Skessuhorn - 03.07.2013, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013
Góð stemning var á Brákarhátíð-
inni sem fór fram um síðustu helgi
í Borgarnesi. Fjöldi fólks lagði leið
sína í bæinn til að taka þátt í hátíð-
inni sem að þessu sinni var hald-
in í fimmta sinn. Meðal dagskrár-
atriða voru útitónleikar, skemmti-
siglingar, útimarkaður, Brákar-
hlaup, víkingaleikir, listgjörning-
ar, skrúðgöngur og loks stórdans-
leikur með Sálinni hans Jóns míns
í Hjálmakletti, sem sennilega yfir
500 manns sóttu. Íbúar voru dug-
legir að skreyta hús sín í hverfalit-
um fyrir götugrillið sem fór fram á
föstudagskvöldinu í Borgarnesi og
á Hvanneyri og mátti sjá að frum-
legar og fjölbreyttar aðferðir voru
notaðar við skreytingar húsa og
gatna. Líkt og áður kepptu hverf-
in sín á milli um flottasta hverf-
ið sem sérstök dómefnd valdi og
hreppti gula hverfið í Borgar-
nesi hnossið, sem nær frá Höfða-
holtinu og upp úr, og á Hvanneyri
bláa hverfið; Túngata og Ásvegur.
Brákarhlaup þreyttu 48 keppendur
að þessu sinni og var keppt í ald-
ursflokkum í þriggja km og tíu km
hlaupum. Yfir heildina séð þótti
hátíðin takast vel og rættist veru-
lega úr veðurspá helgarinnar sem í
upphafi síðustu viku gerði ráð fyrir
votviðri. Meðfylgjandi er mynda-
syrpa frá hátíðinni.
hlh
Gleði og fjör á Brákarhátíð
Margir klæddust víkingafötum í anda Þorgerðar Brákar á hátíðinni eins og hér má sjá. F.v. Pálína Guðmundsdóttir, Ása Katrín
Jónsdóttir, Kristín Gísladóttir, Klara Ósk Kristinsdóttir, Guðfinna Gísladóttir, Elín Friðriksdóttir og Hrefna Ásgeirsdóttir.
Nokkrir af sigurvegurum í Brákarhlaupinu. F.v. Hörður J Halldórsson, Ragnheiður
Sveinbjörnsdóttir, Vigdís Hallgrímsdóttir og Kristinn Óskar Sigmundsson.
Björgunarsveitin Brák efndi til bátasiglingar fyrir gesti um Brákarsund frá gömlu
bryggjunni í Englendingavík.
Fjölmenn skrúðganga var farin frá Brákarsundi í Skallagrímsgarð, leidd af brúðunum frægu af persónum úr Egils sögu.
Fremstan má sjá sjálfan Skallagrím.
Víkingar höfðu ýmislegt til sölu og sýnis í Skallagrímsgarði.
Unga kynslóðin söng fyrir gesti Brákarhátíðar sem Ragnheiður Harpa Leifsdóttir,
sem hér sést, stjórnaði.
Leðjuboltaleikurinn í ár í Englendingavík var á milli liða stjórnar Knattspyrnu-
deildar Skallagríms og sveitarstjórnar Borgarbyggðar. Knattspyrnudeildin varð
hlutskarpari í leiknum.
Á meðan lið knattspyrnudeildarinnar brá sér í sjóinn til að þrífa af sér leðjuna
stillti lið sveitarstjórnar Borgarbyggðar sér upp í myndatöku.
Gula hverfið var valið flottasta hverfið í Borgarnesi. Ljósm. Hrafnhildur Tryggvad.
Ýmsar leiðir voru farnar í skreytingum
eins og sjá má á þessari mynd.
Ljósm. glh.