Fréttir - Eyjafréttir - 14.10.1993, Side 13
í framhjáhlaupi
Föstudaginn 1. okt. fór frítt lið
manna frá taflfélaginu til Reykjavík-
ur að tefla í deildarkeppninni. í för-
inni voru Sigurjón Þorkelsson,
Hrafn Arnarsson, Ægir Ó. Hall-
grímsson, Ágúst Ö. Gíslason og
Þórarinn I. Olafsson. í Reykjavík
tóku á móti þeim Kári Sólmundar-
son og Stefán í>. Sigurjónsson.
Tefldi þetta lið fyrir T.V. í deildar-
keppinni.
I 3. deild eru nú 4 riðlar með 4 lið-
um hver. Tvö efstu liðin í hverjum
riðli verða í 3. deild og tvö neðstu
falla í 4. deild. Núna voru tefldar 3
umferðir í sameiginlegri deild
(undankeppni). Síðan skipt aftur í
riðla og tefld 1. umferð í úrslita-
keppni. í seinni hlutanum sem verð-
úr tefldur e.h. eftir áramót verða
tefldar 2 umferðir og úrslit um sæti,
þ.e. 1. við 1. um 2. og 2. sæti o.s.frv.
Árangur liðsins var mjög góður og
lenti það í 2. sæti í sínum riðli á eftir
Taflfélagi Reykjavíkur G sveit. Og
tefldi síðan við Taflfélagið Helli B í
seinni hluta keppninnar og vann
hann með 3V4 - 2V4 vinningi. Og eiga
okkar strákar nú góðan séns í að
komast nú uppí aðra deild, því allt
bendir ti! þess að þau lið sem eftir er
að tefla við, sem eru Taflfélag
Reykjavíkur F og Taflfélag
Reykjavíkur E, geta ekki farið bæði
uppí 2. deild því félag frá Taflfélagi
Reykjavíkur er fyrir og ekki mega
vera nema tvö félög frá sama félagi í
deildinni. En í hinum riðlinum, b-
riðli, sem var tefldur fyrir norðan, er
vitað að T.R. g, vann Keflavík a
með 4'A - l'h, en úrslit milli
U.M.S.E. b og Akureyri c eru ekki
kunn. Okkar strákar eiga því góða
möguleika á að tefla um sæti í 2.
deild að ári.
Hér koma úrslit úr fyrri hluta
keppninnar 1. umferð:
1. boið Hrafn-Þröstur H. Þráinsson . 1-0
2. borð Stefán-Jón Guðmundsson ... 1-0
3. borð Sigurjón-Ingólfur Hrólfsson . 1-0
4. borð Ægir-Alfreð Kristjánsson ... 1-0
5. borð Ágúst-Ágúst Malmquist .... .... 'hrVl
6. borð Þórarinn-Gunnar Scott 0-1
Taflfélag Vestmannaeyja 414
Taflfélag Akraness 114
2. umferð:
1. borð Hrafn-Magnús Gunnarsson .. .... 14-14
2. borð Stefán-Úlfhéðinn Sigurðsson . 1-0
3. borð Kári Sólm.-Ingim. Sigm. .. . 1-0
4. borð Sigurjón-Jóhann Oliversson . 1-0
5. borð Ægir-Hörður Erlingsson .... 1-0
6. borð Ágúst Ö. Gíslason 0-1
Taflfélag Vestmannaeyja 414
Taflfélag Selfosso og nágr 114
3. umferð:
1. borð Hrafn-Hörður Garðarsson .. 0-1
2. borð Stefán-Bjami Magnússon ... .... 14-14
3. borð Kári-Ágúst Ingimundarson .. 1-0
4. borð Sigurjón-Vigfús Ó. Vigfússon 0-1
5. borð Ægir-Rúnar Sigurðsson .... 0-1
6. borð Ágúst-Flóki Ingvarsson .... 0-1
Taflfélag Vestm. 1V5. Taflfél. Rvk. G sveit 414
Lokastaðan í þessura riðli því svona
1. T.R. g. sveit........................... 12 vinningar
2. T.V...........................lök; vinningar
3. Selfoss og nágrenni ........... 7Hvinningar
4. Akranes b sveit............................6 vinningar
1. umferð í seinni helmingnum:
1. borð Hrafn-Sólberg Sigurðsson ...
2. Stefán-Gunnar F. Rúnarsson ......
3. Kári-Jósep Húnförð
4. Sigurjón-Sæmundsson..............
5. Ægir-Grétar Áss Sigurðsson......
6. Þórainn-Óskar S. Magnússon.......
1. Taflfélag Vestmannaeyja....... 3!évinningar
2. Taflfélag Reykjavíkur f sveit .... 4 vinningar
3. Taflfélag Reykjavíkur e sveit .... 2 vinningar
4. Hellir b ......................IVi vinningar
Árangur einstakra manna var sem hér sýnir:
1. borð Hrafn Amarsson ........1V4 v af 4 - 37%
2. borð Stefán Þ. Sigurjóns. .. 316 v. af 4 - 87%
3. borð Kári Sólmundarson .... 3 v af 3 -100%
4. borð Sigurjón Þorkelsson ...... 214 v - 62%
5. borð Ægir Ó. Hallgrímsson .. 3 v af 4 - 75%
5. -6. borð Ágúst Ö. Gíslason ... V6 v af 3 -17%
6. borð Þórarinn I. Ólafsson .....0 v af 2 - 0%
að alltaf er hann tilbúinn að fara í
deildarkeppnina, þótt aðrir séu með
ýmsar afsakanir. Og hefur honum
oft áður gengið betur. Enda erum
við að hefja skákæfingar eftir sumar-
ið en hinir eru búnir að vera við
æfingar í langan tíma fyrir deildar-
keppnina. Eins og af þessu má sjá
erum við hér á skerinu ekkert lakari
en þeir á fastalandinu, sem geta
stundað allskonar skákviðburði sem
er okkur ómögulegt vegna sam-
gangna.
Nú er haustmótinu lokið og fór
eins og allt stefndi í að Sigurjón hélt
sínum hlut og fór taplaus í gegnum
mótið. Þó hann ætti tapaða skák
móti Stefáni og þurfti hann bara að
reka smiðshöggið á til að innbyrða
vinninginn, en hann varð þá sleginn
einni verstu skákblindu á öllum sín-
um ferli og tapaði skákinni. En
heppnin fylgir ávallt sigurvegaran-
um.
1. sæti Sigurjón Þorkelsson . með 10 v. af 10mögul.
2. sæti Ægir Ó. Hallgrímsson.... 616 v
3. sæti Þorvaldur Hermannsson ... 5 v
4. sæti Stefán Gíslason.........416 v
5. sæti Ágúst Ö. Gíslason......... 4 v
6. ssti Andri B. Ólafsson......... 0 v
Sigurjón Þorkelsson er því Haust-
skákmeistari 1993 og vel að sigrinum
kominn og fer taplaus í gegn. En
heyrst hefur að ekki verði þetta liðið
til lengdar og eru ýmsir farnir að
brýna kutana.
( kvöld fimmtudag byrjar nýtt mót
og eru allir hjartanlega velkomnir.
Verður það með sama sniði þ.e. 30
mín. á skák. Og tefldar líklegar 3
umferðir í kvöld.
Hér kemur svo að lokum ein skák
sem var tefld við Hellismenn. Ægir
stýrir Sv. og Grétar Á. Sigurðsson
stýrir Hv.
1. e4-c-6. 2. d4-d5. 3. Rc3-dxe4. 4.
Rxe4-Bf5. 5. Rg3-Bg6. 6. Rf3-Rd7.
7. Rh4-e6. 8. Rxg6-hxg6. 9. Bf4-
Rgf6. 10. Bd3-Bb4+ Il.c3-Rd5. 12.
Bd2-Bd6. 13. Re4-R7f6. 14. Bg5-
Dc7. 15. Rxd6+-Dxd6. 16. g3-0-0-0.
17. Da4-e5. 18. Dxa7-exd4. 19.0-0-
0-dxc3. 20. bxc3-Kc7. 21. Da5+-
Kb8. 22. Bxg6-b6. 23. Da6-Dc5. 24.
Bc2-Dxc3. 25. Hd3-Dxc2+. 26.
Kxc2-Rb4+. 27. Kb2-Rxa6. 28.
Hb3-Kb7. 29. Kal-Hd6. 30. Be3-
Rd5. 31. Hhbl-c5. 32. Hd3-Rab4.
33. Hd2-Ha8. 34. Hb3-Kc6. 35. a3-
Rxe3. 36. Hxd6+-Kxd6. 37. fxe3-
Hxa3 + . 38. Hxa3-Rc2+. 39. Kb2-
Rxa3. 40. Kxa3-Ke5.
Og hvítur gafst upp. Snaggaraleg
skák hjá Ægi.
LAMELLA PARKET
Gólflist fpá Finnlandi!
, f r -
f; * * ; . , : i:
LAMELLA
parketið fcest í
belstu bygginga-
vöruverslunum urn
land allt.
Vegna bagstæðra sarnninga í
innkaupurn er Latnella parketið
boðið á mjög góðu verði miðað við
gæði.
Lamella er vandað og endingargott parket
frá Finnlarxdi sern setur fallegan svip á
umhverfi þitt.
♦
LAMELLA*
- gólflist frá Finnlandi!
Leitiö ekki lanqt yfir skammt. Allar byqqinqavörur a einum sta
i
HÚSEV
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYJA
Garðavegi 15 - sfmi 11151
HÚSEY • Þjónustuaðlli fyrir þig, þar sem fagmennskan og þjónustan er í fyrirrumi
HÚSEV
krt
Innflutningsaöili Lamella á Islandi: Krókháls hf. Sími 91-686550
En það skal sagt honum ti hróss
Félagsmenn
Verslunarmannafélags Vestmannaeyja
og Verkakvennafélagsins Snótar
Þriðjudaginn 26. október verður námskeiðið „Fjármál heimilanna"
haldið í annað sinn.
Námskeiðið verður haldið í Snótarsalnum Heiðarvegi 7 og hefst kl.
19:30. Námskeiðið er 3 klst. að lengd. Þátttökugjaldið er 500 krónur
fyrir fullgilda félagsmenn en 1000 krónur fyrir aðra.
A námskeiðinu verður farið yfir:
1. Gerð heimilisbókhalds
2. Sparnaðarleiðir
3. Kostnað vegna lántöku
4. Gerð fjárhagsáætlunar
5. Útreikning á greiðslugetu
6. Markmiðasetning í fjármálum
Leiðbeinandi verður Sólrún Halldórsdóttir frá Neytendasamtökunum.
Hún mun einnig verða með einkaráðgjöf fyrir þá sem vilja.
Tímapantanir eru hjá henni í síma 91-625000 milli kl. 13:00 og 16:00
virka daga.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á námskeiðið í síma 13091 fyrir hádegi
og 12770 eftir hádegi.
Stjórnir félaganna
MINNINGARTÓNLEIKAR
í tilefni aidarafmælis Páls ísólfssonar 1893-1974
veröa í Safnaðarheimilinu
miðvikudaginn 20. október kl. 20:30.
Vegna árs aldraðra
býður sóknarnefnd öllum öldruðum bæjarbúum.
Aðgangseyrir fyrir aðra er kr. 1.000,-
FLYTJENDUR:
Ingibjörg Marteinsdóttir
sópran
Þorgeir I. Andrésson
tenór
Lára S. Rafnsdóttir
píanó
Á efnisskránni eru 22 sönglög auk þriggja píanóverka
dr. Páls ísólfssonar:
SÓKNARNEFND LANDAKIRKJU