Skessuhorn - 24.08.2011, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST
Sum ir eiga sér þann draum að
sigla um heims ins höf og skoða sig
um í hin um stóra heimi. Björn Jó
hann Guð munds son, Bjössi Kolla,
er einn þeirra en hann fær hins
veg ar laun fyr ir að ferð ast. Hann
starfar sem yf ir vél stjóri á lúx us skipi
sem er í eigu auð kýf inga frá Bret
landi og Banda ríkj un um en skip
ið er eitt vin sælasta leigu skip sinn
ar teg und ar. Björn, sem er fædd ur
og upp al inn í Stykk is hólmi, er því
stærst an hluta árs ins á flakki um
heim inn. Þeg ar hann er í fríi kem
ur hann heim í Hólm inn þar sem
hann hef ur gert upp hús ið sitt við
Skóla stíg 7 á síð ustu árum. Blaða
mað ur Skessu horns leit ný ver ið í
heim sókn til Björns, frædd ist m.a.
um störf hans og sjó ræn ingja frá
Sómal íu.
Eitt tonn af olíu
á sól ar hring
„Skip ið sem ég vinn á núna er í
eigu þriggja systk ina sem búa í Bret
landi og Banda ríkj un um. Ég má
hins veg ar ekki greina frá því hvaða
fólk þetta er en þau eru vell auð ug
og lifa á pen ing um sem þau erfðu
frá afa sín um. Pabbi þeirra keypti
þetta skip sem þau eiga og gerði
það upp árið 1993, en skip ið var
smíð að árið 1923. Ég veit hins veg
ar ekki hversu mik ið er eft ir af því
upp runa lega,“ seg ir Björn og seg
ir að fyr ir eig end un um hafi skip ið
nokk uð til finn inga legt gildi, svip að
og oft gild ir um sum ar hús sem fjöl
skyld ur eigi sam eig in lega. Því hafi
þau kos ið að halda skip inu við frek
ar en að kaupa nýtt.
„Kostn að ur inn á hverju ári við
skip ið er gríð ar leg ur, það fer í slipp
tvisvar sinn um á ári og stærsta verk
efni á hafn ar inn ar er að halda skip
inu við. Dags leiga á skip inu er um
8 millj ón ir ís lenskra króna og fyr
ir þann pen ing þarf auð vit að allt
að vera í lagi, alltaf. Mað ur get
ur rétt í mynd að sér hversu ó á nægt
fólk verð ur ef hlut irn ir virka ekki
og búið að greiða svona háa fjár hæð
fyr ir. Inni í þessu verði er hins veg ar
ekki mat ur, drykk ur, olía og fleira.
Það er bara bát ur inn og á höfn in.
Til marks um hvað ol í an kost ar þá
not um við eitt tonn af olíu á ljósa
vél ina á hverj um sól ar hring,“ seg
ir Björn.
Skip sem er
leik fanga geymsla
Í góð ær inu voru fjöl mörg skip
smíð uð og eðli lega hef ur dreg ist
sam an í fram leiðslu þeirra eins og
ann arra. Björn setti inn fer il skrána
sína á vef ráðn ing ar skrif stofu sjó
manna er lend is og fékk viku síð ar
til boð um að koma að vinna á lúx
us skipi ind versks auð kýf ings sem
hafði grætt pen inga á stálfram
leiðslu. Hann átti nýj an bát sem
var sjó sett ur árið 2007. „Þá vann
ég á minna skipi sem elti lúx us skip
ið og við vor um með öll leik föng
in. Um borð var kaf bát ur, bíll sem
gat siglt og síð an keyrt á land, hrað
bát ur sem gekk á 100 hnúta hraða
og fleira í þess um dúr. Hann not
aði skip ið hins veg ar mjög lít ið og
kom til dæm is aldrei um borð þeg ar
við fór um í heims reisu. Þannig að
við í á höfn inni fór um þarna í létta
heims reisu,“ seg ir Björn.
Björn vann áður sem vél stjóri á
Gull hólm an um og síð ar hjá Sæ ferð
um í Stykk is hólmi. Nú þeg ar hann
er orð inn yf ir vél stjóri get ur hann
ráð ið til sín menn. „Nú er einn að
byrja hjá okk ur frá Sæ ferð um og
alls hef ég ráð ið fjóra menn til mín
sem voru þar áður. Það er auð vit
að miklu betra að ráða inn fólk sem
mað ur þekk ir frek ar en að treysta á
að ráðn ing ar skrif stof an finni ein
hvern góð an, sem kannski lít ur bara
vel út á papp ír. Í á höfn inni núna
eru flest ir frá NýjaSjá landi, Ástr
al íu og Suð urAfr íku. Skip stjór inn
er bresk ur sem og stýri mað ur inn,
og svo erum við Ís lend ing arn ir tveir
núna.“
Allt öðru vísi sjó manns líf
en þekk ist hér
Björn er yf ir leitt um þrjá mán uði
úti á sjó í einu, en seg ir þó að eðli lega
sé þetta allt öðru vísi sjó mennska en
sú sem Ís lend ing ar þekkja mest. Þó
að hann sé svo lengi úti þá sé hann
ekki all an tím ann við vinnu held
ur fái oft helg ar frí þeg ar skip ið er
í höfn. „ Fjóra mán uði á ári er skip
ið í við haldi í Barcelona og þá erum
við að vinna bara frá átta til fimm.
Ef við erum svo að skila af okk ur
gest um og það er svo lít ill tími þar
til við eig um að sækja næstu gesti
þá för um við í höfn, t.d. í Antigua
í Kar ab íska haf inu. Þar vinn um við
frá 73 og fáum helg ar frí. Á tog ara
til dæm is, þá er skip ið úti á sjó all
an tím ann sem mað ur er að vinna.
Þetta er því mjög frá brugð ið þeirri
vinnu,“ seg ir Björn sem er ekki far
inn að hugsa um að hætta.
„Nei, ég get eig in lega ekki sagt
það. Þetta er ekk ert ó líkt því að
vera á tog ara, það er að segja tím inn
sem mað ur er í burtu. Svo er hægt
að fá pláss á skip um þar sem mað
ur vinn ur í tvo mán uði og er heima
í tvo. Þannig að ef ég myndi vilja
vera meira heima þá væri það ekk
ert mál. Ég sé hins veg ar ekki fram
á að hætta í þessu strax, mér líð ur
mjög vel í þessu starfi,“ seg ir Björn
sem hef ur kom ið sér vel fyr ir heima
á Skóla stígn um í Stykk is hólmi. „Ég
keypti mér hús ið árið 2005 en ég
hugsa nú að ef ég myndi búa al far ið
á Ís landi, að þá myndi ég ekki búa
hér. Þeg ar ég er svona stutt á land
inu, í tvo eða þrjá mán uði í einu
finnst mér hins veg ar miklu betra
að vera hér held ur en í Reykja vík,“
seg ir Björn.
Skip ið víg bú ið fyr ir
Aden flóa
Á flakki sínu um heims ins höf
hef ur Björn lent í ýms um upp á
kom um og að lok um fékk blaða
mað ur að heyra sögu af einni slíkri.
Þeg ar hann vann á skip inu fyr
ir ind verska stáljöf ur inn lá leið
þess eitt sinn fram hjá Sómal íu, þar
sem sjó rán eru tíð. „Þá lá leið in frá
Frakk landi til Dubai. Við kom um
við á Möltu þar sem skip ið var fyllt
af alls kyns vopn um og við sett um
gadda vír um allt skip ið til þess að
ekki væri hægt að kom ast um borð.
Í þokka bót voru síð an fjór ir bresk
ir sér sveit ar menn frá SAS ráðn ir til
þess að vera um borð og verja skip
ið. Síð an sigld um við um svæð ið og
mætt um sjó ræn ingj um en þeir voru
fljót ir að hverfa frá þeg ar þeir sáu
hvað skip ið var vel var ið, þó það
væri hæg fara. Þeir vildu frek ar ráð
ast á auð veld ari skip því marg ir hafa
ekki rænu á því að verja skip in sín
al menni lega,“ seg ir Björn.
„Við fór um líka aðra leið og utan
þess svæð is sem á að vera vernd
að af NATO. Sér sveit ar menn irn ir
ráð lögðu okk ur það og sýndu okk ur
kort þar sem merkt var með rauð um
punkti ef sjó rán hafði átt sér stað.
Það er skemmst frá því að segja að
NATOsvæð ið var bara rautt. Það
er á kaf lega stórt og her inn á erfitt
með að gæta þess alls í einu. Fé lagi
minn þurfti einu sinni að hoppa frá
borði eft ir að sjó ræn ingj ar höfðu
eyði lagt einu byss una sem var um
borð. Skip ið sigldi bara á fram og
skildi hann eft ir en rétt áður en sjó
ræn ingj arn ir náðu til hans þá kom
þyrla frá NATO að víf andi, klukku
tíma eft ir að hann fór fyrst í sjó inn
og bjarg aði hon um,“ seg ir yf ir vél
stjór inn Björn Jó hann Guð munds
son að lok um.
rmh
Sigl ir um heims ins höf á lúx us skipi
Björn Jó hann Guð munds son er yf ir vél stjóri á lúx us skipi í eigu auð kýf inga
Á höfn in sem Björn til heyr ir, tók sig til og reri þvert yfir Atl ants haf ið. Það gerðu
þeir þó ekki á bát, held ur höfðu róðra vél um borð í skip inu. Á höfn in lét heita á sig
og safn aði nokkrum millj ón um sem runnu síð an til góðs mál efn is.
Björn Jó hann Guð munds son, eða Bjössi Kolla eins og hann er kall að ur, vinn ur sem yf ir vél stjóri á lúx us skipi.
Hér sést Björn lengst til hægri. Á mynd inni er á höfn in sem sigldi í gegn um Aden fló ann þar sem sómalsk ir sjó ræn ingj ar láta
greip ar sópa. Grá ir fyr ir járn um eru bresku sér sveit ar menn irn ir frá SAS.
Þarna sést skip ið sem er í eigu banda rískra og breskra auð kýf inga í Kar ab íska
haf inu. Á þessu skipi er Björn yf ir vél stjóri.