Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 04.11.1993, Blaðsíða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 04.11.1993, Blaðsíða 12
Árni Johnsen með nýjan geisladisk Vinir og kunningjar Eyjajarlinn gerir það sem hann langar til Skátar á fjölmiðlanámskeiði Dróttskátasvcitin í Eyjum, DS Vestmenn, hafa að undanförnu verið á fjölmiðlanámskeiði. í Dróttskátunum eru allir sem hafa náð 15 ára aldri og byggist starfið mikið á alls kyns námskeiðum og var fjölmiðlanámskeiðið einn iiðurinn í því. A námskeiðinu, sem var tvískipt, fengu krakkarnir að kynnast heimi fjölmiðlanna og hlutverki þeirra í nútíma upplýsingaþjóðfélagi. Einnig var farið með þau í undirstöðuatriði í blaðaskrifum, umbroti blaða og hvernig hægt er að teikna upp blað og skila því nánast tilbúnu í prentsmiðju til prentunar. Dróttskátasveitin gefur árlega út jólablað og á námskeiðið án efa eftir að nýtast þeim fyrir þá útgáfú. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Þorsteinn Gunnarsson, fjölmiðlafræðingur. Arni Johnsen, alþingismaður með meiru, hefur nýverið sent frá sér geisladisk með 17 lögum í.’Arni er einn af þeim mönnum, sefn fólk annaðhvort er með eða móti, enda kemur hann víða við og sjaldan án þess að eftir sé tekið. Diskinn sem Árni nefnir „Vinir og kunningjar" er gefinn út af Milljóna- félaginu Einidrang og rennur hagn- aður af útgáfunni til Slysavarnaskóla sjómanna. Það verður ekki sagt að söngur Árna jafnist á við Kristján Jóhanns- son eða aðra ámóta stórsöngvara, en hann er ágætlega áheyrilegur og lög- in í bland ljúf og skemmtileg, sum ný, önnur gömul. Árni hefur fengið til liðs við sig kunna hljóðfæra- leikara, svo sem Sigurð Rúnar Jónsson, Gretti Björnsson, Jón Sig- urðsson og Vilhjálm Guðjónsson. Og í einu lagi, Síðasti dans, syngur Jóhanna Linnet með Eyjajarlinum. Vísur um heiðina er eftir Indriða G. Þorsteinsson og fjallar um hina náttúruríku Húnavatnssýslu, sam- býli manns og lands og sauðkindar- innar. Stríðið er úr Sjálfstæðu fólki Halldórs Kiljans. Bjartur í Sumar- húsum sendi Gvend son sinn með þau til Ástu Sóllilju, fósturdóttur sinnar, þegar hann frétti af henni í slagtogi með atómskáldum. Lagið er eftir Árna. Síðasti dans var Þjóðhá- tíðarlag Vestmannaeyja árið 1987. Lagið er eftir Kristinn Svavarsson og ljóðið eftir Árna. Það segir hann samið í Florida og nafnið tilkomið, eftir að flugfreyja hafi hlustað á það og fundist það sVo tilfinningaríkt, að það væri eins og síðasti dans. Þykkvabæjarrokk er greinilega að slá í gegn á útvarpstöðvunum. Text- inn er þýðing á lagi með Greedence Clearwater Revival, þar er fjallað um bómullarakra, en Árni snéri því uppí kartöflugarða. í Vestmanna- eyjum dunar dans er ort eftir Ellið- aeyjarball í Básum, þar-koma við sögu m.a. Gaui Hjöll, Tóti í Geisla, Anna María Kristjánsdóttir og hljómsveitin Eymenn. Lagið er Það eru ekki margar konur í Vor- inu, aðeins 22. En hugurinn er mikill hjá þeim, við að undirbúa basar. Þær hafa fund einu sinni f mánuði i Akóges, og mæta þá allar með prjóna. Þeirra markmið hefur alla tíð verið að styðja við bakið á þroskaheftum og þannig verður það áfram. sænskt, eftir Evert Taube. Sunnan- vindur er einnig sænskt lag en Ijóðið eftir Árna. Sævar í Gröf er gamal- kunnur slagari eftir Ása heitinn í Bæ, sem pus Bakkusar fór verst með. Draumanótt var eitt sinn hug- mynd að Þjóðhátíðarlagi eftir Krist- inn Svavarsson og Árna, í líru- kassastíl. Vertu sæl mey er einn af þekktustu sjómannalögum landsins. Hefðbundnum texta breytti höfu- ndurinn, Ási í Bæ, eitt sinn þegar hann var á leið til Bretlands í sig- lingatúr. Heimaslóð Wosa, Alfreðs W. Þórðarsonar, er eitt af hans bestu lögum, en hann var hljómlist- armaður mikill á árum áður. Fjólan er einnig eftir Wosa, vögguljóð eins og þau ejga að vera. Ó fylgdu mér er eftir Ása í Bæ. Þar er heimþrá farin að toga í gamla manninn sem þá var staddur á Grænlandi. Lagið varð síðar Þjóðhátíðarlag. Undir blá- himni er hawaiskt lag en textinn eftir Magnús nokkurn Gíslason, kenndan Við Vaglir. Þið spyrjið, lagið eftir Árna en ljóðið eftir Jónas Guðlaugs- son. Réttarvatn, eitt af fallegustu Ijóðum Jónasar Hallgrímssonar. Lagið eftir Schubert. Oft er vegur- inn vænn heim að bænum eru vísur Gests Auðunssonar, gamals Vest- mannaeyings, sem nú býr á Suður- nesjum. Lagið er bandarískt. Text- inn er um fólkið og lífið í Eyjum og margar kunnar fyrritíðar persónar koma við sögu. Syngjum öll er hið kunna lag Irving Berlin, Alexanders Rag Time band, dixiland lag með texta eftir Árna. Þar með eru þau öll upptalin, lög- in 17 á disknum. Þeir sem hugsan- lega væru að spá í að eignast diskinn, ættu ekki að láta blaða- dóma eða aðra dóma villa sér sýn, jafnumdeildur maður og Árni fær sjaldan maklega gagnrýni. Hlustið bara sjálf. Nokkrir tímar lausir í skalltennis og skvassi í íþróttasal. íþróttafólagið Þór Það er þegar búið að stilla út í glugga að Kirkjuvegi 19 og ætla þær að vera þar með basar kl. 15:00 á sunnudaginn 7. nóvember. Það verða ekki bara prjónavörur því þær eru allar að búa sig undir bakstur. Sem sagt, líka kökubasar á sama stað á sama tíma. Miðvikudaginn 27. október s.I. hófst fyrsta umferð Útvegsbanka- mótsins ‘94. Tefldar voru 3 skákir einni var frestað milli Sigurjóns og Nabeeh Naimi sem er frá Iran og er hér að vinna. Ágúst Ö. Gísla- son tefldi við Sigmund Andrésson og tókst að leggja hann að velli eft- ir miklar sviptingar. Ægir Ó. Hall- grímsson lagði Jóhann Benónýs- son og Stefán Gíslason lagði Þor- vald Hermannsson eftir að Þor- valdur varð að gefa drottninguna í 8. leik fyrri 2 menn og peð. 2. umferð var svo tefld á sunnudag- inn 31. okt. Þá tefldi Sigurjón við Ágúst Örn og vann. Jóhann við Sigmund og tókst að leggja hann að velli. Þetta var 1. vinningskákin hans í mótinu og fylgir hún hér á eftir. Og Ægir skellti Stefáni með „bolabragði"? Staðan er nú eftir 2 umferðir sú að Sigurjón er með 1 vinning og eina frestaða. Ágúst Örn með 1 v., Jóhann Ben með 1 v., Stefán 1 v., Ægir með 2 v., Sig- mundur með 0 v., Nabeeh með 0 v. og eina frestaða. Greinilegt er að það verður hart barist á mótinu og er ekki að vita hvernig fer að lokum. Teflt er um bikar sem gamli Útvegsbankinn gaf árið 1989 og er þetta 6 árið sem teflt er um hann. Þeir sem hafa unnið eru: ‘89 Sigurjón Þorkelsson ‘90 Halldór Gunnarsson 91 Sigurjón Þorkelsson ‘92 Ægir Ó. Hallgrímsson ‘93 Páll Árnason. Tekið skal fram, að Sigurjón Þorkelsson tefldi ekki i mótunum ‘90, ‘91 og ‘93. Bent skal á að nú er teflt á nýjum tima, sunnudögum kl. 13:00 og miðvikudögum kl. 20:00 í Félagsheimilinu (Bíóinu niðri). Næstkomandi sunnudag, 7. nóv. verður nóvemberhraðskák- mótið í Félagsheimilinu og eru tímatakmörk 7 mín. á skák. Og eru allir sem kunna mannganginn hvattir til að mæta og spreyta sig. Með skákkveðju, Stebbi Gilla. Ég birti hér skák þeirra Sig- mundar Andréssonar sem var með hvítt og Jóhanns Benediktssonar sem varð með svart. 1. d2-d4. d7-d5. 2. c2-c4. d5xc4. 3. bl-c3. Þetta er móttekið drott- ningarbragð. g8-f6. 4. e2-e3. c8-f6. 5. flxc4-e7-e6. 6. gl-f3. c7-c5. Lykilleikur í þessari stöðu. 7. c4- b5+. b8-d7. 8. el-gl. a7-a6. 9. b5- e2. f8-e7. 10. a2-a4. e8-g8. 11. f3- h4. d8-c7. 12. h4xf5. e6xf5. 13.f2- f4. c5xd4. 14. dlxd4. STÖÖUMVtVO ÉFTin. ih.Leik. hv. Betra er að drepa með peðinu á e3, því drottningin. er í stöðugri hættu á miðborðinu. T.d. -Bc5!?. f8-d8. 15. d4-d3. g7-g6. 16. e2-f3. d7-e5. Þarna kemur berlega í ljós hve drottningin er illa sett. 17. d3- e2. e5xf3+. 18. e2xf3. d8-d3. 19. f3-e2. a8-d8. 20. fl-dl. d3xdl + . 21. c3xdl. f6-e4. Sv. er greinilega kominn með betri stöðu út á drottningarflanið. 22. dl-f2. c7-b6. 23. Í2xe4-f5xe4. Þarna losnaði sv. við tvípeð og enn þrengist staða hv. 24. e2-c2. b6-b4. Hótar máti á el. 25. gl-f2. e7-f6. 26. al-a3. b4- d6. 27. b2-b3. d6-dl. 28. a3-a2. dl- hl. 29. f2-g3. hl-el + . 30. c2-f2. elxcl. Þar féll biskupinn. 31. a2- c2. cl-dl. c2-c7. h7-h5. 33. h2-h4. dl-g4+. 34. g3-h2. f6xh4. 35. g2- g3. h4-f6. 36. c7xb7. f6-c3. 37. f2- c2. Hér leikur hv. drottninguna af sér og tjaldið fellur. d8-d2+. Og hv. gafst upp. Já drottningarflan borgar sig sjaldnast. Þetta er frum- raun nýs félaga í skákfélaginu og gott á móti gömlum bragðaref eins og Sigmundi Andréssyni. ____Klúbburinn Vorið_ 1 Félagskonur í basarhugleiðingum

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.