Skessuhorn - 17.10.2012, Blaðsíða 7
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
2
Föstudagur 26.október
Kl. 14:00 Lambhrútasýning í Dalahólfi og opin fjárhús á Valþúfu á Fellsströnd.
Að Valþúfu mæta til leiks best dæmdu lambhrútar í Dalahólfi og gefst okkur gott tækifæri til að koma
og líta á þá, jafnvel fá aðeins að pota í þá, þukla og dæma eftir okkar ágæta höfði. Að Valþúfu eru
hefðbundin fjárhús með görðum. Hrútadómarar verða þeir Árni B. Bragason og Lárus G. Birgisson.
Kl. 19:30 Húsið verður opnað á hina geysivinsælu sviðaveislu með hagyrðingum og dansleik.
Í boði verða köld, söltuð, reykt svið, sviðalappir og fl. tengt sviðaveislu. Hagyrðingar verða Jóhannes
Sigfússon Gunnarsstöðum, Ágúst Marinó Ágústsson Sauðanesi, Sigrún Haraldsdóttir Reykjavík og
Jón Ingvar Jónsson Reykjavík. Stjórnandi verður séra Hjálmar Jónsson. Álftagerðisbræður koma og
taka lagið. Um dansleikinn sér Hjónabandið úr Dýrafirðinum. Já, nú skal sko dustað rykið af gömlu
og góðu dansskónum. 16 ára aldurstakmark er á dansleik. Miðapantanir á sviðaveisluna fara fram hjá
Gunnu á Háafelli í síma: 866-5194, 434-1368 eða kindur@simnet.is til og með mánudagsins 22.
október. Aðgangseyrir er 5.000 kr. Forsala á sviðaveislu verður í Rauða kross húsinu miðvikudaginn
24. október frá kl 15:00 til 17:00.
Í tengslum við sviðaveislu verður Hótelið að Laugum opið, gisting með morgunmat í tvíbýli kostar
13.400 kr en einbýli 9.700 kr. Bókun hótelherbergja er hjá Önnu Möggu í síma 861-2660 fyrir 23.
október.
Laugardagur 27. október
Kl. 10:00 Lambhrútasýning í Vesturlandshólfi og opin fjárhús að Bæ í Miðdölum.
Þar mæta til sýnis og dóms best dæmdu lambhrútar sýslunnar í Vesturlandshólfi. Endilega komið,
brettið upp ermarnar og þuklið aðeins á þessum gripum og vitið hvort þið séuð sammála endan-
legum dómum sem kveðnir eru upp af þeim Lárusi og Árna B. Að Bæ eru fjárhús með görðum og
gjafagrindum.
Kl. 10:00 Opna UDN hrútamótið í innanhúsknattspyrnu að Laugum í Sælingsdal.
Þar er öllum frjálst að mæta með sitt lið og sýna getu, færni og prúðmennsku sinna manna.
Allar nánari upplýsingar og skráning er hjá Sigga Bjarna í síma 844-6908 og Magnúsi Bjarka
í síma 868-4075 fyrir 26. október.
Reiðhöllin opnar kl.13:00
Kl. 14:00 Meistaramót Íslands í rúningi.
Þar leiða saman klippur sínar heitustu og sveittustu rúningsmenn og konur landsins. Nú er bara að
spýta í lófana, brýna kambana, skrá sig og það kemur í ljós hvar þú stendur meðal okkar fremstu
klippara. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þann besta. Skráningar þurfa að berast í síðasta lagi 22.
október til Hönnu Siggu á netfangið hannasigga@audarskoli.is eða Jón Egill í síma 848-8918 eða á
netfangið bjargeys@simnet.is Úrslit og verðlaunaafhending verða að keppni lokinni.
Kl. 14:30 Ullarmatskynning á vegum Ístex.
Kl. 13:00 Ullarvinnsla.
Konur úr héraði verða með sýningu á ullarvinnslu og hægt verður að taka í rokk!
Kl. 13:00-15:30 Hönnunarsamkeppni FSD og Ístex:
Hönnunarsamkeppni í tengslum við haustfagnað FSD fyrsta vetrardag. Í ár snýst keppnin um að hanna
og framleiða úr íslenskri ull. Þá er bara að láta hugmyndaflugið njóta sín og hefjast handa við að
prjóna, hekla, sauma, þæfa, gimba, vattarsauma eða hvaða þá tækni sem fyrir valinu verður og hefjast
handa. Skráning í hönnunarsamkeppnina verður í Reiðhöllinni. Úrslit verða kynnt í samstarfi við Ístex
um kl. 16:00.
Kl. 13:00 Vélasýning.
Þar koma saman nokkur fyrirtæki og sýna okkur helstu og nýjustu tæki og tól sem viðkoma land-
búnaðarstörfum.
Kl. 13:00 Markaður opnar.
Markaður fyrir handverk og heimatilbúin matvæli. Þeir sem hafa áhuga á að vera með vörur á
markaðnum er bent á að hafa samband við Hönnu Siggu í síma 847-9598 eða á netfangið
hannasigga@audarskoli.is.
Kl. 14:00-16:00 Barnadagskrá.
Félagar úr reiðhallarfélaginu Nesodda munu vera með afþreyingu fyrir börn.
Bændafitness í umsjá Félags ungra bænda á Vesturlandi og Vestfjörðum.
Kvenfélagið Þorgerður Egilsdóttir verður með veitingasölu.
Kl. 18:30 Í Dalabúð grillveisla og verðlaunaafhending.
Kokkar frá Meistarakokkafélagi Íslands grilla íslenskt lambakjöt. Bestu lambhrútarnir í Dalasýslu
verða verðlaunaðir, verðlaunaðar verða bestu ærnar úr árgangi 2007 . Grín, söngur og gaman verður
einnig á matseðlinum. Aðgangseyrir 1.500 kr. á mann, en frítt fyrir 14 ára og yngri í fylgd með
forráðamönnum.
Kl. 00:00 Í Dalabúð.
Lýkur svo hefðbundinni dagskrá Haustfagnaðar með stórdansleik þar sem stuðboltarnir Hvann-
dalsbræður munu sjá um að halda uppi fjörinu langt fram eftir nóttu. Aðgangseyrir 3.000 kr., 16 ára
aldurstakmark.
Nánari upplýsingar á www.dalir.is og á facebook síðunni okkar, Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu.
Opið verður hjá handverkshópnum Bolla föstudaginn 26. okt kl. 12:00 - 18:00,
laugardaginn 27. okt kl. 10:00 -18:00, sunnudaginn 28. okt kl. 12:00 - 18:00.
Samkaup býður ykkur velkomin á Haustfagnað FSD. Opið föstudaginn 26. okt.
kl. 9:00 - 21:00, laugardaginn 27. okt. 10:00 - 20:00 og sunnudaginn 28. okt.
10:00 - 21:00. Heitur matur í hádeginu laugardaginn 27. okt. frá kl. 11:30 til 15:00.
Grillið opið alla helgina, en lokar klukkutíma fyrir lokun.
KM þjónustan: Laugardaginn 27. okt. verður opið í KM þjónustunni frá kl. 13:00 -17:00.
Helstu samstarfs- og styrktaraðilar hátíðarinnar eru:
Dalabyggð, KS Sauðárkróki, Sláturfélag Suðurlands, SAH afurðir, Jón bóndi, Ístex,
KM þjónustan, Rjómabúið Erpsstöðum, Radisson SAS, Landssamtök sauðfjárbænda,
Meistarakokkafélag Íslands, Búnaðarsamtök Vesturlands.
Hlökkum til að sjá ykkur
Góða skemmtun!
Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu.
Munum að klæða okkur eftir veðri.
Ullin yst sem innst,
það er allra best.
HAUSTFAGNAÐUR FSD
26.-27.OKT 2012