Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 14.10.1993, Qupperneq 1

Fréttir - Eyjafréttir - 14.10.1993, Qupperneq 1
Leitið ekki langt yfir skammt. Allar byggingavörur á einum stað. HUSEY \cn BYGGINGAVÖRUVERSLUN VESTMANNAEYJA Garöavcgi 15 - sfmi 1115 1 þar sem fagmennirnir versla. 20. árgangur Vestmannaeyjum 14. október 1993 41. tölublað Sfmi: 98 - 13310 Myndriti: 98- 11293 Verd: 100 kr. Leikfélagið æfir þessa dagana Kardimommubæinn og á laugardaginn skruppu Kasper, Jesper og Jónatan í bæjarferð. Skrofa úr Ystakletti fannst syðst í Brasilíu I tilcfni Alþjóða fugladagsins var opið hús í Náttúrugripasafninu á laugardag og sunnudag og að sögn Kristjáns Egilssonar, forstöðu- manns, nýttu um 200 manns tækifærið og skoðuðu það sem safnið hefur upp á að bjóða. Tveir áhugamcnn um fugla og fugla- merkingar, þeir Oskar Sigurðsson í Stórhöfða og Sigurgeir Sigurðs- son, voru á staðnum tilbúnir að svara spurningum gesta. Eitt vakti sérstaka athygli, það voru landakort sem sýndu hvar fuglar merktir í Vestmannaeyjum hafa endurheimst. Þeir hafa farið víða og sá fugl sem farið hefur lengst er skrofa úr Ystakletti. Um var að ræða kvenfugl á hreióri sem merktur var 14. júní I99I og fannst hann syðst í Brasilíu í janúar 1993. Bein loftlína milli. þessara staða er 10.845 kíló- metrar. Kristján sagði að tiltölulega lítið hefði verið merkt af skrofu í Vestmannaeyjum og aöeins tvær hafa skilað sér af um 300. Árið 1972 merkti Sigurgeir sex skrofur og endurheimtist ein þeirra á Nýfundnalandi árið 1976. Annað athyglisvert atriði sem fram kom er að Oskar í Stórhöfða setti per- sónulegt met í að merkja pysjur í sumar. Merkti hann 1336 pysjur og Sigurgeir merkti 410, samtals 1746 pysjur. Allar pysjumar sem Óskar merkti fann Pálmi sonur hans og Sigurgeir merkti eingöngu fugla sem krakkar komu með til hans. „Þetta sýnir aö krakkamir bjarga nokkrum þúsundum pysja á hverju ári. Hvað mörgum er erfitt að segja, en hér eru um 500 krakkar á aldrinum 7 til I2 ára og er með fullri vissu hægt að segja að þau bjargi a.m.k. 5000 til 6000 pysjum á hverju einasta ári,“ sagði Kristján Egilsson að lokum. hirðu ekki á rökum reistar Stjórn SORPU hafa boríst aðþvíervirðistíeinhvemgámsem nokkrar kvartanir vegna sorp- hafi mikii óþægindi í för með sér hirðu í bænum. Munu þær fyrir starfsmenn SORPU. „Þaö er aöallega hafa verið þess efnis að eínníg hætt að greiða innlausnar- sorpbíllinn sem nú er notaður só gjald á gleri því heimilisgler skilar ekki nægiiega vel þrifinn. sér illa í endurvinnsluna. í staðinn Gunnari Sigurðssyni yfirmanni veróalátnirsérpokaríhúsfyrirgler SORPU varfaliðaðkanna málið, sem sorphiróumenn munu taka um en að sögn hans eiga kvar- leió og þeir hirða annað sorp,“ tanirnar ekki við nein rök að sagði Gunnar. styðjast. Mjög vel gangi að hirða Á næstti dögum eru væntanlegir upp sorp í bænum og bíliinn sé til Eyja fuiltrúar frá Norsk Hydro til velþrifinn. aö skoða vélbúnaðínn í SORPU. Gunnar sagóist hafa meíri á- Að sögn Gunnars er það aðallega hyggjur af því að mjög illa gengur ofninn sem er vandamálið en þeir að fá bæjarbúa sem koma með drasl munu einnig stilia stöðina betur og í SORPU, til að flokkaþað og láta í fara yfír alian tækjabúnað. viðkomandí gáma. Fólk hendi þessi SHjálmfríður og! Í Halldóra j i í viðtali i -Sjá bls. 8-9. i________________i i-------— —i Gönguferð menningar- i málanefndar -Sjá bls. 6. i---------------1 i----------------1 ALHLIÐA SENDIBILA- AKSTUR INNANBÆJAR ARNÞÓR HELGASON SÍMII22I7 (Henrý Erlendsson) L________________I Lögreglan gefur fjárbændum auga: Leyfa kindur en ekki slátrun Nú þegar sláturtíð stendur sem hæst standa fjárbændur í Vest- mannaeyjum frammi fyrir gamalkunnu vandamáli, ekkert sláturhús er á staðnum og heiina- slátrun er ekki leyfð. Agnar Angantýsson, yfirlögreglu- þjónn, sagði að lögreglan heföi undanfarið gefið fjárbændum auga til aö koma í veg fyrir aö þeir freistuðust til að slátra fé sínu heima. Enginn hefur verið staðinn að verki ennþá og unnið er aö lausn málsins. „Við höfum gert þetta samhliða öðrum verkefnum og enn hefur ekki komið til árekstra og vonandi verður það ekki. Það verður að koma skikk á slátrun sauðfjár í Vestmannaeyjum svo hún nálgist það aó vera lögleg. Það vantar stað undir slátrun hér og það er til lítils að leyfa sauðfjárhald ef ekki er hægt að slátra. Nú er unnið að því að finna hús og allt bendir til að það sé fundið," sagði Agnar og staðfesti að húsið sem um ræðir er Frostver. Sighvatur stjórnarformaður SIF Aðalftmdur SÍF, Samtaka saltfiskframleiðenda, var hald-inn í gær. Var hann nm leið lokafundur samtakanna en stofnað var nýtt fyrir- tæki SÍF hf. sem mun sjá um sölu- og markaðsmál hluthafanna. Sighvatur Bjarnason, fram-kvæmdastjóri Vinnslustöðvar- ínnar, var kosinn stjðmarfor-maður híns nýja fyrirtækis. Sig- hvatur lagði fyrir skömmu fram tillögu um að SÍF flytti höfuöstöðvar sínar til Vestmanna- eyja. I gær sagðist Sighvatur á þessari stundu ekkert geta sagt hvort þessi hugmynd hans yrði að veruleíka. „Málinu var visað til núverandí stjórnar og ég geri ráð fyrir að hún verði lögð fyrir næsta fund.“ Síldaraflinn kominn í 1500 tonn í gær var verið að ianda 250 tonnum af síld úr Kap VE og voru þá komin á land í Eyjum um 1500 tonn. í Vinnslustöðinni var búið að taka á móti tæplcga 1100 tonnum. Öll síldin fór í flökun, ncnia búið er að salta í 400 tunnur. Gígja VE var á landleið með 100 tonn til ísfélagsins og er þá búið að taka á móti 500 til 600 tonnum þar. Mikil vinna er við vinnslu síl- darinnar hjá báðum fyrirtækjunum. Myndin er tekin í Vinnslustöðinni á laugardaginn. I-----------------------------------------------------------1 I----------------------------------------------------------------1 j Tap Herjólfs í ! Svona hugsa fyrra um Í börnin i j 244 millj. kr. j okkar -Sjá bls. 2. -Sjá bls. 4. I---------------------------------------------------------J L__________________________________________________________________I FJÖLSKYLDU- TRYGGING TRYGGINGA FASTEIGNA- MIÐSTÖÐIN HF. TRYGGING Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f. RÉTTINGAR 0G SPRAUTUN: Flötum 20 - Sími 11535 VIÐGERÐIR 0G SMURSTÖÐ: Græóisbraut 1 - sími 13235 FAX 13331 BRÚAR BILJÐ Vetraráætlun Herjólfs 1993-1994 Alla virka daga Frá Vestmannaeyjum: kl. 08:15 Frá Þorlákshöfn: Kl. 12:30 Sunnudaga: Frá Vestmannaeyjum: Kl. 14:00 Frá Þorlákshöfn: Kl. 18:00

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.