Skessuhorn


Skessuhorn - 23.05.2012, Side 18

Skessuhorn - 23.05.2012, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 23 . MAÍ Skaga menn hafa feng ið óska- byrj un í Pepsí-deild inni í sum ar. ÍA hef ur unn ið fjóra fyrstu leik- ina og er á toppi deild ar inn ar. Að margra á liti var loka punkt ur inn á vel heppn uðu und ir bún ings tíma- bili að fá heim Jó hann es Karl Guð- jóns son, sem um svifa laust var gerð- ur að fyr ir liða og hef ur ver ið pott- ur inn og pann an á miðj unni og stjórn liðs ins inn an vall ar. Jói Kalli er nú kom inn heim á Skag ann að nýju eft ir 14 ár í at vinnu mennsku. Blaða mað ur Skessu horns hitti fyr- ir liða liðs ins á dög un um, þar sem rætt var um heim kom una, árin í at- vinnu mennsk unni og fót bolt ann á Akra nesi í dag. „Við erum mjög á nægð með að vera kom in heim. Það var á kveð ið inn an fjöl skyld unn ar síð asta haust að þetta væri að verða gott hjá mér í at vinnu mennsk unni úti og kom- inn tími til að snúa heim. Ég hef alltaf haft sterk ar taug ar til Skag- ans svo það kom ekki til greina að spila fyr ir ann að fé lag. Þess vegna fór ég beint í að semja við ÍA. Það var gert með bind andi sam komu- lag við Dodda bróð ir síð asta haust, að ég myndi spila í þrjú ár með ÍA í það minnsta. Þessi samn ing ur var reynd ar án und ir skrift ar og það var svo lít ið skrýt ið að semja við bróð ur sinn, en hann stóð mjög fag mann- lega að þessu al veg eins og fram- kvæmda stjór ar gera, þannig að all ir voru sátt ir þeg ar upp var stað ið.“ Vill sjá breyt ing ar á gamla bæn um Að spurð ur seg ir Jói Kalli að hann sjái ekk ert nema gott við Akra nes í dag, nema að hann geti ekki sætt sig við þær breyt ing ar sem hafa orð ið á skipu lagi bæj ar ins seinni árin og þar með hnign un gamla bæj ar ins sem hann beri mikl ar taug ar til. „Ég ólst mik ið til upp á Neðri- Skag an um og á því mikl ar taug- ar til gamla bæj ar ins. Fyrst átt um við heima á Suð ur göt unni og síð- ar á Mel teig. Ég man eft ir mér sem litl um strák á Þor láks messu nið ri í bæ þar sem all ar versl an irn ar voru. Svo voru afi og amma, Þórð ur og Mar sel ía á Skóla braut inni og það var alltaf far ið til þeirra. Mér finnst sorg legt að sjá hvern ig gamli bær- inn er að fara, að til dæm ist Lands- banka hús ið þetta stóra og glæsi- lega hús standi autt. Ég held að sú á kvörð un að byggja nýj an mið bæ hafi ver ið mis tök. Ráð hús ið og sú bygg ing er allt í lagi, en bygg ing- in þar á móti, versl un ar mið stöð og bóka safn í skemmu bygg ingu finnst mér ekki við hæfi," seg ir Jó hann es Karl og hef ur greini lega á kveðn ar skoð an ir á skipu lags mál um á Akra- nesi, enda lít ur hann á Skag ann sem sinn heima bæ. Átján ára í at vinnu mennsku Jó hann es Karl seg ir að þrátt fyr- ir að hafa ekki feng ið tæki færi jafn- ung ur með ÍA lið inu og eldri bræð- urn ir Þórð ur og Bjarni, hafi hann á kveð ið að leggja sig all an fram um að kom ast í at vinnu mennsku í fót- bolta. Skóla nám yrði þess vegna að sitja á hak an um fyr ir því. „Ég var ekki bú inn að fá mörg tæki færi með ÍA lið inu þeg ar ég fór út í at vinnu- mennsku 18 ára gam all. Leik irn ir í meist ara flokkn um voru ekki nema sjö eða átta. Ég var 17 ára þeg ar Bjarni bróð ir samdi við Newcastle og þá varð ég al veg stað ráð inn að kom ast í at vinnu mennsku. Vor ið eft ir fór ég til Glas gow Rangers til reynslu. Það gekk á gæt lega og voru horf ur á að ég færi út til þeirra um haust ið. Í milli tíð inni gerð ist það að um mán aða mót in júlí-á gúst var mér boð ið í viku reynslu tíma til Genk í Belg íu þar sem Þórð ur bróð ir var. Ég spil aði tvo leiki með vara lið inu og skor aði í þeim tvö mörk. Þeim leist mjög vel á mig og vildu semja við mig um leið. Ég á kvað bara að slá til og gerði fimm ára samn ing." Jó hann es Karl seg ir að hon- um hafi fund ist hann vera orð inn harð full orð inn, 18 ára gam all þeg- ar hann fór í at vinnu mennsk una. Kærast an, Jó fríð ur Mar ía Guð- laugs dótt ir, sem er kon an hans í dag, á kvað að fylgja hon um út en hún var á þess um tíma tæp lega 17 ára göm ul. Bestu árin voru í Manchest er Jói Kalli hef ur leik ið með mörg- um lið um á þess um 14 árum í at- vinnu mennsk unni. Hann hef ur leik ið í efstu deild í fjór um lönd- um: Belg íu, Hollandi, Spáni og Englandi. Hann seg ist oft hafa ver- ið spurð ur þeirr ar spurn ing ar hvar hafi ver ið best að dvelja. „Það var mjög gott á öll um þess um stöð um og fjöl skyld an átti góð ár úti. Ég held að besti tím inn hafi þó ver ið þessi sex síð ustu ár, þeg ar ég spil- að með Burnley í efstu deild og síð- an Hudd ers fi eld. Þann tíma bjugg- um við í Manchest er, mið svæð is milli þess ara staða, en um hálf tíma keyrsla var á hvern." En hvern ig er svo líf ið í at vinnu- mennsk unni? „ Þetta er skemmti leg vinna og nátt úr lega for rétt indi að fá að vinna við það sem mað ur hef ur gam an af. En hins veg ar er þetta ekki dans á rós um hjá mörg um, sér stak lega ef þeir lenda í meiðsl um og fá lít- ið að spila. Það var hreint ó trú legt hvað ég slapp við meiðsli. Ég held ég hafi ekki ver ið frá nema mest sjö til tíu daga þenn an tíma. En bæði lík am lega og sál ar lega er þetta erf- ið vinna. Þú get ur þurft að þola enda lausa höfn un, þeg ar þú kemst ekki í lið ið og ferð svo í fram hald- inu kannski að velta þér upp úr því af hverju þú varst ekki val inn. Fyrir leik menn sem eru kannski frá vegna langvar andi meiðsla, kannski ár, þá er þetta virki lega erfitt." Að spurð ur seg ist Jó hann es Karl telja að hann eigi nokk ur ár eft ir í bolt an um, með því að hugsa vel um lík amann. Ég ætl a að spila eins lengi og skrokk ur inn leyf ir og hef síð an full an hug á því að snúa mér að þjálf un þeg ar fram í sæk ir." Stærstu leik irn ir Jó hann es Karl seg ist líka oft vera spurð ur að því hver sé eft ir minni- leg asti leik ur inn sem hann hafi spil- að. Hann seg ir að það fari ekki á milli mála að tveir leik ir standi dá- lít ið upp úr. Það er leik ur í spænsku deild inni þeg ar hann lék með Real Bet is gegn Real Ma drid á hin- um stór glæsi lega Berna béu leik- vangi. Hinn leik ur inn er þeg ar hann lék með Burnley um spils leik- inn um sæti í úr vals deild inni á sjálf- um Wembley. Þar lagði Burnley Sheffi eld Utd. að velli. „Ég er ó skap lega slak ur í því að safna hlut um sem mér á skotn ast í kring um fót bolt ann til að eiga til minn ing ar seinna meir. Þær eru þó ó fá ar fót bolta skyrt urn ar sem ég hef feng ið á ferl in um, en ég hef gef ið þær all ar til þeirra sem hafa meiri þörf fyr ir þær en ég." Jói Kalli hef ur alltaf þótt fast ur fyr ir á velli og ó ragur við að fara í tæk ling arn ar. Þess° vegna þyk- ir mörg um ó trú legt hvað hann hef- ur slopp ið við meiðsli. Þá þyk ir undr un sæta hvað hann er sterk ur í skalla bolt un um, ekki stærri mað- ur, en oft hef ur hann bet ur í loft inu gegn höfð inu hærri mönn um. „Ég hef hugs að vel um mig lík- am lega en það hef ur ekki dug að hjá mörg um til að kom ast hjá meiðsl- um. Ef ég hefði skýr ingu á þessu góða heilsu fari mínu, þá gæti ég sjálf sagt selt hana dýrt. En hvað bar átt una í loft inu varð ar, þá var ég sem ung ling ur minnst ur í mínu liði og alltaf þurft að berj ast við stóru menn ina. Það hef ur ekk ert breyst, ég hef ekk ert stækkað,"segir Jói Kalli og hlær. Á nægð ur að fá leik­ heim ild með ÍA Á tíma bili í vet ur leit út fyr ir að Jó hann es Karl myndi ekki losna und an samn ingi hjá Hudd ers fi eld fyrr en samn ing ur hans rynni út í lok júní, enda lið ið í topp bar áttu í deild inni og framund an er nú leik- ur um um spil um sæti í 1. deild. „Ég spil aði und ir stjórn nýs þjálf- ara sjö eða átta leiki í röð í vet- ur, en svo komu nokkr ir leik ir þar sem ég var utan liðs ins og greini- legt að hann var far inn að byggja meira á þeim sem yrðu á fram hjá lið inu. Ég fór því að vinna í því að fá mig laus an, þar sem mig lang aði til að byrja með ÍA strax í upp hafi tíma bils frek ar en koma inn þeg ar fé laga skipta glugg inn opn ar í júlí. Það hefði ekki ver ið eins gam an og ó heppi legra. Ég var mjög á nægð ur þeg ar starfs loka samn ing ur inn var kom inn og ég bú inn að fá leik heim- ild með ÍA." Jó hann es Karl seg ist hafa mikla trú á ÍA lið inu. „ Þetta er glæsi leg byrj un hjá okk ur, góð ur grunn- ur fyr ir sum ar ið. Við erum með gott lið, góða leik menn, spil um vel og skipu lega varn ar lega og sköp- um okk ur nægj an lega mörg færi til að vinna leik ina. Þetta hef ur ver ið okk ar styrk ur og ég á von á því að lið ið eigi eft ir að bæta leik sinn enn frek ar í næstu leikj um." Að spurð ur sagð ist Jói Kalli þó engu vilja lofa um að Skaga menn verði á toppn um í allt sum ar. „Ég hef aldrei sagt að við verð um á toppn um, en ég held við verð um í bar átt unni í efri hluta deild ar inn ar. Mér sýn ist að deild- in verði jöfn, eft ir fyrstu um ferð un- um að dæma virð ast all ir geta unn- ið alla." Ung ir fót bolta menn á leið inni Jói Kalli seg ir að þessa dag ana sé fjöl skyld an að koma sér fyr ir á Skag an um og all ir mjög spennt ir að vera komn ir heim. Jó hann es Karl og Jó fríð ur Mar ía eiga fjóra stráka, frá níu ára nið ur í tveggja ára. Ísak Berg mann heit ir sá elsti og þyk ir mjög efni leg ur knatt spyrnu mað ur. Hann var á máli hjá Bolton og var fyr ir liði liðs ins und ir 9 ára. Ísak var val inn besti leik mað ur liðs ins í vet- ur, þótt hann kláraði ekki tíma bil- ið. Jóel Þór er sjö ára en hann hef- ur eng an á huga á fót bolta að sögn Jóa Kalla. Dan í el Ingi er 5 ára og er byrj að ur að æfa á fullu, enda með sjúk leg an á huga á fót bolta. Jói Kalli seg ir að sem von er sé ekki kom ið í ljós hjá Emil, sem er tveggja ára, hvert á hug inn bein ist. „Við ætl um ekki að reyna að hafa á hrif á það hvert á huga mál strák anna bein- ist. En það er bara gott og nauð- syn legt að þeir hafi ein hver heil- brigð á huga mál, sama hver þau eru. Mér sýn ist að vel sé stað ið að yngri flokka starfi hérna á Akra nesi. Við erum líka það lið í deild inni sem erum með flesta upp alda leik menn í lið inu. Þar hafa menn ver ið trú- ir sinni stefnu um árarað ir. Mér finnst það rétt stefna. Skaga hjart að er svo sterkt að lið ið verð ur alltaf best þannig." þá Skaga hjart að er svo sterkt Jói Kalli er á nægð ur með byrj un ina á með ÍA lið inu Jói Kalli í sig ur leikn um gegn Kefl vík ing um sl. sunnu dags kvöld. Jó hann es Karl Guð jóns son er kom inn heim. Jó hann es Karl Guð jóns son og Jó fríð ur Mar ía Guð laugs dótt ir með strák ana sína fjóra.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.