Skessuhorn - 06.03.2013, Síða 7
Framkvæmdastjóri
stjórnsýslu- og ármálasviðs
Í stöðu framkvæmdastjóra stjórnsýslu og ármálasviðs er leitað að metnaðar-
fullum stjórnanda sem hefur hæfni til að byggja upp vandaða stjórnsýslu þar
sem lögð er áhersla á góða stjórnarhætti og fagleg vinnubrögð.
Framkvæmdastjóri er staðgengill bæjarstjóra og hefur yrumsjón með þjónustu
bæjarskrifstofu til bæjarstjóra, bæjarfulltrúa, ráða og nefnda auk stoðþjónustu til
stofnana sveitarfélagsins.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
• Undirbúningur mála og eftirlit með að ákvörðunum bæjarstjórnar,
bæjarráðs og bæjarstjóra sé framfylgt
• Yfirumsjón með fjármálum, bókhaldi og launamálum
• Yfirumsjón með upplýsingatækni og þjónustu- og upplýsingamálum
• Ábyrgð á gerð starfs- og fjárhagsáætlana
• Upplýsingaöflun og greining á helstu rekstrarþáttum
• Yfirumsjón með reglubundnu gæða- og árangursmati
• Umsjón með samningsgerð, innkaupum og útboðum
• Mótun stefnu um upplýsingatækni
Menntunar og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg
• Reynsla af stjórnun og mannaforráðum
• Þekking og reynsla af fjármálastjórn og rekstri
• Þekking á opinberri stjórnsýslu
• Hæfni í Excel og myndrænni framsetningu tölfræðilegra gagna
• Afar góð greiningarhæfni
Framkvæmdastjóri
umhvers- og
framkvæmdasviðs
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi í starf framkvæmdastjóra umhverfis-
og framkvæmdasviðs sem er vanur framkvæmdum og hefur þekkingu og áhuga
á umhverfis- og skipulagsmálum. Um er að ræða nýtt stjórnunarstarf í kjölfar
sameiningar Framkvæmdastofu og Skipulags- og umhversstofu.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
• Undirbúningur og framlögn erinda til bæjarráðs og fagráða ásamt
eftirfylgd mála
• Gerð starfs- og fjárhagsáætlunar sviðsins
• Yfirumsjón með byggingarmálum, umhverfismálum, brunamálum og
almannavörnum
• Yfirumsjón með framkvæmdum, rekstri mannvirkja, verklegum útboðum
og gerð samninga
• Yfirumsjón með og ábyrgð á gerð aðal- og deiliskipulags skv. samþykktum
bæjarstjórnar
Menntunar og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af stjórnun og framkvæmdum
• Góð þekking á skipulags- og byggingarmálum
• Reynsla af verk-, kostnaðar- og fjárhagsáætlunum
• Þekking og áhugi á umhverfismálum æskilegur
Atvinnu- og
ferðamálafulltrúi
Leitað er að leiðtoga á sviði atvinnu- og ferðamála til að starfa við ört vaxandi
verkefni á þessu sviði. Meðal helstu verkefna er að leita nýrra tækifæra til
atvinnuuppbyggingar á Akranesi og efla ímynd Akraness sem vinsæls
áfangastaðar fyrir innlenda og erlenda ferðamenn.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
• Undirbúningur mála fyrir fagráð og eftirfylgni með framkvæmd
• Undirbúningur að stefnumótun á sviði atvinnumála í samstarfi við helstu
hagsmunaaðila
• Aðstoð við fyrirtæki við markaðssetningu og þróun vöru og þjónustu
• Ímyndar- og kynningarmál
• Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi á sviði atvinnu- og ferðamála, m.a.
með öflun verkefna og styrkja
• Gerð starfs- og fjárhagsáætlana
Menntunar og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af markaðsmálum
• Þekking og reynsla á sviði atvinnu og/eða ferðamála
• Þekking og reynsla af fjármála- og verkefnastjórnun
• Reynsla og færni í gerð styrkumsókna til innlendra og erlendra sjóða
• Afar góð hæfni í textagerð á íslensku og ensku
Gerð er krafa um eftirfarandi persónulega hæfni
fyrir allar stöðurnar:
• Mikil samskipta og samstarfshæfni
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Metnaður til að ná árangri í starfi
Ráðið er í stöður framkvæmdastjóra sviða til fimm ára í senn.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um störfin.
Nánari upplýsingar veita Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri og
Ragnheiður Þórðardóttir, þjónustu-og upplýsingastjóri í síma
433 1000.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um
störfin á heimasíðu Akraneskaupstaðar. www.akranes.is
Umsóknum um störfin þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá
og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í
starfið.
Umsóknarfrestur er t.o.m. 24. mars næstkomandi
Akranes er stærsta bæjarfélagið á Vesturlandi en þar búa
rúmlega 6600 manns. Hröð íbúafjölgun hefur verið á Akranesi
síðasta áratuginn en það tekur aðeins um 40 mínútur að
keyra frá Reykjavík upp á Akranes ef farið er um
Hvalfjarðargöng. Reglubundnar strætisvagnaferðir eru á milli
Akraness og Reykjavíkur. Á síðasta ári störfuðu um 720
manns hjá Akraneskaupstað og voru ársverkin um 470.
Yfirbragð bæjarins er friðsælt og barnvænt. Stofnanir
bæjarins eru rómaðar fyrir gott faglegt starf og íþrótta- og
menningarlíf er í miklum blóma. Frábær aðstaða er til
útivistar, meðal annars með 18 holu golfvelli.