Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 14.10.1993, Page 4

Fréttir - Eyjafréttir - 14.10.1993, Page 4
Fimmtudagurmn 14* október 1993 Leikskólinn Kirkjugerði heimsóttur: Börnin &hugsanir þeirra Það dýrmætasta sem vió eigum eru bömin okkar. Hugsun bama er gjöró- lík okkar fullorðnu og til að skilja og geta átt samskipti við böm á þeirra forsendum, er nauðsynlegt fyrir okkur fullorðnu að reyna að sjá heiminn með augu bamanna. Þrátt fyrir (séð með augu fullorðins) hina stórfenglegu heimsmynd stendur bamið sjálft Tiun nær lífinu en við fullorðnu. Það sér lífið á mun ein- faldari hátt og allt hefur ákveóinn tilgang. Bamið trúir að heimurinn sé skapaður í þeim tilgangi að gagnast mannfólkinu, að lífið hafi tilgang, að mannleg hugsun hafi vald yfir tilver- unni. Fullorðið fólk hefur glatað mikið af því bamslega og einlæga sem myndi gera lífið mun ríkara. Allir sem eiga böm og vinna við upp- eldisstörf eru ábyrgir fyrir því hvemig reynsluheirr.ur bamanna þróast. Þess vegna eiga hinir full- orðnu að taka fullt tillit til bamanna og gefa þeim tækifæri til að þroskast og fullorðnast. Sálfræðingurinn Piaget er sá maður sem hefur haft mest áhrif í uppeldisfræðin síðustu árin. Hann spyr hvemig maðurinn fær þekkingu sína um þennan heim þar sem hann fæðist og lifir? Þessa spumingu hafði blaðamaður að leiðarljósi þegar leikskólinn Kirkjugerði var heimsóttur í vikunni til að ræða vió nokkra krakka um lífið og tilveruna, á aldrinum 4-5 ára. Fjórir krakkar vom teknir tali og fara svör þeirra hér á eftir. Hlynur - fjögurra ára: Hlynur Ólafsson er fjögurra ára, fæddur 26. mars 1989, sonur Ólafs Lárussonar og Emmu Sigurgeirs- dóttur. Hann var svolítið feiminn í byrjun því hann sagðist aldrci hafa talað við blaðamann áður. Heldur þú að blómin séu lifandi? Já, á sumrin en síðan breytast þau í jarða- ber. Hvað verður um þau á vetuma? Þau breytast í jarðaber, þess vegna týnast þau. En eru bílar og hjól lifandi? Nei, þau bara keyra. Pabbi á Opel og bróðir minn hjól. Úr hverju eru stjörnurnar búnar til? Þær em búnar til hjá Guði. En hvers vegna detta þær ekki niður úr skýjunum? Eg hef séð stjömuhrap. Skýin em á himninum, þess vegna detta þær ekki niður. Skýin hverfa á nóttunni og fara til Guðs. Hvenær koma jólin? Þau koma eftir marga daga. En veturinn? Veturinn kemur eftir jólin því þá á ég afmæli. Hvemig lítur jörðin út þegar fuglamir sem fljúga í loftinu horfa niður á hana? Fuglar bíta bara í brauð. Eg þekki einn fugl sem heitir Svanur. Hann er hvítur. Hefur þú verið litlabam? Nei. En mamma og pabbi? Nei. En amma og afi? Já. Af hverju? Af því þau eru stundum litlaböm. Hvað gera krakkar sem eru í skólanum? Læra eitthvað. Eg ætla að keyra bíl þegar ég er orðinn stór. Hefur þig dreymt? Eg dreymi stund- um steypubíla. Em draumar til í alvöm? Já. Þórgunnur - alveg að verða fimm ára: Þórgunnur Hartinannsdóttir er fædd 22. október 1988 og er því alveg að verða 5 ára eins og hún sagði. Hún er dóttur Hartmanns Asgríinssonar og Eddu Bjarkar Hauksdóttur. Þórgunnur var svolítið feimin við blaðamann en svaraði samviskusamlega öllum spurningunum. Þórgunnur sagði að blóm, bílar og hjól væru ekki lifandi og að nóttin væri lengri en dagurinn. Ekki hafði hún velt því fyrir sér úr hverju stjöm- umar væm eða hvers vegna þær dyttu ekki niður en sagði að ástæðan fyrir því að hún færi síðar í skóla væri til að læra sund og að skrifa. Þórgunnur var handviss um að hún hefði verið „litlabam“ eins og hún sagði og mamma og pabbi líka. Þá sagðist hún stundum dreyma á nóttunni og það sem gerðist í draumum væri í alvömnni. Elísa - fimm ára: Elísa Guðjónsdóttir er 5 ára, fædd 31. janúar 1988. Hún er dóttir Guðjóns RögnvaldSsonar og Ragnheiðar Einarsdóttur. Elísa er mjög opin stúlka og það stóð ekki á svörum frá hcnni. Eru blómin lifandi? Já, en bara ef maður vökvar þau því þau drekka vatnið. En eru bílar og hjól lifandi? Nei, þau myndu tala ef þau væm lifandi. Úr hverju eru stjömumar búnar til? Úr bláum lit. En hvers vegna detta þær ekki niður úr skýjunum? Því það er svo mikið rok þama uppi. Hvort heldur þú að sé lengri, aóttin eða dagurinn? Nóttin, af því ég sef svo lengi. Hvenær koma jólin? Þegar byrjar að snjóá. En hvenær kemur veturinn? Þegar það er alveg að koma snjór. Ef jörðin er kringlótt, hvers vegna dettur fólki þá bara ekki af henni? Jörðin er ekki kringlótt. Tröllkallar og tröllkonureiga heima undir jörðinni. Hvers vegna ferðu í skóla? Til að læra að lesa og læra stafi. Hefur þú einhvem tíma verið lítið bam? Já, en það er langt síðan. En mamma og pabbi? Já já. Manstu hvað þú varst að gera fyrir einu ári síðan? Já, ég var í barbí með Söndm frænku. Hefurþig dreymt? Já. Manstu hvað það var? Já, ég var að labba með Söndru og Herði pabba hennar og við fómm út með mömmu og pabba og öllum og mig dreymdi að ég væri á hjólaskautum. Er það í alvömnni sem gerist í draum- um? Nei. * Asgeir - alveg að verða fimm ára: Ásgeir Guðmundsson er alveg að verða 5 ára en hann á afmæli í desembcr. Hann er sonur Guð- nýjar Jensdóttur og Guðmundar Gíslasonar. Ásgeir var svolítið feiminn og var ekkert á því að gefa uppi hvað hann var að hugsa. Ásgeir var viss um að blóm væru ekki lifandi því þau væm föst í jörðinni. Á vetuma fara þau ofan í jörðina og þar sé komin skýringin á því hvers vegna þau sjást aðeins á sumrin. 'Hann sagði að bílar væm ekki lifandi því það væm ekki fætur á þeim og nóttin væri lengri en dagurinn því hún væri á kvöldin og nóttinni þegar það væri dimma. Ás- geir var ekki í vafa um að jörðin væri kringlótt og allir hefðu verið ung- böm, meira að segja afi og amma. Hins vegar hafði hann aldrei dreymt og hann mundi ekki hvað hann var að gera fyrir ári síðan. ÞOGU efni af auglýsingu sem birtist nýlega í Fréttum frá Sýslu- manni, sent bæjaryflrvöldnm bréf. Þar fara íbúarnir þess á leit að stórum ökutækjnm verði úthýst úr götunni og cigendum þeirra bent á svæðið við vatnstankinn eða dælu- stöðina við Lönguiá. Einníg vilja íbúamir að lóðin nr. 9 við Smáragötu verói lag- færð og gerð að leiksvæðt fyrir þau fjölmörgu böm sem við götuna búa. Bréfið bíður nú afgreiðslu bæjarráðs. Eyjamaður vikunnar - Gísli Magnússon íþróttakennari: Eyjamaður vikunnar er íþrótta- kcnnarinn, formaður Kennara- félags Vestmannaeyja, rútubíl- stjórinn, umboðsmaðurinn og leikurinn Gísti Magnússon. Hann hefur í nógu að snúast, er með stóra fjölskyldu og á kaR í félagsinálum og vinnu. Hann sýnir lescndum á sér hina hliðina. FuU nafn? Magnús Gísli Magnús- son. Fæðingardagur og ár? 5. sept. 1947. Fæðingarstaður? Keflavík. Fjölskylduhagir? Eiginkona, Lilja Garðarsdóttir. Víö eigum fjórar dætur, Thelmu Björk, Rakel, Andreu og Söndru. Að auki á ég þrjú böm frá æskuárunum, Vigfús, Sólveigu Bimu og Anítu. Ég á eitt afabam sem heitir Sandra Línd. Bifreið? Subaru Legasy og Mercedes Benz rúta., Menntun og starf? íþróttakennari, rútubílstjóri og umboðsmaður. Fyrri störf? Fór á- sjóinn á Guddunni í 1 ár 1964, var sendill í Bláfelli og Hnotunni hjá Kela og Þránni, síðar hjá Atla 5 SÍS» rak sauna-baðstofu og sjoppu 1975- 1975. Hef starfað mikið við knattspymu- og handknattleiks- þjálfun í Vestmannaeyjum, ísafirði og Færeyjum. Hef auk þess starfað í iöggunní og við leigubílaakstur. Búið. Hclsti galli? Smámunasamureigín- hagsmunaseggur. Helsti kostur? Reyni að klára það vefsem ég byrja á. Er talinn gulls- ígildi. Uppáhaldsmatur? Lambalæri a la Steini Steindó á grilli. Versti matur? Grásleppa, skata og soðínn fýll (havhestur á færeysku). Uppáhaldstóniist? Hamraborgin, sungin af Vitta Helga og Sigga í Húsavík. Uppáhaldsíþróttamaður? Lilja konan min ! 2. flokkí Þórs hér á árum áður. Hvaða stjórnmálamanni hefur þú roestar mætur á? Því miður finnst mér eiginlega vera sami r..undir þeím ðllum. Hvert er eftirlætissjónvarpsefViið þitt? Fréttir, enski- og ítalski boltinn. Hvaða sjónvarpsefni finnst þér leiðinlegast? Amerískar sápuóperur þar sem rjómatertum er kastað framan í fólk og allir grenja úr hlátri. Uppáhaidsleikari? Unnur Guðjóns og Ðustin Hofmann. Hvað gerir þú í frístundum þínuro? Er mjög heimakær. Hef gaman af að fara í golf (byrjaði í fyrra), lax- og silungaveíðí. Spánar- feröir með fjölskyldunni eru mest afslappandi, ef ég hef efni á þeim. Hvað mctur þú mest í farí annarra? Áreiðanleika, skipu- lagningu og sanngimi. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Óheióarleíki, yfir- gangurog frekja. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Guðbrandsdalur í Noregi. Þar var ég eitt ár í Lýðháskóla. Hvaða námscfni tíkaði þér verst í skóla? Algebra. Hvað myndir þú gera ef jþú yrðir bæjarstjóri í einn dag? Eg myndi láta malbika sundið sem liggur frá Bamaskólanum niður á Brekastig, svo ég, sjálfur bæjarstjórinn, þyrfti ekki að ausa bílinn minn út úr bíl- skúmum mínum á vetumar. Uppáhalds félag sem þú hefur starfað með? Knattspymufélagið Týr og Götu, ítróttarfelag í Fær- eyjum. Hvaða pcrsóna í sögunni hcillar þig mest? Fósturforcldrar mínir, þeirra saga er að vfsu hvergi skráð en minningin heillarmig mest. Hvað ertu hræddastur við? Að missa heilsuna þannig aó ég geti ekki séð fyrir fólkinu mínu.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.