
ENSKI BIKARINN
BRADFORD CITY - READING 0-0
Liðin þurfa að mætast aftur.
LIVERPOOL - BLACKBURN 0-0
Liðin þurfa að mætast aftur.
ASTON VILLA - WEST BROM 2-0
1-0 Fabian Delph (51.), 2-0 Scott Sinclair (85.).
Manchester United og Arsenal mætast á Old
Trafford klukkan 19:45 í kvöld í síðasta leik átta
liða úrslitanna. Dregið verður í undanúrslitin
eftir leikinn.
LANGÞRÁÐUR ÁFANGI Aston Villa bar
sigurorð af nágrönnum sínum í West
Brom, 2-0, á Villa Park á laugardaginn
og tryggði sér sæti þar með sæti í
undanúrslitum bikarkeppninnar í fyrsta
sinn síðan 2010. Stuðningsmenn liðsins
ruddust inn á völlinn eftir að flautað
var til leiksloka og fögnuðu sínum mön-
num ákaft. Fyrirliðinn Fabian Delph var
meðal annars bitinn í fagnaðarlátunum.
Í gær báðust forráðamenn Aston Villa
afsökunar á athæfi stuðningsmanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI „Já, ég man mjög vel
eftir honum,“ sagði knattspyrnu-
konan Dagný Brynjarsdóttir í sam-
tali við Fréttablaðið um helgina,
aðspurð hvort hún muni eftir
fyrsta A-landsleiknum sem hún
spilaði.
Rétt rúm fimm ár eru síðan
Dagný þreytti frumraun sína með
landsliðinu en fyrsti leikurinn var
gegn stórliði Bandaríkjanna á Al-
garve-mótinu í Portúgal.
Þá var Dagný 18 ára og með
stjörnur í augunum. Mikið vatn
hefur runnið til sjávar síðan þá.
Í dag er Dagný 23 ára, leikmaður
Bayern München og leikur sinn
51. landsleik þegar Ísland mætir
Bandaríkjunum á Algarve-mótinu
á morgun.
„Ég byrjaði inni á og viðurkenni
að ég var frekar stressuð og með
stjörnur í augunum að mæta þess-
um stelpum. Það verður aðeins
öðruvísi að mæta þeim á morg-
un,“ sagði Dagný um fyrsta lands-
leikinn en man hún hvernig henni
gekk í honum?
„Örugglega skítsæmilega, miðað
við fyrsta leik. Ekkert frábærlega
og ekkert illa heldur,“ sagði hún en
Ísland tapaði leiknum 2-0, þar sem
bæði mörkin komu á þriggja mín-
útna kafla í seinni hálfleik.
Það fyrra var sjálfsmark en
Lauren Chaney skoraði seinna
markið. Ísland átti þó góða mögu-
leika á að fá eitthvað út úr leiknum
en hinn þekkti markvörður Banda-
ríkjanna, Hope Solo, varði tvær
vítaspyrnur frá íslenska liðinu.
Dagný spilaði í fjögur ár með
liði Florida State í bandaríska
háskólaboltanum við góðan orð-
stír. Fjórða og síðasta árið hennar
í Florida State var draumi líkast en
þá varð liðið bandarískur háskóla-
meistari, í fyrsta sinn í sögu skól-
ans. Dagný var fyrirliði Florida
State og var valin í lið ársins í
háskólaboltanum. Hún kannast við
nokkra leikmenn bandaríska liðs-
ins frá skólaárunum vestanhafs.
„Það eru fjórar sem ég spilaði á
móti og stelpan sem er á miðjunni
hjá þeim, Morgan Brian, var val-
inn besti leikmaður háskólabolt-
ans þegar ég var valin næstbest.
Ég gleymi því ekkert hvað hún
heitir,“ sagði Dagný og hló við en
þær Brian áttust þrisvar við á síð-
ustu fjórum mánuðum Dagnýjar í
skólanum.
Fyrir utan stelpurnar sem
Dagný spilaði gegn í háskólabolt-
anum er bandaríska liðið frekar
gamalt, en tólf af þeim 25 sem
skipa leikmannahópinn á Algarve
eru fæddar 1985 eða seinna. Til að
mynda verður fyrirliði Bandaríkj-
anna, miðvörðurinn Christie Ram-
pone, fertug á árinu en hún hefur
spilað yfir 300 landsleiki.
Bandaríkin taka Algarve-mótið
mjög alvarlega en liðið var saman
í 90 daga fyrir mótið. Það verður
því við ramman reip að draga hjá
íslenska liðinu á morgun en það
tapaði fyrstu tveimur leikjum
sínum á mótinu.
„Auðvitað reikna allir með
bandarískum sigri, en ef við
spilum vel getum við alveg náð
góðum úrslitum,“ sagði Dagný að
lokum.
ingvithor@365.is
Var með stjörnur í augunum árið 2010
Dagný Brynjarsdóttir lék sinn fyrsta landsleik fyrir fi mm árum gegn Bandaríkjunum sem er einmitt næsti
mótherji Íslands á Algarve-mótinu í Portúgal. Íslensku stelpurnar hafa tapað báðum leikjunum til þessa.
ÖFLUG Dagný lék
landsleik númer fimm-
tíu gegn Noregi
á föstudaginn.
MYND/KSÍ
0
8
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:4
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
0
F
-4
B
4
C
1
4
0
F
-4
A
1
0
1
4
0
F
-4
8
D
4
1
4
0
F
-4
7
9
8
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K