Skessuhorn - 30.01.2008, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS - www.skessuhorn.is 5. tbl. 11. árg. 30. janúar 2008 - kr. 400 í lausasölu
Sparisjóðurinn býður nú viðskiptavinum sínum upp á SP12, hávaxta sparnaðarleið í
Heimabankanum, sem felur í sér mánaðarlega útgreiðslu vaxta. Reikningurinn er óverðtryggður
og óbundinn og fara vextir eftir innstæðu hans. Fjárhæðin er ávallt laus til útborgunar og
millifærsla í Heimabankanum er gjaldfrjáls. SP12 er frábær kostur fyrir þá sem
vilja sjálfir halda utan um sinn sparnað.Fí
t
o
n
/
S
Í
A
Hæsta einkunn í ánægjuvog fjármálafyrirtækja
DÚX
Nú greiðum við vexti mánaðarlega
SPARISJÓÐURINN
Mýrasýsla | Akranes
SPM_SPA_skessuhorn_255x70.ai 1/15/08 11:29:51 AM
Ný bensínstöð
Ókeypis dælulykill í síma: 591 3100
Borgarnes
Hin raunverulegu vetrarveður, eins og sumir hafa gleymt hvernig geta orðið, minna nú á sig. Meðfylgjandi mynd tók Björn A
Einarsson í Búðardal og sýnir hún vetrarríkið þar. Smáfuglarnir sveima yfir og bíða þess að einhver hugsi hlýtt til þeirra.
Atvinnu- og markaðsnefnd
Borgarbyggðar beindi þeim
tilmælum til byggðaráðs og
sveitarstjórnar sveitarfélagsins á
síðasta fundi sínum að beita sér af
fullum þunga í því skyni að hraða
uppbyggingu Sundabrautar og
þrýsta jafnframt á um tvöföldun
Vesturlandsvegar. Nefndin
telur að slíkar samgöngubætur
skipti verulegu máli fyrir
áframhaldandi uppbyggingu
sveitarfélagsins. Byggðaráð
samþykkti svohljóðandi bókun:
„Byggðaráð Borgarbyggðar
hvetur samgönguráðherra til að
beita sér fyrir bættum samgöngum
milli Borgarness og Reykjavíkur.
Lagning Sundabrautar og
úrbætur á Vesturlandsvegi eru
framkvæmdir sem skilyrðislaust
þarf að ráðast í.“ Stjórn
Faxaflóahafna hefur nýlega lagt
fram bókun um sama málefni.
Páll S. Brynjarsson
sveitarstjóri segir í samtali
við Skessuhorn að það skipti
máli að aðilar sem þarna eigi
sameiginlega hagsmuni stilli
saman strengi sína. „Þarna á ég
einkum við Reykjavíkurborg og
sveitarfélögin hér á Vesturlandi,
ekki síst Borgarbyggð. Ég held að
það sé kominn fullur skilningur
á því að það sem skipti máli er
að vera samtaka í því að hvetja
til þess að ráðist verði í þessar
nauðsynlegu framkvæmdir sem
allra fyrst, því fyrr því betra,“
sagði Páll.
bgk
Meirihluti sölustaða í
Borgarbyggð kolféll á prófi
sem vinnuhópur um forvarnir
og forvarnarfulltrúi
Borgarbyggðar lagði
fyrir þá. Í lok síðasta árs
stóðu þessir aðilar fyrir
könnun á kaupum og
sölu á áfengi og tóbaki
til barna og unglinga í
sveitarfélaginu. Niðurstöðurnar
voru sláandi. Í ljós kom að
mikill meirihluti sölustaða
virðir ekki lög um sölu tóbaks
og áfengis á veitingastöðum
og í verslunum. Þannig gátu
15 ára börn keypt tóbak á sjö
sölustöðum af níu. Ungmenni
á aldrinum 16-19 ára gátu keypt
áfengi á sex sölustöðum af níu.
Þetta eru mun verri niðurstöður
en fengust úr sambærilegum
könnunum árin 2000
og 2003. „Kannanir
almennt sýna að aukið
aðgengi unglinga
að tóbaki og áfengi
eykur neysluna. Því
er mjög mikilvægt að
verslunar- og veitingastjórar
fylgi lögum og reglum um sölu á
þessum efnum,“ segir Hanna S.
Kjartansdóttir forvarnarfulltrúi
í Borgarbyggð í samtali við
Skessuhorn.
mm
Sjá nánar á bls. 10.
Brautryðjandi
í sorphirðu
Í Stykkishólmi
hefur á undan-
förnum árum
verið unnið mark-
visst að um hverfis -
málum innan
bæjar félagsins. Í
nóvem ber var enn
eitt skref stigið
í átt til framfara
með undirritun
samnings á milli Stykkis-
hólmsbæjar og Íslenska Gáma-
félagsins um heildarlausn á
sorpeyðingarmálum. Stykkis-
hólmur verður þar með fyrsta
sveitarfélagið á Íslandi til að
flokka allt sorp frá íbúum
bæjarfélagsins auk þess að fara
af stað með miðlæga moltugerð.
Hvert heimili hefur nú þrjár
tunnur til afnota í stað einnar
áður. Frá og með 1. janúar
2009 skal lífrænn heimilis- og
rekstrarúrgangur, sem berst til
urðunarstaða, hafa minnkað
niður í 75% og niður í 35% árið
2020. Með þessum samningi
hefur Stykkishólmsbær
í samvinnu við Íslenska
Gámafélagið tekið
forystu í endurvinnslu á
lífrænu sorpi og pappír,
þar sem allir íbúarnir eru
þátttakendur í að gera
bæinn umhverfisvænni.
Með því að flokka heimilis-
ruslið niður í þrjá flokka;
almennt sorp, lífrænt sorp
og endurvinnanlegt sorp
er hægt að minnka það
magn sem fer til urðunar
um allt að 80%.
íhs
Sjá nánar á bls. 4.
Geta keypt vín
og tóbak
Ekki er ofsögum sagt að
illa horfi í matvælaiðnaði
sem í áratugi hefur staðið
traustum fótum á sunnanverðu
Vesturlandi. Í Skessuhorni í dag
er bæði greint frá þeirri ákvörðun
HB Granda að halda sig við fyrri
ákvörðun um uppsagnir tuga
landvinnslufólks á Akranesi
frá næstu mánaðamótum. Þó
stendur til að endurráða um
20 starfsmenn fyrirtækisins
á Akranesi. Hér er um mikla
blóðtöku að ræða fyrir atvinnulíf
á Akranesi, eins og nærri má
geta, því ekki eru nema fjögur
ár frá því fyrirtækið hvarf úr
eignaraðild heimafólks, sem
veitti um 300 manns atvinnu.
Þar með má segja að ríflega
aldar sögu útgerðar sé við það að
ljúka í bæjarfélaginu
Á öðrum stað í blaðinu er
greint frá því að Borgarnes
kjötvörur ehf. sem fram til
sl. gamlársdags var í eigu
heimamanna í Borgarfirði,
var selt Sundagörðum ehf. í
Reykjavík. Nú hefur fyrirtækið
sótt um heimild til að ganga til
nauðasamninga og því eru tugir
starfa við kjötvinnslu í Borgarnesi
í mikilli óvissu. Þegar hefur 9
manns verið sagt upp. Líkt og
fiskveiðar og vinnsla á Akranesi
hefur slátrun og kjötvinnsla
verið burðarþáttur í atvinnulífi
Borgfirðinga í áratugi.
Þessi tvö dæmi sanna svo
ekki verður um deilt hversu
gríðarlega mikilvægt það er, sé
ekki hjá því komist, að fyrirtæki
haldist í eigu heimaaðila og
séu ekki seld aðilum sem
hvorki hafa rætur né taugar til
viðkomandi svæðis. Um þetta
eru margir aðilar á einu máli
sem blaðamenn Skessuhorns
hafa rætt við. Færa má fyrir því
sterk rök ef horft er til þessara
tveggja fyrirtækja; HB Granda
og Borgarnes kjötvara. Um
sama leyti og HB og Co hvarf úr
eigu heimamanna hófst hnignun
starfseminnar á Akranesi. Sama
dag og Borgarnes kjötvörur
hurfu úr eigu Borgfirðinga,
var tekin ákvörðun um
uppsagnir starfsfólks og nú
er beðið heimildar til að leita
nauðasamninga. Verðmæti
sem felast í vörumerkjum,
uppskriftum og þekkingu
starfsfólks í fyrirtækinu eru
í fullkomnum voða, sem og
fjármunir sem birgjar, þar á
meðal bændur eiga inni hjá
fyrirtækinu. Sjá nánar fréttir á
bls. 6 og 14.
mm
Blikur á lofti í
matvælaiðnaði
Þrýst verði á
Sundabraut
Nú hafa tveir innflytjendur
áburðar gefið út verð fyrir
tilbúinn áburð. Fyrirfram var
búist við miklum hækkunum,
samhliða aukinni eftirspurn
á heimsmarkaði. Sláturfélag
Suðurlands, sem selur áburð fyrir
Yara, og Áburðarverksmiðjan
riðu á vaðið og birtu sín verð
í vikunni. Þessi tvö fyrirtæki
selja mest af áburði í landinu.
Enn hafa fyrirtækin Betra land
og Skeljungur ekki birt sitt
áburðarverð. Með því að bera
saman verð á milli ára sést að
hækkunin er á bilinu 36-80%.
Athygli vekur að áburðartegundin
N27 (Magni) er upp á krónutölu
á sama verði hjá bæði Yara og
Áburðarverksmiðjunni, en
það er eina áburðartegundin
sem er samanburðarhæf milli
fyrirtækjanna tveggja. Tonnið af
Magna kostar nú í stórsekkjum
42.778 en kostaði í júní í fyrra
31.517, eða um 36% hækkun.
Bæði Yara og Áburðar-
verksmiðjan bjóða afslætti ef
pantað er fyrir ákveðinn tíma.
bgk
Gríðarleg
áburðarhækkun