Fréttablaðið - 09.03.2015, Síða 54

Fréttablaðið - 09.03.2015, Síða 54
9. mars 2015 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 30 Gerum við allar Apple vörur „Mamma fékk hana þegar hún var fimmtán ára og strákarnir í Tempó upp á sitt besta,“ segir Margrét Auður Jóhannesdóttir, en nýlega kom einkennispeysa hljómsveitar- innar Tempó í leitirnar eftir dágóð- an tíma í dvala,“ „Móðir mín, Árný Elsa Þórðar- dóttir, var mikill aðdáandi bands- ins. Hún fékk þessa peysu senda til sín í Heyrnleysingjaskólann fyrir um fimmtíu árum. Hún fór ekki úr peysunni allan þann vetur og rúm- lega það,“ segir Margrét og hlær. Þó svo Árný Elsa sé heyrnarlaus kom það ekki í veg fyrir að hún héldi mikið upp á hljómsveitina. „Hún fór á böllin, upplifði stemn- inguna, fann taktinn og var skotin í Þorgeiri,“ skýtur Margrét að. Leyndardómurinn afhjúpaður Þorgeir Ástvaldsson, eða Toggi Tempó eins og hann er gjarnan kall- aður, er einn fimm meðlima hljóm- sveitarinnar. Segist hann hafa setið sem steinrunninn þegar símtalið frá Margréti barst. „Þetta er gamalt hernaðarleyndarmál skólahljómsveitar sem varð heimsfræg á Íslandi á einni nóttu eftir að hafa spilað með Kinks,“ segir hann. „Upphaf þessarar Tempó- peysutísku má rekja til þess að við strákarnir úr Langholtsskóla vorum á leið á svið og gátum ekki hugsað okkur annað en að vera töff í tauinu. Þarna var rokkið að ryðja sér til rúms svo hefðbundinn klæðnaður var ekki inni í myndinni,“ segir Þor- geir og bætir við: „Við gengum fram á peysurnar í kvenfatabúð sem seldi blússur og efni, keyptum þær á okkur alla fimm. Sögðum ekki sálu frá og fengum starfs- fólkið með í þagnarbindind- ið,“ segir Þorgeir kíminn. Peysurnar urðu gríð- arlega vinsælar meðal unga fólksins og seld- ust eins og heitar lummur. En þeir þrættu ávallt fyrir að hafa verslað við téða kvenfatabúð. „Við sögðumst hafa fengið þetta sent frá Bretlandi,“ útskýrir Þorgeir. Komið fyrir á Rokksafninu Peysurnar hafa horfið með tím- anum svo stórtíðindum sætir þegar svona gripir poppa upp. Margrét Auður ætlar því að koma peysunni fyrir á Rokksafni Íslands í næstu viku til að halda minningunni á lofti. Þorgeir er að vonum gríðar- lega ánægður með framtakið „Þetta er partur af merkilegri menningarsögu, þegar allt var að breytast hérna heima. Nýbylgja Bítlanna í blússandi gangi, frels- ið að aukast og rokkið að ryðja sér til rúms,“ bætir Þorgeir alsæll við í lokin. Leyndarmál Tempó- peysanna afh júpað Tempópeysurnar voru aðalmálið hjá íslenskum ungmennum fyrir um fi mmtíu árum en hvar peysurnar voru keyptar var algert hernaðarleyndarmál. PEYSAN GÓÐA Toggi Tempó og Margrét með peysuna góðu á milli sín, sem ber aldurinn býsna vel. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BARNIÐ VEX EN BRÓKIN EKKI Togga Tempó þótti ekki leiðinlegt að endurnýja kynnin við einkennisbún- inginn sem hann klæddist fyrir um fimmtíu árum, þá fjórtán ára rokkari. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓR EKKI ÚR PEYSUNNI Árný Elsa í peysunni sinni fyrir tæpum fimmtíu árum, en hún fékk hana senda frá pabba sínum eftir þónokkurt suð. Jón Gnarr hefur hannað nýja boli í samstarfi við EYLAND og renn- ur allur ágóði til Krabba- meinsfélagsins og for- varna fyrir karla og krabbamein. Mynd- in Drengurinn með tárið prýðir bolinn og á hann setti Jón skegg Salvadors Dali. „Ég valdi þessa mynd því mér fannst hún sterk og sýna ákveðna hlið á karl- mennsku, kannski mannlegri hlið en yfirleitt,“ segir Jón. Hann segir það mikinn heiður að vera beðinn um þetta. „Krabbamein er sjúk- dómur í minni fjölskyldu og gaman að fá svona tæki- færi til að leggja baráttunni lið. Við grátum og finn- um til, en höldum samt húmor. Og þannig sigr- um við,“ segir Jón. „EYLAND gerir eitt verkefni á hverju „seas- oni“ sem tengist góðgerðarmálum. Við fengum Jón með okkur því hann er svo frábær og með svo fallega lífssýn,“ segir Ása Ninna Pétursdótt- ir, eigandi og hönnuð- ur EYLAND. Bolurinn verður seldur í versl- unum GK, Suit og á vefversluninni www.eylandworld. com. - asi Jón Gnarr og EYLAND hanna saman bol Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til Krabbameinsfélagsins til forvarna fyrir karlmenn og krabbamein. FLOTTAR Starfsstúlkur EYLAND hressar í bolunum. Gott mánudagslag er Mahlalela (Lazy Bones) með Letta Mbulu. Una Björg Magnúsdóttir, listakona. MÁNUDAGSLAGIÐ 0 8 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :4 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 0 F -2 3 C C 1 4 0 F -2 2 9 0 1 4 0 F -2 1 5 4 1 4 0 F -2 0 1 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.