Skessuhorn - 29.08.2007, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST
Það er alltaf matsatriði, eðlilega,
hvað er frétt og hvað er ekki frétt.
Það er líka matsatriði hversu
„merkilegar“ fréttir teljast en á milli
frétta ríkir sem kunnugt er gríðarleg
stéttaskipting. Stórfréttirnar eru að
sjálfsögðu hæstar á stalli og aðrar
raða sér þar niður af. Svokallað
slúður nýtur sjálfsagt hvað minnstrar
virðingar og ekkert óeðlilegt við það
en það sem fer nokkuð í taugarnar á
mér sem fréttamanni er að nota orðið
„gúrkufréttir“ í niðrandi merkingu
um fréttir sem ekki fjalla um morð,
misnotkun, náttúruhamfarir eða
pólitík.
Svokölluð gúrkutíð er ekki
endilega árstíð né er hún
árstíðabundin. Þó er það algengast
að tengja hana við júlímánuð og
ágúst jafnvel einnig þegar allir
eru í sumarfríi. Þá er Alþingi
ekki starfandi, borgar, bæjar og
sveitarstjórnir lítt virkar og allir
málsmetandi menn í sumarfríum
í útlöndum. Það er því ekkert að
gerast og þó það gerðist eitthvað þá
er ekki nokkur leið að ná í nokkurn
mann til að tala um það.
Það hefur skapast sú hefð að
líta á þetta sem ófremdarástand og
blaða og fréttamönnum vorkennt
að þurfa að glíma við þessa ótíð sem
gúrkutíðin á að vera. Þeir standa
frammi fyrir því vonlausa verkefni
að fylla blaðsíður og fréttatíma
af engum fréttum. Það ráð sem
þeir hafa sér þó til bjargar er að
gera fréttir um venjulegt fólk eða
fyrirbæri. Gjarnan jákvæðar og
skemmtilegar fréttir og stundum
eru þær ekki einu sinni um venjulegt
fólk heldur óvenjulegt eða óvenjuleg
fyrirbæri.
Oft er gert grín að fréttaflutningi
sem þessum og sem fyrr segir settur
á hann „gúrkustimpillinn.“ Það er
hinsvegar ómaklegt að mínu mati því
það er akkúrat gúrkutíðin sem gerir
mun meiri kröfur til fréttamanna.
Þá þurfa þeir að hugsa sjálfstætt og
treysta á eigin fréttanef og jafnvel
hugmyndaflug í stað þess að bíða
þolinmóðir eftir því að einhver
stjórnmálamaðurinn segi eitthvað af
viti, eða kannski öllu heldur ekki.
Það merkilega er líka að þrátt
fyrir að þessar fréttir sem enginn
er drepinn í eru þær fréttir sem
oftast vekja mestu og jákvæðustu
viðbrögðin hjá þeim sem lesa, horfa
eða hlusta. Þetta vita blaðamenn
héraðsfréttablaða öðrum betur því
þeir þurfa oft að fást við „fréttaleysi“
og gera staðbundnar fréttir um það
sem þykir kannski ekki merkilegt
hjá stærri fjölmiðlum sem gera út
á landið og miðin. Fyrir lesandann,
Vestlendinginn, Sunnlendinginn,
Austfirðinginn, Norðlendinginn
eða Vestfirðinginn er frétt í hans
héraðsfréttablaði um það sem er
að gerast í hans
heimahéraði mun merkilegri en
eitthvað sem er að gerast úti í hinum
stóra heimi.
Mergurinn málsins er sá að
þrátt fyrir alla fordóma gagnvart
gúrkutíðinni þá virðist fólk hafa
áhuga á gúrkum og er það vel.
Ég verð reyndar að viðurkenna að
þessi pistill átti að fjalla um allt annað
og „merkilegra“ mál, hápólitískt og
grafalvarlegt. Ég ákvað hinsvegar að
láta alvöruna víkja fyrir „gúrkunni“
að þessu sinni.
Gísli Einarsson,
gúrkufréttamaður.
Pistill Gísla
Gúrkutíð
Mennta skóli Borg ar fjarð ar sett ur í fyrsta sinn
Mennta skóli Borg ar fjarð ar var
sett ur í fyrsta skipti mið viku dag inn
22. á gúst í Skalla gríms garði í Borg
ar nesi að við stöddu fjöl menni. At
höfn in hófst með klass ísk um gít ar
leik Rún ars Þór is son ar en hann lék
einnig áður en Ár sæll Guð munds
son flutti setn ing ar ræðu sína. At
höfn inni var stjórn að af Lilju S
Ó lafs dótt ur að stoð ar skóla meist ara
en auk henn ar tóku til máls Björn
Bjarki Þor steins son for seti sveita
stjórn ar Borg ar byggð ar, Torfi Jó
hann es son for mað ur stjórn ar skól
ans og Gísli Kjart ans son spari sjóðs
stjóri Spari sjóðs Mýra sýslu. Við
þetta tæki færi veitti Gísli Skóla
fé lagi Mennta skóla Borg ar fjarð
ar gjöf uppá eina millj ón króna til
að styðja frek ar við bak ið á starf
semi skól ans. Að því loknu flutti
Ár sæll Guð munds son skóla meist
ari setn ing ar ræðu og setti skól ann
form lega í fyrsta skipti. Þor gerð ur
Katrín Gunn ars dótt ir mennta mála
ráð herra sendi kveðj ur sín ar á sam
kom una, en hún komst ekki eins og
til stóð þar sem hún var veð ur teppt
á Höfn í Horna firði.
Samn ing ur um
upp lýs inga tækni
Tón list og ilm andi Skalla gríms
garð ur inn settu skemmti leg an brag
á setn ing una og varð fólki á orði að
það væri gott merki að sól in hafi
gægst í gegn um ský in rétt á með an
at höfn inni stóð. Stemn ing in í garð
in um var afar já kvæð, flutt ar voru
skemmti leg ar og bjart sýn ar ræð
ur, fólk hló inni lega og var allt hið
á nægð asta með at höfn ina. Setn ing
in var kær kom in breyt ing frá hin um
venju bundnu ryk föllnu og stofn
ana kenndu skóla setn ing um inn an
dyra í loft laus um hús um. Að lok
inni setn ingu var geng ið að Safna
húsi Borg ar fjarð ar þar sem skól inn
verð ur til húsa fram að ára mót um
á með an lok ið er við skóla bygg ing
una. Þar var boð ið uppá kaffi veit
ing ar, hægt var að kynna sér starf
semi skól ans og end an legt út lit
skóla bygg ing ar inn ar nýju auk þess
sem fólki var frjálst að flytja ham
ingju ósk ir eða ræð ur. Marg ir nýttu
sér það, og þá sér í lagi skóla stjór ar
ann arra skóla á svæð inu.
Við þetta til efni var einnig und ir
rit að ur samn ing ur um sam starf við
að þróa notk un upp lýs inga tækni
í skóla starfi. Samn ing ur inn var
und ir rit að ur af Gísla Kjart ans syni
spari sjóðs stjóra, Stein grími Árna
syni hjá Apple IMC á Ís landi og af
Ár sæli skóla meist ara.
Sam hrist ing ur
Á huga verð nýj ung hjá MB var að
strax eft ir skóla setn ingu fóru flest
ir starfs menn og nem end ur skól
ans í ó vissu ferð sem tókst afar vel,
að sögn Ár sæls. Far ið var til Steins
staða í Skaga firði, þar sem snædd ur
var há deg is verð ur en svo var far ið
í flúða sigl ingu með Æv in týra ferð
um. Að því loknu ylj uðu ó vissu far ar
sér í heit um potti að Steins stöð um.
Svo grill uðu nem end ur og kenn
ar ar kvöld verð sam an og eft ir það
tók Guð mund ur Ingi Þor valds son,
leik ari og tón list ar mað ur völd in og
leiddi hóp in gegn um ýms ar þraut
ir og hópefli.
Á mánu dag mættu nem end ur
síð an klukk an 9 og fengu af hent
ar far tölv ur auk þess sem kennd var
notk un þeirra. Kennsla hófst svo
að full um krafti sam kvæmt stunda
skrá á þriðju dag inn, 28. á gúst.
hög
Ár sæll Guð munds son flyt ur setn ing ar ræð una.
Ár sæll tek ur við gjöf Spari sjóðs Mýra sýslu
úr hendi Gísla Kjart ans son ar spari sjóðs-
stjóra.
Torfi Jó hann es son for mað ur stjórn ar skól-
ans flutti skemmti lega ræðu.
Úr ó vissu ferð skól ans. Ljósm.: Þor gerð ur Gunn ars dótt ir. Skóla hús ið er nú að mestu risn ir en þar hefst kennsla ekki fyrr en eft ir ára mót. Ljósm. mm