Skessuhorn


Skessuhorn - 03.07.2013, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 03.07.2013, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013 Fjórða sumarið í röð stendur Sig- rún Hjartardóttir í Hátúni fyr- ir markaði á hlaðinu við Deild- artunguhver í Reykholtsdal. „Við erum með rútu fulla af flottum handgerðum vörum úr Borgar- firði, svo og hverabrauðið vin- sæla, sultur, flatkökur, kanilsn- úða, kleinur og grænmeti beint úr gróðurhúsum héraðsins. Fal- legir skartgripir og flottar bækur, bæði notaðar og nýjar eru í boði, góðar í sumarfrís lesturinn,“ seg- ir Sigrún. Markaðurinn er opinn á hverjum degi frá klukkan 10-17. Sigrún segir að umferð í Borg- arfirði hafi verið mikil í júní. „Við erum að sjá fólk, og þá einkum í hópferðum, frá fleiri löndum en áður og það er greinileg aukning í umferð,“ segir hún. mm Íslandsmót fullorðinna í hestaí- þróttum fer fram í Borgarnesi dag- ana 11.-14. júlí og er það þrítug- asta og sjötta í röðinni. Frítt verður inn á mótið og verður hægt að sjá glæsta gæðinga ásamt knöpum. A- úrslit munu fara fram á sunnudegi og verður þeim sjónvarpað beint á RÚV. Vakin er athygli á auglýst- um lágmarkseinkunnum til að geta skráð sig til leiks. Skráningarfrest- ur rennur út 2. júlí og fer skráning Aukin umferð ferðafólks við Deildartunguhver Talið er að á annað hundrað þúsund ferðamanna komi við og skoði Deildartunguhver á ári hverju. Ljósm. fh. Systurnar Lilja Gréta og Jara frá Deildartungu koma stundum og selja myndir sem þær mála sjálfar og svaladrykk. Handverk úr Borgarfirði er til sölu í markaðinum við Deildartunguhver. Íslandsmót í hestaíþróttum í Borgarnesi – Faxi 80 ára fram í gegn um Sportfeng. Leið- beiningar og fleira má svo finna á heimasíðu mótsins http://www.is- landsmotlh.is/ Undirbúningur fyrir mótið er í fullum gangi og gengur vel. Mótið verður haldið á félagssvæði Skugga sem hefur verið í uppbyggingu und- anfarin ár og hefur aukinn kraftur verið lagður í uppbygginguna nú í vor og við allan frágang svæðisins. Áhersla verður lögð á að hafa létta og skemmtilega stemningu yfir mótinu. Þétt dagskrá mun verða á keppnisvellinum og munu veitingar vera í boði í félagsheimili Skugga, sem er vel staðsett hvað út- sýni varðar yfir keppnisvöllinn. Ástæða þess að Hestamanna- félagið Faxi tók þá ákvörðun að bjóða sig fram sem mótshaldari í ár var sú að félagið er 80 ára á árinu. Ákvað því stjórn félagsins í tilefni þess að taka að sér að halda Íslands- mót í hestaíþróttum, en Íslandsmót í hestaíþróttum var síðast haldið í Borgarnesi árið 1995. Hestamannafélagið Faxi á sér langa sögu að baki. Árið 1941 reið stjórn Faxa, ásamt fleirum, á Þing- velli þar sem lagður var grunnur að stofnun Landssambands hesta- manna og sat félagsmaður í Faxa í undirbúningsnefnd fyrir stofn- unina og seinna í stjórn sambands- ins. Faxi státar því af því að hafa verið stofnfélagi í Landssambandi hestamanna. Það má geta þess að það er ekki einungis Faxi sem stendur að mótinu heldur koma önnur hesta- mannafélög að undirbúningi og vinnu við mótið. Þar má fyrst og fremst nefna hestamannafélagið Skugga í Borgarnesi auk annarra og eiga þau félög miklar þakkir skildar fyrir allan stuðninginn. Það er ljóst að Íslandsmót í hesta- íþróttum er umfangsmikið og krefj- andi verkefni en þó verkefni sem félagið hefur einsett sér að leysa vel úr hendi. Það er heldur ekki að ástæðulausu sem félagið tekst á við þetta verkefni núna í ár, á stóraf- mælisárinu þegar uppbygging hef- ur verið í gangi á félagssvæðinu og öflugt fólk í forsvari sem og annars staðar í félagsstarfinu. Faxi lítur svo á að það sé félaginu mikill heiður að fá verkefninu úthlutað og hefur einsett sér að standa vel að því sem og að búa mótinu myndarlega um- gjörð sem nýtist félaginu sem fram- tíðar mótsstaður. Framkvæmdarnefnd hefur kom- ið af stað heimasíðu fyrir mótið og er slóðin; www.islandsmotlh.is. Á síðunni munu vera settar inn frétt- ir og upplýsingar af stöðu mála nú þegar nær dregur sem og á mótinu sjálfu. Við í framkvædarnefnd Íslands- mótsins í Borgarnesi hvetjum sem flesta til að fjölmenna á mótsstað til að sjá færustu knapa landsins tefla fram sínum bestu hestum. Myndirnar sem prýða fengust hjá Ingimundi Einarssyni. Það var faðir hans Einar Ingimundarson heitinn sem tók myndirnar á sínum tíma á Faxaborg. Fh. Framkvæmdarnefnd Íslands- móts í hestaíþróttum, Birna Tryggvadóttir Thorlacius Faxi hefur ávallt verið framsækið félag og hélt .a. á sínu fyrsta starfsári kapp- reiðar. Gamla félagssvæði Faxa var á bökkum Hvítár og var það svæði kallað Faxaborg. Hið glæsilega mótssvæði á Faxaborg var úrelt á síðasta áratug 20. aldar. Hafa nú hestamannafélögin Faxi og Skuggi einbeitt sér að uppbyggingu að sameiginlegu svæði í Borgarnesi þar sem sameiginleg reiðhöll reis árið 2010 og hlaut hún nafnið Faxaborg. Faxaborg var glæsilegt mótssvæði á sínum tíma þar sem haldin voru félagsmót og fjórðungsmót, landsþing LH auk Íslandsmóts í hestaíþróttum. Þegar farið var að undirbúa Íslands- mót í hestaíþróttum 2013 sem haldið verður af Hestamannafélaginu Faxa í Borgarfirði kom fram sú hugmynd að láta gera lógó fyrir mótið og að á því yrði eitthvað sem minnti á héraðið, eitthvað sem fólki dettur í hug þegar það heyrir Hestamannafélagið Faxi nefnt. Á meðal okkar kom fram sú hugmynd að hafa þá félaga Gísla Höskuldsson á Hofstöðum (nú Uppsölum) og hest hans Hauk frá Hrafnagili á lógóinu. Þá þarf vart að kynna, en Gísli er heiðurs- félagi Faxa og muna margir eftir honum ríðandi á höfðingjanum Hauki frá Hrafngili fæddum 1981. Haukur var undan Gáska frá Hofsstöðum og Mósu frá Hrafnagili. Hann var gráhöttóttur á lit og varð grár eftir því sem árin liðu. Gísli keypti Hauk 4 vetra gamlan og var hann viðkvæmur í umgengi alla tíð og einkenndist þeirra samvinna af gagnkvæmu trausti. Þeir unnu töltkeppni á Kaldármelum 1992 með miklum yfirburðum og var honum ekki teflt aftur fram í keppni, en þeir félagar komu fram á reiðhallarsýningu eftir það. Haukur var felldur haustið 2012 og er hann heygður heima að Uppsölum þar sem Gísli og kona hans Kristfríður búa. Þessar heimildir um Gísla og Hauk er samantekt af heimasíðunni; www.hrafnagil.is Höfundur lógósins er Þórarinn Svavarsson grafíker og skógarbóndi á Tungufelli í Lundarreykjadal.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.