Skessuhorn - 03.07.2013, Blaðsíða 23
23MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013
HÁÞRÝSTIDÆLUR
Í MIKLU ÚRVALI
Dynjandi hefur mikið úrval af vatns-,
borholu-, og háþrýsti dælum af
ýmsum stærðum og gerðum.
Hafðu samband og við aðstoðum þig.
Dynjandi örugglega fyrir þig!
Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is
S m á a u g l ý s i n g a r - a t b u r ð a d a g a t a l - f r é t t i r
www.skessuhorn.is
Íþróttafélagið Snæfell mun að þessu
sinni sjá um framkvæmd bæjarhá-
tíðarinnar Danskra daga í Stykkis-
hólmi, sem haldnir verða helgina
16. – 18. ágúst. Hátíðin verður
haldin með svipuðu sniði nú í sum-
ar og síðustu ár sem skemmtun fyr-
ir alla fjölskylduna og allan aldur.
Að þessu sinni verður hátíðin þó
auglýst meira en áður og vilji er fyr-
ir því að fá fleira fólk í Stykkishólm
á hátíðina. Nú stendur yfir vinna að
dagskrá helgarinnar en meðal þess
sem rætt hefur verið um er stubba-
hlaup, kvöldvaka, ball með Páli
Óskari, skottmarkaður, brekku-
söngur og svo verður flugeldasýn-
ingin og „aksjon“ Lionsmanna sem
fyrr.
Ingi Þór Steinþórsson er í verk-
efnastjórateyminu ásamt Þóru
Margréti Birgisdóttur. „Það leit út
fyrir að hátíðin yrði ekki haldin í
ár. Okkur fannst það synd og við
ákváðum að stýra þessu og feng-
um framkvæmdastjórann í fyrra
með okkur í lið. Ég var svo annar
framkvæmdastjóranna þar áður. Ég
teldi það slæmt fyrir Stykkishólm
ef hátíðin hefði ekki farið fram og
margir hefðu séð eftir henni,“ seg-
ir Ingi Þór. Á föstudeginum verða
hverfahátíðarnar en núna í sum-
ar geta þeir íbúar sem vilja farið á
miðsvæðið þar sem sameiginlegt
grill verður og fjöldasöngur. „Gest-
ir geta einnig komið þangað og tek-
ið þátt í stemningunni,“ segir Ingi
Þór. Dagskrá hátíðarinnar verður
eins og fyrr segir fjölskylduvæn og
nóg um að vera fyrir alla meðlimi
fjölskyldunnar. „Við vonum að fólk
komi og eigi eina góða helgi með
okkur hérna í Stykkishólmi,“ segir
Ingi Þór að endingu.
sko
Frá Dönskum dögum 2012.
Snæfell mun sjá um fram-
kvæmd Danskra daga
-hvernig sem viðrar
Skel
Útivistarbuxur