Skessuhorn


Skessuhorn - 12.09.2012, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 12.09.2012, Blaðsíða 7
7MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2012 Starfsmannastjóri Nánari upplýsingar um starfið veita Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) og Ari Eyberg (ari@intellecta.is) í síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með 17. september nk. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Fjöldi starfsmanna er á sjötta hundrað og árleg framleiðslugeta fyrirtækisins um 280 þúsund tonn af hágæða áli. Hjá Norðuráli starfar fólk með afar fjölbreytta menntun og bakgrunn. Áhersla er lögð á jafna möguleika karla og kvenna til vinnu. Norðurál er í eigu Century Aluminum sem er með höfuðstöðvar í Monterey í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á heimasíðu þess www.nordural.is Helstu verkefni • Mat á mannaflaþörf og ráðningar • Móttaka og þjálfun nýliða • Frammistöðumat, starfsmannaviðtöl og eftirfylgni þeirra • Utanumhald um framkvæmd kjarasamninga • Fræðsla- og endurmenntun • Lykiltölur • Þróun starfsmannastefnu í samráði við framkvæmdastjóra Menntunar- og hæfniskröfur • Menntun og starfsreynsla við hæfi • Þekking og reynsla af vinnurétti og framkvæmd kjarasamninga • Reynsla af áætlanagerð • Frumkvæði, sjálfstæð og öguð vinnubrögð • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku • Framúrskarandi samskiptahæfni Norðurál á Grundartanga óskar eftir að ráða starfsmannastjóra. Starfsmannastjóri er yfirmaður starfsmannasviðs og hefur umsjón með framkvæmd og eftirfylgni starfsmannastefnu Norðuráls. Starfsmannastjóri heyrir undir framkvæmdastjóra starfsmanna-, innkaupa- og öryggissviðs. ráðgjöf ráðningar rannsóknir Intellecta, Síðumúla 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225 Eitt af hlut verk um Land bún að­ ar safns ins Ís lands á Hvann eyri er að segja sög ur. „Það má gera með ýms um hætti. Með al ann ars þeim að safn ið gegni hlut verki sögu­ gripa­hót els þar sem hót el gest­ ir vinna fyr ir dvöl sinni með því að segja sög ur. Land bún að ar safn hef­ ur um nokk urt skeið fet að sig á fram eft ir þeirri götu, var lega þó og í litl­ um mæli, svo sem eðli legt er,“ seg­ ir Bjarni Guð munds son safn stjóri. „Um nokk urt skeið hafa gist safn­ ið tveir hót el gest ir í þess um flokki. Tvær á gæt ar drátt ar vél ar og á dög­ un um bætt ist sú þriðja við. Fyr­ ir nokkrum dög um kom svo gagn­ merk ur Willys­ jeppi í safn ið til hót­ eldval ar sem sögu grip ur. Jepp inn kom nýr að Hofi í Dýra­ firði. Ár gerð 1946 er hann og hef ur ver ið gerð ur í sitt upp haf lega form að öllu leyti, af mikl um hag leik. Við segj um sögu jeppans inn an tíð ar en það er Krist ján Dav íðs son sem grip­ inn á, dótt ur son ur fyrsta eig and ans, Gunn ars Guð munds son ar bónda á Hofi. Krist ján kom ak andi á jepp an­ um að vest an, hafði sá gamli þá lagt um það bil 450 km und ir hjól sín, og ekki sleg ið feilpúst alla leið ina.“ Hið sögu lega verð mæti jeppans með skrán ing ar núm er ið Í­19 ligg­ ur í því að hér er á ferð land bún­ að ar jepp inn frá Willys og því hlut­ verki gegndi hann einmitt á Hofi í Dýra firði um ára bil, einmitt á mik­ il væg ustu jeppa ár un um ­ um miðja síð ustu öld. mm Bjarni safn stjóri og Krist ján Dav íðs son við Í­19, Willys ár gerð 1946, sem nú dvel ur á sögu gripa­hót el inu á Hvann eyri. Willys er nýr hót el gest ur Land bún að ar safns Sunnudagurinn 16. september nk. er Dagur íslenskrar náttúru. Af því tilefni mun Akraneskaupstaður bjóða upp á eftirfarandi dagskrá: 13:00-17:00 Stóri vitinn á Breið verður opinn fyrir gesti og gangandi frá kl. 13:00-17:00. Listaverk barna á leikskólaaldri verða til sýnis í vitanum, þemað er íslensk náttúra. 13:00 Sólmundarhöfði – Breið Gönguferð með leiðsögn fyrir alla fjölskylduna. Fjaran, fjallið, og fólkið að fornu og nýju. Skipst á sögum og Skaginn skoðaður út frá sjónarhóli bæði ferða- og heimamannsins. Göngufólk getur síðan endað ferðina á því að kíkja upp í stóra vitann á Breiðinni. Lagt af stað frá Sólmundarhöfða klukkan 13:00. Áætlað er að gangan taki um 1,5-2 klst. Um leiðsögn sér Vilborg Þ. Guðbjarts- dóttir. 13:00 Fjölskylduvæn göngu- og sögumessa með keltneskum brag á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit Sunnudaginn 16. sept. á degi íslenskrar náttúru verður haldin fjölskylduvæn göngu- og sögumessa með keltneskum brag á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit. Að henni standa Akraneskaupstaður, Akraneskirkja, Saurbæjarprestakall og Biskupsstofa. Göngu-og sögumessan hefst í Akranes- kirkju kl. 13:00. Þaðan verður ekið með rútu að Innri Hólmskirkju þar sem kirkja var reist á landnámstíð og helguð Guði og dýrlingnum Kolum Killa, er árið 563 stofnaði klaustur á eyjunni helgu Iona á Suðureyjum. Þaðan verður ekið að Görðum og gengið þaðan til Kalmans- víkur og svo að lyktum gengið eða ekið þaðan aftur til Akraneskirkju. Eftir kærleiksmáltíð þar bjóða Kvenfélag Akraneskirkju og Akraneskaupstaður til kirkjukaffis í Vinaminni. Tónlistarmenn munu þar leika keltneska tónlist. Miðað er við að allri dagskránni verði lokið fyrir kl. 17:00. Sr. Kristinn Jens Sigurþórsson, sóknar- prestur í Saurbæ og sr. Gunnþór Þ. Ingason, prestur á Biskupsstofu á sviði helgihalds og þjóðmenningar, munu leiða stuttar helgistundir á hverjum áningarstað með fornu keltnesku trúarefni, sem einkennist af lofgjörð og þökk fyrir lífs- og sköpunarundur. Jafnframt verður lesið úr íslenskum fornbókmenntum og sungin og leikin keltnesk tónlist og sálmalög. Gunnlaugur Haraldsson, fornleifa- og þjóðhátta- fræðingur, verður leiðsögumaður og lýsir umhverfi og sögustöðum. Dagur íslenskrar náttúru 2012

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.