Skessuhorn


Skessuhorn - 09.02.2011, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 09.02.2011, Blaðsíða 11
11MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR Laust er til umsóknar embætti skólameistara við Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Í skólanum eru í boði fjórar námsleiðir almenn braut (framhaldsskólabraut), tvær bóknámsbrautir og starfsbraut. Starfssvið Skólameistari veitir framhaldsskólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt og hefur frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans. Menntunar- og hæfniskröfur Skólameistari skal uppfylla skilyrði laga um hæfi, nr. 87/2008. Leitað er eftir einstaklingi með stjórnunarreynslu, leiðtoga- og samskiptahæfni, reynslu af stefnumótunarvinnu og hæfileika til nýsköpunar. Ný lög um framhaldsskóla nr. 92/2008 fela framhaldsskólum aukna ábyrgð á skilgreiningu námsbrauta, þróun námsframboðs á mörkum skólastiga og fræðsluskyldu til 18 ára aldurs. Skólameistari gegnir því mikilvægu hlutverki í mótun skólastarfs. Ráðning og kjör Stjórn Menntaskóla Borgarfjarðar ræður skólameistara. Skólameistari þarf að geta hafið störf í síðasta lagi 1. ágúst 2011 en æskilegt er að viðkomandi geti komið að undirbúningi skólastarfs fyrir skólaárið 2011 - 2012. Laun skólameistara eru samningsatriði. Skólameistari skal búa í Borgarbyggð. Umsóknir Umsóknir með upplýsingum um starfsheiti ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Menntaskóla Borgarfjarðar, Borgarbraut 54, 310 Borgarnes, fyrir kl. 16:00, mánudaginn 7. mars 2011. Nánari upplýsingar um starfið fást á skrifstofu Menntaskóla Borgarfjarðar í síma 4337700. Skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar Þjónustuskilti í Hvalfjarðarsveit Í undirbúningi er nú gerð þjónustuskilta við allar innkeyrsluleiðir í sveitarfélagið. Kort verður af svæðinu og þar merktar helstu akstursleiðir, auk merkra staða vegna sögu eða náttúrufars. Öllum þeim sem stunda þjónustu eða aðra starfsemi sem þeir vilja vekja athygli ferðafólks á er boðin staðarmerking á kortinu, auk skráningar á starfseminni í nokkrum orðum. Skráningin kostar aðeins 10.000 krónur. Þátttöku má tilkynna á johanna@hlesey.is. Allar upplýsingar um athyglisverða staði sem merkja beri inn á kortið eru mjög vel þegnar og má einnig koma þeim til skila á sama netfang. Menningarmálanefnd Hvalfjarðarsveitar. Lokið er vinnu við álagningu fasteignagjalda í Borgarbyggð 2011 og verða álagningarseðlar sendir gjaldendum á næstu dögum. Gjalddagar eru átta, þ.e. 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst og 15. september en eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga. Ef heildarfjárhæð er undir 15.000 krónum er einn gjalddagi og er hann 15. maí. Vakin er athygli á að ekki verða sendir greiðsluseðlar til annarra en þeirra sem eru 67 ára og eldri. Aðrir fá ekki greiðsluseðla en geta greitt þá í heimabanka sínum. Þeir sem eru yngri en 67 ára og vilja fá senda greiðsluseðla er bent á að hafa samband við afgreiðslu Borgarbyggðar í síma 433-7100. Skrifstofustjóri Til fasteignaeigenda í Borgarbyggð Einbýlishús óskast Óska eftir einbýlishúsi á leigu í Borgarnesi eða nágrenni. Má þó ekki vera í meira en 15 - 20 km fjarðlægð frá kaupstaðnum. Til greina kemur góður heilsársbústaður. Mikilvægt er að möguleiki sé á hagstæðri háhraðanettengingu. Undirrituð er reyklaus og reglusöm. Upplýsingar hjá Rósu Björk á netfangið rosabjorkh@gmail.com eða í síma 821-4250. Af urða há kúa bú á Snæ fells nesi Skýrsl ur naut gripa rækt ar inn ar hafa nú ver ið gerð ar upp fyr ir árið 2010. Naut gripa rækt ar ráðu naut ar BÍ birtu nokkr ar helstu nið ur stöð­ ur skýrslu halds ins í síð asta Bænda­ blaði. Í fyrra voru 607 bú skráð í skýrslu hald ið og hafði fækk að lít­ il lega. Með al bú ið held ur á fram að stækka og eru í ár 38,6 ár skýr en voru 37,1 árið 2009. Með al af urð­ ir yfir land ið standa nán ast í stað frá síð asta ári og eru nú 5.342 kg/ árskú árið 2010. Líkt og áður er Skaga fjörð ur af urða hæsta upp­ gjörs svæð ið með 5.817 kg/ árskú og fast á hæla þeirra fylgja svo Aust ur­ Skafta fells sýsla og Snæ fells nes. Af­ urð ir ein stakra búa eru mjög breyti­ leg ar. Búum með mikl um af urð um fjölg ar, nú voru 14 bú með 7.000 kg eft ir árskú eða meira í með al­ af urð ir. Ráðu naut ar hafa hins veg­ ar á hyggju efni af hversu lág ar með­ al af urð ir eru á ein staka búum og dreg ur síst sam an með lægstu og hæstu bú un um sem færa skýrslu­ hald. Tvö af þrem ur af urða hæstu búum lands ins koma af Snæ fells­ nesi. Í fyrsta sæti var Hóll í Sæ­ mund ar hlíð í Skaga firði en þar mjólka 34,4 ár skýr að með al tali 7.818 kg. Í öðru sæti er svo búið í Tröð í Kol beins staða hreppi með 7.802 kg/ árskú og í þriðja sæti búið á Hraun hálsi í Helga fells sveit með 7.764 kg/ árskú. Af urða hæsti grip ur inn á skýrslu árið 2010 var kýr in Örk 166 á Egg í Hegra nesi og mjólk aði hún 12.418 kg. Þetta er þriðja árið í röð sem þessi kýr er hæst yfir land ið, en Örk er nú á þrett ánda ald ursári. Önn­ ur af urða hæsta kýr in er Randa 14 á Hvann eyri en hún skil aði 12.115 kg og eru þess ar kýr þær einu sem mjólka yfir 12.000 kg þetta árið. Alls mjólk uðu 59 kýr á land inu yfir 10.000 kg árið 2010. mm

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.