Skessuhorn


Skessuhorn - 17.10.2012, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 17.10.2012, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2012 Á föstu dag inn síð asta opn aði arki­ tekt inn Sig ur steinn Sig urðs son sýn ingu sína Borg ar byggð ung ar í Gamla mjólk ur sam lag inu í Borg­ ar nesi. Sýn ing in snýst um hug­ mynda vinnu Sig ur steins að hönn­ un á skipu lagi Borg ar ness sem hann bygg ir á rann sókn um sín um í bæn­ um und an far in tvö ár. Á sýn ing unni bein ir Sig ur steinn sjón um gesta að því hvað arki tektúr og hönn un get­ ur gert fyr ir bæj ar fé lög á Ís landi með það að mark miði að auka vel­ ferð íbúa í takt við við horf þeirra og þarf ir. Sjálf ur er Sig ur steinn fædd ur og upp al inn Borg nes ing­ ur og stend ur bær inn og skipu lag hans hon um því nærri. „Mitt mark­ mið er að benda í bú um á hvað hægt er að gera hér með smá til færsl um. Ég hafði að leið ar ljósi í vinnu að nýju skipu lagi að ýta und ir það sem Borg ar nes er í raun og veru og þar horfði ég tals vert til hvern ig bær inn mynd að ist og óx á fyrri hluta síð­ ustu ald ar. Ég byggi rann sókn ina á eig in pæl ing um, við horfa könn­ un sem ég fram kvæmdi með al íbúa og við töl um við íbúa svo dæmi séu tek in,“ seg ir Sig ur steinn. Í nýju skipu lagi Sig ur steins legg­ ur hann m.a. til að Kveld úlfs völl ur í hjarta bæj ar ins fái upp reisn æru. Berugat an, sem end ar í botn langa aft an við völl inn teng ist Borg ar­ braut inni sem ein stefnu­vist gata. Rým in sem þá skap ist milli gatn­ anna verði fjöl nota gras völl ur og torg fyr ir hin ýmsu til efni, eins og til dæm is ný af staðna Sauða messu. Sig ur steinn legg ur einnig til að þjóð veg ur eitt eigi á fram að liggja í gegn um Borg ar nes en ekki á upp­ fyllt um vegi með fram suð ur strönd Borg ar ness eins og nú ver andi á form gera ráð fyr ir. Þar mælist hann til að gert verði hring torg litlu aust ar við verk smiðju Lím tré/Vír net og yrði veg ur inn frem ur aflíð andi frá því sem nú er að hring torgi. Þá legg­ ur Sig ur steinn til að gerð verði brú á nyrðri brú ar fyll ing unni yfir Borg­ ar fjörð svo nátt úru leg ir straum ar frá Hvítá kom ist að Borg ar nes höfn. Sig ur steinn seg ir að með þessu ber ist straum ar frá Hvítá í gegn­ um Borg ar nes höfn sem geri það að verk um að aur hreins ist bet ur í kring um Brák ar eyj ar á Brák ar polli. Þetta muni auð velda fram kvæmd­ ir við Borg ar nes höfn og tryggja bet ur um svif smá báta sjó manna í höfn inni. Hug mynd ir sem þess­ ar og fleiri frum leg ar gef ur að líta á sýn ing unni. Hann sér fyr ir sér að heilla væn leg ast væri að virkja í bú­ ana og gera skipu lag ið meira snið ið að ein stak ling num en ekki bíln um, eins og þró un in hef ur ver ið síð ustu ára tugi. Sig ur steinn seg ist á nægð ur með að hafa náð þess um á fanga við rann sókn ina og von ast til að flest ir sjái sér fært að skoða sýn ing una sem opin verð ur fram til 28. októ ber nk. frá mið viku dög um til sunnu daga frá kl. 11­16. Sig ur steinn býst við að bjóða upp á leið sögn um sýn ing una fyr ir gesti og verð ur leið sögn laug­ ar dag inn 20. októ ber klukk an 16. Þó býst hann við því að vera meira og minna í Gamla mjólk ur sam lag­ inu með an á sýn ing unni stend ur og veita þá leið sögn sem þurfa þyk ir. hlh Handverk og list á Vesturlandi Sköp un in er skemmti leg ust Rætt við El ísa betu Árna dótt ir hand verks konu í Grund ar firði El ísa bet Árna dótt ir í Grund ar firði, eða Elsa eins og hún er oft ast köll­ uð, hef ur und an far ið ver ið að fram­ leiða hina ýmsu hluti úr feld um og skinn um dýra líkt og for feð ur okk ar gerðu löng um. El ísa bet fet ar í fót­ spor þeirra og vinn ur auk þess mik ið af hand verki úr ull og laxa roði. „Ég vinn mest úr laxa roði og hef ver ið að gera mik ið af arm bönd um og ólum und an far ið. Upp haf ið af þessu var að ég hætti að vinna og þá þurfti mað ur að fara að gera eitt hvað með hönd­ un um svo tím inn liði. Þá fór ég að prjóna tösk ur sem ég þæfði munst ur í. Ég breytti að eins til og fór að fikra mig á fram og byrj aði að gera lok á tösk urn ar úr roði. Af klipp urn ar af roð inu voru svo mikl ar að ég fór að fikta við að gera arm bönd úr roð inu og upp úr því fór ég að gera háls men og ým is legt ann að. Ég er líka byrj uð að nota lamba gæru sem lok á tösk­ urn ar sem ég prjóna,“ seg ir Elsa. Leynd ir hæfi leik ar komu í ljós Vör urn ar henn ar Elsu hafa ver­ ið til sölu í hand verks mark að in um í Grund ar firði síð ast lið in tvö sum­ ur. Ekki er langt síð an Elsa byrj­ aði að vinna við hand verk ið. „ Þetta byrj aði bara eins og ég segi, með gamni og fikti, en þetta hef ur hlað­ ið al veg ó trú lega mik ið utan á sig. Það eru um fjög ur ár síð an ég byrj­ aði að vinna í tösk un um og um þrjú ár síð an ég byrj aði að gera skart­ grip ina,“ seg ir Elsa. Hún hafði ekki unn ið mik ið við hand verk í mörg ár áður en hún hætti á vinnu mark að in­ um. „Það var mjög tak mark að hvað ég hafði ver ið að gera í hand verk­ inu áður en ég byrj aði. Ég var alltaf vinn andi og mað ur sinnti þessu ekk­ ert. Þeg ar ég fór að fikta við þetta núna komu í ljós leynd ir hæfi leik­ ar sem ég var búin að gleyma. Mér finnst yf ir leitt skemmti leg ast að vinna við að skapa eitt hvað sjálf. Ég er voða lega lít ið fyr ir að fara eft­ ir upp skrift um eða slíku. Af öll um mín um vör um eru ekki marg ar sem eru eins, flest ir hlut irn ir eru ein stak­ ir,“ seg ir Elsa. Auk þess að fram leiða skart gripi og tösk ur hef ur Elsa fram leitt þæfð­ ar ull ar húf ur, belti úr fisk roði og skreytt hulst ur utan um vasa pela. Einnig hef ur hún tek ið að sér sér­ verk efni fyr ir ein stak linga og sam­ tök. „Ég hef ver ið að vinna verk efni fyr ir Soroptim ista úr laxa roði. Fyr ir þann fé lags skap er ég að gera barm­ merki og háls menn. Þau er ein ung is seld inn an fé lags ins til fé lags manna og eru kom in út um all an heim, því Soroptim ist ar eru al þjóð legt líkn ar­ fé lag,“ seg ir Elsa. Mág kona henn­ ar hef ur einnig ferð ast víða er lend­ is þar sem hún hef ur ver ið að selja fyr ir Elsu. Með sölu mág kon unn ar og merkj um Soroptim ista hafa verk Elsu far ið víða um heim. „ Þetta hef­ ur vak ið mikla at hygli og ver ið mjög vin sælt,“ seg ir Elsa. Á stríða að vinna úr roð inu Elsa vinn ur roð ið ekki sjálf held ur kaup ir það til bú ið. „Ég panta roð­ ið frá Sjáv ar leðri á Sauð ár króki. Það verð ur hálf gerð á stríða að vinna úr roði. Það er al veg gríð ar lega skemmti legt og þetta er al veg ó skap­ lega gott efni og auk þess er hægt að fá þetta í öll um hugs an leg um lit­ um nú orð ið,“ seg ir Elsa. Hún hef ur aldrei aug lýst vör ur sín ar sér stak lega en þó hef ur sal an á þeim geng ið vel. „ Þetta hef ur geng ið al veg ó trú lega vel. Ég hef reynd ar ein ung is ver­ ið að selja hérna niðri í hand verks­ mark aði og það hef ur geng ið mjög vel. Skemmti ferða skip in skila auð­ vit að sínu og það hef ur ver ið mik ið um ferða menn í sum ar.“ Elsa vill fram leiða gæða vöru. „Ég hef ekk ert mennt að mig í þessu, held ur er ég bara að „ama tör ast,“ eins og mað ur seg ir, ég þreifa mig á fram í þessu. Ég er nú ekki mjög af­ kasta mik il en legg mik ið upp úr því að gera vand aða vöru og hef feng ið gott orð á mig fyr ir það,“ seg ir Elsa. Marga virð ist vanta nokkra við bót­ ar klukku tíma í sól ar hring inn og þar er Elsa eng in und an tekn ing. „Mað­ ur er í svo miklu öðru að ég hefði gott af meiri tíma. Ég myndi gjarn­ an vilja sinna þessu al far ið en það er margt sem ég er í. Ég hef séð um leik fimi eldri borg ara í um 14 ár, á sumr in hef ég ver ið með sund tíma tvisvar sinn um í viku og ég hef um­ sjón með handa vinnu eldri borg ara. Því til við bót ar hef ég ver ið mjög virk í öllu fé lags starf inu hjá Fé lagi eldri borg ara þannig að það er alltaf mjög mik ið að gera hjá mér,“ seg ir Elsa að lok um. sko El ísa bet Árna dótt ir er hér með henni Birtu. Elsa ger ir margs kon ar arm bönd og háls men úr laxa roði og silfri. Húf ur og tösk ur úr ull og roði eru það sem Elsa byrj aði að gera eft ir að hún sneri sér að hand verk inu af krafti. Lit irn ir fá að njóta sín í verk um Elsu. Lauf mynstr in eru mjög vin sæl í bæði arm bönd um og háls men um. Sýn ing in Borg ar byggð ung ar opn uð Skoða má stórt og mik ið lík an af nýju Borg ar nesi á sýn ingu Sig ur steins. Ljósm. hlh. Sig ur steinn Sig urðs son arki tekt seg ir gest um frá hug mynd um sín um. Ljósm. Guð rún Jónsd.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.