Skessuhorn


Skessuhorn - 03.07.2013, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 03.07.2013, Blaðsíða 21
21MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013 Dr. Ole Gunnar Austvik sem hélt eitt erindi á málþinginu, Ragnheiður Elín Árna- dóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra sem setti ráðstefnuna og Auður H. Ingólfs- dóttir sviðsstjóri Félagsvísindasviðs á Bifröst og skipuleggjandi ráðstefnunnar. Ljósm. bþþ. Rætt um áhrif olíuvinnslu í lögsögu Íslands Talsverðar umræður hafa ver- ið í Noregi um hvort skynsamlegt sé að opna Jan Mayen svæðið fyr- ir olíuvinnslu, þann hluta svæðis- ins sem tilheyrir efnahagslögsögu Norðmanna. Orkufyrirtæki virðast hafa meiri áhuga á öðrum svæðum, bæði í Barentssjó og við Lofoten. Togstreita ríkir milli olíuráðuneyt- is og umhverfisráðuneytis hvort eigi að opna svæðið, en sérfræðing- ar innan umhverfisgeirans óttast að áhættan sé of mikil. Þetta var meðal þess sem fram kom á ráðstefnu sem fram fór við Háskólann á Bifröst í síðustu viku þar sem fjallað var um samfélagsleg áhrif olíu- og gasleit- ar við Íslandsstrendur. Þrír norskir fræðimenn héldu erindi á ráðstefn- unni og fjölluðu um reynslu Norð- manna en í framhaldi voru inn- legg og umræður íslenskra sérfræð- inga og hagsmunaaðila um hvaða áhrif olíu- og gasleit, og hugsanleg vinnsla, gætu haft á samfélagið. Víða var komið við í umræðum á málþinginu og ljóst að mikilvægt er að skoða fjölmarga þætti til að átta sig á hugsanlegum áhrifum. Dæmi um málefni sem komu til umræðu voru áhrif á fiskveiðar og sjávarútveg, staðbundin áhrif þeg- ar nýr iðnaður bætist við á dreif- býlum svæðum og hættan á slysum eða mengunaróhöppum. Tengsl milli vinnslu jarðefnaeldsneyt- is og loftslagsbreytingar bar einn- ig á góma og þeirri spurningu var varpað fram hvort væri raunhæf- ur valkostur fyrir Ísland að ákveða að nýta ekki þessar auðlindir, jafn- vel þótt þær myndu finnast í vinn- anlegu magni. Eins og við var að búast voru skiptar skoðanir um ýmis atriði. Fundargestir voru þó flestir sam- mála um að umræða um þessi mál væri mikilvæg, ekki bara inn- an fræðasamfélagsins, heldur sem hluti af opinberri þjóðfélagsum- ræðu og þeirri spurningu var velt upp í lokin hvað hægt væri að gera til að halda umræðunni áfram. mm Helgina 20.-21. júlí nk. fer fram hinn árlegi sveitamarkaður íbúa á sunnanverðu Snæfellsnesi í félags- heimilinu Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi. Þetta er í sjötta sinn sem markaðurinn fer fram en efnt var til hans í fyrsta skipti árið 2007. Að sögn Margrétar Bjarkar Björnsdóttur sem vinnur með und- irbúningsnefnd markaðarins hefur hann stækkað ár frá ári og er orðinn að ómissandi lið í dagskrá sveitunga og gesta. „Margir eru farnir að nota þetta tækifæri til að koma í heim- sókn í sveitina, en sem fyrr verða seljendur margir og koma víða að úr sveitunum. Gestum hefur fjölg- að með árunum og hefur sala á vörum aukist í takt við það. Þann- ig lá við vöruskorti í fyrra og hvetj- um við því fólk hér í sveitunum til að vera með, leggja sitt af mörkum og taka þátt í sveitamarkaðinum,“ segir Margrét Björk. Dagskrá helg- arinnar er enn í mótun og verður kynnt innan skamms að sögn henn- ar, en gert er ráð fyrir að báða dag- ana fari markaðurinn fram frá kl. 12-18. Margrét Björk segir veltu síðasta sveitamarkaðar hafa verið tæplega ein milljón króna sem sýni svart á hvítu að hann njóti bæði vinsælda og skipti íbúa máli. „Til þess að fagna þessum áfanga langar okk- ur því til að taka sveitamarkaðinn skrefi lengra í ár, kalla fleira fólk til liðs við okkur og bæta ýmiss konar dagskrá við markaðshaldið og gera sveitamarkaðinn okkar að nokkurs konar „sveitahátíð.“ Fjöldi annarra viðburða verða því á dagskránni. Ég minni á að sölu- og kynningapláss er ókeypis þar sem sveitamarkað- urinn fjármagnar sig með kaffi- og vöfflusölu en fjöldi þátttakenda takmarkast við húspláss. Viljum við þess vegna biðja áhugasama um að hafa samband við okkur í undir- búningsnefndinni og skrá sig tím- anlega til þátttöku á markaðinum,“ segir Margrét Björk en auk bænda og búaliðs býðst félögum og fyrir- tækjum á svæðinu einnig að koma og kynna starfsemi sína. Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig til þátttöku á sveitamarkaðnum geta gert það með því að hafa sam- band við Margréti Björk á netfang- inu maggy@ssv.is eða í símum 435- 6699 og 864-2955. Nánari upplýs- ingar um sveitamarkaðinn má finna á vefsíðunni sveitasiminn.is hlh Sveitahátíð og markaðsstemning á Breiðabliki í júlí Frá sveitamarkaðinum í Breiðablik.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.