Skessuhorn - 03.07.2013, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 27. tbl. 16. árg. 3. júlí 2013 - kr. 600 í lausasölu
Bláa kortið
borgar sig
Með Bláa kortinu færð þú afslátt hjá fjölda
fyrirtækja um allt land. Kortið færir þér
aðgang að Hringtorgi, öflugri upplýsingaveitu
sem heldur utan um öll fríðindi Bláa kortsins.
Korthöfum bjóðast betri kjör m.a. í bíó,
á veitingastöðum, af flugferðum, heilsurækt,
bensíni og ýmsum viðburðum.
Sæktu um Bláa kortið á hringtorg.is.
Á AKRANESI 4.-7. JÚLÍ
LORATADIN LYFIS
CETIRIZIN-RATIOPHARM
Fjölveiðiskipið Þórsnes II SH-209 frá Stykkishólmi strandaði síðastliðinn fimmtudagsmorgun á skeri við Skoreyjar, skammt
frá Stykkishólmi. Björgun níu skipverja gekk eins og í sögu en það voru félagar í björgunarsveitinni Berserkjum sem fyrstir
komu á vettvang, en skipverjum var bjargað yfir í bát frá Ocean Safari. Segja má að strandið og afleiðingar þess hafi farið
eins og best verður á kosið. Skipið settist á skerið, var þar allan fimmtudaginn, en náðist á flot aftur á kvöldflóðinu með öllu
óskemmt. Var Þórsnesinu siglt til heimahafnar í kjölfarið. Meðfylgjandi mynd er frá strandstað á fimmtudaginn þegar Land-
helgisgæslan kannaði aðstæður. Sjá nánar frétt og myndir bls. 12. Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson.
Tími bæjar- og héraðshátíða og
annarra mannamóta er nú upp
runninn. Um liðna helgi var t.d.
fjöldi fólks saman kominn í Ólafs-
vík og Borgarnesi þegar Ólafsvík-
urhátíðin og Brákarhátíð fóru fram.
Meðfylgjandi myndir eru af þess-
um hátíðum. Um næstu helgi verð-
ur svo margt í gangi hér á Vestur-
landi sem annarsstaðar, enda ein
stærsta ferðahelgi ársins. Nefna má
Írska daga á Akranesi sem ítarlega
er fjallað um í Skessuhorni í dag,
Fjórðungsmót hestamanna verð-
ur á Kaldármelum og Landsmót
UMFÍ á Suðurlandi.
Sjá þetta og margt fleira
í blaði vikunnar.
Fyrirtækið Ægir sjávarfang í Grinda-
vík, áður Ice-West, hefur keypt at-
vinnuhúsnæði í Ólafsvík sem áður
var í eigu og hluti af rekstri Vala-
fells ehf. Ægir sjávarfang sérhæfir
sig í framleiðslu á vörum úr þorsklif-
ur sem seld er til útflutnings. Helstu
markaðir fyrirtækisins eru Evrópa,
Bandaríkin og þá er vaxandi áhugi
í Asíu fyrir afurðunum. Ægir hefur
nú hafið uppsetningu á sambærilegri
verksmiðju í Ólafsvík. „Þetta verk-
efni hefur verið í bígerð í töluverð-
an tíma í nánu samstarfi við heima-
menn og við leggjum upp með að
fara af stað strax við næstu vertíðar í
haust. Við sjáum tækifæri til að vinna
afurðir á svæðinu sem hingað til hafa
verið fluttar annað. Með opnun
nýrrar verksmiðju erum við að auka
verðmætasköpun á Snæfellsnesi.
Þarna náum við að skapa í kringum
átta til tíu ný störf og virðisauka sem
þeim fylgir,” segir Ingvar Vilhjálms-
son framkvæmdastjóri Ægis sjávar-
fangs í samtali við Skessuhorn.
Ægir sjávarfang er samstarfs-
aðili Codlands, þar sem aðilar með
mismunandi bakgrunn koma sam-
an til að þróa og vinna verðmæti
úr aukaafurðum fiskafla. Mark-
miðið er að efla ímynd og hámarka
nýtingu á þorski. Þessi hugmynda-
fræði um þróun og nýsköpun er
drifkrafturinn í að sjá ónýtt tæki-
færi á Snæfellsnesi. „Það eru mjög
öflugar útgerðir á Snæfellsnesi,
með mikla þekkingu og reynslu
í íslenskum sjávarútvegi og okk-
ur hlakkar til að starfa með þeim,“
segir Ingvar.
sko
Bæjarhátíðir
í gangi
Ægir sjávarfang opnar
verksmiðju í Ólafsvík
Í þessu húsnæði í Ólafsvík verður verksmiðjan starfrækt. Ljósm. af.
*jafngildi 20% afsláttar.
TAX FREE
DAGAR
AFNEMUM
VIRÐIS
AUKASKATT*
af öllu vörum á
Írskum dögum
4.6. júlí