Skessuhorn


Skessuhorn - 14.03.2012, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 14.03.2012, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 14. MARS Fermingarúr Framtíðargjöf Mikið úrval af fallegum og vönduðum skartgripum Ragn heið ur Kar ít as Pét urs dótt­ ir hef ur ver ið prest ur á Snæ fells nesi síð an 2003 er hún, fyrst kvenna, vígð ist í Ingj alds hóls presta kall. Þar hef ur hún starf að síð an en tók síð­ an við stærra presta kalli þeg ar Ingj­ alds hóls­ og Ó lafs vík ur presta­ köll voru sam ein uð. Nú hef ur hún á kveð ið að söðla um, hverfa til starfa í Nor egi í lok mars. Verð ur með kveðju messu sína í Ó lafs vík ur­ kirkju 18. mars og ferm ir einn hóp í Ingj alds hóls kirkju 25. mars. Lærði hár greiðslu Ragn heið ur Kar ít as er fædd og upp al in í Reykja vík, nán ar til tek­ ið í Safa mýr inni. Hún gekk í Álfta­ mýr ar skóla og eft ir venju bund­ ið skyldu nám var hald ið í Iðn skól­ ann til að læra hár greiðslu og síð­ an starf að við iðn ina í mörg ár. Svo kom að því að löng un varð fyr ir breyt ingu. „Ég var alltaf á kveð in í að breyta um starfs vett vang, læra meira það var bara spurn ing hvað,“ seg ir Ragn heið ur Kar ít as þeg ar spurt er um þessa vink il beygju úr hár greiðslu yfir í prests dóm. „Ég var að kynna mér ýmsa hluti í Há­ skóla Ís lands og til að byrja með fannst mér djákna nám ið heill andi en á kvað síð an að fara í emb ætt is­ nám sem ég fann mig strax vel í. Þar stund aði ég nám frá ár inu 1994 til 1999. Á tíma bil inu fór ég einnig til Ma dríd ar á Spáni sem skipt istúd ent og kynn ist þá þeirri menn ingu sem þar er og æfð ist vel í spænsk unni sem ég skildi vel en vant aði tal þjálf­ un. Eft ir að hafa lok ið prests nám­ inu fór ég aft ur til Spán ar og tók þar nám í sál gæslu og var síð an far­ „Þrosk andi að takast á við nýja hluti“ -seg ir sr. Ragn heið ur Kar ít as Pét urs dótt ir sem kveð ur söfn uð sinn í lok mars ar stjóri um nokkurn tíma á Spáni og í Portú gal. Ég varð al veg heill uð af Spáni, menn ing unni og líf inu, og hefði lík lega sest þar að, ef ég hefði ekki vígst að Ingj alds hóli, 29. júní 2003.“ Eng ar ræt ur á Nes ið Fram hef ur kom ið að Ragn heið ur Kar ít as er fædd og upp al in í Reykja­ vík. Hún á eng ar ræt ur á Snæ fells­ nes en fann strax að þar vildi hún lifa og starfa. „Brauð ið var aug­ lýst laust og ég hugs aði að það væri þess virði að at huga mál ið. Ég fór því vest ur til að skoða að stæð ur og kynna mér hlut ina, varð al veg heill­ uð. Og þó að ég sé fædd og upp al in í Reykja vík hef ur mig aldrei lang­ að þang að aft ur, þessi ár sem ég hef búið og starf að fyr ir vest an. Lík­ lega hefði ég frek ar far ið til Spán­ ar ef ég hefði ekki feng ið Ingj alds­ hóls presta kall. Það er þessi nær­ vera, að líða eins og mað ur sé hluti af stórri fjöl skyldu, sem virk ar svo vel fyr ir mig. Á Spáni leið mér ekk­ ert ó svip að. Þar eru hverf in byggð upp á þann hátt að þar þekkj ast all­ ir. Öll þjón usta er til stað ar í hverf­ inu og þú hef ur ekki búið þar lengi þeg ar fólk er far ið að heilsa þér og spjalla í búð inni eða úti á götu. Marg ar stór borg ir eru byggð ar upp á þenn an hátt, hverf in eru í raun smá þorp, þar sem all ir þekkja alla og hafa sam kennd. Þannig leið mér aldrei í Reykja vík.“ Sam ein að með þroska og æðru leysi Þeg ar Ragn heið ur Kar ít as tók við starfi prests á Ingj alds hóli var einnig prest ur í Ó lafs vík. Kirkju­ stjórn in á kveð ur síð an að sam eina presta köll in á þann hátt að þeg­ ar ann ar hvor prest anna hætti eða flutti sig um set, yrðu þessu tvö presta köll að einu. Það gerð ist um ára mót in 2009­2010 þeg ar Magn ús Magn ús son sókn ar prest ur í Ó lafs­ vík hvarf til starfa á öðr um stað. Um leið var á kveð ið að prest ur inn skyldi hafa að set ur í Ó lafs vík svo Ragn­ heið ur Kar ít as flutti sig um set. Af eig in raun kann ast marg ir við að svona sam ein ing ar geti tek ið á en Snæ fell ing ar tóku þessu með miklu æðru leysi. „Mér finnst í bú arn ir hér á svæð inu hafa tek ið vel á þess ari sam ein ingu. Það var á ber andi hvað fólk var þrosk að í sam ein ing ar ferl­ inu öllu. Það hef ur sann ar lega auð­ veld að allt sam an.“ Börn þurfa æsku lýðs starf Í Ingj alds hóls­ og Ó lafs vík ur­ presta kalli er starf andi djákni, sá eini sem er á laun um hjá þjóð kirkj­ unni á Vest ur landi. Ragn heið ur Kar ít as beitti sér fyr ir ráðn ing unni. „Ég stofn aði sjóð með fram lög um frá fyr ir tækj um og fé laga sam tök um á svæð inu til að setja á stofn djákna­ emb ætti. Mér fannst svo nauð syn­ legt að fá fleiri til starfa og sá þarna mögu leika. Vel var tek ið í þetta af öll um og ráðn ing varð stað reynd. Djákn inn okk ar hef ur ver ið gíf­ ur lega öfl ug ur í barna starf inu og mik il lyfti stöng en er ein ung is í 20% starfi. Nú þarf hins veg ar að finna leið ir til að nýta starfs krafta hans bet ur. Það væri ó met an legt ef sókn irn ar á öllu svæð inu gætu not­ ið þessa sem dæmi í barna starf inu, þá væri hægt að bjóða djákn an um fullt starf. Það er nefni lega svo að öll börn þurfa á æsku lýðs starfi að halda, sama hvar þau búa.“ Tungu mál liggja vel við Ragn heið ur Kar ít as á ekki ræt ur í prest skap, eng inn í henn ar nær fjöl­ skyldu er prest ur. Upp eld ið var þó mjög krist ið og sem dæmi spil aði afi henn ar á org el og söng mik ið af sálm um. Í bernsk unni var hún virk í skáta starfi en datt út úr því á ung­ lings ár um. For eld ar henn ar á kváðu að fara í æv in týra mennsku og fluttu til Sví þjóð ar þeg ar hún var ung ling­ ur. Þar bjó fjöl skyld an í tvö ár og nýtti tím ann vel til að ferð ast um Skand in av íu. Þá varð sænsk an henni töm og hef ur ætíð ver ið við hald ið. Spænska ligg ur einnig vel á tungu og svo er það norska sem prest ur inn hef ur ver ið að æfa sig í, enda ligg­ ur mála nám vel fyr ir og flutn ing­ ur til Nor egs í far vatn inu, gámur­ inn far inn út og Frón verð ur kvatt í lok mars. En í öllu þessu stend ur hún ein. „Ég skildi fyr ir 25 árum og hef ekki far ið aft ur í hjú skap. Ég á hins veg ar tvær dæt ur, 28 ára og 35 ára og tvær ömmu stelp ur. Fyr­ ir utan að verða móð ir held ég að mesta lífs reynsl an hafi falist í því að verða amma. Það voru marg ir bún­ ir að segja mér hvað það væri gam­ an en eng inn hvað það væri djúpt. Það er reynsla sem ég hefði alls ekki vilja missa af.“ Hald ið á vit nýrra æv in týra Eins og fram hef ur kom ið er Ragn heið ur Kar ít as að flytja til Nor egs. Þar mun hún starfa sem prest ur. Á stæð ur fyr ir flutn ingn­ um eru marg vís leg ar. „Ég var búin að á kveða með sjálfri mér að skoða af al vöru ef eitt hvað spenn andi starf byð ist er lend is, gef því mögu leika. Starfs skil yrð in í Nor egi eru mjög góð svo ég var að eins að horfa í kring um mig þar. Þá barst þetta flotta til boð upp í hend urn ar á mér svo eig in lega var ekki hægt að hafna því. Önn ur dótt ir mín er einnig flutt til Gauta borg ar og sú stað­ reynd hjálp aði til við á kvarð ana tök­ una. Mér hef ur alltaf fund ist að ekki sé hægt að leyfa sér að staðna og er alls ekki hrædd við að læra og takast á við nýja hluti. Það er hins veg ar svo að við hvern nýj an hlut eða að­ stæð ur skil ur mað ur alltaf eitt hvað eft ir sem sakn að er. En á þann hátt verð ur for tíð in manni kær. Það eru þó sann ar lega blendn ar til finn ing­ ar sem hrær ast í brjósti mér þessa dag ana, til hlökk un og sökn uð ur. En ég ef ast ekki um að góðu sam bandi verð ur hald ið við Snæ fell inga þar sem ég hef fest svo vel ræt ur,“ seg­ ir Ragn heið ur Kar ít as Pét urs dótt­ ir sem finnst þrosk andi að reyna sig við áður ó kunna hluti og að stæð ur. bgk Sr. Ragn heið ur Kar ít as Pét urs dótt ir sókn ar prest ur í Ingj alds hóls­ og Ó lafs vík ur­ presta kalli hef ur á kveð ið að takast á við nýja hluti og hverfa til starfa í Nor egi. Ragn heið ur Kar ít as við Gali leu vatn. Á Bibl íuslóð um við Kaper naum. Á jóla fundi Soroptim ista klúbbs Snæ fells ness árið 2007. Ragn heið ur Kar ít as er önn ur frá hægri. Borgarbraut 55 Borgarnesi Sími: 437 1878 Skreytingar við öll tækifæri Opið: 11-18 mánudaga – föstudaga 10-15 laugardaga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.